Þjóðviljinn - 11.01.1976, Side 12

Þjóðviljinn - 11.01.1976, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. janúar 1976. Vinnuaöstaöan á Reykjavíkurflugvelli í megnasta ólest Þann 13. janúar nk. verður eitt ár liðið frá brunanum mikla á Reykjavikurflugvelli, þegar flug- skýli Flugfélags tslands brann til kaldra kola með nánast öllu þvi sem inni var. Um áttatfu flug- virkjar höfðu þar aðstöðu fyrir öll sin störf undir einu og sama þak- inu, en nú hafa þeir i tæplega eitt ár unnið á tvist og bast út um a 11- an völl, lagerinn hér, radiódeild þar, verkstæði hér, véladeild þar, mótordeild hér, mælitækjadeild þar o.s.frv. Nokkrar deildir, þar á meðal skoðunardeildin hafa meira að segja þurft að hrekjast langt út fyrir fugvallarsvæðið og eru nú til húsa i Bændahöllinni, Ekki er þó nóg með að vinnuað- staðan sé óendanlega tafsöm vegna þess, hve mannskapnum er tvistrað heldur þykir flugvirkjum þó enn verra, að hirast i gömlum hriplekum og stórhættulegum hermannabröggum með tæki upp á tugi eða hundruð miljóna króna. Þau liggja enda mörg hver nánast undir skemmdum vegna raka eða litils hitastigs, t.d. það, sem geymt er i flugskýli númer 4, sem er eina skýlið sem notast er viö um þessar mundir af Flug- félagi islands. Þar er sama hita- stig inni og úti og þegar flug- virkjar yfirfóru tvær Fokkervélar skömmu fyrir jól var aðstaðan heldur bágborin. Ekki var nóg með að 10 eða 15 stiga gaddur væri þar innan dyra heldur var snjókoman til mikilla trafala!! Þannig er búið að heilli starfs- stétt i þjóðfélaginu og trúlega myndi heyrast hljóð úr horni frá t.d. félagi prentara eða skrifvéla- virkja ef öllum meðlimum þess yrði boðið upp á það, sem flug- virkjar hafa nú þurft að kyngja um áratugaskeið án nokkurra að- gerða. Bruninn markaði svo sem engin timamót, vinnuaðstaðan hafði lengi verið bágborin þótt hún versnaði margfaldlega i kjöl- far hans. Flugvirkjar hafa farið á fundi hjá Flugmálastjóra, forstjóra Flugleiða og fleiri aðilum og reynt margoft að benda á hörmu- legan aðbúnað og ekki siður þá hættu, sem honum er samfara. Rétt er að hafa það i huga að fáir menn bera meiri ábyrgð i starfi en þessi stétt, mistök við ná-' kvæma stillivinnu geta orðið dýr- keypt og hugsanlega orðið tugum eða hundruðum að fjörtjóni. Handvömm i starfi er enda ekki liðin og má sækja flugvirkja mis- kunnarlaust til saka fyrir kæru- leysi. - *■ ^ 4 ttím&sqgíiœ&jtp stiga ylum „Segðu blaðamanninum að þetta þættu f jandanum lélegri kindahús”, kallaði Brandur Tómasson um leið og hann skeiðaði i burtu. Hægra megin á myndinni sést til Brands en i forgrunni er Ragnar Karlsson, formaður fiugvirkja- félags tslands. Á bak við sést i gamla hermannabraggann, þar sem búið er að hrúga saman fjölmörgum deildum flugvirkjanna. „Húsið virðist að hruni komið, eldhættan geysileg og tugmiljónaverðmæti er geymt þarna, sögðu flugvirkjarnir. sem islenskum virkjum er boðið upp Þess er þó krafist að þeir yfir- fari og stilli stórar sem litlar flug- vélar i hörkufrosti og snjókomu, krókloppnir á höndum stirðir og kaldir. Ennþá hefur ekki slys af hlotist, enda segja flugvirkjarnir sjálfir að aðstaðan hafi ekki áhrif á nákvæmni þeirra heldur fyrst og fremst afköstin, sem minnka geysilega þegar „kalt er i veðri”. Þjv. sótti flugvirkjana heim fyrir skömmu, skoðaði húsakynni þeirra og forvitnaðist um liðsand- ann. Ragnar Karlsson, formaður Flugvirkjafélags tslands gekk með blm. um skúrana hripleku en fyrst var rætt vitt og breitt um verkefni islensku flugvirkjanna og hvað betur mætti fara i þvi sambandi. — Við erum alveg sannfærðir um það, að við getum annað miklu meiri vinnu en boðin er um þessar mundir. Flugvélarnar stóru fara hver á fætur annarri i skoðanir og viðgerðir erlendis upp á hundruðir miljóna, jafnvel miljarða árlega, á meðan við er- um að berjast i þvi hér heima að fá sæmilega aðstöðu til þess að geta gert þetta sjálfir. Okkur virðist raunar að einhverra hluta vegna hafi Flugleiðir ekki nema takmarkaðan áhuga á þvi að færa þessi verkefni hingað inn til landsins, sagði Ragnar. — Við erum núna að biða eftir niðurstöðu i viðamikilli könnun, sem Hagvangur er að vinna fyrir Flugvirkjafélagið um þessar mundir. Þar er kannað til hlitar' hvort hagkvæmt sé eða ekki að vinna að viðgerðum og viðhaldi á öllum islenskum flugvélum hér- lendis og sömuleiðis hlutum þeim öðrum, sem nátengjast flugvéla- málunum. Viðeigum von á þvi að könnuninni ljúki fljótlega og þykjumstraunar vissirum að þar verður sýnt fram á með óyggj- andi rökum og ákveðnum tölum, hve mikið sparast i gjaldeyri og ýmsu öðru, ef verkefnin yrði færð komin tæki og ýmislegt annað, sem á bjátar. — Og hvenær á svo að rætast úr? hingað Flugvirkjaskortur Annars er skortur á flugvirkj- um hér heima um þessar mundir. Við erum um 170—180, sem erum skráöir i Flugvirkjafélagið en þar af má reikna með að um 150 séu starfandi. Töluverður fjöldi vinn- ur i islenskum flughöfnum er- lendis og við vitum að þeir vilja margir koma hingað heim. Vinnuaðstaða fyrir þá er hins vegar ekki fyrir hendi. Iscargo var t.d. að biðja okkur um flug- virkja og enda þótt margir vilji koma heim treystum við okkur ekki til þess að biðja þá um það. Það er ekkert grin fyrir sam- viskusaman flugvirkia að vinna i gaddi og snjókomu með ófull- — Það veit ekki nokkur maður. Manni viröist helst að það sé nánast smekksatriði hver það er, sem á að taka af skarið. Flug- leiðir visa á Flugmálastjóra, hann visar á Skipulagsdeild Reykjavikurborgar og þannig gengur málið hring eftir hring og maður er steinhættur að botna i þvi hvar strandið er. En ein- hversstaðar er málið greinilega stopp i bili. Rikið átti sjálft flugskýlið sem brann og mörgum þykir eðlilegt að það verði opinberir aðilar sem byggi nýtt skýli. En hver svo sem á að eða ætlar að ganga i verkið virðist taka þessu rólega og hjá Flugmálastjóra fást þau svör ein, að það standi á Skipulagsdeild- inni. Hitt er lika ljóst, að þótt sótt hafi verið um verulega upphæð til byggingar flugskýlis er ekki gert ráð fyrir einni einustu krónu á fjárlögum til slikrar byggingar og við sjáum þvi ekki fram á miklar breytingar i bráð. Forstjóri Flugleiða hefur sagt að það sé alls ekki i hans verka- hring að bæta úr ástandinu né byggja flugskýli. Á þvi hafi fyrir- tækið engin ráð. Það má þó geta þess að Flugleiðir fjárfesta viða um þessar mundir, byggja 80—100 miljón króna skrifstofu- húsnæði við hlið Loftleiðahótels- ins, kaupa Hótel Esju eins og að drekka vatn, fjárfesta i öðrum flugfélögum og lengi má tina til stórframkvæmdirnar. Allar stórskoðanir erlendis Flugfélögin Air Viking, Iscargo og Flugleiðir taka allar skoðanir „Ekkert tillit er tekið til krafa okkar um mannsæmandi vinnuaðstö og bera þó fáar starfstéttir meiri ábyrgð en við”, segja flugvirkjar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.