Þjóðviljinn - 28.09.1975, Side 3
Sunnudagur 28. september 1975 þjóÐVILJINN — StÐA 3
Gjaldþrot húsa-
braskara á Spáni
LUolandia á Gran Canaria; hálfbyggö hiis sem ekki verður lokiA viA.
Um skeið hefur það
þótt efnileg fjárfesting,
að leggja fram fé til hús-
bygginga á Spáni. — Við
höfum heyrt ávæning af
þessháttar fjárfestingu
af hálfu islenskra aðila.
En eins og að líkum læt-
ur hafa hinir fjársterku
vesturþjóðverjar verið
manna umsvifamestir i
þessum efnum. En nú er
úti ævintýri og margir
sitja eftir með sárt enn-
ið.
Glæsileg loforð
Aslöustutíu árum hafa 160 þús-
undir vesturþjóðverja fest fé i
húsbyggingum á Spáni, sumpart
hafa þeir keypt sér sumarbústaði
þar syðra, en einkum hafa þeir
lagt fé i byggingu hótela og fbúða.
Þeir létu freistast af glæsilegum
tilboðum um hagkvæmar af-
skriftir og mikinn gróða og munu
hafa beint suður á bóginn allt að
þrem miljörðum marka.
Með þessu fé hafa stórar spild-
ur af strandlengju verið lagðar
undir steypu og asfalt og fjöldi
fiskiþorpa hefur umturnast eða
horfið i þessum látum öllum. En
ágóðinn hefur látið á sér standa.
Sölumenn hafa lofað góðum arði
og svo þvi, að fasteignirnar
mundu stiga i verði. En kostnað-
aráætlanir hafa reynst ótraustar
mjög og umframkostnaður við
býggingar og svo allskonar uþpá-
komur i viðgerðum hefúr gléyþt
allan arð. Verðmætisaukning hef-
ur engin verið. Byggingarfélög
þau sem hafa tekið viö fénu hafa
reynst svo haganlega skipulögð,
að kaupendur fasteignanna hafa I
reynd verið varnarlausir gagn-
vart allskonar svikum og prett-
um.
Þeir sem ætluðu sér ekki bein-
linis að græða á aðild að einhverj-
um stórfelldum rekstri heldur að-
eins að koma sér upp sumardval-
arstað hafa einnig séð áform sin
renna út i sandinn. Þúsundir
manna keyptu ibúðir og sumar-
bústaði sem hvergi voru til nema
á pappirnum (þeim var haldið
rólegum með fölskum ljósmynd-
um sem áttu að sýna, hve vel
byggingarstaríið gengi meðan
verið var að dæla upp úr þeim fé).
Siðan reynistbyggingarfyrirtækið
gjaldþrota eða einhvernveginn
gufað upp, og þegar „eigendurn-
ir” ætla að fara að búa i húsum
sinum þá er eins liklegt að skipta-
ráðendur eða einhverjir slikir
aðilar meini þeim aðgang að
eignunum.
Seld á
hálfvirði
Auk þessa eru hinir vestur-
þýsku kaupendur nú orðnir mjög
áhyggjufullir yfir þvi, að dagar
Franco einvalds eru senn taldir
og óttast þeir að pólitisk þróun i
landinu verði fjárfestingu þeirra
ekki sérlega hagstæð. Um
margra mánaða skeið hafa menn
unnvörpum reynt að losa sig við
sumarbústaði á Spáni, en það hef-
ur gengið illa. Það hefur ekki ver-
ið hægt að fá sem svarar helmingi
byggingarkostnaður fyrir Ibúðir
eða sumarhús við þær markaðs-
aðstæður sem nú hafa skapast
þar syðra.
Eins og að likum lætur eru ótal
skaðabótamál i gangi bæði á
Þýskalandi og á Spáni út af þess-
um málum. 1 Mflnchen reyna þeir
að leita réttar sins, sem keyptu
hjá Canaria Turismo sumarhús á
syðri hluta Tenerifeeyjar. Yfir
þvi var þagað við þá, að rétt hjá
sumarhúsahverfinu var verið að
reisa alþjóðlegan flugvöll með
öllum þeim þyti og gný sem fylgir
stöðugu risaþotuflugi. Sumar-
húsaþorpið er þvi enn i dag
draugabær, húsin grotna niður og
gras vex aftur yfir göturnar. í
öðrum tilvikum hafa menn keypt
hús sem i vantar ýmisleg nauð-
synleg þægindi — og einnig sund-
laugar fyrir utan, sem I „Aca-
pulco III” einnig á Tenrife voru
afar nauðsynlegar, þvi þar var
lifshættulegt að baða sig i sjónum
vegna hvassra kletta.
Soficomálið
Spiegel — en þaðan eru þessar
upplýsingar teknar, segir á svo-
felldan hátt frá hinu fræga Sofico-
máli, sem islendingar hafa einnig
brennt sig á:
Eitt stærsta hneykslið var
gjaldþrot Sofico. Þegar félagið
hætti i desember 1974 að greiða
þann arð sem það hafði lofað (12-
16%) þá skildu jafnvel hinir
þrautseigustu að jafnvel hin
stærstu fasteignafyrirtæki Spán-
ar voru hæpinn dvalarstaður fyrir
fé þeirra. Um 4000 þjóðverjar eru
meðal þeirra 20 þúsunda manna
sem orðið hafa fyrir tjóni af
Sofico-málinu, en skuldir þess
fyrirtækis eru nú metnar á um
hálfan miljarð marka.
Um tiu ára skeið hafði Sofico
greitt fyrirheitinn arð með hækk-
andi söluverði á ibúðum. En þeg-
ar sala á nýjum ibúðum fór að
dofna var ekki lengur hægt að
velta snjóbolta skuldbindinga á
undan sér.
Nú er svo komið að umboðs-
menn rikisins hafa opnað aftur
fyrir ferðamönnum allmargar
Sofico-ibúðir, sem hinir þýsku
eigendur fengu ekki aðgang að.
Leigan fer i að greiða þessum
umboðsmönnum. Aðeins þeir
kaupendur, sem skuldbinda sig til
að afsala sér þeim arði sem
"jofico lofaði, fá leyfi til að koma
inn f þær ibúðir sem þeir hafa fyr-
ir löngu borgað og eru á þeirra
nafni.
Málningin
frá Slippfélaginu
A járn og viöi utan húss og
innan:
Hempels
HEMPELS skipamálning.
Eyðingaröfl sjávar og seltu
ná lengra en til skipa á
hafi úti. Þau ná langt inn
á land.
A steinveggi utan húss og
innan:
\itretex
|| VITRETEX plastmálning
"I myndar óvenju sterka húö.
1 Hún hefur þvi framúr-
I skarandi veórunarþol.
1 Vitretex á veggina
Átréverk í garði og húsi:
Cuprinol
CUPRINOL viöarvörn þrengir sér inn í
viðinn og ver hann rotnun og fúa.
Cuprinol á viðinn
Slippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414