Þjóðviljinn - 31.08.1975, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 31.08.1975, Qupperneq 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. ágúst 1975. Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir „Laghentur maður óskast” Kona hringdi i okkur á dögun- um og bað okkur að koma eftir- farandi á framfæri. „Hvernig stendur á þvi að á öllum þessum fjölda trésmiðafyrirtækja virð- ist ekki hægt að fá nokkurn mann til þess að taka að sér smáviðgerðir á heimili. Við hjönin erum heldur óhöndug við viðgerðir, en þurfum nauðsyn- lega að fá gert við glugga, sem sifellt lemst i og er að verða ó- nýtur. Ekkert fyrirtæki virðist vera til, sem sendir viðgerðar- mann fyrir svoleiðis „smotteri”. Ég óska eftir raun- verulegri „heimilisþjónustu” þar sem hægt er áð fá menn i smáviðgerðir, hvort sem heldur er á sviði trésmiði, pipulagna eða annarra iðngreina.” Hollur og ódýr morgunmatur Muesli er svissneskur réttur, sem samanstendur m.a. af haframjöli, heilhveiti, malti, hnetum, rúsinum og etv. fleiri tegundum þurrkaðra ávaxta. Þetta er þvi bæði hollur og bragðgóður morgunverður með mjólk út á, en óneitanlega nokk- uð dýr. Co-op fyrirtækið breska framleiðir þó muesii sem er bæði ódýrt og bragðgott. Ennþá er hægt að fá það hérágömlu verði bæði hjá Sláturfélaginu og i nokkrum Kron-búðum á aðeins 155 krónur, en nýja verðið er 210 krónur pakkinn. Þetta er býsna drjúgt, þvi ekki þarf nema litið af þvi. Ýmsar aðrar tegundir af muesli kosta fleiri hundruð krónur pakkinn. VÖRUSYNINGIN í LAUGARDAL: Betri verö- merkingar æskilegar Við ætlum að fjalla um alþjððlegu vörusýninguna í Laugardalshöllinni i dag, og munum þá einkum beina athyglinni að þeim vörum sem beinlínis snerta almenning, þ.e. ýmsar heimilisvörur. Nokkur orð um sýninguna. Vörusýningar og þá ekki sist heimilissýningar, eins og siðasta sýning var, geta haft mikla þýð- ingu fyrir hinn almenna neyt- anda. Þar fær hann á einum stað góða yfirsýn yfir ýmsar neyslu- vörur, hann fær upplýsingar og samanburð sem ætti að gera hann að athugulli kaupanda. Að sjálf- sögðu er sama að segja um ýmsar sérvörur sem eiga erindi til fyrir- tækja og atvinnurekenda. Við munum einkum fjalla um slikar sýningar frá sjónarhóli hins al- menna neytenda, sem ekki er að leita að vélum, eða einhverskonar sérfræðilegum vörum. Það er heldur ekki óeðlilegt að almenn- ingur geri nokkrar kröfur, þar sem þeir sem auglýsa sýninguna i heiid, beina athygli sinni fyrst og fremst að honum. Þærkröfur sem neytendur gera til slikra sýninga eru án efá margar, og við munum nefna nokkrar þeirra. t fyrsta lagi ætti að verðmerkja allar vörur, þann- ig að þeir sem skoða sýninguna geti séð verðið. Það tekur allt of langan tima að spyrja um verðið i öllum básunum. Á siðustu sýningu minnist ég þess að'nokkuð skorti á að fólk i básunum gæti gefið fullnægjandi upplýsingar um vörurnar sem þar voru á boðstólnum. Þetta hef- ur breyst til batnaðar; þótt ekki hafi allir getað svarað fyrir allt sem i þeirra bás var að þessu sinni. Þá á fólk að geta skoðað vöruna gaumgæfilega, enda er svo i mörgum básunum. En sums stað- ar, t.d. þar sem flikur eða vefnað- arvara er sýnd, eru aðeins sýn- ingargluggar og fólk getur ekki fengið að þreifa á vörunni, eða skoðað hana rækilega. Það er enginn vafi á þvi að slik kynning væri mun æskilegri fyrir fyrirtækin sjálf, auk þess sem það ætti að vera krafa þeirra, sem hafa greitt sig inn á sýninguna. Það ber dálitiö á þvi, að i bás- ana séu settir hlutir, sem alls ekki eru til sölu i versluninni. Ef vör- urnar væru allar verðmerktar, gæti fólk gert sér grein fyrir þessu, en án verðmerkinga eru þetta vafasamar auglýsingar, þvi oft eru það einmitt skemmtileg- ustu hlutirnir sem alls ekki eru til sölu. „Þetta er bara gert fyrir sýninguna”, var sagt i tveimur básum, þegar spurt var um verð ákveðinna hluta. Þá ber einnig nokkuð á þvi að sett séu upp stærri „sérsmiðuð” verk i sama tilgangi, sem gefa sýningunni oft spennandi blæ og eru forvitnileg fyrir gestina, þótt þau séu fyrst og fremstjcynning. Mikið er lagt upp úr útíiti bás- anna, þeir eru flestir skemmti- lega uppsettir og fallegir, en skýringartextar á veggjum og verð er það sem fyrst og fremst vantar. Það má svo endalaust deila um gæði þess sem sýnt er, efn við ætl- um að nefna nokkur atriði af sýn- ingunni,sem vöktu athygli okkar. Vörumarkaðurinn sýnir þarna mikið úrval af húsgögnum og eid- húsinnréttingum — yfirleitt mjög skemmtileg húsgögn á góðu verði. Eldhúsinnréttingar þeirra (sem einnig eru seldar i Innrétt- ingavali) eru mjög skemmtilegar og margar gerðirnar ódýrar, (160 þús. til 340 þús. i meðaleldhús). Einnig var Stáliðjan með skemmtileg skrifstofuhúsgögn og Stilhúsgögn sýndu þarna mjög hentuga samstæðu i barnaher- bergi, fataskápa, hillur, skrifborð og stóla úr bæsuðum spónaplöt- um. Verðið á þessum húsgögnum er mjög gott, en sérstaka athygli vakti „kubbur” sem tilvalinn er sem barnaherbergishúsgagn, stóll og borð i senn og kostar 4.900 krónur. Þeir sem eru i húsbyggingum eða slikum hugleiðingum sjá þarna ýmislegt, t.d. margar gerðir af eldhúsfnnréttingum, teppum, gluggatjöldum og jafn- vel heil hús. Pilugluggatjöld sýna þarna margar fallegar gerðir af rúllugluggat jöldum . Einnig er sýnt fallegt parket á gólf og er verðið frá 3330 (fullunnið eikar- parket). Það er Egjll Árnason sem sýnir parketið, en gerðirnar eru fjöldamargar. Eldavélar og eldhúsáhöld eru þarna i mörgum básum, en nú framleiðir t.d. Rafha eldavélar i sex litum og af fimm gerðum. Rafha er eitt af fá- um fyrirtækjum sem hefur verð- merkt sinar vörur. Af ýmsum nýjungum á sýning- unni má nefna að i einum básnum er spilað á hljóðfæri, i öðrum er hægt að fá snyrtingu og i þeim þriðja er hægt að leggja sig ofan i „vatnsrúm” og að sjálfsögðu er vatnið islenskt eins og rúmið sjálft. Sum fyrirtæki gefa fóiki að bragða á vörum sinum, t.d. Sól. h.f. (ávaxtasafa) og var það vel þegið er ég sá sýninguna, þar sem mikill hiti var i aðalsalhum. jsf; : * 1 I Cr sýningarbás Vörumarkaðarins. Húsgögn úr bæsuðum spónaplötum frá Stilhúsgögnum. Leiktækin vöktu verðskuidaða athygli barnanna, en hvaö kosta þau? Þýska heilbrigðissýningin gef- ur allri sýningunni mikið gildi, en þar eru ýmsar hagnýtar upplýs- ingar fyrir almenning. Á útisvæðinu vakti islenski sumarbústaðurinn frá Hamra- nesi mikla athygli, enda sérlega fallegur og þar fékk maður af- hentan verðlista með upplýsinga- bæklingi um húsin. Börnin á sýningunni höfðu mestan áhuga á leiktækjunum frá Form i Bankastræti 11, sem voru mjög skemmtileg. Hinsvegar vantaði upplýsingar um verð þeirra og enginn var þar að gefa upplýsingar á meðan ég skoðaði þau. Þessi leiktæki gáfu sýning- unni einnig aukið gildi.enda nauð- synlegt að börnin fái einhvers staðar tækifæri til þess að leika sér á þessu stóra svæði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.