Þjóðviljinn - 21.11.1975, Qupperneq 9
Föstudagur 21. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Meðlag greiðist alltaf
strax frá
f æðingu barns
Frumvarp Vilborgar Harðardóttur
um breytingu á almanna-
tryggingalögum
Vilborg Ilarðardóttir mæiti i
gær fyrir frumvarpi sinu um
breytingu á almannatrygginga-
lögum. Breytingin fjallar um
meðlagsgreiðslur og gengur i þá
átt að meðlag greiðist þegar frá
fæðingu barns meðan gengið er
frá úrskurði. Nú má trygginga-
stofnun yfirleitt ekki greiða með-
lag lengra aftur i timann cn 6
mánuði frá þvi hún fékk meðlags-
úrskurð i hendur, og aldrei lengra
en 18 tnánuði aftur i timann.
1 framsögu sinni ræddi Vilborg
Harðardóttir um þá mismunun á
börnum sem fram kemur við það,
að með sumum börnum er greitt
meðlag frá fæðingu, en öðrum
ekki. Samkvæmt núgildandi lög-
um greiðir tryggingastofnunin
ekki meðlag fyrr en að fengnum
meðlagsúrskurði hjá sakadómi.
Neiti faðir að gangast við barni
dregst úrskurður og þarmeð með-
lagsgreiðslur i amk. 6 mánuði eða
þar til blóðrannsókn getur farið
fram i fyrsta lagi. En siðan getur
málið enn dregist lengi fyrir dóm-
stólunum. Er talið að lágmarks-
timi málareksturs i barnsfað-
ernismáli sé 2 1/2 ár. Alkunna er
um barnsfaðernismál sem drag-
ast i 3-4 ár, og nýlega sagðist Vil-
borg hafa frétt af máli þar sem
úrskurður gekk nú á dögunum
eftir 7 ár.
Stundum næst ekki til barnsföð-
ur fyrr en mörgum mánuðum,
jafnvel árum, eftir fæðingu
barns, og er þá ekki hægt að
sækja um meðlag á meðan. Þá
kemur og fyrir að ekki tekst að
feðra barn þrátt fyrir tilraunir til
þess, og fellur þá i hlut rikissjóðs
að greiða meðlagið.
1 öllum tilfellum fær móðir
meðlagið greitt eftirá aftur i tim-
ann, en ekki þó lengra aftur en 6
mánuði, nema til komi vottorð frá
sakadómi um að meðlagsúr-
skurðar hafi verið leitað áður en
barnið náði 6 mánaða aldri. Þó
má aldrei greiða meðlag lengra
aftur i timann en 18 mánuði.
Vilborg nefndi sérstaklega
hvernig á stóð með það barnsfað-
ernismál sem tók 7 ár að fá úrslit
i. Tilgreindur hafði verið sem fað-
ir islenskur maður sem flust hafði
úr landi. Til þessa manns náðist
ekki frekar þrátt fyrir itrekaða
eftirgrennslun og að lokum var
hætt að eltast við hann, en meðlag
úrskurðað á rikið. En að sjálf-
sögðu greiðir rikið ekki nema
hálft annað ár aftur i timann frá
þeim tima að úrskurður gekk i
málinu. 1 þessu tilviki „sparaði”
rikið sér meðlagsgreiðslu (barna-
lifeyri) um 5 ára skeið eða svo.
Það ma spyrja hvort ekki hefði
verið betra fyrir viðkomandi
móður að gefa upp sem föður
„einhvern útlending” sem hún
gæti ekki nafngreint. Eða þá
nafngreindan mann i einhverju
kaþólsku landi. Þá hefði ekki ver-
ið neitt málavafstur og meðlags-
greiðsla borist frá trygginga-
stofnun á kostnað rikissjóðs frá
upphafi.
Vilborg upplýsti að árlega
þyrfti ekki að höfða nema um 10
barnlsfaðernismál. Væru það
vissulega ekki mörg tilvik af öll-
um fæddum börnum, og raunar
ekki heldur borið saman við þá
tölu barna sem rikissjóður greiðir
óafturkræft meðlag með, þ.e.
barnalifeyri, en þau eru um 1.400.
Vilborg Harðardóttir.
Þarna er mestmegnis um að ræða
börn ekkla, ekkna og öryrkja.
Sér hefði borist bréf frá ungri
konu, sagði Vilborg, þar sem
skýrt var frá þeim vanda að faðir
nýfædds barns var staddur til
lengri tima erlendis, sjómaður á
islenskum bát. Ekki væri hætta á
þvi að hann neitaði faðerni, en
meðan ekki næst til hans fæst
ekkert meðlag úr tryggingunum.
Að sjálfsögðu er þörf móður og
barns allra mest i kringum fæð-
ingu og meðan móðirin er frá
vinnu, og þvi kemur barnsfarar-
kostnaður sem greiddur er löngu
eftir á að litlu gagni. Sama gildir
um meðlag sem greitt er löngu
eftir á, — það leysir ekki erfið-
leika móðurinnar þann tima sem
húp fær engan stuðning. Þar við
bætist að venjulega hefur kaup-
máttur viðkomandi peningaupp-
hæða talsvert rýrnað á 6-18 mán-
uðum, þvi meðlagið er greitt án
vaxta og i þeirri krónutölu sem
það var á hverjum tima.
Til að hamla gegn hugsanlegri
misnotkun laganna i þvi skyni að
losa barnsföður undan meðlags-
skyldu má setja nánari reglur, td.
um að meðlagsgreiðslur fyrir úr-
skurð séu háðar þvi skilyrði að
innan hálfs árs frá fæðingu barns-
ins sé lagt fram vottorð frá saka-
dómi um að unnið sé að faðernis-
málinu. Um þetta atriði hefur Fé-
lags einstæðra foreldra nýlega
gert .samþykkt.
Minningarorð:
Halldór Olafsson
ritstjóri frá Gjögri
í upphafi bæjarstjórnarfundar
á ísafirði, fimmtudaginn 6.
nóvcmber sl. minntist forseti
bæjarstjórnar, Jón Baldvin, Hall-
dórs ólafssonar ritstjóra og fyrr-
verandi bæjarfulltrúa frá Gjögri
eftirfarandi orðum:
Sunnudaginn 2. þ.m. barst okk-
ur sú fregn-að Halldór Ólafsson
frá Gjögri hefði látist á sjúkra-
húsi i Reykjavik, 73 ára að aldri.
Halldór fæddist að Kaldrana-
nesi i Strandasýslu 18. mai 1902.
Foreldrar hans voru Kristin
Jónatansdóttir og Ólafur Gunn-
laugsson bóndi að Kaldrananesi.
Halldór fluttist til tsafjarðar
árið 1918 og átti hér búsetu nær ó- v
slitið siðan, að undanteknu 7 ára
timabili á árunum 1936 til 1943, er
hann var búsettur á Suðurlandi.
Hann reyndist snemma bók-
hneigður og námfús. Þrátt fyrir
kröpp kjör braust hann til skóla-
göngu. Svo sem eðlilegt má heita
um strandamann á þeirri tið leit-
aði hann inngöngu i menntasetur
norðlendinga, þar sem hann lauk
gagnfræðaprófi árið 1922.
Á þeim árum mun hann hafa
komist i kynni við hugmynda-
heim og hugsjón sósialisma og
jafnaðarstefnu, sem þá heillaði
marga unga hugi, á áratugnum
eftir heimsstyrjöldina fyrri og
byltinguna i Rússlandi.
Við þær hugsjónir kaus Halldór
að halda tryggð allt til æviloka.
Á fyrstu árum Alþýðuflokksins
starfaði Halldór undir merkjum
hans, gegndi meðal annars rit-
stjórn Skutuls, málgagns jafnað-
armanna á Vestfjörðum um 2ja
ára skeið, 1928—30. En þegar
Kommúnistaflokkur tslands var
stofnaður árið 1930 skildu leiðir
með Halldóri og Alþýðuflokknum.
Hann gekk til liðs við Kommún-
istaflokkinn og siðar Sósialista-
flokkinn, þegar hann var stofnað-
ur, 1938.
Lengi vel, eða frá árinu 1943
var nafn hans tengt málgagni
Sósialistaflokksins á Vestfjörð-
um, Baldri, sem hann ritstýrði til
ársins 1959, en skömmu siðar tók
hann við ritstjórn Vestfirðings,
málgagns Ál|Dýðubandalagsins.
Þvi blaði hélt hann úti til dauða-
dags.
Nafn Halldórs er frá fyrstu tið
nátengt málgögnum þeirra
stjórnmálahreyfinga á Vestfjörð-
um, sem hann gekk ungur til liðs
við. Jafnframt kom hann nokkuð
við sögu verkalýðshreyfingar á
Vestfjörðum fyrr á árum, átti
m.a. sæti i stjórn A.S.V. um skeið.
Það var almannarómur að
Halldór væri ritfær i besta lagi,
ekki fyrirferðarmikill á ritvelli en
brá þeim mun frekar fyrir sig
laundrjúgri hnyttni i orðasenn-
um. Naut hann þess, að hann var
vel heima i islenskum bókmennt-
um og skáldskap, ekki siður en i
sinum pólitisku fræðum.
Afskipti Halldórs af bæjar-
stjórnarmálum á tsafirði hófust
snemma. Hann varð fyrst vara-
bæjarfulltrúi um eins árs skeið
1934—1935 en siðar bæjarfulltrúi
og bæjarráðsmaður fyrir Alþýðu-
bandalagið frá 1958 til 1970.
Um nær 3ja ára skeið var nafn
hans nátengt bæjarbókasafni
okkar isfirðinga þar sem hann
gegndi starfi bókavarðar frá ár-
inu 1946 og starfaði við það fram á
dánardægur.
Halldór var ókvæntur og barn-
laus.
Við þökkum Halldóri störf hans
i þágu okkar byggðarlags um leið
og við færum aðstandendum hans
samúðarkveðju.
Greiösla olíustyrkja
í Reykjavík
fyrir timabilið júni — ágúst 1975 er hafin.
Styrkir fást greiddir hjá borgargjaldkera,
Austurstræti 16, gegn framvisun persónu-
skilrikja.
Skrifstofa borgarstjóra.
TOSHIBA
TOKYO SHIBAURA ELECTRIC CO,1LTD,
Einstakt
tækifæri
Verksmiðjurnar eru 100 ára á þessu ári.
1 tilefni þess hafa þeir boðið okkur stereo-
samstæðuna SM 270 á einstaklega lágu
verði.
AJÐEINS KR. 63.560.—
og Pickering liftimateljari fyrir nálina i
spilaranum fylgir með.
SM 270 samstæðan samanstendur af: út-
varpstæki með langbylgju, miðbylgju og
FM-bylgju. Stereomagnara, plötuspilara
með vökvalyftum arm og 2 hátölurum.
Bassa og diskant stillar eru á magnaran-
um og úttök fyrir heyrnartæki og segul-
band. 2 ára mjög góð reynsla er á þessu
tæki hér á landi.
LÁTIÐ EKKI EINSTAKT TÆKIFÆRI
HLAUPA FRA YÐUR
VIÐ FENGUM TAKMARKAÐ MAGN
TÆKJA A ÞESSU VERÐI.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A
Sími16995.
Danski fiðluspilarinn
EVALD THOMSEN
og HARDY sonur hans
flytja gamla alþýðlega danstónlist i Nor-
ræna húsinu laugardaginn 22. nóvember
ki. 16:00 og einnig þriðjudaginn 25. nóv-
ember kl. 20:30.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Dansk-íslenska NORRÆNA
félagið HUSIÐ
Smáauglýsingar Þjóðviljans
30.000 LESENDUR
E
OÐv/um
Skólavörðustíg 19
Sími 17500