Þjóðviljinn - 28.09.1975, Síða 5
Sunnudagur 28. september 1975 ÞJÖÐVpLIINN — gtÐA t
Kreppuráöstafanir
á Vesturlöndum
Liklega er aðeins i einu landi á
Vesturlöndum hægt að komast
sem svo að orði án þess að brjóta
alvarlega i bága við sannleikann:
„Markaðshorfur benda til þess að
atvinna verði nóg næstu mánuði.
Það kemur þvi varla til þess að
gripa þurfi til sérstakra ráðstaf-
ana til að örva atvinnulifið fyrr en
seinni hluta vetrar”.
Vetrarkvíöi
Hér er verið að tala um Sviþjóð.
Klausan er reyndar úr Dagens
nytheter, sem er að fjalla um um-
ræðu á sænska þinginu um at-
vinnubótaáætlun sósialdemó-
krata, sem hægt verður að gripa
til ef að hinn alþjóðlegi aftur-
kippur i efnahagsmálum nær til
Sviþjóðar. En Sviþjóð er reyndar
undantekning á vesturlöndum.:
heildarmyndin er sett saman úr
fjölda kreppuráðstafana. Liklega
hafa menn aldrei áður ætlað aö
leggja jafn mikið á sig til aö
breyta ástandinu á mörkuðum
hins kapitaliska heims.
1 allt sumar hafa borist fréttir
af rikisstjórnum á kreppufund-
um, ráðherrar hafa unnvörpum
orðið að gera hlé á leyfum sinum
til að bregðast við þeirri stað-
reynd, að bjartsýnishugmyndir
um batnandi ástand, sem hafðar
voru uppi af sérfræðingum um
siðustu áramót, fengu ekki stað-
ist. Kreppuloftvogin benti á miklu
verra ástand en menn höfðu búist
við, og spáði þvi að versti aftur-
kippur á vesturlöndum i 40 ár
mundi vara að minnsta kosti eitt
ár i viðbót.
Viðbrögðin við þessu ástandi
hafa nú komið fram i kreppuáætl-
unum, sem ætla sér að dæla út i
kapitaliskt efnahagslif ýmsum
örvandi lyfjum fyrir þvi sem næst
20.000 miljarði króna. Mikill hluti
þessarar hressingar verður veitt-
ur á næsta hálfa ári. Ráðstafan-
irnar eiga að koma i veg fyrir
stórslys i vetur, en menn óttast að
þá kunni að bætast fimm miljónir
atvinnuleysingja við þær 15 mil-
jónir sem þegar eru fyrir i
kapitaliskum heimi.
Bandaríkin
Fjársterkasti aðilinn, Banda-
rikin, ætla að heilsa vetri með þvi
að áætla 60—70 miljarða dollara
greiðsluhalla á fjárlögum hins
opinbera. Hið bandariska fjár-
hagsár stendur frá júli til júli og á
siðasta fjárhagsári nam hallinn
45miljörðum dollara. Þaraf voru
um 8 miljarðir notaðar til að
draga úr persónusköttum — hald-
ið verður áfram á þeirri braut, og
auk þess verður sköttum létt af
fyrirtækjum og gerðar ýmsar
ráðstafanir til að auka fjárfest-
ingu i þeim.
Þær örvunarráðstafanir sem
gripið var til i fyrra, urðu til þess
að sveifla upp á við fór af stað i
vor, en þessi sveifla er að
drukkna i nýrri verðbólguöldu og
sivaxandi atvinnuleysi. 1 júli nam
atvinnuleysið 8,9% og búist er við
þvi að það nái 9% um áramót. At-
vinnuleysið i júli svaraði til þess
að 8 miljónir manna fengju ekki
vinnu, og þar við má bæta einni
miljón, sem hefur gefist upp við
að leita sér að vinnu og er þvi ekki
á atvinnuleysisskrá.
Verðbólgan i Bandarikjunum
nam i fyrra 11%. Hún snarminnk-
aði i byrjun ársins og náði 3,6% á
ársgrundvelli i mars. En aukin
efnahagsleg umsvif blésu strax
lifi i prisana og verðbólgan náði i
júli 14,5% á ársgrundvelli. Það er
búist við þvi, að i reynd verði
verðbólgan á þessu ári ekki minni
en 7%. Þessi þróun hefur orðið til
þess, að jafnþýðingarmikil mið-
stöð og Wall Street hefur misst
trúna á betri tima. Verð á verð-
bréfum rauk upp á við stutta
stundisumar, en það hefur sigið N0TG2Lir
aftur undanfarnar vikur. Þjóðar-
framleiðslan i Bandarikjunum
dróst saman um 1,7% i fyrra og
menn óttast að samdrátturinn
kunni að nema allt að 3,5% á
þessu ári.
fyrr en i byrjun næsta árs, liklega
með þvi að auka opinberar fram-
kvæmdir og þjónustu.
Japan
Japan er það efnahagslegt stór-
veldi sem hefur orðið siðast til að
bregðast við samdrættinum. Jap-
an hefur að visu, eins og Vestur-
Þýskaland, notað rikisafskipti
með ýmsum hætti til að hressa
upp á efnahagslifið, en það er
ekki fyrr en núna að japanska
stjórnin er að undirbúa fram-
kvæmd heildarkreppuáætlunar.
Að þvi er best er vitað felur hún i
sér, að um 1200 miljörðum króna
er pungað út til að örva fram-
leiðslu og neyslu.
I fyrsta sinn eftir að efnahags-
undrið svonefnda hófst i Japan
varð landið i fyrra fyrir alvarleg-
um samdrætti sem nam 3,5%
þjóðarframleiðslunnar. A þessu
ári hefur framleiðsluaukning orð-
ið nokkur eða um 1% frá þvi i
fyrra, og i ágúst tókst með sér-
stökum ráðstöfunum að þoka
verðlagi á neysluvörum niður um
0,3%. En verðbólga hefur á und-
anförnum mánuðum numið um
11% i Japan.
Svíþjóö
Norðurlönd (nema Danmörk og
tsland) hafa til þessa staðið sig
betur en flest önnur riki, enda
þótt þar geri alþjóðleg kreppa
einnig vart við sig, eins og fram
kemur m.a. i samdrætti i bygg-
ingariðnaði og lækkuðu verði á
hráefnum þessara landa. t ágúst
voru 67 þúsundir manna atvinnu-
lausir i Sviþjóð, en það er 1,6%
vinnuaflsins. Þarna var að visu
um að ræða 14.000 fleiri atvinnu-
leysingja en skráðir voru i júli, en
engu að siður eru atvinnuleys-
ingjar 14 þús. færri nú en i fyrra.
Þetta þýðir i reynd að mitt i
kreppunni er hér um bil næg at-
vinna i Sviþjóð.
Verðbólgan er i Sviþjóð álika
mikil og hún er i Danmörku.Verð-
lag er nú 11,7% hærra en i fyrra-
sumar. En þaðber að hafa i huga,
að hér er reiknað með hækkun á
virðisaukaskatti úr 12 i 15% i
september i fyrra. Verðbólgan á
þessu ári verður að likindum um
8%. Sem fyrr segir er ekki búist
við þvi að sænska stjórnin byrji á
sérstökum kreppuráðstöfunum
Nú sem stendur er atvinnuleysi
hvergi minna i Evrópu en i Nor-
egi — þar eru aðeins 17.400 at-
vinnuleysingjar (l,l%).En krepp-
an hefur engu að siður barið að
dyrum hjá norðmönnum með
versnandi stöðu ýmissa veiga-
mikilla atvinnugreina eins og
siglinga, fiskveiða, ái- og timbur-
iðnaðar, og stjórnin óttast að at-
vinnuleysi muni tvöfaldast i vet-
ur. Þvi hefur hún sett á verð-
stöðvun frá og með fyrsta sept-
ember og á hún að standa árið út.
Noregur hefur þar að auki verið
eitt af fáum löndum Vestur-
Evrópu þar sem tekjupólitik hef-
ur verið i föstum skorðum. Verð-
bólgan hefur verið 10% á sl. ári.
Stjórnin og alþýðusambandið
norska hafa samið um það sin á
milli, að launafólk fái þessar
verðhækkanir bættar að 8/10 með
þeim hætti, að iaunagreiðendur
taka á sig aðeins 30% en hið opin-
bera sér um afganginn (50%)
með lækkun skatta og aukinni fé-
lagslegri þjónustu. Auk þess er
stuðningur við hinar ýmsu grein-
ar atvinnulifs aukinn um sem
svarar 60 miljörðum isl. króna og
fara þar af niu miljarðar til opin-
berra framkvæmda. Alls kostar
þessi áætlun um þrjá miljarða
norskra króna, en vonast er til að
með henni takist að fjölga starf-
andi fólki um 20 þúsundir i vetur.
Vestur-Þýskaland
Vestur-Þýskaland hefur nýlok-
ið fjórða áfanga kreppuráðstaf-
ana sem alls munu dæla um 400
miljörðum króna út i veltuna.
Helmingur af þessu fé fer til auk-
inna opinberra framkvæmda en
helmingur til skattalækkana og
stuðnings við fjárfestingu. í árs-
byrjun voru persónuskattar lækk-
aðir um ca. 1000 miljarða kr. og
hallinn á fjárlögum landsins i ár
verður alls um 5000 miljarðar.
Vesturþýskir hagfræðingar bú-
ast við þvi, að þessar ráðstafanir
geti tryggt um 6% hagvöxt á
næsta ári, verðbólga lækki niður i
4—5% og atvinnuleysi minnki um
helming. En siðustu athuganir á
vesturþýsku efnahagslifi benda
samt ekki til þess að meiriháttar
sveifla upp á við sé i vændum. Bú-
ist er við þvi að þjóðarframleiðsl-
an i Vestur-Þýskalandi minnki
um 3% i ár, enn eru atvinnuleys-
ingjar um ein miljón og vestur-
þýska stjórnin er enn að leita að
15 miljörðum marka sem hana
vantar vegna skattalækkana og
þreföldunar útgjalda til atvinnu-
leysisbóta.
Bretland
Bretar eru i allt annarri stöðu
en vesturþjóðverjar, sem hafa
lengi og af kappi barist við verð-
bólgu og dæla nú út fé til að mæta
afleiðingum þeirrar baráttu.
Bretar eiga enn við mikið verð-
bólguvandamál að glima: búist
er við að bólga þessi verði 26% i
ár.
Höfuðatriði i glimu stjórnvalda
við kreppuna er samkomulag það
sem Wilson hefur gert við verk-
lýðshreyfinguna um að launa-
hækkanir megi ekki nema meiru
en sex pundum á viku. Hitt er svo
vafamál hve vel það samkomu-
lag heldur. Stjórnin hefur ekki
gert beinar ráðstafanir til að
auka þenslu, en um 750 miljarðar
eru nú til ráðstöfunar til að
styrkja iðnaðinn. Búist er við þvi
að hagvöxtur verði litill sem eng-
inn i Bretlandi i ár, og þeir sem
bölsýnastir eru spá þvi, að tala
atvinnuleysingja i iandinu verði
komin upp i 1,5 miljónir næsta
vor.
Frakkland
Frakkar hafa nýverið gert
margþætta kreppuáætlun sem
hefur i för með sér meira en 1200
miljarða kr. i útgjöld. Meira en
helming þess fjár á að nota bein-
linis til stuðnings við atvinnu-
greinar, en afgangurinn er notað-
ur til opinberra framkvæmda og
félagsmála. Ráðstafanir sem
þessar eiga að blása lifi i franskt
atvinnulif sem nú er mjög dauf-
legt, atvinnuleysingjar um miljón
og gætu orðið 1,2 miljón undir
árslok.
Franskt efnahagslif hefur til
þessa verið i meiri þenslu en
efnahagslif flestra annarra
Evrópurikja, en OECD býst nú
við þvi að hagvöxtur i Frakklandi
muni nema aðeins 1%. Verðbólg-
an mun að likindum verða um
10%, en var 11% i fyrra.
Italia hefur við mikla verðbólgu
að glima eins og Bretland. Verð-
lag hefur hækkað um 17% frá þvi i
júli i fyrra. En staða iðnaðarins
og greiðslujöfnuðurinn hafa batn-
að að nokkru upp á siðkastið og i
ágúst samþykkti italska stjórnin
áætlun sem felur i sér um 1000
miljarða kr. útgjöld til félags-
mála, opinberra framkvæmda
o.s.frv.
Benelux
og Danmörk
Beneluxlöndin hafa staðið sig
betur en margir aðrir, og ýmsar
örvunarráðstafanir hafa þar ver-
ið gerðar á undanförnum misser-
um. Belgia á samt við verulegt
atvinnuleysi að striöa, og búist er
við þvi að i haust verði teknar upp
nokkrar skattalækkanir, virðis-
aukaskattur lækkaður á nokkrum
nauðsynjum og stutt við bakið á
fjárfestingu. Holland hefur smám
saman reynt að hressa við at-
vinnulifið með þvi að auka
greiðsluhalla á fjárlögum, sem i
ár mun nema um 650 miljörðum
króna.
Danska kreppuáætlunin, sem
nýlega var gerð með samkomu-
lagi Ankers Jörgensens við mið-
flokkana, passar vel i þá mynd
sem að ofan er rakin. Þar
er gert ráð fyrir þvi að um
150 miljörðum króna verði
dælt i atvinnulifið með ýms-
um ráðum (lækkun skatta,
niðurskurður félagslegrar þjón-
ustu, betri kjör fyrir fjár-
magnseigendur o.s.frv.) Ráðstaf-
anirnar eru eiginlega nokkuð um-
fangsmeiri en viða annarsstaðar
ef tekið er mið af stærð landsins.
En vandinn var lika ærinn: at-
vinnuleysið hefur i Evrópu hvergi
verið meira en i Danmörku und-
anfarna mánuði, það hefur verið
allt að 10%, eða jafnvel meira ef
marka má nýlega gagnrýni á þvi
hvernig atvinnuleysi er reiknað
út.
(Endursagt. Heimild
Information)
Nú grennum
viö okkur
Nýtt 4ra vikna námskeið i hinni árangurs-
riku megrunarleikfimi okkar, hefst 1.
október. Þetta námskeíð er fyrir konur
sem þurfa að léttast um 15 kg. eða meira.
Hinn góði árangur okkar næst með: 1.
flokks leikfimiskerfi — úrvals megrunar-
mataræði — sérstöku megrunarnuddi.
Læknir fylgist með árangrinum. Viktun,
mæling, gufa, ljós, kaffi. öruggur árangur
ef viljinn er með. Innritun og upplýsingar i
sima 83295 alla virka daga kl. 13-22.
Júdódeild Ármanns.