Þjóðviljinn - 16.10.1975, Page 12

Þjóðviljinn - 16.10.1975, Page 12
f/omu/m Fimmtudagur 16. október 1975. Bankarnir opnir á kvenna- frídaginn 80-90% þátttaka i Búnaðar- bankanum 80 - 90% þátttaka verður i kvennaverkfallinu i Búnaðar- bankanum annan föstudag, sagði Edda Svavarsdóttir, starfsmaður bankans, sem Þjóðviljinn ræddi við i gær. Hún sagði það einberan uppspuna, sem komið hefði fram i frétt Þjóðviljans i gær, að til stæði af hálfu yfirmanna bankans að beita uppsögnum gegn þvi fólki sem færi i verkfall þennan dag. Hið sama sagði Stefán Pásson, starfsmannastjóri Búnaðarbank- ans. Hann skýrði jafnframt frá þvi að reynt yrði að hafa bankana opna þrátt fyrir kvennaverk- fallið. Stefán sagði að það væri afar leitt að þetta hefði komið fram um Búnaðarbankann sérstak- lega. Það hefur aldrei staðið til neitt þviumlikt, sagði starfs- mannastjórinn. Hagkaup hefur engu hótað ,,Það er ekki neinn fótur fyrir þvi að Hagkaup hafi hótað máls- sókn, ef konur legðu niður vinnu hjá fyrirtækinu 24. þ.m. Viö höfum orðið varir við þennan orðróm um nokkurt skeið, en við skiljum ekki hvernig hann komst á kreik. Konur sem hjá okkur starfa héldu fund um málið fyrir nokkru og kom þar fram að þær ætla allar að leggja ni,ður vinnu nema fjórar. Við höfum á engan hátt lagt að þeim konum, sem tekið hafa ákvörðun um að leggja niður vinnu, að breyta henni, hvað þá haft i frammi nokkurs- konar hótanir.” Þetta sögðu framkvæmdastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Hagkaups, Magnús Olafsson og Gunnar Kjartansson, vegna fréttar sem Þjóðviljinn birti i gær. lirunub ótafé lagið: Engar uppsagnir Asgeir Ólafsson, forstjóri Brunabótafélags Islands. tjáði blaðinu i gær að ekkert væri hæft i þeirri frétt að þeim konum, sem ætla að ieggja niður vinnu hjá fyrirtækinu 24. okt., hefði verið hótað uppsögnum. Landhelgisflug með TF-Sýr í gœr: Þýsku togararnir héldu sig utan við Hvalbaksmið Bjarni Helgason skipherra i landhelgisflugi TF-SÝR i gær. Mynd:gsp Landhelgisgæslan bauð i gær blaðamönnum i fyrsta eftiriits- flug TF-Sýr eftir að fært var út i 200 milur. Flogið var austur með suðurlandi að Hvalbaksmiðum. Voru togararnir óvenju utarlega, enginn fannst að veiðum innan við 80 mílur og flestir voru 60—150 milur suður af Hvalbak. Aðeins tveir togarar fundust að veiðum innan 200 milna landhelginnar, aðrir voru á siglingu eða að veið- um utan við miðllnuna miili ts- lands og Færeyja. Fyrsti togarinn sem fannst var rússneskur. Var hann ásamt öðr- um þýskum á Mýrargrunni, og voru þeir báðir á siglingu um 70 milur frá Ingólfshöfða. Á leiðinni austur sást skömmu siðar til ferða þýska eftirlitsskipsins Nordenham. Varðskipið Ægir, sem statt var suður af Hvalbak tilkynnti i gær um a.m.k. niu tog- ara við suð-austurland og grunur lék á að enn fleiri væru þar á ferð, eins og siðar kom i ljós. Nokkrir togarar fundust i hnapp rétt utan við miðlinu. Voru þeir allir að veiðum en ekki þó ó- löglegir. Enginn var þar innan miðlinu þrátt fyrir það, að þar hafi mikið verið veitt til þessa. Þótti þessi löghlýðni þýsku togar- anna næsta óvenjuleg. Sáust samtals 10 togarar i ferðinni auk SV í Noregi: Arnar Alþýðubanda laginu heilla Þingflokkur SV i Noregi sendi i gær Alþýðubandalaginu heilla- óskir i tilefni af stækkun land- helginnar i 200 milur, þar sem lýst er stuðningi við stefnu þess i landhelgismálum og stuðningi heitið við framgang hennar. Skeytið frá Socialistisk Venstreparti fer hér á eftir: „Alþýðubandalagið, Alþingi islendinga. Á þessum degi, þegar islend- ingar stækka fiskveiðilögsögu sina i 200 milur sendir þing- flokkur SV ykkur, stárfsbræðr- um sinum og félögum, kveðju sina. Alþýðubandalagið hefur haft forystu um að vernda nátíúru- auðlindir við tslandsstrendur og við munum eftir mætti styðja ykkur i baráttunni fyrir vernd- un islenskra matvælaauðlinda i hafinu, sem verða mun islensku þjóðinni og mannkyni öllu til gæfu. Við munum styðja Alþýðu- bandalagið i baráttunni gegn öllum tiiraunum til þess að grafa undan eða draga úr þess- um réttmæta áfanga. Stækkun norsku fiskveiðilög- sögunnar er nauðsynleg til þess að tryggja tilverugrundvöll fólks við sjávarsiðuna i Noregi og markviss islensk stefna i fiskveiðilögsögumálum mun efla okkur i baráttunni fyrir verndun fiskistofna við strendur Noregs. Með baráttukveðju. Þingflokkur SV” Áhrif kvennaverkfallsins: Blöðin koma ekki út sjónvarpið í vanda Dagblöðin koma ekki út laugar- daginn 25. vegna kvennaverk- fallsins daginn áður og konur munu almennt leggja niður störf á útvarpi og sjónvarpi þann dag. Ekki er þó enn séð hvaða áhrif kvennaverkfallið hefur á út- sendingu rikisfjölmiðlanna. í Blaðaprenti, þar sem Alþýðu- blaðið, Dagblaðið, Timinn, Þjóð- vijinn og Visir eru prentuð rikir algjör samstaða milli 12 setjara, sem eru allir konur, að leggja niður vinnu 24. Þessi blöð koma þvi ekki út á laugardaginn, en hinsvegar verða sunnudagsblöðin unnin eins og venja er til á laug- ardag. Væntanlega mun hið sama gilda um Morgunblaðið. Engar sjónvarpsfréttir? Algjör einhugur rikir meðal þeirra kvenna, sem við sjónvarp- ið vinna, um að leggja niður vinnu 24. Útsendingarstjórar frétta eru báðir konur og verður þvi varla Rækjuverð 22% lægra en í fyrra í gær var ákveðið nýtt verð á rækju og gildir það frá 1. október.—31. des. nk. Verðið er 44 krónur f yrir stóra rækju og 20 krónur fyrir smáa rækju. Þetta er sama verð og gilt hef ur f rá 1. júní i sumar en 22% lægra að jafnaði en mán- uðina október-desember í fyrra. Verðið var ákveðið með atkvæðum oddamanns, fulltrúa seljenda og annars fulltrúa kaupenda. Hinn fulltrúi kaupenda greiddi atkvæði gegn verð- ákvörðuninni. um fréttaútsendingu að ræða nema að einhverjir aðrir starfs- menn sjónvarps taki að sér störf þeirra. Hið sama má segja um önnur störf á sjónvarpinu. Ahrifin af kvennaverkfallinu á starfsemi sjónvarpsins ráðast þvi ekki fyrr en ljóst er hvernig karl- menn hjá stofnuninni bregðast við þvi. Útvarpið sendir 24. Á útvarpinu vinna margar kon- ur i öllum deildum. Þótt sex kon- ur gegni nú störfum á fréttastofu útvarps hefur kvennaverkfallið engin áhrif á fréttagerð, vegna þess að vaktir falla þannig, að konurnar eru ekki á vakt 24. Á auglýsingadeild vinna eingöngu konur og bjóst Guðmundur Jóns- son, framkvæmdastjóri, við þvi að þær legðu allar niður vinnu, nema auglýsingastjórinn. Ekki verða greidd út laun á föstudag- inn, þvi á skrifstofu gjaldkerans eru eingöngu konur. Gerður G. Bjarklind á þularvakt siðdegis mun ekki mæta til vinnu. Guð- mundur Jónsson sagði að varla færi nokkur að fetta fingur út i það, þó að karlmaður yrði látinn koma i stað hennar, þvi útvarpið heldi uppi ýmiskonar nauðsyn- legri þjónustu, sem ekki mætti fella niður, svo sem veðurfr. eftirlitsskipsins. Atta breskir tog- arar voru að veiðum 32 sjómilur frá Hvalbak, en þar er eitt þeirra veiðihólfa, sem þeim er úthlutað. Breskir togarar voru að sjálf- sögðu engir utan fimmtiu miln- anna, þeir veiða i sinum hólfum óareittir samkvæmt þeim samn- ingum sem nú eru i gildi og verða áfram til 13. nóvember. Mikið álag á TF-Sýr Um borð I TF-Sýr er veðurrad- ar frammi i stefni og sagði Bjarni Helgason skipherra að hann dygði þokkalega I eftirlitsflugið. 1 gæsluvélinni Sif, sem nú hefur verið seld, var hins vegar leitar- radar og kom hann að mun betri notum, ekki sist við leit að gúmmibátum, týndum skipum eða flugvélum. Bjarni sagðist vonast til þess, að i nýja Fokkernum, sem vænt- anlegur er til landsins I nóvember á næsta ári, yrði fullkomnari og langdrægari radar. Væri verið að athuga hvort svokallaður kúlu- radar, sem spannar 360 , kæmi til með að skemma flughæfni vélar- innar það mikið, að ekki væri for- svaranlegt að notast við slikt tæki. Kúluradarinn er settur neðan á „maga” vélanna og géfur hann geysimikla möguleika við leit og staðarákvarðanir. Má nefna t.d. að fyrir ut^n hinn mikla gráðuafjölda geta þrir menn fylgst með honum i einu og eykur það að sjálfsögðu öryggi. Um borð i TF-Sýr spannar radarinn 120 gráður, 60 á hvort borð. I stuttu spjalli við Bjarna Helgason skipherra um borð i Sýr sagði hann að vissulega yrði erf- iðara að verja 200 milurnar en þá landhelgi sem verið hefur til þessa. Á meðan varðskipin stæðu i eltingaleik við einn og einn tog- ara gætu hinir veitt óáriettir og hreinlega skipst á um að láta varðskip elta sig út frá veiðimið- um hverju sinni. Landhelgin hafði stækkað um 350% og með ó- breyttum tækjakosti yrði eðlilega aukið álag á flugvélar og skip. Tvöföld. áhöfn vinnur nú á gæsluflugvélinni og i viðbót við hana er liklegt að vélar verði teknar á leigu til gæslustarfa. Munu viðræður standa yfir við Flugfélagið um notkun einnar Fokkervélar þaðan. — Vissulega eykst álagið á flugvélarnar mikið þegar land- helgin er færð út I 200 mllur sagði Bjarni. — Það er með öllu von- laust fyrir skipin að anna þessu án stöðugs eftirlitsflugs og staðarákvarðana úr lofti. Við not- uðum leiguflugvélar töluvert i fimmtiu milunum og þá olli það litlum erfiðleikum að hafa ekki • góða radara um borð, þvi hægt var að taka mið af landi eða með sextöntum. Slikt er þó ekki hægt þegar komið er jafn langt frá landi og nú er nauðsynlegt. Tilkynningar TF-Sýr um þá togara sem sáust á miðunum fóru eins og venjulega beint til stjórn- stöðva gæslunnar i landi og sömu- leiðis til varðskipanna allra. Ægir var eins og áður segir við Hval- bak, Týr var við Reykjanes og Þór fyrir vestan. Albert fór á miðin i fyrradag og Arvakur lagði siðan af stað i gær klukkan tvö. —gsp BLAÐA- BURÐUR Þjóðviljinn óskar eftir blað- berum i eftirtalin hverfi: Seltjarnarnes Kleppsveg Rauöalæk Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna simi 17500. mmm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.