Þjóðviljinn - 24.08.1975, Síða 20

Þjóðviljinn - 24.08.1975, Síða 20
Konur eru í meirihluta „Af þeim skilnaðarmálum sem koma fyrir Landsréttinn eru það konurnar sem eru i meirihluta sem skilnaðarum- sækjendur. Ég hef séð langa röð af þreyttum verkakonum, sem sækja um skilnað, vegn'a þess að þær hafa komist að þvi að þær vilja ekki lengur standa tilbúnar heima með kvöldmatinn þegar maðurinn kemur heim. Þær eru þreyttar á þvi að vera heimilis- gagn, sem ætið á að vera til þjónustu reiðubúið, jafnvel þótt þær vinni jafn mikið á daginn og eiginmaðurinn”. betta segir Inger Margrethe Pedersen, dómári i Landsrétti dana og Íiklegaísú kona þar i landi sem mest.veit um hjóna- bandslöggjöfina. Hún hefur m;a. gefið út bækur um hjóna- bandslögin og unnið að endur- skoðun á þeim:..VÍð ræddum við hana er hún var. hér á norrænu lögfræðingamóti,‘þar sem hún flytur erindi er nefnist „Den papirlóse familie”. Um það efni segir hún: „Mér finnst ekki að óvigð sambúð eigi að búa' við sams- konar lög og rétt og hið venju- lega hjónaband. t flestum til- fellum varir slik sambúð mun skemur en hjónaböndin og er eins konar tilraunahjónaband. Ef hjúskaparlöggjöfin og þá ekki sist skilnaðarlöggjöfin, eru viðunandi ætti fólk, sem vill búa saman ekki að þurfa að forðast sem skilnaðarumsækjendur • Þrjár byltingar hafa innleitt ný lög um hjónaskilnaöi — franska byltingin, rússneska byltingin og byltingin í Kína • Mun algengara aö feörum sé dæmt forræði barna en áður, en þó ekki gert nema þeir hafi í raun og veru sinnt þeim í hjónabandinu eru stálpuð ræður hann oftast mestu”. „Hefur ekki aukist að feður fái börnin i sina umsjá?” „Jú, það hefur aukist mjög. Hins vegar dæmum við börnin ekki til feðranna bara af þvi að það er eðlilegt að þeir hugsi jafnt um börnin og mæðurnar gera. Við gerum það ekki nema faðirinn hafi i raun og véru sinnt börnunum og ástæða sé til þess að ætla að hann muni sinna þeim betur en konan. Ég man eftir dæmi um mann, sem átti að dæma forsjá barna i skilnað- armáli, en á siðustu stundu komst ég að þvi að hann hafði t.d. enga hugmynd um skóla- göngu barnanna og hafði ætið látið móðurinni eftir að hugsa um þann lið. Ef konan hefur i raun og veru haft veg og vanda af börnunum og maðurinn litið sinnt þeim, er engin ástæða til þess að ætla að hann muni gera það frekar við skilnað enda ó- réttlátt að dæma þau þá af kon- unni. Það er svo önnur saga, að konur vilja stundum hafa börnin hjá sér til þess að fá ekki stimp- ilinn „slæm móðir”, jafnvel þótt þær séu einmitt svo góðar mæð- ur að þær skilji hvað er börnun- um fyrir bestu. Það er nefnilega ekki alltaf talið til fyrirmyndar ef mæður láta föðurinn fá umsjá barnanna. Ef við byggjum ekki við svona frumstæða hug- myndafræði, væri miklu auð- veldara fyrir fólk að ræða af skynsemi um framtið barn- anna. Þótt konan hafi alla tið hugsað um börnin má heldur ekki dæma þau henni vegna þess að hún ,,á ekkert annað”. Það væri lika óréttlátt, en það er framtið barnanna, sem er i húfi, ekki foreldranna”. „Er þá algengast að systkini fari til sarna foreldris?” „Já, það er lang algengast. eftir skilnaðinn, þar til hún fær sjálf tekjur. „Nú sérð þú mörg dæmi um misheppnuð hjónabönd i starfi þinu. Hefur þú hugsað um það hvað sé algengasta orsökin fyrir hjónaskilnuðum? ” „Ég held að fyrsta skilyrðið i lifvænlegu hjónabandi sé, að fólk læri að virða sjálfstæði hvors annars. Hjónaband sam- anstendur af tveimur einstakl- ingum, sem báðir eiga að hafa sömu réttindi og skyldur. Það hefur verið mjög mikið rætt um áhrif kvenfrelsis á hjónabandið og margir halda þvi fram, að það hafi orsakað fjölda hjóna- skilnaða. Ég held hins vegar að hjónaband, sem er byggt á full- komnu jafnrétti beggja aðil- anna eigi að jafnaði mun meiri möguleika á að endast, en hið gamla fyrirkomulag þar sem maðurinn er fyrirvinnan og konan er bundin heima yfir börnum og búi að staðaldri. Það sýnir sig lika að það er algeng- ara að konan vilji skilnað i slik- um tilvikum. t þremur bylting- um; frönsku byltingunni, rúss- nesku byltingunni og þeirri kin- versku, sem allar hafa innleitt ný lög um hjónaskilnaði, hafa konurnar verið i mjög miklum meirihluta sem skilnaðarum- sækjendur um leið og hin nýju lög gengu i gegn. Skilnaður er oft meira en bara skilnaður við eiginmanninn, það er lika stundum leið konunnar til frels- is. En ég held að fólk geri sér oft rangar hugmyndir um hjóna- bandið i upphafi og þá verða vonbrigðin lika meiri. Skólinn ætti að undirbúa fólk miklu bet- ur en hann gerir undir hvers konar samneyti við annað fólk og þá ekki sist undir hjónaband- ið, sem flestir virðast hafna i fyrr eða siðar”, sagði Inger.— þs- Systkini eru oftast svo háð hvert öðru að það myndi raska lifi þeirra, meira en ástæða er til, að aðskilja þau við skilnað”. „Þú talaðir um lifeyri. Hefur það atriði ekki verið mjög um- deilt?” „Jú, kvenfrelsissamtök hafa sum verið á móti þessu, en það er jú oftast karlmaðurinn sem greiðir konunni lifeyri ef hún hefur ekki launaða atvinnu og börnin eru mörg. Hins vegar tel ég þetta rétt. Ef maðurinn hefur viljað að konan væri heima og hugsaði um börnin, en það er sjaldgæft að konur geri það gegn vilja mannsins, þá finnst mér ekki nema eðlilegt að hann greiði henni eitthvað á meðan hún er að koma sér fyrír, sem einstæð móðir, finna sér at- yinnu, koma börnunum i gæslu, jafnveLmennta sig. Þæc.konur s.em aldrei hafa haft tækifæri til þess að vinna utan heimilis af ýmsum ástæðum, koma ekki hlaupandi út á vinnumarkaðinn um leið og þær skilja. Það verð- ur að gefa þeim tækifæri til þess að aðlagast breyttum aðstæðum og i Danmörku er reynslan sú að séu eiginmennirnir ekki látnir greiða þetta fé verður hið opin- bera að gera þáð. Karlmaður sem hefur viljað hafa konu sina heima verður að minu áliti að greiða sjálfur hennar lifeyri við skilnað, svo að hún hafi mögu- leika á að framfleyta sér fyrst skilnaðartimann yfirleitt. Sjálf hjónabandslöggjöfin er að minu viti allgóð, þvi hún gefur báðum aðilum sama rétt og sömu skyldur. Hins vegar eru ýmis önnur lög hjá okkur i Danmörku sem gera hjónum erfitt fyrir og þá einkum konunum. Það má t.d. nefna skattalögin, þar sem karlmaðurinn er skráður fyrir öllu og verður það þvi oft hann sem ákveður hvort konan vinn- ur úti eða ekki, m.a. með hlið- sjón af þvi hvað borgar sig vegna skattanna. Fleiri lög og reglur eru af svipuðum toga, — gera karlmanninn ábyrgan fyr- ir ýmsum greiðslum, húsnæði o.fl. Þannig verður konan fjár- hagslega háð manninum og það verður ósjálfrátt hann, sem tek- ur allar meiriháttar fjárhags- legar ákvarðanir”. „Nú ert þú dómari i skilnað- armálum? Hvaða atriði eru það sem oftast koma til úrskurðar laganna?” „Það er fyrst og fremst um forræði barna þegar foreldrarn- ir geta ekki komið sér saman um hvar þau eigi að vera og einnig ýmis fjárhagsleg atriði, t.d. húsnæði og lifeyrir, sem stundum er dæmdur til að greið- ast af öðrum aðilanum til hins fyrst eftir skilnað”. „Hvaða viðmiðun hefur dóm- ari sem á að dæma barn til um- sjár annars foreldris, en bæði vilja hafa það?” „Þetta eru okkar erfiðustu mál, en við erum til þess að taka þessar ákvarðanir og við reyn- um að gera það eftir bestu sam- visku. Það sem auðvitað skiptir mestu máli er barnið sjálft, — hvað er þvi fyrir bestu, en ein- mitt þetta getur orðið erfitt að meta. Við reynum að gera okk- ur einhverjar hugmyndir um vilja barnanna sjálfra, og ef þau hjónabandið. Það getur t.d. ver- ið erfitt að setja sömu erfðalög á sambúð og hjónaband, þvi þá ætti t.d. maður sem hefur búið með konu i nokkrar vikur að erfa hana en ekki ung börn hennar. 1 dag er um 8—10% allra para eða hjóna i Dan- mörku i svokallaðri óvigðri sambúð. „Nú hefur þú unnið að endur- skoðun á dönsku hjúskaparlög- unum. I hverju er hún aðallega fólgin?” „Breytingarnar eru ekki allar komnar i gegn, en þær felast aðallega i þvi að auðvelda hjón- um sem vilja skilja, að fá skiln- að samstundis og að stytta HBFF5Ð ffrá Brasiliu UOBVIUINN Sunnudagur 24. ágúst 1975

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.