Þjóðviljinn - 24.08.1975, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. ágúst 1975
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið Vestfjörðum
Ragnar
Kjartan
Aöalfundur k jördæ misrá ös
Alþýöubandalagsins I
Vestfjarðakjöröæmi verður
haidinn I félagsheimilinu Suður-
eyri Súgandafiröi dagana 6. og 7.
september n.k.
Fundurinn hefst laugardaginn
6. september kl. 2 eftir hádegi.
Ragnar Arnalds, formaður
Alþýðubandalagsins, og Kjartan
Ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans,
koma á fundinn. Dagskrá nánar
auglýst síðar.
Stjórn Kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins á Vestjörðum.
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Kjördæmisþing Alþýöubandalagsins i Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldið i Hafralækjarskóla i Aðaldal þann 30. og 31. ágúst n.k.
Þingiö hefst laugardaginn 30. águst kl. 2 síðdegis, Aiþýðubandalags-
félögin eru hvött til að tilkynna þátttöku sina til skrifstofu
Alþýðubandalagsins á Akureyri — simi 21875 eða til Helga Guðmunds-
sonar, Akureyri. simi 22509.
Eina sælgætið úr
innlendu hráefni
BITAFISKUR
FRAMLEIÐANDI
B.E. ESKIFIRÐI SÍMI 8139
Fæst um allt land
Dreifingaraðili í Reykjavík:
Heildverslun Eiríks Ketilssonar
1. deild Laugardalsvöllur
Mánudagskvöld kl. 7 leika
VALUR
OG
AKRANES
Eykur Valur spennuna?
VALUR
Aðalfundur
kennarafélagsins Hússtjórnar verður
haldinn laugard. 31. ág. kl 14 i Háuhlið 9.
Lagabreytingar samkvæmt fundarboði 28.
febrúar.
Stjórnin
Er aspirín
h ætt u I egt
fyrir ófrískar
konur?
LONDON 22/8 — Samkvæmt
rannsókn sem birt var i London i
dag er mciri hætta á þvi að ófrisk-
ar konur, sem taka aspirin að
staðaldri, fæöi andvana börn eða
cigi i meiri erfiöleikum við fæð-
ingu en aðrar konur. Meiri hætta
cr á þvi að þær þjáist af blæðing-
um fyrir eða cftir fæðingu en aðr-
ar konur og einnig cru börn þeirra
iéttari cn önnur.
Það voru tveir ástralskir lækn-
ar, sem gerðu þessa rannsókn.
Þeir fylgust með 144 ófriskum
konum sem tóku inn aspirin og
báru þær saman við hóp kvenna
sem tóku það lyf ekki. Rannsókn-
in tók 28 mánuði og voru niður-
stöður hennar birtar i ensku
læknablaði i dag. Læknarnir álitu
að aspirinneysla væri hættuleg
bæði fyrir mæður og börn, en hins
vegar staðfesti rannsóknin ekki
þann ótta sumra að aspirin yki
hættu á fæðingu vanskapaðra
barna. Skilgreiningin á þvi hvað
væru „aspirin-neysla að stað-
aldri” virtist þó nokkuð óljós i
þessari rannsókn, þvi að sumar
konurnar tóku aspirin tvisvar til
tólf sinnum á dag en aðrar aðeins
einu sinni á viku. En konurnar
sem neyttu as.pirin voru ekki ólik-
ar hinum hvað snerti menntun og
þjóðfélagsstöðu.
60 þúsund
Framhald af bls. 4.
skipuð kvikmyndatökustjórum,
kvikmyndatökumönnum og
handritahöfundum, alls 30
manns. Við skipuleggjum fundi
með atvinnukvikmyndagerðar-
mönnum, sem eru tilbúnir að
veita aðstoð sina og góð ráð. Fé-
lagar i nefndinni sitja i dóm-
nefndum á sýningum og kvik-
myndahátiðum fyrir áhuga-
mannakvikmyndir.
Frá 1966 eru Sovétrikin aðili að
alþjóðasamtökum áhugamanna
um kvikmyndagerð — UNICA.
(APN).
Fjölmiðlar
Framhald af 13. siðu.
erlendis. Hvarvetna er út-
breiðsla æsifréttablaðanna
mörgum sinnum meiri heldur
en virðulegra morgunblaða. Og
máttur þeirra er mikill. Þau
hafa ævinlega á sinum snærum
harðsviraða gauka, sem skirr-
ast ekki við að búa til fréttir eða
egna aðila, til þess að auka
framleiðsluna á heppilegu sölu-
efni. Ekstrablaðið danska á i si-
felldum málaferlum, og hefur
beinlinis verið grunað um morð.
Oftar en einu sinni hefur rann-
sóknarlögreglan óskað skýringa
á þvi, hvernig snápar Ekstra-
blaðsins gætu itrekað komist á
afbrotavettvang með mynda-
vélar á undan lögreglunni. Á
hitt er svo að lita, að dagblöð,
sem hafa rúm fjárráð, geta beitt
afli sinu svo um munar, þegar
þau etja hóp blaöamanna á eitt-
hvert afmarkað viðfangsefni.
Margoft hafa slik þlöð flett ofan
af misferli og hneykslum i sam-
félaginu og fengið þar um
þokað, sem áður virtist allt fast
og vonlaust.
Ekki er nokkur vafi talinn
leika á þvi, að umfangsmiklar
auglýsingar auðfyrirtækja i
dönsku æsifréttablöðunum,
siðustu dagana fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um inngöngu
Danmerkur i Efnahags-
bandalag Evrópu, höfðu gifur-
leg áhrif. Þegar fyrirbærið
Glistrup og Framfaraflokkur
hans lokkuðu til sin fjórðung
danskra kjósenda, var bent á,
að engin stjórnmálasamtök
höfðu fengið likt þvi eins mikið
umtal i kvöldblöðunum og þetta
liflega sirkusliö. Iþróttafréttirn-
ar eru jafnan feitasti hluti
siðdegisblaðanna. Ennfremur
hafa þau oft reynst tryggast*
athvarf hippa, rauðsokka og
últramanna á vinstra kanti, þvi
ofstopi þeirra slagar upp i
myndasögurnar. Kynlifstækni,
sjúkdómslýsingar lækna,
stjörnuspár og svör lesenda á
förnum vegi eru fastir liðir.
Svo af nógu er að taka af
erlendum fyrirmyndum, þegar
Visir og Visir m-L etja saman
kappi sinu i islenska blaða-
heiminum. Hver veit nema
islensk vatnsgáttarmál.
simhleranir og kynllf islenskra
samtiðarmanna fljóti innan
skamms úr Blaðaprenti. Bert
fólk og hryllingssögur eru að
minnsta kosti óhjákvæmilegt
efni. Ljúkum þessu með tilvitn-
un i viðtal sem Skólablað
Menntaskólans i Reykjavik átti
við Jónas Kristjánsson siðast-
liðinn vetur. Svo mælti Jónas:
„...dagblað er fyrir almenning,
fólkið i landinu, sem maður
þekkir ekki neitt.”
Viðtal
Framhald af bls. 2.
ráðstefnu, spurði hneyksluð á
móti, hvernig hún vogaði sér að
spyrja: — Við höfum lært svo
margt hver af annarri, að við
verðum aldrei sömu manneskjur
eftir.
Helvi minnti á, að i fyrsta sinn
hefðu konur nú oröið forsiðuefni
dagblaða um allan heim, en ekki
bara komið fram á kvenna-
siðunum eða i kjaftadálkunum.
Þjóðhöfðingjar, forsætisráð-
herrar og fleiri hefðu heiðrað
kvennaárs ráðstefnuna með
ávörpum eða orðsendingum og
hvarvetna um heim hefði verið
meira rætt um kvennaárið en
nokkurt annað slikt ár sem SÞ
hefðu stofnað til og þarmeð um
stöðu kvenna. En spurningin væri
um framhaldið. Nú þyrfti að meta
allar ályktanir ráðstefnunnar og
áætlunina og allsherjarþing SÞ að
staðfesta hana. Þá kæmi að fram-
kvæmdinni i aðildarlöndunum
sjálfum og á heimssvæðunum.
Það væru ekki aöeins rikisstjórn-
irnar sem þyrftu að leggja sig
fram, heldur mjög nauðsynlegt
að félög og samtök fylgdust vel
með og þrýstu á um fram-
kvæmdir. Tiu ár væru til stefnu
og eftir 1985 þyrftum við vonandi
ekki lengur að tala sérstaklega
um stöðu kvenna.
En fram að þeim tima þurfum
við að vinna vel, sagði hún, og
þótt vandamál kvenna i þróunar-
löndunum séu vissulega alvar-
legri og erfiðari en i þróuðum
löndum,sannfærði amk öryggis-
málaráðstefna Evrópu mig um
hve miklu er ábótavant hjá okkur
hér i Evrópu, en þar sást nær
engin kona. Við höfum sótt fram i
atvinnulifi, en um leið tekið á
okkur tvöfalt hlutverk og vinnu-
álag meðan karlmenn hafa áfram
eitt. Hversvegna skyldum við
ekki deila með okkur, — karl-
menn taka þátt i störfum og lifi
heimilisins til jafns við konur og
konur taka þátt i opinberum
málum til jafns við karla. —vh
Barnaskólar
Framhald af bls 8.
sem ruggar og borð með stól.
Ekkert þarf að skrúfa eða taka i
sundur, "stólnum er aðeins snúið
við. Þessi stóll kostar 9800 krónur
og fæst i bláu/rauðu og
gulu/brúnu, en hann er enskur.
Hjá Kristjáni Siggeirssyni fást
einnig rauðir bæsaðir tréstólar
frá Danmörku, sem hægt er að
gera úr borð/stól en þeir kosta
9000 krónur.
Fálkinn á Suðurlandsbrautinni
var nýbúinn að fá franska stóla,
sem hægt er að nota sem rólu,
sæti kerru og fleira. Er þá hægt
að kaupa til viðbótar ýmsa hluti,
en ætli maður að notfæra sér alla
möguleika stólsins, verður verðið
nokkuð hátt. Stóllinn sjálfur kost-
ar 10.730, borð við 2.160, hjólá-
grind 7550 og grind til þess að nota
sem rólugrind með stólnum 5.320
krónur. Stólinn má einnig nota
sem kopp, bilstól og fleira. Efnið
er litskrúðugt bómullarefni og
fæst stóllinn i ýmsum litasam-
setningum. Svipaður stóll fæst
einnig I Vörðunni, en hægt er að
nota hann á 7 vegu (ekki þó sem
kerru) og kostar hann 9800.
SKIPAUTGERB RIKISINSI
M/s Hekla
fer frá Rcykjavik föstudag-
inn 29. þ.m. austur um land i
hringferð.
Vörumóttaka: þriðjudag,
miðvikudag og fimmtudag
til Austfjarðahafna, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar,
Húsavikur og Akureyrar.
M/s Baldur
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 27. þ.m. til Breiða-
fjaröarhafna.
Vörumóttaka: þriðjudag og
til hádegis á miðvikudag.
Frá grunnskólum
Hafnarfjaröar
i
Innritun nýrra nemenda i öllum aldurs-
flokkum fer fram i skólunum miðviku-
daginn 27. ágúst nk. kl. 14 — 16.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Staða ritara
i menntamálaráðuneytinu er laus til um-
sóknar. Vélritunarkunnátta nauðsynleg
og nokkur þekking i dönsku og ensku æski-
leg. Umsóknir er tilgreini menntun og
fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 5.
september n.k.
Menntamálaráðuneytið
22. ágúst. 1975.