Þjóðviljinn - 11.01.1976, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 11.01.1976, Qupperneq 15
Sunnudagur ll. janúar 1976. WóÐVILJINN — SÍÐA 15 —j ÞOKKABOT HÆTTIR EÐA EKKI HÆTTIR? i sföustu viku birtist frétt i klásúlum þess efnis að Þokkabót væri hætt. Eitthvað virðist það nú vera vafamál, þvi frétst hefur að þeir ætli að halda áfram þrátt fyrir allt. Vonandi verður þetta allt komið á hrcint áður en næstu klásúlur birtast. Til stóð að skrifa minningargreinar beggja hljómsveitanna, Peli- can og Þokkabót, og birtist minningargrein um Pelican væntaniega I þessum mánuði. ÝR 4 (AA Records 028) 1975 4 Þó nokkuð hefur verið rætt um Ýr og plötu þeirra og mest var þetta umtal áður en platan birtist. Ýr var reyndar stofnuð árið 1973 i desember og skipaði þá þá Rafn Jónsson, trommur, Reynir Guðmundsson, gitar og söng, Hálfdán Hauksson bassa- gitar og gitarleikara sem hætti skömmu siðar. 1974 tók svo Sigurður Rósi við gitarspili og þannig lék hljómsveitin inn á þessa plötu. Platan hefur yfir sér nokkuð sérstæðan blæ, tón- listin sjálf verður að teljast nokkuð góð, lögin venjast vel, en textar eru aftur á móti all mis- jafnir og söngur kemur afar illa út og skilst yfirleitt ekki þar sem enskumælandi tæknimenn virðast alls ekki gera sér grein fyrir þvi hve framarlega raddir þurfa að vera ef sungið á okkar ylhýra máli. Lögin eru flest góð danslög og vel gripandi. tslensk nöfn eru á öllum lög- unum þrátt fyrir það að mörg eru sungin á ensku. Ýmsum er stolið frá t.d. Roxy Musicí!), og Dollaramyndunum (Stálfjörð- ur))annars gæti það lika verið stolið frá Jet Harris (Dia- monds). „Kaninan” gott danslag, með fáránlegum texta. Gitarleikur i „Philly” stil og Kobbi leikur á einhvern synthesizer, annars er trommusólóið ekki með þeim hugmyndarikustu, enda er hér um að ræða „beat” trommara. „Upp fjallið” er eftir Jakob Magnússon. Textinn heyrist engan veginn! Og ekki hjálpar að söngvarinn er fremur að nota raddböndin sem hljóðfæri en til textaflutnings. Agætislag, dans- lag. „óður ellibelgsins”er hraður rokkari, Reynir stælir Bryan Ferry i Roxy Music i söngnum á köflum, og framburðurinn slappur. Lagið er þrælgott. „Kántrlvisur” er eitt besta lagið á plötunni, vel spilað, en þessir fáránlega barnalegu stælar að bera ensk orð fram samkvæmt i s 1. framburði eru afar fráhrindandi, og tel ég Ýr hafa skemmt mikið fyrir sér með þessum stælum. „Stálfjörður” er svo annað lag Jakobs Magnússonar, en hann stjórnaði upptökunni og lék á öll hljómborð. „Lifið er svo létt” er eitt af fjórum lögum eftir Sigurð Rósa. Textinn er á ensku og lagið og útsetning mjög i stil Jakobs, enda nýtur hans vel á rafmagnspianói i þessu lagi, ró- legt (tiltölulega) lag. „Mariuhænan” eftir Sigurð með enskum texta. Gott rólegt lag og textinn skilst bara vel, „West-Coast” still. „Harmsaga ævi minnar” er ballaða eftir Reyni Guðmunds. son. Lagið er sæmilegt og text- inn skilst. Flóra og Laddi” er lika eftir Reyni, — en er verra. Eitt léleg- asta lagið. „Togum I Teit”minnir dálitið á Förejaboys! Bara ágætt. „Niðurblálag”, „einfalt nið- urblálag”(?). Lagið er eftir Hálfdán Hauksson, sem nú hef- ur sagt skilið við hljómsveitina, en örn Jónsson hefur tekið við bassanum. Lagið er týpiskt lokalag. Bestu lögin: 1) Óður ellibelgs- ins 2) Mariuhænan og 3) Kántri- visur. HRIF 2 (AA Records '030) 1975 Hrif 2 kom út i siðustu viku fyrir jól, og komst þar af leið- andi ekki i dóm fyrir áramót. A Hrif 2 er, eins og á Hrif 1, sam- ansafn af listafólki, misjafnlega góðu með misjafnt efni. Spilverk Þjóðanna á fjögur laganna (1/3) og veröur þeirra hlutur að teljast bestur i heild- ina. Lög Spilverksins á þessari plötu eru „Panola”, „Egils Appelsin”, „It’s Only Me” og „Summer’s Almost Gone”. Af þessum lögum er „Egils Appel- siniö” best. Þetta er samansull af islenskum textum, ein lina úr hinum og þessum þjóðlögum. Banjóspilið i laginu er nokkuð skemmtilegt og einnig fiðlan. „It’s Only Me” er eitt poppað- asta Spilverkslagiö sem ég hef heyrt, sungið af Agli, annars er útkoman á lögunum á plötunni nokkuð flöt. „Summer’s Almost Gone” er eitt af sigildum kon- sertlögum Spilverksins, melan- kólst, en mjög gott, annars fluttu þeir lagið mun betur á konsertinum i Háskólabióinu i desember. „Panala” er nokkuð jazzað enda virðist sem Jakob Magnússon sé i essinu sinu á pianóinu. öll Spilverkslögin voru tekin upp i sumar sem leið, þegar Stuðmannaplatan var tekin upp. Hvitárbakkatrióið á tvö góð lög á plötunni „Moving On” og „Where Were You” sem sýna reyndar um leið fram á það að Jakob á eftir nokkuð i land sem söngvari, þar sem röddin er mjög óeðlileg. Nunn- urnar eiga tvö lög lika, hið á- gæta lag Jakobs og Tómasar Tómassonar „Lucifer’s Carni- val” sem er sæmilega flutt, þótt ekki séu þær neinar afburða kórsöngkonur: hitt lagið er svo „River Boulevard” sem ekki er neitt sérstakt. Bergþóra Arna- dóttir frá Þorlákshöfn á einnig tvö lög á plötunni: „Þrá” og „Ég elska”. „Þrá” er i stil BG & Ingibjargar, nema hvað hljóð- færaleikur er betri. „Ég elska” er á sömu linu og textinn óhugn- anlega væminn. Pónik eiga svo tvö lög sem þeir mega skammast sin fyrir, „Sólarlag” (illa sungið) og „Ég sakna þin” (jafnvel enn verr sungið og lag- ið ekki upp á marga fiska). Og fyrir utan allt annað er verið að stæla Blood Sweat og Tears og berið þið nú saman! Bestu lög plötunnar: 1) Egils Appelsin 2) It’s Only Me 3) Mov- ing On. GLENS —Konan þin segir hverjum sem heyra vill, að sér hafi loksins tek- ist að gera mann úr þér, sagði Einsi við Kalla vinnufélaga sinn. — Ætlarðu að taka svona löguðu þegjandi? —- Já, já. Það er öllu lakara hjá þér. Konan þin gengur um og heldur þvi fram að hún hafi reynt eins og hún hafi getað, en ekki tekist. Það var verið að taka kvik- mynd i skemmtigarði einum i út- landinu. En það var eins og oft vill veröa i þeirri starfsgrein að alltaf varð að taka upp sömu at- riöinaftur ogaftur. Stundum kom ský siglandi eftir himinhvolfinu þar sem það átti ekki að vera, hundur gelti eða þota þaut. Forvitin og reyndar undrandi kvenmaður horfði á- þessar si- felldu endurtökur langan tima þar til hún stóðst ekki mátið og spurði: — Segið þér mér leikstjóri, er virkilega nauðsynlegt að taka upp sömu atriðin aftur og aftur? Hann ýtti baskahúfinni sinni aftur á hnakka, horfði á konuna um stund og svaraði svo: — Frú min góð! Hafið þér gert yöur grein fyrir þvi, hve mörg kvikmyndahús eru i þessu landi?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.