Þjóðviljinn - 11.01.1976, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 11.01.1976, Qupperneq 13
ÞJÓDVILJINN — SIÐA 13 Hreinlætisaftstaöan: 1 rúmlega helmingi þessarar litlu viðbyggingar fremst á myndinni er hreinlætisaðstaöa yfir fimmtiu flugvirkia auk annars starfsliðs. Astandið i þeim málum er hormulegt svo ekki se meira sagt. Radiódeildin: Þarna vinna nú þrir menn og sá fjóröi er að bætást við. Axel Bryde radíósimvirki situr við borðið en hinum megin þilsins litla fyrir framan hann er mælitækjadeild með jafnmikið pláss og þrjá menn i vinnu. Tugmiljónaverðmæti liggur daglega á borðum þessara manna. „Það er verst hvað það lekur mikið úr rafmagnsdósinni þegar rignir úti”, sagði Axel. Véiadeiid: 30 manns hafa aögang að þessum litla sal, sem er sæmilega tækjum búinn og hvorki hriplekur né iskaldur — sem sagt: hreinasti lúxus. Asgeir Samúelsson yfirflugstjóri i forgrunni. Mótor- og skrúfudeild: Myndarlegar skrúfur verða ekki samsettar þarna ööruvisi en með svipuðum tilfæringum og þegar „Feitimúli” i Andrésar önd blöðunum lakkar stofugólf og skriður svo upp strompinn. A myndinni má greina þá Ragnar og Jón ræða saman fyrir framan miljónamótor úr Fokker vél. á sinum vélum erlendis Vélar eins og DC-8 þurfa að fara i skoðun á 350 flugtima fresti og aðrar vélar af svipaðri stærð álika oft. Ennþá stærri skoðanir á vélunum eru framkvæmdar öðru hvoru og okkur þykir fjandi hart að missa þetta allt saman út fyrir landsteinana. Við treystum okkur fyllilega til þess að gera þetta hér heima ef við fáum að þjálfa upp mannskap og njótum betri að- stöðu. Rök flugfélaganna fyrir þvi að gera þetta úti eru einkum þau, að hérlendis sé ekki um endastöðvar vélanna að ræða. Við teljum þessi rök fráleit, ekkert er auðveldara en að hagræða flugi þannig að vélarnir geti stöðvað hér og tekið skoðanir með eðlilegu millibili. Að ekki sé nú talað um ef flugvél- um fjölgar þá yrði þetta nánast barnaleikur. Loftleiðirhafa m.a.s. flogið alla leið frá Lusemburg til Parisar til þess eins að fá skoðun og þótt flugvirkjaskortur sé um þessar mundir og yfirnóg að gera viljum við endilega fá meira. Stéttin myndi um leið stækka, vinnuað- staðan gjörbreytast, afköst á hvern mann aukast og gjaldeyrir 'sparast svo eitthvað sé nefnt. Flugskýli 4: Það er það eina sem Flugfélag islands hefur afnot af utan flugskýlis númer 3, þar sem hægt er að geyma inni tvær vélar yfir nótt- ina. i flugskýli 4 er nú loksins unnið að endurbótum, en fyrir jólin var unnið þarna að nákvæmum viðgeröum I 10 stiga gaddi og snjókomu! Skoðunardeildin í Bændahöllinni Við Ragnar sitjum enn inni á mótor- og skrúfudeild. Við höfum tyllt okkur undir hreyfil úr Fokk- erFriendship, vél, sem nýkominn er úr klössun frá Rolls Royce og hér heima er lögð siðasta höndin á verkið. Hreyfillinn er tugmil- jónaverðmæti þótt hann láti ekki mikið yfir sér og honum er bögglað inn á sina deild, sem i félagi við skrúfudeild hirist úti i skoti vöruskemmu Flugfélagsins. Þar er svo þröngt, að ekki er með góðu móti hægt að setja hreyfil saman Að visu er hátt til loft en seint verður sagt að vitt sé til veggja. Einmitt þar stendur hnif- urinn i kúnni á þessari deild, myndarlegir hreyflar verða að setjast saman með miklum til- færingum á þeim litla fermetra- fjölda sem fyrir hendi er. Hvar við sitjum þarna og ræð- um málin kemur aðvifandi Jón N. Pálsson yfirskoðunarmaður. Hann er langt að kominn, þvi deildin hans er ein af þeim, sem -hrökklaðist alla leið út i Bænda- höll og eiga starfsmennirnir þvi langt að fara á milli. „Þetta er svona álika og að þið á Þjóðvilj- anum hefðuð ritstjórana á einum stað og blaðamennina siðan nokkra kilómetra i burtu. Af- greiðslan gæti siðan verið enn annars staðar og ef ykkur vantaði handritapappir i miðri grein þyrftuð þið e.t.v. að hlaupa nokkur hundruð metra eftir hon- um. Þetta þætti varla mikil MYNDIR OG TEXTI: GSP vinnuhagræðing en svona hefur þetta nú verið hjá okkur, segja þeir félagar. — Við erum ábyrgir fyrir flug- öryggi flugvéla Flugfélags Is- lands, segir Jón. Það er óneitan- lega ekki þægilegt að standa i þessum fiækingi á milli, fyrst að lita yfir vélarnar hér á vellinum, svo að brenna upp i Bændahöll að stimpla plöggin eða annað þess háttar og svo aftur niður eftir að skila þessu frá sér. Þetta er eilif- ur þeytingur og litil nýting á starfskrafti. Þrjár aðrar deildir fluttu i Bændahöllina eftir brun- ann, skipulagsdeild, tæknideild, verkfræðideild og innkaupadeild. „Þetta þættu léleg kindahús” Við kveðjum Jón yfirskoðunar- mann og yfirgefum hornið i vöru- skemmunni, þar sem sex menn vinna að öllu jöfnu. Leiðin liggur . yfir i aðalskála flugvirkjanna, gamlan hermannabragga, þar sem áður var vörumótt. Flug- félagsins. A leiðinni mætum við Brandi Tómassyni flugvirkja og elsta starfsmanni Flugfélagsins. „Segðu blaðamanninum að þetta þættu fjandanum lélegri kinda- hús” kallar Brandur til Ragnars og þar með er það móttekið. — Þetta er að falli komið ef marka má sprungur og fleira i út- veggjum, segir Ragnar. Hér i þessum skála er búiö að troða saman nokkrum deildum og svo sannarlega verður ekki annað sagt en að þröngt sé setið. Tæki upp á tugmiljónir eru hér inni og eldhættan i þessum bröggum geysileg. Við kikjum fyrst inn i krók, sem er á við þokkalega stofu i venju- legri ibúð. Þar eru saman i einni sæng radió- og mælitækjadeild með samtals 6 menn i vinnu og á að bæta einum við. — Það er nú fyrir sig með þessi þrengsli, segir Axel Bryde radió- simvirki. — Hitt er verra hvað kofinn lekur, sérstaklega i gegn- um rafmagnsdósina, það er bara látlaust vatnsstreymi hér inni ef dropi kemur úr lofti. Auðvitað er þetta bagalegt, sérstaklega ef bleyta kemst i tækin. Þau eru upp á ófáar miljónir að verðmæti, sem eru i þessu herbergi daglega. Með mælitækjunum fara þau aldrei undir 6—8 miljónir. — Hvað svo ef kemur eldur upp i húsinu? — Við höfum vissulega rætt þann möguleika og frá okkar hálfu er allt á hreinu með við- brögðin: Forða sér bara i dauð- ans ofboði eins langt og mögulegt er. Það yrði ekki viðlit að bjarga neinu, kofinn hlyti að fuðra upp á nokkrum minútum, segir Axel. „Viö erum farnir að venjast þessum bráðabirgða- lausnum” Þegar við höfðum þrætt allar þær deildir, sem gistu i her- mannabragganum var haldið niður i véladeild, sem ekki er ýkja langt undan miðað við aðrar fjar- lægðir á milli vinnustaða flug- virkjanna. Að véladeild hafa að- gang um 30 flugvirkjar og þótt oft sé þröng á þingi má segja að hún standi þokkalega hvað snertir tækjabúnað og annað þess háttar. Auk þess er hiti i húsinu og enginn leki þannig að þar þykjast menn ekki nokkurn veginn á grænni grein. I véladeildarhúsakynnum hitt- um við Ásgeir Samúelsson yfir- flugvirkja á svæðinu. — Það eru hér á vellinum svona fimmtiu flugvirkjar sem vinna á okkar vegum, segir Asgeir. — Þar við bætast trésmiðir, járn- smiðir, rafvirkjar, útvarps- virkjar, verkamenn og fleiri. Auðvitað eru allir orðnir þreyttir á þessu ástandi hérna, menn hljóta eðlilega að gera einhverjar lágmarkskröfur i sambandi við vinnuaðstöðuna, hún getur varla orðið verri en þetta. Þaðer a.m.k. erfitt að fara neðar en orðið er án þess að hreinlega leggja starf- semina niður. — Veist þú hvenær á að rætast úr? — Nei, ekki frekar en nokkur annar. En það hlýtur nú eitthvað að fara að gerast á næstunni annað heldur en þessar eilífu Itafmagnsdeild: Yfirleitt uni fjórir menn i vinnu I þessum litla gangL Gunnar H. Arnason deildarstjóri fremst.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.