Þjóðviljinn - 16.08.1975, Side 9
Laugardagur 16. ágúst 1975 ,ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Birta Fróðadóttir
Minning
Fyrstu kynni okkar Birtu i
Dalsgarði standa mér nú svo ljós
fyrir hugskotssjónum um leið og
ég frétti um lát hennar.
Það var rétt eftir striðið og fólk
var að streyma heim eftir
margra ára útlegð. Þar á meðal
var Jóhann Jónsson, nýgiftur
danskri konu, góðum kvenkosti
var okkur sagt. Mér var boðið
heim til tengdaforeldra hennar,
Sigriðar Pétursdóttur og Jóns Jó-
hannssonar skipstjóra á Stýri-
mannastig 6, til að heilsa uppá
þau hjónin og bjóða Birtu vel-
komna til islands. Hún stóö þarna
i boröstofunni há og reisuleg og
svo fersk á svipinn i rauð- og hvit-
röndóttum kjól. Ég vissi að hiin
var bæði útlærður húsgagna-
smiöur og innanhússarkitekt og
sumir sögðu aö hún ætti 25 ibúöir i
Kaupmannahöfn! Hún hafði lika
átt heima við eina finustu götu
Evrópu iheilt ár, i skandinaviska
klúbbnum við via Condotti i
Rómaborg. Birta var ein sjö
barna Gerðu og Fróða Sörensens
hagfræðings, sem lika var land-
búnaðarkandfdat og kennari við
Landbúnaðarháskólann i Kaup-
mannahöfn, auk þess sem hann
rak umfangsmikla gróðrastöð i
Lyngby. í foreldrahúsum hét hún
Birthe Sörensen, en hér á landi
vildi hún heita Birta og lagði stolt
sitt f að vera Fróðadóttir, föður
sinum til mikillar ánægju, að sagt
var.
Ég varð heilluð af þessari
stúlku og öilu I kringum hana.
Aldrei hafði ég séð eins smekk-
lega og fallega ibúð og þá sem
hún var að innrétta þarna á kvist-
inum fyrir sig og mann sinn.
Aður en varði var hún búin að
taka að sér að innrétta framtiöar-
húsið mitt að Gljúfrasteini. Vik-
um saman hittumst við nærri
daglega. Við fórum til Karólinu
vefkonu og Birta bjó i hendur
henni áklæöi, salúnsábreiður og
gluggatjöld fyrir allt húsið,
teiknaði og valdi húsgögn fyrir
smiöina i Björk, valdi liti á vegg-
ina og útvegaði búshluti. Það var
haldiö reisugildi þar sem við vor-
um bara tvær kvenna og áður en
varði var komið fullbúið hús á
hólinn.
Litlu siðar fluttu þau Birta og
Jóhann sjálf uppi Mosfellssveit, I
Reykjahlið, þar sem Jóhann tók
við forstöðu Garðyrkjubús
Reykjavikur sem þá var þar, en
setti svo upp sjálfstætt
garðyrkjubú, Dalsgarð. Börnin
urðu 8 svo starfið og áhugamálin
urðu önnur. Enga mömmu þekkti
ég sem kunni betur að halda
barnaafmæli eða jólagleði með
alskonar föndri, leikjum og góð
gæti.
Það var unun að starfa með
Birtu i margskonar samvinnu
fyrir Kvenfélag Lágafellssóknar,
hvortheldur það var að skreyta
jólatré I Hlégarði eða útbúa
veitlngar handa réttarköllum i
Hafravatnsrétt. Þá var hún vön
að saungla dálitið laglaust, og
gekk undan henni einsog vél, en
þó vann hún rólega og fyrir-
hafnarlaust og einhvernveginn
fallegar og betur en flestir aðrir.
Húnvarlikasúkona sem átti einn
kjól meðan aðrar áttu marga, en
alltaf var hún kvenna best klædd
á mannamótum. Það var hún lika
2 dögum fyrir andlát sitt, þegar
hún var heima hjá mér i smá
fagnaði, siðfáguð kurteis og
hjartahlý að vanda, i fallega
irska handofna kjólnum sinum.
Þó klæddi hún sig þá upp af
sjúkrabeði.
Nú verða gönguferðir okkar
Birtu ekki fleiri á Mosfells-
sveitarveginum, en oft var það
svo að við sáumst ekki alt
sumarið, en fórum svo að hittast
undir haustið og áttum þá veginn
fyrir okkur á vetrarmorgnum, i
rignlngu snjó og stundum góðu
veðri.
Blessuð sé minning hennar.
Auður Sveinsdóttir,
Gljúfrasteini
Hárgreiðslustofa
Tilboð óskast i leigu á aðstöðu fyrir hár-
greiðslustofu i Borgarspitalanum.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri
Borgarspitalans. Tilboð sendist sama
aðila fyrir 1. sept. n.k.
Reykjavik, 14. ágúst 1975
BORGARSPÍTALINN
Hafnarf jörður —
Lögtaksú rsku rðu r
Samkvæmt beiðni bæjarlögmannsins i
Hafnarfirði úrskurðast hér með, að lögtök
geti farið fram vegna gjaldfallinna en ó-
greiddra útsvara og aðstöðugjalda, álögð-
um i Hafnarfirði 1974 og 1975, gjaldfölln-
um, en ógreiddum fasteignagjöldum á-
lögðum 1975 i Hafnarfirði, vatnsskatti
samkvæmt mæli. Gjaldföllnum en ó-
greiddum hafnargjöldum áranna 1974 og
1975 til hafnarsjóðs Hafnarfjarðar.
Lögtök á ábyrgð gerðarbeiðanda mega
fara fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
úrskurðar þessa.
Hafnarfirði 13. ágúst 1975,
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
...... r.'
ÚTYARPIÐ:
Tónlistar-
flutningur til
Fjölbýlishús
Stofnanir
Sveitarfélög
Verktakar
umrœðu, í
Hálftímanum
í kvöld
Bein lína um tónlistarmál á eftir
i kvöld kl. 19.30 er Hálftiminn á
dagskrá útvarpsins. Aö þessu
sinni fjalla stjórnendur þáttarins,
þeir ingólfur Margeirsson og
Lárus Óskarsson um tónlistar-
flutning i Rikisútvarpinu. Til
skrafs við sig um þau mái fá þeir
Þorstein Hannesson, tónlistar-
stjóra, Jón Þórarinsson, forstöðu-
mann Lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins, og Atla Heimi
Sveinsson, tónskáld.
Að Hálftimanum loknum sitja
þessir menn fyrir svörum á
Beinni linu, sem stjórnendur
Hálftimans hafa fengið Arna
Gunnarsson fréttamann til þess
aö stýra. Beinu linunni er ætlaður
sá timi i dagskránni sem Þor-
steinn Hannesson hefur venjulega
á laugardögum fyrir Hljómplötu-
rabb sitt. Hlustendur geta hringt
og spurt i sima útvarpsins 22260
meðan á útsendingu stendur.
KENNARAR -
KENNARAR
2 kennara til almennra kennslustarfa
vantar að Barnaskóla Vestmannaeyja.
Húsnæði fyrir hendi, einnig ódýrt fæði ef
óskað er. Upplýsingar gefur Reynir
Guðsteinsson skólastjóri i sima 98-1944 eða
98-1945.
Skólapefnd
húsiö
Þetta er orðsending til þeirra, sem
eru að leita aðteppum í hundruðum
eða þúsundum fermetra.
Komið eða hringið — við bjóðum
fjölmargar gerðir, ýmist af lager
eða með stuttum fyrirvara.
Úrvalsteppi með mikið slitþol frá
Sommer, Kosset, Marengo,
Manville og Weston.
Og greiðsluskilmálarnir — þeir eru
við allra hæfi.
Við sjáum um máltöku og ásetn-
ingu.
Teppadeild • Hringbraut 121 • Sími 10-603