Þjóðviljinn - 22.10.1975, Page 5

Þjóðviljinn - 22.10.1975, Page 5
Miðvikudagur 22. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Kosið í 1. des. nefnd í kvöld Kosningar í skugga kreppuráðstafana Hœgri menn í hópi stúdenta andœfa gegn kjarabaráttu námsmanna — og fá ákúrur fyrir 1 kvöld verður kosið til 1. des. nefndar stúdenta en hún hefur það hlutverk að sjá um hátiðar- höld þann dag. Kosið verður á fundi i veitingahúsinu Sigtúni við Suðurlandsbraut. Hefst kjörfund- ur kl. 20 en kl. 21.30 verður húsinu iokað og kosning hefst. Þessar árlegu kosningar fara að þessu sinni fram i skugga harðrar kjarabaráttu stúdenta og Þegar skuttogarinn Júnl frá Hafnarfirði var á togveiðum 47 sjómilur undan Látrabjargi aðfararnótt sl. föstudags fékk togarinn lík i vörpuna. Júni kom til Hafnarfjarðar i gær. Kom i ljós, að likið er af Guðmundi H. Gislasyni háseta á togaranum - Guðbjörgu frá Isafirði, en hann féll útbyrðis ásamt tveimur félögum sinum þegar togarinn var á veiöum á svipuðum slóðum hinn 29. nóvember i fyrra. Guð- mundur heitinn var 39 ára þegar hann lést. annarra námsmanna. Allsherjar- verkfall verður i Háskólanum i dag og kl. 13.30 hefst útifundur nemenda tiu skóia á Austurvelli. Allt er þetta gert til að mótmæla áformum stjórnvalda um að skeröa kjör námsmanna um helming. Vinstri menn bera hitann og þungann af þessari baráttu en vitaskuld leggja ýmsir þeir sem telja sig stuöningsmenn Vöku — félags ihaldsstúdenta — sina krafta fram. A hinn bóginn er þvi ekki að leyna að hörð kjarabar- átta stúdenta á ekki upp á pall- borðið hjá æstustu hægri mönnum i hópi stúdenta, þám. helstu for- sprökkum Vöku bak við og fram- an við tjöldin. Þessi ihaldsöfl er td. að finna i stjórn Félags viðskiptafræði- nema. Þegar Kjarabaráttunefnd námsmanna fór fram á að hún færi að undirbúa sína deild undir átökin I lánamálunum var þetta svarið: —Hins vegar telur stjórn- in að stúdentar verði að axla byrðar versnandi efnahagsaf- komu þjóðarbúsins i samræmi við aöra þjóðfélagsþegna. Jafnframt vararstjórn FVFN við öllum rót- tækum aðgerðum af hálfu stúd- enta sem aðeins gætu skaðað máistað þeirra. 1 rökréttu framhaldi af þessu leggja hægri menn nú allt kapp á að vinna að kosningunum en ekk- ert á kjarabaráttuna. Það er hins vegar greinilegt að slik vinnu- brögð eiga ekki hljómgrunn með- al almennra stúdenta þvi á fundi sem haldinn var meðal viðskipta- fræðinema á 1. ári i gær lenti stjórnin I algerum minnihluta með ofannefnd sjónarmið sin og hlaut ákúrur fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð. Verðandi leggur til að 1. des. verði varið i umræður um krepp- una. Það er ekki undarlegt á sama tfma og námsmenn veröa fyrir barðinu á fruntalegum krcppuráðstöfunum rikisvaldsins sem byggðar eru á sama rök- stuðningi og þeim sem fram kom i ályktun stjórnar Félags við- skiptafræðinema. Þeim röksemdum er svarað þannig i dreifibréfi Verðandi: — Verðandi bendir á og mun fjalla um meðal annars i 1. des. dag- skrá sinni að námsmenn og launafólk ber ekki ábyrgð á kreppu auðvaldsins og þeirri kjaraskerðingu og verðbólgu sem af henni hefur hlotist. Þeir sem ekki vilja taka kjaraskerðingunni þegjandi og hljóðalaust eins og Vökupiltar kjósa Verðandi. En hvernig talar Vaka um kjarabaráttuna? Hún leggur til að fjaliað verði um spurninguna Hverjir stjórna islandi? og i dreifibréfi hennar segir ma.: — Forustumenn hagsmunasamtaka hafa stórmikið vald i skjóli hins siðlausa lifskjarakapphlaups sem þróast hefur í veröbólguþjóðfé- laginu. Þannig eru viðhorf Vökupilta til kjarabaráttu námsmanna og launafólks. Það er þvi engin furða þótt Vökumenn I Stúdenta ráði komi sér hjá þvi að starfa að kjaramálum stúdenta þessa dagana. —ÞH 1. umferð svœðismótsins: Ekkert jafntefli — engin Aðeins tveir keppendur á svæöismótinu komast i milli- svæðamótið. Þetta var greinilega efst i huga skákmeistaranna tólf, sem settust við skákborðin á Hótel Esju i fyrradag þegar fyrsta umferðin hófst. Það var teflt til vinnings á öllum borðum, enda lauk umferðinni svo, að ekk- ert jafntefli var og engin biðskák. Ef svoheldur áfram verður þetta skemmtilegt mót ogdrcgur að sér marga áhorfendur. biðskák Stórmeistarinn Ribla sat hjá og þeir Liberzon frá Israel og Murray frá Irlandi voru ekki komnir til leiks, en komu til landsins um klukkustund eftir að mótið hófst. Friðrik tefldi við júgóslavneska stórmeistarann Parma og hafði hvitt. Athygli manna beindist að sjálfsögðu mest að þessari skák. Friðrik tókst ekki að ná frum- kvæði i skákinni og fékk fljótlega erfiða skák. Parma komst með Fundur um Norski alþjóðameistarinn Arne Zwaig vann tékkneska stórmeistarann Jansa. Óvæntustu úrslit i 1. umferð (Ljósm. S.dór) biskup á a6 áður en Friðrik gat hrókerað en hviti biskup Friðriks var heldur illa settur á h3. Smám- saman þrengdi að hvitum og Friðrik lenti i timaþröng. Gafst Friðrik upp eftir 25 leiki, er skiptamunstap varöekki umflúið. Björn Þorsteinsson haföi svart gegn Haman frá Danmörku. Daninn komst með biskup á h6, sem varð þar ógnandi. Björn fékk að visu gangfæri með máthótun en var i miklu timahraki og lauk þeim sviptingum svo að Hamann stóð uppi með mann yfir og gafst Framhald á bls. 10 Verkalýðsfélagið Jökull: Enga samninga Almennur félagsfundur i Verkalýðsféla ginu Jökuli Hornafirði, haldinn 12. okt. 1975, fagnar þeirri ákvörðun stjórn- valda að færa fiskveiðilandhelg- ina út i 200 sjómilur og lýsir yfir eindregnum stuðningi við hana. Fundurinn varar alvarlega við, að gerðir verði samningar við erlenda aðila um veiðar inn- an landhelginnar og telur að þegarsamningarnirrennaút við breta 13. nóv. n.k. þá komi ekki til mála að gera neinskonar samninga um veiðar erlendra aðila á þeim svæðum þar sem við Islendingar höfum fengið meginhlutann af afla okkar sið- ustu árin. Þá vill fundurinn eindregiö hvetja til aukins visindalegs eftirlits með veiðum okkar sjálfra i fiskveiðilandhelginni og telur að með þvi móti gætum við enn frekar tryggt að fisk- veiðar og fiskvinnsla verði hér eftir sem hingað til einn mikil- vægasti atvinnuvegur þjóðar- innar. Almennur félagsfundur i Verkalýðsfélaginu Jökull Hornafirði, haldinn 12. okt. 1975 skorar á Alþingi og rikisstjórn að láta fara fram gagngera endurskoðun á lögum um opin- ber gjöld, þannig að leiðrétt verði það hróplega misrétti sem viðgengst við ákvöldun slikra gjalda. Jafnframt telur fundurinn, að herða beri eftirlit með framtöl- um atvinnurekenda, þannig að gengið verði úr skugga um hvort áberandi skattleysi sumra þessara aðila stafi af sérstak- lega bágbornum lifskjörum eða eitthvað annað komi til. Kvenfélag sósíalista Fundur veröur haldinn i Kven- félagi sósialista á fimmtudags- kvöld kl. 8.30 i félagsheimili prentara við Hverfisgötu. Á fund- inum verður sagt frá undirbún- ingi kvennafridagsins. Það gera konur úr þeim starfshópi fram- kvæmdanefndar kvennafrisins sem undirbúið hefur aðgerðii dagsins. Þá mun Laufey Jakobs- dóttir segja frá Eystrasaltsvik- unni. Kaffiveitingar. Grundartanga Verktakinn rekur þá sem hann skuldar mest — Við ætlum að koma saman i Reykjavik og ræða þetta mál ogþá um lcið að taka lokaákvörð- un um hvað við gerum I þvi, sagði Skúli Þórðarson formaður Verka- lýðsfélags Akraness i gær, um Grundartangamálið. Sagði hann að i gær hafi menn rætt þessi mál við forstjóra málmblendifélagsins og verður niðurstaða þeirra viðræðna m.a. rædd i dag. Skúli sagði að þar sem svo margir aðilar eiga aðild að þessu máli, Verkalýðsfél. Akrancss, Vcrkalýðsfélagið í Hvalfirði, Landsamband vörubif- reiðastjóra, félag vinnuvéla- eigenda o.fl. væri nauðsynlegt að halda fund um málið. Þess má svo að lokum geta að Jón V. Jónsson verktaki lætur hafa það eftir sér i Mbl. i gær að hann hafi sagt vinnuvélaeigend- um og vörubifreiðastjórunum upp en þeir neiti bara að hætta. Hann glcymir hinsvegar að taka það fram að þeir menn sem hann hef- ur sagt upp cru einmitt þeir menn sem hann skuidar hvað mest. — S.dór Félagsfundur Dagsbrúnar: Sundahöfn verði lokað Nœturverðir fái talstöðvar „Félagsfundur Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar, haldinn 19. okt 1975. skorar mjög alvarlega á hafnaryfirvöld Reykjavikur að beita sér fyrir þvi, að bæði göinlu höfninni og Sundahöfn verði lokað fyrirallri óþarfa umferð að nóttu til vegnar tiðra slysa, er . átt hafa sér stað á undanförnum árum. Jafnframt er talin fyllsta þörf á að næturvarðmenn á skipum hafi aðgang að litlum talstöðvum þar sem viða er ókleyft að komast i sima við höfnina.” MÓDEL BÍLAR MOTOR HJÓL Fiat 128 Rally Fiat 127 Fiat 126 Lancia 1600/ Falvia Honda Coupe Volkswagen Volvo 164 E Alpine Renault Citröen 2 cv Mini Cooper Leikfangahúsið Honda 750 Harley Davison Guzzi v7 Kawasaki Susuki BMW 75/5 BMW lögregluhjól Póstsendum samdægurs Skólavördustíg 10 Simi 14806

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.