Þjóðviljinn - 11.01.1976, Page 14

Þjóðviljinn - 11.01.1976, Page 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. janúar 1976. Snjókoma og 10 stiga ... „Hvers vegna er hundruðum miljóna eytt árlega i skoöanir á þessum stóru vélum eriendis”, spyrja flugvirkjar og segjast reiöubúnir til þess aö gera þetta sjáifir. bráðabirgöaráðstafanir. Hér verður enginn vandi leystur öðru- visi en með byggingafram- kvæmdum. En vissulega erum við farnir að venjast þessum bráðabirgðalausnum, þær eru búnar að ganga svo áratugum skiptir. — Hvað er það sem hrjáir ykkur mést? — Fyrir utan þessi þrengsli eru það vinnuskilyrðin i flugskýli númer fjögur, sem er okkar að- alvinnustaður. Skýlið hefur til þessa lekið mikið, verið algjör- lega óeinangrað og án nokkurs hitagjafa. Einnig hefur lýsingin verið afar slæm. Ákvörðun um bráðabirgða- framkvæmdir eftir brunann fyrir ári siðan var tekin einhvern timann i sumar. Við höfum nú ekki orðið varir við miklar breytingar þrátt fyrir það en þó er rétt að geta þess, að flugskýli 4 er i mikilli endurhæfingu. Einangrun verður sett á alla veggi, rafmagnsljósbúnaður fullkomnaður hitalagnir lagaðar og fleira gert til endurbóta. Framkvæmdir hafa nú gengið frekar seint, vegna veðráttunnar trúlega, en vonast er þó til þess, að skýlið verði tilbúið i mars. Á meðan notumst við við skýli Landhelgisgæslunnar við hinn endann á flugvellinum til stærri verkefna, — jú það er vissulega orðið ansi langt að fara frá bragganum hérna og yfir hinum megin. Það er lika bannað að fara yfir flugbrautina. — En hvað er það sem þið biðjið um, hvað viljið þið að verði gert? — Við biðjum fyrst og fremst um það að starfseminni verði allri komið undir eitt og sama þak. Deildirnar vinna það mikið saman eða eru það tengdar að það er óhugsandi að reka þetta svona öllu lengur. Lager, verk- stæði, flugskýli og allar deildirn- ar þurfa að vera saman og mötu- neytið þyrfti að sjálfsögðu að vera i grenndinni eða jafnvel á sama stað. Þvi er lika ekki að neita að hreinlætisaðstaðan er langt fyrir neðan öll mannsæmandi mörk. Það má þó með lagni finna þrjú eða fjögur salerni samtals á allt flugvirkjaliðið en þetta er vinna sem krest einnig góðrar aðstöðu til þvotta og ekki verður sagt að hún sé fyrir hendi hér. — Verðurðu var við þreytu hjá mannskapnum? — Já, auðvitað eru menn þreyttirá þessu og þvi neitar eng- inn að afköstin i sæmilegum húsakynnum yrðu meiri en nú er. Auk þess lýjast menn að sjálf- sögðu þegar þeim liður hreinlega illa i vinnunni dag eftir dag, eru kaldir, blautir o.s.frv. — Kuldinn verður lika trúlega ennþá meira bitandi þegar menn gera sér grein fyrir þvi að hann er ein- göngu vegna slælegra vinnu- bragða yfirvalda, sem draga það æ lengur að gripa til raunhæfra aðgerða til úrbóta, bætir Ragnar við i þvi að Asgeir yfirflugvirki er kvaddur. Ég hef nú heyrt um nokkra menn sem hreinlega eru að hugsa um að hætta út af þessum að- búnaði, segir Ragnar þegar við göngum úr véladeildinni yfir i flugskýli númer fjögur. Sinnu- leysið i byggingamálum fer i taugarnar á mönnum, — meira og meira eftir þvi sem liður á. Flugskýli fjögur blasir nú við og þegar inn er komið er snjóslabb um allt gólf. Skýringin er einföld ef litið er til lofts, þar sér i heiðan himininn gegnum aragrúa smágata. Maður tosar upp buxnaskálmarnar og sótbölv- ar meðferðinni á flugvirkjum með hluttekningu. — Já, þetta er ekki glæsiíegt, segir Ragnar. — Það eru ekki nema tveir atvinnurekendur sem eiga aðgang að sæmilegri að- stöðu. Það er annars vegar Flug- stöðin og hins vegar Flugmála- stjóri. Flugstöðin réðst i það fyrir nokkru að reisa sitt eigið skýli með tilheyrandi aðstöðu fyrir viðgerðir og varahluti. Þar er hiti, enginn leki og fullkomin að- staða á allan hátt. Sú framkvæmd var svo sannarlega til fyrirmynd- ar. Flugvirkjar i þessum lúxus- húsakynnum eru yfirleitt fjórir eða fimm. Flugmálastjóri á sjálfur eina flugvél og einkaflugmann. Hún er i þokkalegu einkaskýli með ágætri aðstöðu fyrir þær viðgerðir sem nauðsynlegar eru. Siðan er skýli Landhelgisgæsl- unnar. Það er að mörgu leytí þokkalegt, hreinasti munaður fyrir okkur, sem vanir erum að- stöðunni i flugskýli fjögur. Það vantar að visu i það hita en verk- stæðið er ágætt Aðrir aðilar verða að gera við undir berum himni. Þeir eiga ekki i nokkur hús að venda. tscargó með sina 5—6 flugvirkja býr við þannig aðstöðu, sömu- leiðis Vængir með 3 flugvirkja og önnur smærri félög. Flugskóli Helga Jónssonar hefur að visu litið óupphitað skýli. Mikil ábyrgð hvílir á flugliðum Við höfum nú lokið ferðalaginu um glæsihallir flugvirkjanna á Rvikurflugvelli. Greinilegt er, að mikil óhagkvæmni og kostnaðar- auki fylgir i kjölfar aðstöðu- leysisins, vinnubrögðin ruglings- legri og hætta meiri en ella á óvandaðri vinnu. Staðreyndirnar eru sláandi svo ekki sé meira sagt, heil stétt manna er hreinlega á götunni með alla sina aðstöðu. Aðeins eitt er þó blm. óljóst, — hvers vegna eru það flugvirkjarnir einir sem vinna af alefli að þvi að fá leiðréttingu mála? Væri það ekki jafnvel enn frekar hlutskipti vinnuveitendanna að drifa upp aðstöðu, tryggja hagkvæmni i rekstri og örugg vinnubrögð? — Ég held að við furðum okkur allir saman á þessu alveg eins og þú, segir Ragnar. — En menn eiga nú yfirleitt alltaf taugar til þess sem þeir eru að gera, þeim er ekki sama hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og þegar maður er byrjaður á einhverju verkefni þá finnst manni bara að það eigi að ganga eitthvað. Það fer i „pirrurnar” á manni að þurfa i miðju kafi að hlaupa út um hvippinn og hvappinn eftir einu verkfæri eða litilli varahluta- skrúfu i allar áttir. Jú, vissulega erum við á tima- kaupi og allt það. Peningar eru bara ekki alveg allt, manni finnst kannski ekki lakara að liða sæmi- lega alla þá daga og allán þann tima sem maður eyðir á vinnustað. Vafalaust spilar einnig þarna inn I sú ábyrgð, sem lögð er á herðar hverjum flugvirkja. Vandvirknin og nákvæmnin er framar öllu öðru við getum borið mikla sök ef eitthvaðkemur fyrir, t.d. vélarbilun eða annað þess háttar. Lif farþega og flugmanna er á ákveðinn hátt undir þvi komið, hvernig flugvirkinn leysir sitt starf af hendi. Við eigum þvi fulla heimtingu á lagmarksað- stöðu. Það er ekki hægt með neinni sanngirni að skella skolla- eyrum við þvi öllu lengur. —gsp ÚTBOÐ Tilboð óskast i gatnagerð og gerð stiga, lagningu holræsa og vatnslagna i Seljahverfi 8. áfanga. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, gegn 15.000.- kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 27. janúar 1976, kl. 11,00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR , Fríkirkjuvegi 3 — Sími 2S800 -i Leiðbeiningar Stafirnir mynda islensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti, hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, þvi að með þvi eru gefnir stafir i allmörgum öðrum orð- um. Það eru þvi eðlileg- ustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern i sinn reit eftir þvi sem töl- urnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að i þessari krossgátu er gerður skýr greinarmun- ur á grönnum sébhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið i stað á og öfugt. WA Vifrar' Dagar við vatnið y Z 3 4 7? iT ip 3 77 3 4 /0 77 11 /2 3 /3 7? /r /& 13 /2 4 V e T~ ¥ ST <í> 2 18 /9 iT 4 7? 3 2V 5T y 14 & 3 3 (s> 7? / 2/ <?> 77 H 77 s 22 24- 77 19 2¥ 3 77 /£T 26' 23 77 26 2? 14 77 24 /9 77 \°l 22 3 V 9 12 4 23 77 5" 17 24 V 23 25- y 77 e s /O y 28 22 ¥ <3P 12 7 ? 24 4 / S l? QP 2<i 5~ /2 1 5" /9 /<7 Z4 4 <? /3 4 22 3o 77 /2 4 % 'k V i 73 <2 3 <2 3 24 V Z 23 3/ 77 2* \l* ¥ V (T <?> 6' 77 20 7 4 77 4 5~ 3 77 W(d /</- 23 /2 4 77 /S~ 5- 4 v / 3/ 4 77 /3 12 0> 5' 77 22 ? /4 /0 77 14 4 S2. 2 5- ÁT 23 mynda þá nafn á einum af ás- um. Sendið þetta orð sem lausn á krossgátunni til afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustig 19, merkt „Verðlaunakrossgáta nr. 15”. Skilafrestur er þrjár vikur. J 13/1/01/21V Drffu Viðar, smásagnasafn „ Dregið verður úr réttum 1 reiilna lausnum °g verðlaunin nú er gefið út af Heimskrinilu árið neðan við krossgátuna. Þeir bókin Dagar við vatnið eftir 1971. Verðlaun fyrir krossgátu nr. 12 Dregið hefur verið úr réttum lausnum á krossgátu nr. 12 og kom upp nafnið Kristiana Baldursdóttir, Hraunbæ 98, Rvk. Verðlaunin eru bókin Flæöilandið mikla eftir Mao Tun. Vinningshafi er beöinn aö vitja bókarinnar til ritstjórnar Þjóöviljans.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.