Þjóðviljinn - 28.09.1975, Side 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. september 1975
Frægir lát-
bragðsleikarar
í heimsókn
t byrjun október kemur hingað
til lands á vegum Þjóðleikhússins
tékkneski látbragðsleikflokkur-
inn „Leikflokkurinn á grindverk-
inu”, sem jafnan er kenndur við
stofnanda flokksins Ladislav
Fialka. Flokkurinn heldur fimm
sýningar i Þjóðleikhúsinu, dag-
ana 7.-11. október og verða tvær
mismunandi sýningar á boðstól-
um.
Fialka-flokkurinn var stofn-
aður 1958 i Prag af Ladislav
Fialka, sem ennþá starfar i
flokknum sem stjórnandi, aðal-
höfundur og leikari. Flokkurinn
öðlaðist mikla frægð á skömmum
tima og þykir nú meðal fremstu
ef ekki fremsti látbragðsleik-
flokkur á Vesturlöndum. Hann
hefur ferðast viða um heim, farið
i árlegar leikferðir um 15 ára
skeið til flestra landa Evrópu, til
Bandarikjanna, Suður-Ameriku
og viðar. Þá hefur flokkurinn gert
fjölda sjónvarpsþátta og kvik-
mynda, bæði sjálfstætt og með
öðrum leikhópum. Flokkurinn
hefur lagt áherslu á að hafa sem
margbreytilegastar sýningar á
verkefnaskránni, allt frá stuttum
látbragðsatriðum upp i löng
frumsamin látbragðsleikrit, þar
sem fléttað er saman töluðum
texta, tónlist og þó einkum lát-
bragðsleik.
1 hópnum, sem hingað kemur
eru 12 manns og sýnir flokkurinn
annars vegar LEIKI AN ORÐA
og hins vegar ÆFINGAR EÐA
UPPATÆKI. LEIKUR AN ORÐA
er safn látbragðsþátta, þar sem
lengstu þættirnir byggja á verk-
um frægra nútíma leikritahöf-
unda: nefnist annar þeirra Leigj-
andinn og styðst við hugmynd
leikritahöfundarins Ionescos,
hinn Leikir án orða er byggður á
samnefndu leikverki Samuels
Beckett. Nöfn á nokkrum öðrum
þáttum i þessari sýningu eru: Hið
ljúfa lif, Hljómleikarnir. Lif
mannsins o.fl.
Hin sýningin, sem Tékkarnir
sýna hér er einnig safn margra
leikþátta: Upphaf lifsins, Maður
og vél, Myndbreytingar,
Fiðrildasafnarinn o.fl. Nokkrir
þáttanna eru helgaðir Marcel
Marceau, látbragðsleikaranum
franska, sem flokkurinn hefur
staðið i tengslum við.
Hingað kemur Fialka-flokkur-
inn frá írlandi, þar sem hann
sýnir nú á listahátið i Dublin.
Leikdómum erlendra dagblaða
ber alls staðar saman um snilld
leikflokksins enda mjög hátt
skrifaður i heimi leikhúsfólks og
þykir nú einn fremsti leikflokkur
heims á þessu sviði. Hann hefur
hlotið mikinn fjölda verðlauna og
viðurkenninga á ferðum sinum.
Ladislav Fialka hefur um árabil
veitt forstöðu árlegu, alþjóðlegu
námskeiði i látbragðslist.
Fyrsta sýning flokksins verður
á Stóra sviði Þjóðleikhússins,
þriðjudagskvöldið 7. október og
verða sýningar alls fimm. Sem
fyrr segir verða sýningar tvenns
konar og verður skipting milli
kvölda nánar auglýst sfðar.
Kappræðufundur
á ísafirði
Félög alþýðubandalagsmanna og
framsóknarmanna á isafirði efna til
kappræðufundar um stjórnmál i Góð-
templarahúsinu á ísafirði/ fimmtu-
daginn 2. október nk.
Frummælendur verða Kjartan
ólafsson, ritstjori og Steingrimur
Hermannsson, alþingismaður.
Fyrirspurnir leyfðar úr sal.
Fundurinn er öllum opinn og hefst
kl. 2&.30.
Stelngrfmur
Venusarljósmyndir í Krakow
Sjötta árið I röð er haldin sýning á ljósmyndum i Krakow, Póllandi,
sem ber heitið Venus. Viðfangsefnin eru einungis andlit og nakinn lik-
ami mannsins. 4000 myndir voru sendar á sýninguna I ár, Venus-75, og
voru 446 myndii'eftir 231 ljósmyndara teknar til greina. Þetta er ein af
þeim myndum sem tfmaritið Poland birtir frá sýningunni. Hún heitir
„Brúður” og er eftir Otto Gangl frá Bandarikjunum.
RÓTTÆKUM
ÚTHÝST
Hin illræmda vestur-þýska
reglugerð um „Berufsverbot”
sem bannar að menn séu ráðnir i
opinbera vinnu eða gegni opin-
berum störfum ef skoðanir þeirra
eru ekki „i samræmi við stjórnar-
skrána” virðist nú smám saman
vera að móta vestur-þýskt þjóðlff.
Hálfopinber stofnun f Darmstadt
sem hefur umsjón með leiguhús-
næði hefur nú sett i leigusamn-
inga sina sérstaka grein sem
mælir svo fyrir að ef ieigjandi
„fari út af braut stjórnarskrár-
innar” f tali, riti eða framferði og
skaði þannig orðstir húseiganda,
megisegja leigusamningnum upp
þegar I stað án nokkurrar viðvör-
unar eða skaðabótagreiðslu.
„Reglugerðinni um „Berufs-
verbot” hefur verið beitt þannig i
reynd að menn hafa verið reknir
úr vinnu fyrir það eitt að hafa ein-
hvern tima, e.t.v. mörgum árum
áður, látið i ljós vinstri sinnaðar
skoðanir, tekið þátt i mótmæla-
göngu eða vera félagi i vinstri
sinnuðum flokkum eða félögum,
jafnvel þótt flokkarnir séu alveg
löglegir og leyfðir. Ljóst er af
leigusamningi stofnunarinnar i
Darmstadt að hún hyggst bola
sömu mönnum frá húsnæði og nú
geta ekki gegnt opinberum störf-
um. Framtaksemi hennar er enn
sem komið er einangrað fyrir-
bæri, en samt glöggt dæmi um
þær nýju „galdraofsóknir” sem
tröllrfða Vestur-Þýskalandi.
Ný stjórn hjá háskóla-
menntuðum kennurum
Aðalfundur Félags háskóla-
menntaðra kennara 1975 var
haldinn 20. sept. s.l. Kosið var að
nýju I stjórn og nefndir.
Stjórn félagsins skipa: Arn-
grimur Sigurðsson, formaður,
Árni Magnússon, Elín G. Jóns-
dóttir, Sigurður H. Benjamins-
son, Sigurður Hjartarson. 1 vara-
stjórn eru Kristján Thorlacius og
Asthildur Erlingsdóttir. I launa-
málanefnd eru: Franz A. Gisla-
son, formaður, Aðalsteinn Eiriks-
son, og Bogi Ingimarsson.
Vegna sivaxandi starfsemi fé-
lagsins hefir verið ákveðið að
hafa opna skrifstofu I Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut
og er skrifstofan opin á fimmtu-
dögum kl. 17-19, s. 21173.
Merkja-
söludagur Sjálfsbjargar
I dag sunnudag, er hinn árlegi
merkja- og blaðsöludagur Sjálfs-
bjargar, landssambands fatl-
aðra. Þá verða seld merki Sjálfs-
bjargar og blaðið „Sjálfsbjörg
1975.” Verð blaðsins er kr. 200.- og
á merki er 100.-. Sjálfsbjargarfé-
lögin ásamt trúnaðarmönnum og
velunnurum samtakanna, sjá um
sölu úti á landi. Sjálfsbjargarfé-
lagið i Reykjavik sér um sölu á
höfuðborgarsvæðinu og verða
merki og blöð afhent i barnaskól-
unum I Reykjavik, Kópavogi,
Garðahreppi, Hafnarfirði, Sel-
tjarnarnesi og i Varmárskóla,
Mosfellssveit. Einnig verða af-
greidd merki og blöð i anddyri
Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfs-
bjargar, Hátúni 12. RevH-"”-
Halli í Sví-
þjóö — hag-
stætt vestra
STOKKHÓLMI WASHINGTON
reuter — Um leið og tilkynnt er
um alvarlegan viðskiptahalla I
Sviþjóð berast fregnir að vestan
um mjög hagstæðan verslunar-
jöfnuð Bandaríkjanna gagnvart
útlöndum. Halli svia gagnvart út-
löndum nam 1.300 miljónum
sænskra króna I ágústmánuði og
samtals 2,3 miljörðum kr. frá
ársbyrjun. Hallinn var helmingi
minni i fyrra.
Verslunarjöfnuður Bandarikj-
anna var hagstæður um 1.035 mil-
jónir dollara i ágúst og um 7,4
miljarða dollara frá ársbyrjun til
ágústloka. A sama tima I fyrra
var halli á verslunarjöfnuðinum
um 1,5 miljarða $.
KAUPMANNAHÖFN 26/9 — Allir
fulltrúar Bandarikjanna og Kan-
ada og verulegur hluti fulltrú-
anna frá Bretlandi og Frakklandi
á fundi þingmanna NATO-rikj-
anna reyndist standa með
spönsku stjórninni og aftöku-
sveitum hennar I atkvæða-
greiðslu um tengsl viö
Franco-Spán. Eigi að siður marð-
ist meirihluti fyrir áskorun á
stjórnvöld í NATO-ríkjum að gera
ekkert til að hleypa Spáni inn i
bandalagið.
SJÓNVARPSTÆKI
TRYGGUR FJÖLSKYLDUVINUR
sérlega 6kýr, næm og
endlngargóð tæki.
HAFNARSTRÆTI 17
SIMI 20080
Sovétríkin
Kynnist fólki og lífi i
Sovétríkjunum.
Gerist áskrifendur að:
Sovétríkin
Iþróttir í USSR
Sovéska konan
Menningarlíf
Þjóðfélagsvísindi
Alþjóðamál
Sputnik
Erlend viðskipti
Nýir tímar
XX öldin & friður
Sovéskar kvikmyndir
Ferðir til Sovét
Moskvu fréttir
Fréttir frá Úkraínu.
Tímaritin eru á ensku,
þýsku og frönsku.
ERLEND
TÍMARIT
s. 28035
pósthólf 1175