Þjóðviljinn - 24.08.1975, Side 19
Sunnudagur 24. ágúst 1975 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 19
RÚNA, en hann Rúnar
ætti að senda Joice Laing
kort og þakka henni fyrir
að nota nafnið hans í
æfintýri. Og ef fleiri börn
vilja gleðja hana með
fallegu korti frá islandi
er utanáskriftin:
Joice Laing,
6 Dean Path,
Dean Village,
Edinburgh,
SCOTLAND
sig kollóttan um þá
frægc!|, sem hann hefði
getað öðlast með því að
sitja fyrir hjá Ijósmynd-
urunum. Hann var I raun-
inni ákaflega einmana
greyið og þráði ekkert í
heiminum frekar en að
eignast vin sem væri líkur
honum sjálfum.
Dag nokkurn var Nessí
sérstaklega einmana og
eirðarlaus og þar sem
hann hafði lesið svo
margar sögur um ísland,
stóra eyju norður af Skot-
landi, ákvað hann að
reyna að komast þangað
og gá hvort hann fyndi
ekki einhvern vin. Hann
tók til nesti og eins marg-
ar bækur og hann gat bor-
ið og þegar hann var bú-
inn að kynna sér gaum-
gæfilega öll neðansjávar-
kortin lagði hann upp í
langferðina.
Þegar Nessi hafði synt í
eilífðartíma sá hann
strönd íslands, en af því
hann var svo óttalega
feimið dýr gat hann ekki
fengið sig til að gægjast
upp úr sjónum, og þótt
hann væri dauðþreyttur
synti hann meðfram
ströndinni þangað til
hann sá miðnætursólina
siga hægt handan við vik
nokkra. Hann var upp-
gefinn og ákvað að hvila
sig í volgum sjónum sem
var dökkrauður við sólar-
lagið. í mörgum bókum
sem hann hafði lesið, það
er að segja þeim bókum
sem því var trúað að hann
væri til, var komið með
þá tilgátu að önnur sæ-
skrímsli gætu verið til
lika og island væri likleg-
asti staðurinn fyrir þau.
SKÝRINGAR Lárétt: 1 fluga 2 krakkar 4 sauðkind 5 dýramál 7 litur i spil-
um 9 kvenmannsnafn 10 málmstykki til að vigta með.
Lóðrétt: 2 viðgerð 3 pilan 5 málgagn 6 bjór 8 gagg.
En hann sá ekkert nema
fiska, hvali og seli, sem
lögðu á flótta um leið og
þeir sáu hvað hann var
stór. Sólin settist og sjór-
inn varð stöðugt rauðari,
Loch Ness skrímslið varð
angurvært og óskaði þess
innilega að það hefði ein-
hvern til að tala við.
Rúna átti heima hjá afa
sinum og ömmu i litlu
sjávarþorpi á Norður-
landi. Hún hafði átt þar
heima alla ævi samt var
hún oftast ein, því það
var svo fámennt i þorpinu
hennar. Á löngum sumar-
kvöldum gekk hún eftir
f jörunni og safnaði bobb-
um og skeljum sem hún
notaði í hálsfestar og
skartgripi. Þetta kvöld
var Rúna önnum kaf in að
tína skeljar í safnið sitt.
Einmitt á miðnætti féll
seinasti sólargeislinn á
stóran kuðung sem glitr-
aði eins og gull. Hún hljóp
til að taka hann upp. Hún
varð himinlifandi yfir
fundi sínum, en þegar
hún hélt á kuðungnum í
lófanum sá hún að hann
var perluhvitur, sólar-
geislarnir höfðu breytt
honum i gull. Þetta var
þess konar kuðungur sem
sævarniður heyrist í og
Rúna hélt honum upp að
eyranu til að hlusta á
sjávarhljóðið. En þegar
hún lagði kuðunginn að
eyranu heyrði hún lágan
ekka. ,,Hver er að
gráta?" spurði Rúna,
,,kannski get ég hjálpað
þér".
(Framhald i næsta
blaði.
Einu sinni var stór sæ-
ormur sem átti heima í
Skotlandi. Hann var svo
langur að svartur, silfur-
gljáandi skrokkurinn
sveigðist upp í þrjá boga
þegar hann smaug um
djúpin. Mjög sjaldan vog-
aði hann sér upp úr vatn-
inu, því hann var svo af-
skaplega feiminn, en í
þau fáu skipti sem hann
áræddi að koma upp á
yfirborðið, bar hann höf-
uðið hátt og það var einna
likast gínandi trjónu á
norrænu vikingaskipi.
Eins lengi og hann mundi
eftir sér hafði hann átt
heima i Loch Ness,
stærsta og dýpsta vatni í
Skotlandi. Það er um-
kringt háum fjöllum og
þéttum barrskógi.
Nessí, en það er gælu-
nafn sem skotar gáfu
orminum, eyddi flestum
dögum við lestur bóka í
stóra neðansjávarbóka-
safninu sínu, en stundum
hringaði hann sig um
klettana og lét sig
dreyma. Hann vissi að
hundruð manna f rá öllum
löndum heims kom til að
sjá hann, og að hann var
viðkunnur sem LOCH
NESS SKRÍMSLIÐ.
,,Skrímsli, ekki nema
það þó!" hugsaði hann,
því hann var sem sé mjög
hógvær skepna, og kærði
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
Dagana 7.—15. júní var
haldin í Norræna húsinu í
Reykjavík ráðstefna um
list til lækninga. Það var
Sigríður Björnsdóttir
sjúkraiðjukennari, Félag
íslenskra sérkennara og
Norræna húsið sem geng-
ust fyrir ráðstef nunni.
Þátttakendur voru frá
Norðurlöndunum, Stóra
Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Nú hefur einn af er-
lendu gestunum, skoska
konan Joice Laing, skrif-
að Kompunni og sendir
frumsamið, myndskreytt
æfintýri um skrímslið í
Loch ness.
Meðan Joice Laing
dvaldi hér bjó hún, ásamt
fleirum erlendu þátttak-
endanna, í heyrnleys-
ing jaskólanum, við
Oskjuhlíð. Hún sendir öll-
um börnum í heyrnleys-
Joice Laing
ingjaskólanum kveðju og
tileinkar þeim æfintýrið.
Hún segir í bréfinu:
Ég hef valið nafnið
RONAR, vegna þess að
ég geymdi tannburstann
minn á hillu, sem var
merkt með því nafni. Ef
það er ekki stúlkunafn,
viltu þá gjöra svo vel og
breyta nafninu.
Það er vandalaust,
stúlkan í sögunni heitir nú
LOCH NESS
SKRÍMSLIÐ
HEIMSÆKIR
ÍSLAND