Þjóðviljinn - 27.11.1975, Blaðsíða 1
UOBVIUINN
Fimmtudagur 27. nóvember 1975—40. árg. 270. tbl.
Uppkastið frá Bonn verður rætt
áfram á alþingi í dag, og œtlun
ríkisstjórnarinnar er að
afgreiða málið á morgun
LEGGJUM NIÐUR
VINNU í DAG
Bréf
forstjórans
er hrein
rökleysa
— segja nœr allir
helstu sérfrœðingar
Hafrannsókna«
stofnunar
Nær allir sérfræðingar Haf-
rannsóknastofnunar sendu i
gær frá sér yfirlýsingu þar
sem þeir vísa á bug þeirri
óvisindalegu fullyrðingu Jóns
Jónssonar, forstjóra
stofnunarinnar, að sam-
komulagsdrögin við v-þjóð-
verja séu skásti valkosturinn
frá fiskifræðilegu sjónarmiði
sem völ er á. Sérfræðingarnir
segja að þessi fullyrðing sé
rökleysa frá fiskifræðilegu
sjónarmiði og aðeins persónu-
leg skoðun forstjórans á
stjórnmálalegri lausn land-
helgismálsins.
Fullyrðing Jóns Jónssonar
kom fram i svarbréfi við
beiðni sjávarútvegsráðherra
um álit Hafrannsóknastofnun-
ar á samkomulagsdrögunum
við v-þjóðverja. Álitið var sent
ráðuneytinu og þaðan til
Geirs Hallgrimssonar og
Gunnars Thoroddsens sem
hafa skipst á um að gegna
embætti sjá varútvegsráð-
herra. Bréfið var siðan birt
með stóru fyrirsagnaletri i
Morgunblaðinu i gær einu
blaða og greinilega ætlað sem
veigamikil röksemd fyrir
samþykkt samkomulagsdrag-
anna.
Sjá síðu 3.
Mœtum á útifundinn á Lœkjartorgi kl. 2
Alþýðusamband islands, Sjó-
mannasamband islands, Verka-
mannasamband tslands, Far-
manna- og fiskimannasamband
tslands, Félag áhugamanna um
sjávarútvegsmál og stjórnarand-
stöðuflokkarnir efna i nafni sam-
starfsnefndar um vernd land-
lielginnar til útifundar á Lækjar-
torgi klukkan 2 i dag, og hafa
skorað á vinnandi fólk að leggja
niður vinnu i dag.
Kjörorö dagsins:
Gegn herskipainnrás breta
Gegn uppgjafarsamning-
um í landhelgismálinu
Samstaöa til sigurs
Ræðumenn á útifundínum i’ dag
/erða: Guömundur J. Guð-
mundsson, formaður Verka-
nannasambands Islands. Magni
Kristjánsson.skipstjóri Neskaup-
ítað, óskar Vigfússon, formaður
Sjómannafélags Hafnarfjarðar
3g Pétur Guðjónsson formaður
Félags áhugamanna um sjávar-
útvegsmál.
Fundarstjóri verður Björn
Jónsson.forseti Alþýðusambands
tslands.
t tilkynningu frá samstarfs-
nefndinni segir:
„Verði slikir samningar gerðir,
eins og stefnt er að, verða islend-
ingar að minnka afla sinn um
40%.
Hvað þýðir það? Það þýðir
meiri samdrátt i efnahagslifi
þjóðarinnar en dæmi eru til um
áður i sögu hennar. Það þýðir
gifurlegt atvinnuleysi um land
allt. Það stefnir efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar i meiri
voða en hún hefur áður kynnst.
Þess vegna er Samstarfsnefnd-
in um verndun iandhelginnar á
móti samningsdrögunum við V-
Þjóðverja. Þess vegna er nefndin
á móti heimild til útlendinga til að
veiða i islenskri landhelgi. Þess
vegna hafa fjöldasamtök þau er
að Samstarfsnefndinni standa
Guðniundur
Magni
Óskar
Pétur
bundist samtökum um verndun
mikilvægustu auðlinda landsins.
Til þess að reyna að koma i veg
fyrir að þjóðin glati efnahagslegu
sjálfstæði sinu.
Það er einn liður i baráttu Sam-
starfsnefndarinnar að boða til
útifundar um landhelgismálið á
morgun, fimmtudag, kl. 2 á
Lækjartorgi, og skora jafnframt
á alla landsmenn að taka sér fri
frá störfum allan þann dag til að
mótmæla samningsdrögunum við
v-þjóðverja og til að mótmæla
herskipainnrás breta.
Tökum öll frí frá störfum i
Björn
dag. Mætum öll á útifund-
inum á Lækjartorgi kl.
14.00. Sýnum einhug
þjóðarinnar gegn her-
skipainnrás breta og und-
ansláttarsamningunum við
v-þjóöverja.
Þrír menn létu
lífíð í bruna
— Sjá nánar í frétt á baksíðu
Hlutleysisbrot að nefna
herskipainnrásina!!!
Verkalýðshreyfingin sett í auglýsingabann
Flest stærri samtök verkafólks
og fjölmörg smærri verkalýðsfé-
lög urðu i gær fyrir þcirri sér-
stæðu reynslu að vera meinað að
birta tilkynningu i islenska rikis-
útvarpinu þar, sem herskipainn-
Lúðvík Jósepsson um landhelgissamninginn:
Stjórnin tvístrar þjóðinni á
örlagastundu
Ég skora á risisstjórnina að
draga þessa tillögu um veiði-
heimildir vestur-þjóðverja I land-
helginni til baka. Það mundi
sameina þjóðina á ný I land-
helgismálinu, en rikisstjórnin er
nú að reyna að tvistra islensku
þjóðinni á örlagastundu. Margir I
stuðningsliði rikisstjórnarinnar
hér á þingi mundu halda hátfð ef
þeir sæju á bak þessari tillögu
niður i glatkistuna.
Svo mælti Lúðvik Jósepsson á
þingi i gær i umræðum um tillögu
um heimild til handa rikisstjórn-
inni að staðfesta landhelgis-
samninginn við vestur-þjóðverja.
Lúðvik var fyrstur á mælenda-
skrá að lokinni framsögu Einars
Ágústssonar utanrikisráðherra.
LUðvik sagði ennfremur:
Það er ekki hægt að leggja dóm
á þennan samning nema um leið
séu hafðir i huga aðrir samningar
um veiðiréttindi útlendinga sem
komnir eru langt áleiðis og rikis-
stjórnin virðist ákveðin i að gera.
Þetta er munstrið að allri frekari
samnin'gagerð.
Nú þegar er — fyrir utan þessi
60 þúsund tonn til þjóðverja —
talað um veiðiheimildir handa
öðrum þjóðum sem nema 95
þúsund tonnum, svo að saman-
lagt er rikisstjórnin að afhenda
eða bjóða útlendingum 155
þúsund ársafla hi’ð minnsta. Hvað
þá um veiðar okkar sjálfra þegar
fyrir liggur álit fiskifræðinga um
afkastagetu fiskstofnanna?
Annað hvort fiskum við eins og
áður og megum þá búast við
ördeyðu eftir 2-3 ár, eða við
verðum að skera niður okkar
eigin afla. Þegar er farið að ræða
þessa siðari leið, en hún þýðir
minnkandi framleiðslu, atvinnu-
leysi og stórfellda kjara-
skerðingu.
Lúðvik benti á að með
samningum heimilast þjóð-
verjum að veiða hér 20 þúsund
tonnum meira en þeir segjast
sjálfir fá hér á þessu ári. Ekkert
islenskt eftirlit verður með
heildarafla þjóðverja, þeir fengju
öll þau veiðisvæði sem þeir vildu
og hægt er að lesa út úr
samningsdrögunum að skip
þeirra eru búin fiskiméls-
verksmiðjum til vinnslu á
úrgangi og smáfiski.
Lúðvik Jósepsson lagði áherslu
á það að við getum varið land-
helgina ef stjórnvöld vilja.
Nánari frásögn á bls. 5.
rás breta væri nefnd á nafn!
Slikt telur lögfræðingur ltikis-
útvarpsins, prófessor Þór Heimir
Vilhjálmsson (frægur að endem-
um úr VL málaferlunum) aö
flokkist undir hlutleysisbrot og
meirihluti útvarpsráðs og út-
varpsstjóri dansa með.
Alþýðusambands tslands og
fjölmörg verkalýðsfélög og sér-
sambönd um land allt hugðust
taka undir áskorun samstarfs-
nefndarinnar um vernd landhelg-
innar og minna félagsmenn sina á
útifundinn á Lækjartorgi og að-
gerðir dagsins, með tilkynningum
i útvarpi i gær.
En, — nei takk, það mátti ekki
nefna herskipainnrásina. ekki að
fólk legði niður vinnu, þótt fjöl-
margar slikar tilkynningar hafi
ver.ið birtar i sambandi við
kvennaverkfallið. og alls ekki
mátti nefna, að útifundurinn væri
haldinn til að mótmæla samning-
um i landhelgismálinu'.!
Guðmundur .1, Guðmundsson.
formaður Verkamannasambands
tslands mun hafa komið með
fyrstu tilkvnninguna á skrifstofu
útvarpsins i fyrradag, og var hon-
um sagt af starfsfólki að athug-
Framhald á 14. siðu.