Þjóðviljinn - 24.08.1975, Side 17

Þjóðviljinn - 24.08.1975, Side 17
Sunnudagur 24. ágúst 19t5 tjTóÖVttJÍNN — SíÖA 17 Hjördís Bergsdóttir velur gítargrip við vinsæl lög Tökum lagið STRAX í DAG Sæl nú! 1 dag ætla ég aö taka fyrir lag af plötu þeirra STUÐMANNA, sem nýtur nú þegar mikilla vinsælda flestra frá svona sex til sextlu ára. Platan, sem er tiltölulega ný á markaönum heitir „SUMAR A SÝRLANDI”. h C G Ég var með Badda á bjúkkanum i gær. h ' C D7 Ég var með Lilla á lettanum i dag. G h C,D7 Og heitasta óskin er sú, G h C,D7 að hann Kalli komi kagganum i lag. G e Strax i dag, i dag, C D7 G ég vona ’ann komi kagganum i lag e C D7 G i dag, að kagginn verði tilbúinn i dag. Mig langar sjúklega að skrepp’ á ball i kvöld ég veit að gleðin verður þar við völd. Baddi, Stina, Lilli, Björn og Bimbó, ég vona bara ég hitti þau i kvöld, Strax i dag, strax i dag, o.s.frv. G, G7, C D7 G,e Strax i dag, strax i dag, C Já, ég vona bara að ’ann D7 G, G7 komi ’onum i lag, C D7 G,E og þá strax i dag a ég vona bara að ,ann kom’onum, h og ég vona bara að ’ann kom’onum, A7 D7 G já, ég vona bara að ’ann kom’onum i lag. C-hljómur G-hlj&nur. D7-h Ijómur ( D L c t) Q u H - h Ljomu.r- <r e-hljómur- Q X D Skotmenn og skytterí Bíll kemur brunandi eftir fá- förnum sveitavegi. Enn er ein stund eöa tvær til dögunar. Bill- inn hægir ferðina og beygir inná hliðarveg niðurmeð lygnri á sem bugðast i kvislum milli sandeyra. Þegar bíllinn hefur stöðvað, stiga tveir menn með byssur i höndum útúr honum. Þeir kveðjast og hverfa hvor sina leið úti rökkrið. Þarna eru á ferð gæsaskyttur uppá gamla móðinn, iþróttamenn. Þeir velja sér stað, kannski eiga þeir sér byrgi á tanganum við ána þar sem gæsirnar fljúga gjarn- an yfir, eða búa um sig i skurð- inum i mýrinni, breiða eitthvað undir sig og biða dögunar. A meðan hafa þeir næðisstund með sjálfum sér sem sjaldan gefst i skarkala borgar og virða fyrir sér hvernig birtan breiðir sig yfir himininn og tekur breyt- ingum á hverju andartaki, þeir hlusta og heyra hvernig náttúr- an vaknar, uns þeir fyllast nýrri tilfinningu. Gæsir gargast á, vængjatakið, þungt og voldugt færist nær og skyttan fálmar eftir byssunni. Allt annað er gleymt, fuglasöngurinn, furður mýrinnar og dýrð himinsins, veiðigleðin dýrsleg og grimm hefur völdin, uns skothvellurinn rýfur kyngimagn stundarinnar. Haustið er árstið skotmanna og atburðir likir framanritaðri svipmynd gerast vafalaust margir á þessu hausti, en það gerast lika aðrir allt öðruvisi, þvi sumar „skyttur” nota aðrar veiðiaðferðir. Þeir aka um á Bronkóunum og Range-róver- unum sinum meðfram nýrækt og túnum bændanna, með þunga og stóra og langdræga Hornet eða Sakó hólka milli sætanna og skjóta niður af löngu færi heilu gæsahópanna sem þarna eru á beit. Á milli þessara veiðiað- ferða er miklu stærra bil heldur en milli maðksins og flugunnar hjá stangveiðimönnum. X X Rjúpnatiminn er svo sem kunnugt er frá 15. október til 21. desember. Ekki veit ég til að kannað hafi verið hve mikla á- sókn rjúpnastofninn þolir, en hitt veit ég að rjúpnaveiðimönn- um hefur stórfjölgað á allra sið- ustu árum. Svo er komið, að þeir menn sem meta lif sitt meira en til fáeinna rjúpna forð- ast viss veiðisvæði sem áður þóttu fengsæl og skemmtileg. Eitt allra skemmtilegasta veiði- svæði i nágrenni borgarinnar var Hengillinn. Nú er svo komið að likast er sem styrjöld geysi á svæðinu, svo mikill er fjöldi veiðimanna. Margir þessara veiðimanna eru vart af barns- aldri, og kunna ekkert veiðisið- gæði, þeir skjótast á um sömu hópana og mildi að ekki verði stórslys. Svipuðu máli gegnir um Bláfjöllin. Það er.aldeilis ó- mögulegt að veiða rjúpu við fjölmenni, best er að hafa heið- ina eða fjallið fyrir sig einan. Þó er ég ekki að mæla með þvi að menn fari einir á veiðar. Hins vegar verða þeir að koma sér saman um veiðisvæði og káss- ast ekki upp á annarra jússur. Skemmtilegra þykir mér, þegar ég fer með byssu á fjall, að hafa erindi, en hvort rjúp- urnar eru þrjár eða þrjátiu skiptir ekki höfuðmáli. Höfuð- máli skiptir erfiðið, að púla i fjalli i skafrenningi eða glamp- andi sól, kanna landið, fara ekki alveg i förin frá i fyrra, heldur nýjar slóðir i gamalkunnu fjalli eða ókunnu. Skotmennska er holl iþrött, likaminn stælist, athyglin skerpist og leiðangrar veiði- manns hjálpa honum til að eira einn með landi sinu, læra að meta óbyggðir þess og öræfi. En samt er það staðreynd sem mörgum er kunn, að alltof auðvelt er að krækja i byssu- leyfi. Ekkert þarf raunar nema vottorð augnlæknis, sakavottorð og meðmæli einhvers manns, sem kannski ekki hefur byssu- leyfi. Ekkert vottorð þarf um hæfni i meðferð skotvopnsins, enda ekki i nein hús að venda til þess að fá leiðsögn, og enn auð- veldara er þetta utan höfuð- borgarinnar. Þetta er yfirvöld- um dómsmála til skammar, og kemur óorði á góða skotmenn, fyrir utan þá hættu sem það set- ur marga menn i að óþörfu. JÓHANNES EIRÍKSSON SKRIFAR UM ÚTILÍF

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.