Þjóðviljinn - 22.10.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.10.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 22. október 1975 ÍSAFJÖRÐUR: Dagskrá frá 10 að morgni til klukkan 1 um nóttina Menntaskólapiltar gœta barna Þaö styttist óöum i kvenna- verkfalliö sem veröur ekki á morgun heldur hinn. Undirbún- ingur er nú viöast hvar á lokastigi og þvi hringdum við i nokkra staöi á iandsbyggðinni og spurö- um hvernig dagsins yröi minnst. Bryndis Schram á ísafiröi sagöi okkur að þar væri dagurinn skipulagöur allt frá kl. 10 að morgni til kl. X eftir miðnætti. Undirbúningsnefndin hefur dreift bréfi til nærliggjandi staða — Bol- ungarvikur, Súöavikur, Suöur- eyrar og Klateyrar — og hvatt konur þar aö koma til Isaf jarðar og vera meö. Klukkan tiu á föstudagsmorgun hefst dagskráin með morgunleik- fimi i félagsheimilinu á Hnifsdal og gufubaði á eftir. i hádeginu verða seldar veitingar á vægu verði i Mánakaffi. Þar verður flutt erindi um könnun sem nem- endur i félagsfræðum við Menntaskólann á isafiröi hafa gert á launajafnrétti á staðnum, einkum i frystihúsunum. Einnig verður flutt tónlist. Klukkan 14.30 hefst samkoma i Alþýðuhúsinu. Þar flytja konur úr öllum starfsstéttum — mennta- skólanemi, frystihúsakona, kenn- ari, skrifstofustúlka o.s.frv. — á- vörp og verða þau 5—6 talsins. Ekki var ljóst hver verður aðal- ræðumaður samkomunnar. Fluttur verður stuttur leikþáttur um samtal móður og dóttur, dag- skrá sem flutt var i Norræna hús- inu sl. vetur um konuna i islensk- um bókmenntum, Vestfjarða- kvartettinn flytur tónlist en hann er skipaöur tónlstarkennurum staðarins, þem Jakobi Hallgrims- syni, Jónasi Tómassyni, Sigriði Ragnarsdóttur og Gunnari Björnssyni. Að þessu loknu verða kaffiveitingar sem nefnd skipuð karlmönnum eingöngu sér um en formaður hennar er Pétur Sig- urösson formaður Alþýðusam- bands Vestfjarða. Einnig verða Bryndig Schram almennar umræður og fjölda- söngur. Kiukkan 19.30 opnar Litli leik- flokkurinn dyr sinar upp á gátt og býöur mönnum að fylgjast með æfingu á Siðustu galdrabrennunni á islandi en um kvöldið verður ball frá 22—1 og sér Villi Valli um fjörið. Þess má geta að mennta- skólanemar af karlkyni hafa tek- ið að sér að gæta barna sjó- mannskvenna svo þær geti tekið þátt i dagskránni. Bryndis sagði að allt atvinnulif staðarins myndi lamast þennan dag. Munar þar mestu um að kon- ur i frystihúsum bæjarins ætla allar sem ein að leggja niður vinnu. Kvaöst hún vonast eftir mikilli þátttöku i verkfallinu og dagskrá dagsins. —ÞH AKRANES: Konur ætla að fjölmenna til Reykjavíkur • Taka lagið um borð í Akraborg • Opið hús i Röst um kvöldið „Allir stærstu vinnustað- ir á Akranesi verða lokaðir á föstudaginn. Það er nú fullljóst að allur þorri úti- vinnandi kvenna mun leggja niður vinna hér á Akranesi. við vitum ekki svo gjörla hvað heima- vinnandi konur hugsa sér, en vonum bara að þær taki sem flestar þátt i kvenna- verkfallinu." Bjarnfrföur Leósdóttir Þetta sagði Bjarnfriður Leós- dóttir á Akranesi um kvenna- verkfallið þar, en hún á sæti i framkvæmdanefndinni ásamt Herdisi ólafsdóttur, Sigrúnu Gunnlaugsdóttur, Magdalenu Ingimundardóttur, Sigrúnu Sig- urðardóttur, Ingileif Karlsdóttur, Jóhannesi Jónssyni og Garðari Halldórssyni. „Við ætlum að fjölmenna á úti- fundinn á Lækjartorgi. Ætlunin er að fara með Akraborginni kl. 11.30 til Reykjavikur og um borð veröa flutt ávörp og efnt til fjöldasöngs. Eftir að haía tekið þátt í að- gerðum i Reykjavik förum við aftur upp á Skaga með Akraborg- inni kl. 19. Frá kl. 20 verður opið hús i Röst og þar ætla karlmenn að sjá um kaffiveitingar undir forystu Jó- hannesar Jónssonar bakara. Nú, og með kaffinu ætlum við að hafa dagskrá þar sem blandað verður saman gamni og alvöru.” Pipulagnir i Nýlagnir, breytingar, hitaveitutengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir 7 á kvöldin). UTBOÐ Tilboð óskast i að gera sökkla fyrir 1. á- fanga ölduselsskóla. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, gegn 5.000.- skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 30. okt. 1975. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASJOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Hversvegna kvennafrí? Texti: Valborg Bentsdóttir Lag: Frjálst er I fjaliasal Hvers vegna Kvennafri? Konurnar fagna þvi, takast mun allsherjar eining. Vanmetin voru störf, vinnan þó reyndist þörf. Aðeins i kaupi kyngreining. Nú á að brjóta i blað bráðlega sannast það, við sigrum, ef saman við stöndum. Konan á vilja og vit, vilji hún sýna lit. Tengjumst þvi baráttuböndum. Metinn skal maðurinn, manngildi er hugsjónin. Enginn um ölmusu biður. Hljómar um fjöll og fjörð: Frelsi skal rikja á jörð, jafnrétti, framþróun, friður. NESKAUPSTAÐUR: J „Opið hús” Illin Aöalsteinsdóttir i Nes- kaupstaö sagði okkur aö þar yröi opiö hús i félagsheimiiinu á kvennafridaginn. Þar veröur fluttur þátturinn um konuna i is- lenskum bókmenntum sem flutt- ur var I Norræna húsinu sl. vetur, 2—3 hópar kvenna syngja ýmis lög, mörg þeirra frumsamin i tii- efni dagsins, lesiö veröur upp úr bókum, almennar umræður meö stuttum framsögum og fjölda- söngur. Einnig veröa veitingar fram bornar. 15 konur hafa einkum starfað að undirbúningi og eru þar af öll- um stærri vinnustöðum bæjarins. Hlin kvaðst búast við að nokkuð mikil þátttaka yrði i kvennaverk- faliinu i Neskaupstað. —ÞH Hiin Aöalsteinsdóttir Hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps: T af arlausar umbæt ur á Reykj anesbraut Hreppsnefnd Njarðvikur- hrepps, samþykkti á fundi sinum 9. okt. s.l. eftirfarandi ályktun um umferð á Reykjanesbraut.: „Vegna þeirra tiðu umferða- slysa sem orðið hafa á þeim hluta Reykjanesbrautar sem liggur gegnum Njarðvikur, vill hrepps- nefnd Njarðvikurhrepps vekja athygli viðkomandi yfirvalda á eftirfarandi. Flestar þjónustustofnanir hreppsins, svo sem barna- og unglingaskóli, sundlaug og iþróttahús og meirihluti atvinnu- fyrirtækjanna, er neðan Reykja- nesbrautar, en ibúðarhverfin að mestu leyti ofan hennar.Umferð gangandi fólks, sérstaklega barna er þvi mjög mikil, og með auknum fjölda bifreiða um þenn- an kafla brautarinnar, hefur slysahætta stóraukist. Hrepps- nefnd. Njarðvíkurhrepps beinir þvi eftirfarandi til Vegamála- stjóra og Sýslumanns Gullbringu- sýslu: Sveitarstjórn mælist til við: 1. Vegamálastjóra, að Reykja- nesbraut verði lögð niður sem aðalumferðaræð i gegnum Ytri-Njarðvik, og að umferð- inni verði beint á Bolafót eða aðra fullnægjandi götu ofan byggðarlagsins. 2. Nú þegar, eða þar til skipu- lagsbreytingu þessari hefur verið komið á, verði gerðar ráðstafanir til að draga úr aksturshraða ökutækja áður en þau koma i mesta þéttbýlið og að komið verði upp um- ferðarljósum á gatnamótum Reykjanesbrautar og Borgar- vegar og gatnamótum Reykja- nesbrautar og Hjallavegar. 3. Löggæsla verði hert frá þvi sem nú er og þess gætt að sett- ar reglur um hámarkshraða séu virtar. Hreppsnefnd Njarðvikurhrepps leggur rika áherslu á að engar óþarfa tafir verði á framkvæmd þessara mála.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.