Þjóðviljinn - 30.08.1975, Page 8

Þjóðviljinn - 30.08.1975, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. ágúst 1975 r« . i Lokasprettur í fótboltanum á næsta leiti Um helgina veröur mikið um að vera i fótboltanum. Nú fer að líða að lokum deildakeppninnar, ein um- ferð er eftir og verður hún öll leikin um helgina. i Þurfa Blikar að skila íslm.- bikar sínum? Breiöablik tók fyrir skömmu við tslandsmeistara- titli i 3. flokki eftir sigur i úr- slitaleik yfir Viking Ólafsvík. Nú hefur Þór á Akureyri kært leik sinn i undanúrsiitum viö Viking ó. sem tapaðist 4—5 eftir framlengdan leik. Er þvi hætt viö aö Breiöablik veröi að skila bikarnum. Þór leikur aftur viö Viking og sföan mæt- ir Breiðablik sigurvegurunum úr þeim ieik i nýjum úrslita- leik. * bikarkeppninni á aðeins eftir að leika úrslitaleikinn sjálfan og mætast þar iBK og iA. i 3. deild fer fram á Árskógsströnd leikur milli KA og Stjörnunnar og lík- legt er að úrslitaleikurinn í 4. flokki fari fram um helgina. Töluvert er um breytta leik- tima i deildakeppninni frá þvi sem stendur i Mótabókinni. t dag leika á Akranesi 1A og IBK og hefst sá leikur kl. 16.00. A Laug- ardalsvefli leika klukkan 17.00 lið IBV og KR og þar verður botn- baráttan i algleymingi. A Kapla- krikavelli leika FH og Vikingur kl. 14.00. 1 2. deild hefur enn ekki verið gengið frá leiktima fyrir leik Sel- foss og Breiðabliks og var er þetta er skrifað óvist hvort hann færi fram i gærkvöldi eða i dag. Reynir Á og Völsungur mætast kl. 14.00 i dag og eru þá upptaldir leikir i deildakeppninni i dag nema leikur KA og Stjörnunnar. Það er siðasti leikurinn i auka- keppni A-riðils i úrslitum 3. deild- ar og hefst hann á Árskógsstrand- arvelli klukkan 16.00. Á morgun leika Fram og Valur á Laugardalsvelli klukkan 19.00. Haukar og Armann leika i Kaplakrika klukkan 17.00 og á velli Þróttara leika Þróttur og Vikingur Ó kl. 16.00. (Jrslitaleikurinn i 2. flokki hefur enn ekki verið settur á ákveðinn leikdag. Þar er kærumál i gangi og óvist hvenær sá leikur getur farið fram. 1 4. flokki mætast lið KA og Breiðabliks i úrslitaleik. Enn hef- ur ekki verið ákveðinn ieikdagur en ekki er óliklegt að leikið verði fyrir sunnan á morgun. —gsp Leikmenn Omonia liðsins: Standandi frá vinstri: Drakos, Patikis, Eleftheriades, Kontuyiorgis, Kana- ris, Pepis. Sitjandi f.v.: Mavris, Gregory, Charalambous, Savva, Antoniou. Sex landsliðsmenn í liði Omonía sem mætir skagamönnum í evrópukeppni meistaraliöa í haust Sex landsliðsmenn leika með liðinu Omonia frá Nicosia sem mætir skaga- mönnum í evrópukeppni meistaraliða i haust. Engu að síður telur iA sig hafa góðan möguleika á að komast áfram í keppninni og hyggst þannig vinna upp hugsanlegt fjárhagslegt tjón vegna hinnar rándýru flugferðar til Kýpur. Alls hefur Omonia orðið fimm sinnum Kýpurmeist- ari. Það var árin 1960—61, 196S—66, 1971—72, 1973—74, og 1974—1975. Þrisvar sinnum hefur bikarkeppn- in unnist, 1971—72 og árin 1964—65, 1973—74. „Maður æfir ekki og æfir til þess eins aö tapa svona Fyrirliði Omonia, Charalambous, hefur leik- ið 26 leiki með landsliði Kýpur og er langreyndasti maður liðsins. Antoniou er með 15 landsleiki, Gregory 5, Karnaris 3, Svava 1 og Kleftheriades 1. I meistarakeppninni sl. ár lék Omonia 26 leiki. Nitján leikir unn- ust, fimm urðu jafntefii og aðeins tveir töpuðust. Vannst mótið þvi á 43 stigum og þótti það dágóður ár- angur. Það eru þvi engir smákarlar á mælikvarða Kýpurbúa sem akur- nesingar ætla sér að vinna i fyrstu umferð evrópukeppninnar. En vissulega tjalda þeir einnig lit- riku liði, sjö landsliðsmenn is- lendinga eru úr liði 1A og ferillinn er siður en svo siðri en sá sem hér hefur verið upp talinn. —gSp segir John Walker míluhlaupari John Walker, heimsmetshafi f mfluhlaupi, hefur gefiö út margar yfirlýsingar fyrir hlaup sitt f Eng- Rússar sigruðu norðmenn með þremurgegneinu Rússar sigruðu norðmenn i fyrrakvöld með þremur mörkum gegn einu i undan- keppninni fyrir Ol-leikana. I.eikurinn fór fram i Noregi en þar tapaði Island sem kunnugt er með 2—3 fyrr i sumar. i leikhléi var staðan 2-1 fyrir rússa og skoruöu þeir Sakha- tov (2) og Fcodorov fyrir so- vétmenn. Mark norðmanna skoraði Skuseth. landi sem fram fór I gærkvöldi. Walker hljóp þar sitt sfðasta hlaup i Evrópu á þessu ári og vit- að var að það yrði ekki með öllu átakalaust fyrir hann að koma I markið sem sigurvegari. Walker keppti þarna við marga fræga kappa, s.s. Mike Boit frá Kenya, Rod Dixon og Marty Liquori. Dixon hefur I sumar Unnið Walker i 800 m hlaúpi, 1500 m hlaupi og tveggja milna hlaupi. — Mér likar alls ekki að tapa — sagði Walker fyrir hlaupið I gær- kvöldi. — Maður æfir ekki klukkustundum saman á dag til þess eins að tapa þegar á hólminn er komið. Ég ætla að vinna þetta hlaup. Walker setti míluheimsmet sitt i Gautaborg I sumar. Hljóp hann þar á 3.49.4 mlnútum og segist hann ekki eiga von á þvl að það met verði slegið á næstunni. Fimleikanámskeið Fimleikasamband tslands gengst fyrir fimleikanámskeiðum nú I byrjun september I Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Dagana 5.-11. september verður námskeið i Fimleikastiganum fyrir pilta og stúlkur og er ætlunin að kenna þeim saman á timanum 18-19.30. Jafnframt verður námskeiö fyrir karlþjálfara og dómara og er áætiað að fara yfir öll 12 þrepin hjá þeim og hljóta þeir dómararétt- indi, sem sækja námskeiðið vel. Þjálfarar og dómarar munu aðstoða við þjálfun á unglinganám- skeiðinu en aðalkennarar verða þau Þórir Kjartansson og Hlin Arnadóttir. Þá gengst Fimleikasambandiö fyrir námskeiði I jassleikfimi einnig I iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Hefur sambandið fengið til landsins einn af þekktustu jassleikfimikennurum Evrópu,Moniku Beckman, sem margir minnast frá Norrænu Fimleikahátiðinni ’73 og siðar frá námskeiöum, sem haidin hafa veriö að Leirárskóla seinustu tvö árin. Almenningi verður gefinn kostur á að sækja námskeið hjá henni kl. 10-11,30 eða 13.30-15 dagana 12.—16. september. Monika Beckman er ekki sist fengin hingað vegna fjölda áskor- ana frá Iþróttakennurum.og gefst þeim kostur á að sækja tima hjá henni kl. 15.30—18 þessa daga. Upplýsingar og innritun á námskeiöin verður á skrifstofu F.S.l. eða I.S.Í., Iþróttamiöstööinni I Laugardal, slmi 83377.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.