Þjóðviljinn - 22.10.1975, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 22.10.1975, Qupperneq 12
UÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. október 1975 SKÁKMÖTIÐ Úrslit 2. umferðar urðu sem hér segir: Friðrik vann Björn, Hart- ston vann van Broeck, jafn- tefli gerðu Jansa og Timman Laine og Hamann, Parma og Zwaig. Skákir þeirra Ribli og Poutainen og Ostermayer og Liberzon fóru í bið. Er Ribli talinn með unnið tafl. í dag kl. 17.00 hefst 3ja um- ferð mótsins. Teflir þá Hart- ston við RibliHamann við van Broeck, Friðrik við Laine, Zwaig viö Björn, Timman við Parma, Liberzon við Jansa og Murray við Ostermayer. Poutainen situr hjá. Franco og Juan Carlos prins sem hann litnefndi rfkisarfa fyrir ail- nokkru. Hann hefur siðan beðið dauða Francos með sist minni eftir- væntingu en aðrir, að sögn bandariska fréttaritsins Newsweek. Flugufrétt um dauða Francos Madrid, New York 21/10 reuter — Um hálfsjöleytið i kvöld birti bandaríska út- varpsstöðin ABC f rétt þess efnis að Franco einvaldur á Spáni væri látinn. Tals- maður spænsku stjórnar- innar bar þetta til baka stuttu síðar. í frétt ABC voru starfsmenn Hvita hússins i Washington hafðir fyrir fréttinni. Stuttu áður en hún birtist skýrðu spænskir blaða- menn i höfuðstöðvum Sþ i New York frá þvi að þeim hefði verið sagt að vera þvi viðbúnir að Juan Carlos tæki við embætti Francos. Um sjöleytið skýrði talsmaður spænsku stjórnarinnar frá þvi i Madrid að ekkert væri hæft i fréttinni um andlát Francos. — Franco hershöfðingi er á lifi. Hann er undir eftirliti lækna en þeir óttast ekki um lif hans, sagði talsmaðurinn. Fyrr i dag höfðu borist fréttir um að Franco hefði fengið vægt hjartaáfall en að hann væri á batavegi. Þess má geta að bandarfska sendiráðið i Madrid þvertekur fyrir að hafa tilkynnt dauða Francos til Washington. Dagsbrún fagnar útfœrslunni: Islendingar nýti einir auðlindirnar Á félagsfundi i Dagsbrún var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Félagsfundur Dagsbrúnar, haldinn 19. október 1975 fagnar útfærslu fiskveiðilögsögunnar i 200 sjómilur. Fundurinn minnir á, að efna- hagslegt sjálfstæöi þjóðarinnar er undir þvi komið, að vel takist til um verndun fiskistofnanna við strendur landsins, en þeir eru þegar i geigvænlegri hættu. Þvi skorar fundurinn á þjóð- ina alla að standa einhuga sam- an um þá ófrávikjanlegu kröfu, að islendingar einir nýti auð- lindir islenska landgrunnsins.” Fjöldi félagasamtaka hafa mótmælt samningum um veiðar útlendinga í íslensku landhelginni — sjá 3. síðu Angóla: Uppmælingaprósentan: Sent til saksóknara Það þykir nú víst, að á- lagningarprós. bygg- ingameistara á uppmæl- ingu hafi verið 1,1 til 4% of há allt frá því í árs- byrjun 1972 að því er Georg Ölafsson verðlags- stjóri tjáði okkur í gær og sagði hann jafnframt að hann hef ði sent þetta mál til saksóknara og myndi hann ákveða um fram- hald málsins. Ekki treysti verðlagsstjóri sér til að spá neinu um það hvort stórkostleg málaferli vegna þessa væru i uppsiglingu, en sjálfsagt fer það Hka eftir þvi hvaða meðferð málið fær hjá saksóknara. Astæðan fyrir þvi að bygg- ingameistarar hafa komist upp með að hafa álagningarprósent- una svona háa i þetta langan tima, sagði Georg að væri fyrst og fremst sú, að verðlagsstjóra- embættið hefði alls ekki nægan mannskap til að fara nógu ná- kvæmlega niður i svona mál og sjálfsagt væri það einnig ástæð- an fyrir því að þetta gat gerst i upphafi. — Hinsvegar fórum við grannt ofan i þetta mál i vor og þá kom I ljós að álagningarpró- sentan var of há, sagði verö- lagsstjóri að lokum. —S.dór. Nýi meirihlutinn í útvarpsráði: Lokað á stúdenta 1. des.? t gær var rætt um l.-des. dag- skrá stúdenta á fundi útvarpsráðs i framhaldi bréflegrar beiðni Fé- lags guðfræðinema um að þeir fengju að annast messuhöld i út- varpið þennan dag. Ólafur R. Einarsson fulltrúi Alþýðubanda- lagsins i útvarpsráði lagði þá til að l.-des. málin yrðu tekin fyrir i heild og útvarpsráð lýsti afstöðu sinni til þess að útvarpa dagskrá stúdenta eins og jafnan hefur ver- ið gert áöur en kosningaúrslit til 1. des. nefndar lægju fyrir. Kosn- ing til 1. des nefndar fer fram i dag. Meirihluti útvarpsráðs vildi hins vegar ekki afgreiða málið strax, vill sjálfsagt biöa og taka afstöðu þegar kosningaúrslit liggja fyrir. Ármannsf ellsmálið: Enn verið að vinna í málinu OAU karniar ástandið sagði Þórður Björnsson rikissaksóknari Luanda 21/10 reuter — Að sögn heimilda innan portúgalska hers- ins eru sveitir FNLA nú komnar i 20 km fjariægð frá höfuðborg Angola, Luanda, þar sem MPLA ræður rikjum. Yfirlýst markmiC FNLA er að ná borginni á sitt vald áður en landiö hlýtur sjálf- stæði 11. nóvember nk. Sáttanefnd Einingarsamtaka Afrikurikja, OAU, hefur nýlokið 10 daga könnunarferð um landið. Heimsótti hún m.a. höfuðstöðvar hreyfinganna þriggja sem berjast um völdin i landinu. Nefndin mun skila skýrslu um ástandið i land- inu til Idi Amin forseta OAU. Leiðtogi MPLA, dr. Agostinho Neto, hvatti OAU til að fordæma beitingu málaliða i styrjöldinni sem geisar i landinu. Hreyfingiri hefur áður sagt að málaliðar, þ.á m. portúgalskir sjálfboðaliðar, taki þátt i bardögunum. Sýndi hún nefndinni nokkra málaliða sem teknir höfðu verið til fanga. Yfirmaður portúgalska hersins i landinu sagði i dag að hann yrði allur farinn frá Angola fyrir 11. nóvember. Sem kunnugt er af f rétt- um er lokið rannsókn Ár- mannsf el Ismálsins hjá Sakadómi Reykjavíkur og málið hefur verið sent rík issaksóknara. Þórður Björnsson saksóknari sagði i gær að ekkert nýtt væri að frétta af þessu máli nú, það væri enn verið að vinna i þvi hjá embættinu en frétta væri að vænta einhvern næstu daga. Varðandi bréf Alþýðubanda- lagsins um frekari rannsókn á þessu máli sagði Þórður að það væri ekki sérmál, nema að litlum hluta, það tengdist aðalmálinu og þvi væri heldur ekkert hægt um það að segja á þessu stigi, málin myndu fylgjast að og liggja fyrir samtimis. —S.dór Almennur fundur á Raufarhöfn: Lýsir sig andvígan stóriðjuáformum A almennum stjórnmálafundi, sem haldinn var á Raufarhöfn 19. okt., var eftirfarandi samþykkt gerð: . Aimennur umræðufundur um stjórnmálaástandiö haldinn á Raufarhöfn 19. okt. lýsir furðu sinui og andstöðu gegn nýiegri samþykkt sýslunefndar N-Þing. um staðsetningu álverksmiðju i sýslunni. Af þeim fjölmörgu rökum scm inæla gegn siíku iðjuveri bendir fundurinn á að reynsla i sambæri- legum byggðarlögum i Norcgi sýnir að undirstöðuatvinnuvegir hiða af stórskaða, — ennfrcmur að mengun lofts og sjávar, eyðing gróðurs, dýralifs og náttúruauð- linda sé komin á það stig að sporna beri gegn orkufrekum iðn- aði sem ekki stuðlar beinlinis að bættum landsnytjuin. BLAÐA- BURÐUR Þjóðviljinn óskar eftir blað- berum i eftirtalin hverfi: Seltjarnarnes Melhaga Rauðalæk Fossvog I. Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna simi 17500. vúÐV/um

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.