Þjóðviljinn - 24.08.1975, Page 3
Sunnudagur 24. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
ÞORSTEINN JÓNSSON:
kvikmyndakompa
SPJALLAÐ VIÐ
MAGNÚS JÓNSSON
UM KVIKMYNDINA
EFTIR ALDRI
Þegar fréttist út um allan heim,
að meira en fimmtiu þúsund full-
orðnir islendingar hefðu skrifað
undir beiðni um áframhaldandi
veru erlends hers i landi sinu, hélt
sama þjóð mikinn fagnað yfir
þjóðerninu. 1 tilefni af ellefu alda
byggð var velflestu fólki á land-
inu safnað saman á Þingvöllum
og auk þess i hverju einasta
byggðalagi á landinu til þess að
hlusta á áróður um það, hversu
gott sé að vera islendingur,
hversu hraustir og menntaðir is-
lendingar séu, hversu gott landið
sé og rikisstjórnin, bæjarstjórnin,
hreppsnefndin og siðast en ekki
sist hversu sameinuð þjóðin sé.
Til þess að annað sannaðist ekki
var lögregla fengin til að loka inni
það fólk, sem hefði einhvern ann-
an boðskap og áfengisdrykkja
bönnuð! Listamenn og iþrótta-
menn voru lokkaðir til þess að
taka þátt i þessum skripalátum
fyrir fé eða frægð, þar á meðal
kvikmyndagerðarmenn.
Magnús Jónsson tók að sér að
gera tvær kvikmyndir um þjóð-
hátiðina i samvinnu við sjónvarp-
ið, aðra eftir hugmyndum sjón-
varpsins og hina eftir eigin hug-
myndum. Þá fyrri væntanlega til
þess að koma áróðrinum á fram-
færi við heimilin en þá seinni til
þess að sýna bakhlið þjóðhátiðar-
innar. Það var bakhliðin, ERN
EFTIR ALDRI, 27 minútna lit-
kvikmynd, sem frumsýnd var I
Laugarásbiói fyrir nokkru.
Myndin verður almenningi til
sýnis mánudaginn 25. ágúst á
klukkutima fresti frá klukkan
16:00 til klukkan 23:00.
Yrkisefni höfundarer það, hvað
sameini islensku þjóðina eða
hvort nokkuð geri það yfirleitt.
Hvorki þjóðhátiðarnefndir né
sjónvarp þjóðarinnar hefðu óskað
eftir þeirri niðurstöðu, sem höf-
undurinn kemst að, en hinar kvik-
myndirnar, sem gerðar voru og
verða um þjóðhátiðir (ekki færri
en tiu myndir) bregðast vist,
sennilega ekki ætlunarverki sinu,
þótt myndin eftir hugmyndum
sjónvarpsins, sem sýnd var fyrir
lokun i sumar, hafi verið nokkuö
nálægt þvi. Þessi ljóti andarungi
Magnúsar er þó ekki beinlinis á-
róðursmynd til þess að sannfæra
fólk um ákveðna afstöðu heldur
er hún fremur skopmynd um
þessa undarlegu þjóð.
Fyrsti kaflinn er yfirlits- og
svipmyndir frá Þingvöllum,
sýndar framanaf i gegnum
niaska af landinu. Yfir myndun-
um heyrast raddir, sem lesa upp
gamlar lýsingar á þjóðinni. Þar
með er myndinni gefinn ákveðinn
útvarpsstill, sem helst nokkurn
veginn til loka. Efnið er að miklu
leyti borið uppi af textanum og
myndirnar fremur sem skraut,
enda eru viöa erfiðar tengingar i
myndinni. Þar við bætist að töku-
menn eru margir og með mis-
munandi handbragð. Verður það
ásamt þvi, hversu háð myndin er
textanum, til þess að kvikmynda-
tökuna skortir heildarsvip.
Miðkaflinn leitast við að benda
á andstæður i fari þjóðarinnar
(sumar reyndar nokkuð sjálf-
sagðar) til þess að sýna hversu
grunnt sé á sundurlyndinu 'og
einnig raunveruleikanum á bak
við glansmyndina af islending-
um. t andstæðuleitinni er einhver
ákafi, sem gerir myndina svolitið
brokkgenga og ruglingslega og
dregur úr sannfæringarmætti
hennar. Höfundur er nálægt þvi
að skjóta yfir markið á stöku
stað. Þó má segja að vantað hafi
ýmsan merkan ágreining, til
dæmis verkalýðsbaráttu. Mót-
sagnirnar eru margar hverjar
skemmtilegar og gera atriði
fyndin, en rökrænt samhengi
milli þeirra stundum óljóst og
kemur það óneitanlega niður á
heildarmyndinni. Þegar kemur
að lokakaflanum er búið að dreifa
athygli áhorfandans i margar átt-
ir og má kannski segja, að hann
taki við niðurstöðunni með opnum
hug, allavéga er ekki um að ræða
sterk tengsl milli niðurstöðunnar
og efnisins á undan, þannig að
fyrri hluti myndarinnar undir-
byggi niðurstöðuna. Þaö er rifist
út af landi, trú, pólitik, drykkjar-
föngum, rafmagni o.s.frv. Höf-
undur beitir útilokunaraðferðinni
og kemst að þeirri niðurstöðu, að
hið sameiginlega séu góðir vinir á
Miðnesheiði og velsældin, sem
þeim fylgi. Semsagt gamanleik-
ur, sem fær áhorfandann til að
velta vöngum og skammast sin
fyrir að gleðjast með hetjunni,
þjóðinni.
Kostir myndarinnar eru þeir,
að hún er likleg til að vekja efa-
semdir hjá mörgu fólki um titt-
nefnd hátiðahöld og innihald
þeirra. Auk þess er hún ágæt
skemmtun á köflum og hugmynd-
in skemmtileg. Mest er þó um
vert að hún er mótvægi við hina
hefðbundnu hól- og blablaaðferð i
islenskum kvikmyndum og sjón-
varpi. Það er óskemmtilegt, ef
satt er, að sjónvarp þjóðarinnar
hafi ekki rúm i sínu hjarta fyrir
efni af þessu tagi. Myndin hlýtur
að teljast óhlutdræg enda greinir
hún frá ólikum og andstæðum
sjónarmiðum. Það gerir hana
einmitt svolitið ruglingslega og
kemur niður á forminu.
Eftir sýninguna...
Eftir sýningu myndarinnar
beindi ég nokkrum spurningum
til höfundarins:
— Hvern telurðu vera höfuðtil-
gang myndarinnar?
— Hún er gerð og hugsuð sem
nokkurskonar mótvægi við þessa
allsherjar sjálfumgleði, sem rikti
á þjóðhátiðarárinu. Tilgangurinn
er fyrst og fremst sá, að vekja
spurningar. Erum við svona góð
og indæl og merkileg eins og við
vorum svo ákaft inná á þjóðhátíð-
arárinu.
— Nú tókstu einnig að þér að
gera kvikmynd, sem átti að túlka
hitt viðhorfið?
— Já. Ekki endilega að túlka
hitt viðhorfið. Ég leit á mig þar
sem blaðamann. Þar er ég bara
að segja objektift frá þvi, sem
gerist.
— Telurðu það hægt?
— Já, ég tel það vel hægt. Svo
geturðu náttúrulega lika reiknað
þetta sem „skitsofreniu”. Blaða-
maður getur farið einn dag og
sagt frá umferðarslysi eða ein-
hverjum hasar og annan daginn
eitthvað allt annað. Að vinna að
þessum verkefnum samtimis
fannst mér ekki trufla mig á
neinn hátt.
— Hefurðu einhvern sérstakan
áhorfendahóp i huga?
— Nei. Nema eftir á vona ég að
þetta falli fremur yngra fólki i
geö heldur en þvi eldra. Ánægju-
legustu viðbrögð sem ég hef heyrt
af, eru þegar eldri heiðursmenn
verða svolitið vondir.
— Hver er hugmyndaleg af-
staða þin sem kvikmyndagerðar-
manns?
— Ég vil alveg absalútt taka af-
stöðu til þess, sem ég fjalla um.
En það getur vel verið, að þegar
sjónvarpið biður mig um að gera
æfisögumynd um einhvern heið-
ursmann, að það verði fullt af föð-
urlandsást og svo framvegis, ef
viðkomandi maður er fullur af þvi
og ég fyllist þeim tilfinningum
lika. Eins og við vitum þá er af-
staða i öllum myndum og fyrst og
fremst i þeim myndum sem þykj-
ast enga afstöðu hafa eins og
kemur fyrir i sjónvarpinu, þegar
verið er að tala um þessar objekt-
ifu myndir. Þá er það sú afstaða
að status quo eða rikjandi ástand
sé harla gott. En ég vil gera mér
nákvæmlega grein fyrir þvi
hvaða afstöðu ég tek, og ef þaö er
nokkuð, sem ég sakna i sambandi
við þessa mynd, það er að hafa
ekki tekið ákveðnari afstöðu. Þar
erum við komnir inn á allt annaö
mál. Það er þessi innri sensúr
sem maður setur sér. Af þvi ég er
að vinna þetta fyrir þá,... hvernig
lita þeir á þetta? Þetta er ekki
hægt, o.s.frv. Maður setur sér
innri sensúr um leið og maður er
búinn að skrifa undir samning við
þessa heiðursmenn. En hann hef-
ur greinilega ekki virkað nógu
vel.
— Þú setur ekki fram neina
kenningu i þessari mynd. Þú ert
eingöngu að vekja spurningar?
— Já. Ég bendi á að við höfum
það andskoti gott og hugsum vel
og rækilega um okkur sjálf undir
verndarvæng amerikana og af-
gangurinn af veröldinni... Hvað
með það, tvær karamellur...
(Fram kemur I myndinni að hjálp
islendinga við þróunarlönd nem-
ur andvirði tveggja karamellna
fyrir hvern Islending á mánuði).
— Flestir eru sammála um að
islensk kvikmyndagerð búi við
hörmuleg skilyrði. Hvað vildir þú
gera til að bæta ástandið?
— Stofna kvikmyndasjóð.
Skipta um yfirstjórn i sjónvarp-
inu, að þar komi einhverjir menn,
sem hafi vit á kvikmyndagerð og
vilja til þess að efla hana. Þetta
tvennt held ég að séu alveg höfuö-
skilyrði. Ég vil draga þarna
skýra linu, þegar ég tala um sjón-
varpsmenn. Að minu viti ei
tækniliðið yfirlitt ágætt fólk, sem
kann sitt fag, en það er toppur-
inn, þrýstioddurinn, sem hefui
ekki hundsvit á þvi, sem þeir eru
að gera og lita alls ekki á þaö sem
þátt i sinu starfi aö efla islenska
kvikmyndagerð. Það er þessi
toppur sem þarf að fara.
— Svo langar mig til að fá svar
við erfiðri spurningu. Ertu
ánægður með myndina nú, þegar
hún er tilbúin?
— Nei. A maður ekki aö svara
svoleiðis. Er það ekki sjálfsagt
litillæti?
Staða löggilts
endurskoöanda
við bókhaldsþjónustuna Berg hf. Egils-
stöðum er laus til umsóknar.
Upplýsingar veitir Sigurjón Bjarnason i
sima 1379 og 1375 á Egilsstöðum
Tilboð óskast í
nokkrar fólksbifreiðar og sendiferðabif-
reið með sætum, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 26. ágúst kl.
12-3. — Tilboðin verða opnuð i skrifstofu
vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna
Starf rafveitustjóra
Rafmagnsveitur rikisins auglýsa ef tir raf-
veitustjóra á Snæfellsnesi með aðsetur i
Ólafsvik.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf berist fyrir 15. sept. 1975.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik