Þjóðviljinn - 19.12.1975, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. desembcr 1975.
Draugur
Framhald af bls. 8.
viðureignar i sögu og almættið og
fullkomleikinn.
Hitt er svo annað mál að sögu-
mynstrið býður upp á miklu fleiri
möguleika en hér eru notaðir,
meiri og óvæntari tiðindi kannski
eða þá að svo merkileg uppákoma
eins og að hitta draug sé notuð
markvisst til að koma upp um
eitt og annað sem dult á að fara i
mannheimum. Onnur athuga-
semd sem annars má gera við
þessa læsilegu sögu er sú, að
manni finnst Drilli fuH-al-
þjóðlegur, óþarflega mikið
skyldur Andrésöndblöðum og
reimleikagamankvikmyndum. —
Sagan hefði kannski orðið tvi-
sýnni og jarðbundnari ef meira
hefði verið tekið mið af þeim arfi
sem við eigum i kankvislegum
draugagangi hér heima fyrir.
A.B.
Greinargerð
Framhald af 13. siðu.
kvæmdir við það miðaðar. For-
senda fyrir þessari áætlun var, að
stöðvarhúsið yrði gert fokhelt
fyrir veturinn ’75—’76.
Crtboð á mannvirkjum hefði
tekið nokkra mánuði og kom þvi
ekki til greina, ef sett timamörk
áttu að standast. Var þvi óhjá-
kvæmilegt að ráða verktaka til
verksins, og fól Kröflunefnd VST
að kanna hvaða verktakar kæmu
helst til greina.
I aprilmánuði s.l. aflaði VST
upplýsinga um hvernig verkefn-
um væri háttað hjá þeim fyrir-
tækjum, sem helst komu til
greina og var rætt við fulltrúa
nokkurra þeirra. Að lokum stóð
valið milli Miðfells h.f. i
Reykjavik og Norðurverks h.f. á
Akureyri sem höfðu látið i ljós
áhuga á verkinu. Lögðu bæði
fyrirtækin fram upplýsingar um
tækjakost, starfslið og fyrri verk.
A grundvelli þeirra upplýsinga og
annarra tiltækra upplýsinga um
fyrirtækin tók VST saman grein-
Frá Tækniskóla
íslands
Höfðabakka 9
Reykjavík
Sími 8-49-33
STÝRIMENN OG AÐRIR SJÓMENN
Athugið nýja námsbraut við Tækniskólann
Mámsgreinar' Kennsl.ustundir/viku £
1. hluti 2. hluti 3. hluti
Almennar greinar 18 8 3 435
Skipið, búnaður og viðhald - 2 2 4 120
Fiskifræði og fiskihagfraói 3 45
Veiðar og veiðarfæri 4 4 120
Hiálpartæki við veiðar 2
Afli, verðnœti og meðferð 4 4 4 180
Viðskiptamál 9 18 20 705
Samtals 36 38 35 1635
Vegna náms i útgerðardeild er krafa gerð um starfsreynslu á fiski-
skipum og við fiskvinnslu a.m.k. 12 mán. við upphaf náms og a.m.k. 18
mán. fyrir lok náms.
Undirbúningsdeild (ubd) og raungreinadeild (rgd) starfa á Akureyri og
ísafirði. í Reykjavik starfa allar deildir skólans.
Strax eftir áramótin er fyrirhugað stutt aðlögunarnámskeið i efnafræði
fyrir nýja umsækjendur.
Umsóknargögn (prófskirteini, sjóferðabók o. fl.) þurfa að berast skólan-
um fyrir jól.
/i
<0
argerð um þau og lagði fyrir
Kröflunefnd. Er hún dagsett 17.
mai 1975. 1 greinargerðinni er
m.a. fjallað um reynslu verktak-
anna á sviði. byggingarfram-
kvæmda, fjármál og tækjabúnað.
Kemur þar fram, að VST taldi
bæði fyrirtækin hafa næga verk-
þekkingu og reynslu til að vinna
verkið.
Talsvert vantaði á að Norður-
verk h.f. hefði yfir að ráða nægum
tækjakosti til framkvæmdanna.
Vantaði fyrirtækið t.d. mulnings-
og hörpunartæki til steypuefna-
framleiðslu og fullnægjandi
steypuhrærivélar en ráðgerði að
útvega þau tæki erlendis frá. Með
tilliti til þess, að engan tima mátti
missa, ef unnt átti að vera að
koma stöðvarhúsinu undir þak
fyrir veturinn, taldi VST óvarlegt
að treysta á afgreiðsluloforð
tækja erlendis frá.
Miðfell h.f. hafði hins vegar til-
tæk öll nauðsynlegustu tæki til
framkvæmdanna og gat hafist
handa án tafar. Réði það atriði
úrslitum um það, að VST lagði til
við Kröflunefnd, að gengið yrði til
samninga við Miðfell h.f. Sam-
þykkti nefndin þá tillögu og gerði
bráðabirgðasamkomulag við
Miðfell h.f., sem hófst handa um
virkjunarframkvæmdir síðari
hluta maimánaðar s.l. Verk-
samningur var siðan undirritaður
4. júli 1975. Með þeim samningi
tók Miðfell h.f. að sér að gera
stöðvarhúsið fokhelt, steypa
undirstöður kæliturna og undir-
stöður háspennuvirkja og að
ganga frá stöðvarhlaði.
Nokkrir verkþættir við frágang
stöðvarhúss hafa verið boðnir út i
haustog útboð annarra er i undir-
búningi.
Fiskiskip
Framhald af bls. 10.
ar i veiðum og vinnslu, allt frá ár-
unum fyrir 1960. Þessu ber að
snúa við og leggja meiri áherslu á
betri nýtingu aflans.
Ein meginröksemd Lúðvíks
fyrir fjárfestingu i veiðum er
sú, að aflinn, sem botnfiskstofn-
arnir hafa gefið af sér, nemi
7—800 þús. tonnum, og það taki
tvö ár að smiða ný skip. Við þetta
er það að athuga, að miðað við
meðalviðkomu, tekur það um það
bil 10 ár að koma stofnunum i við-
unandi horf, jafnvel þótt fyllstu
varúðar yrði gætt. bað er hætt við
að sá floti, sem byggður væri nú,
væri ,,að meðaltali” allgamall, er
hann hæfi veiðar, ef hann á að
biða eftir þessu verkefni.
Reykjavik, 12.12. 1975
Gylfi Þórðarson Jakob Jakobsson
IIjalti Einarssoi Jónas Blöndal
Jónas Bjarnason,
Mótmæli
Framhald af bls. 3.
raunhæfari úrræða i þessu efni.
Bæjarstjórnin bendir á, að með
þessum aðgerðum er i reynd ver-
ið að skattleggja sveitarfélögin
vegna mála, sem þau hafa engan
ihlutnarrétt um og þannig þver-
brotnar yfirlýsingar rikisstjórn-
arinnar um stefnu hennar i mál-
efnum sveitarfélaganna.”
Sign. Þórir Iiilmarsson, bæjar-
stjóri.
Hafnarfjörður
Bæjarstjórn Hafnarf ja rðar
mótmælir þeirri stefnu, sem
kemur fram i frumvarpi þessu að
ætla sveitarfélögunum aukna
hlutdeild i innheimtu tekna fyrir
rikisstofnanir.
Telur bæjarstjórn eðlilegast, ef
nauðsyn þykir að tryggja aukna
tekjustofna til reksturs sjúkra-
trygginganna, að þá annist inn-
heimtustofnanir rikissjoðs inn-
heimtu slikra tekjustofna og
skorar á Alþingi að breyta frum-
varpinu i þá átt.”
Sign. Guðbjörn Ólafsson, bæjar-
stjóri.
Fjárlög
Framhald af bls. 6.
hennar og afgreiðslu annars stað-
ar i blaðinu.
Að lokinni annari umræðu
málsins i efri deild, var það þegar
i stað tekið til þriðju umræðu.
Ragnar Aralds kvaddi sér hljóðs
og flutti breytingartiliögu, en
skýrt er frá efni hennar og af-
greiðslu annars staðar i blaðinu i
dag.
Ragnar sagði,
að nú þegar
fjármálaráð-
herra vantaði
peninga i rikis-
kassann, þá
hafi hann fengið
nafna sinn og
félaga fyrir sig
hjá þvi fólki,
sem þyrfti á lyfjum og læknis-
hjálp að halda, — þannig eigi að
komast hjá þvi að hækka
fjárlögin!
Fra atkvæðagreiðslum um
breytingartillögur segir annar
staðar, en frumvarpið var að
lokum samþykkt með 12 at-
kvæðum stjórnarsinna gegn 6 at-
kvæðum stjórnarandstæðinga og
sent neðri deild.
PIERPOflT
úrin
vinsœlu í
miklu úrvali
Kornelíus
Jónsson
úrsmiður
Skólavörðustig 8
Bankastræti 6
ódýra
iþróttabúðin.
HELLAS
Skólavörðustíg 17
Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og
bróður,
Harðar Þórðarsonar
sparisjóðsstjóra,
öldugötu 34.
Ingibjörg Oddsdóttir,
Þórður Haröarson, Sólrún Jensdóttir
Anna Haröardóttir, Leifur N. Dungal
barnabörn og systkini
tmmmmmmmmmmmmmmmmm—mmmmmmmmí
Rektor