Þjóðviljinn - 24.01.1976, Side 20

Þjóðviljinn - 24.01.1976, Side 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. janúar 1976. Einróma ályktun um landhelgina Sókn mótmælir harðlega samningum við breta Starfsstúlknafélagið „Sókn” mótmælir harðlega innrás bresks flota i islenska fiskveiði- iögsögu og itrekuðum ásigl- ingartilraunum þeirra á islensk varðskipað skyldustörfum, sem leitt geta tii manndrápa hvénær sem er. Varðskipsmönnum tjáir fund- urinn þökk fyrir æðruleysi þeirra og dugnað i starfi. Jafnframt vitir félagið hik og úrræðaleysi islensku rikis- stjórnarinnar, sem gæti gefið bretum þá alröngu hugmynd, að islendingar gætu bognað fyrir ofbeldinu, og þannig boðið heim hættu á áframhaldandi og aukn- um ofbeldisverkum. Fundurinn fagnar þvi frum- kvæði suðurnesjamanna og hornfirðinga að loka leiðum að hernaðartækjum NATO, og lýs- ir fullum stuðningi við þær að- gerðir. Þá skorar fundurinn á stjórnvöld að lýsa yfir skýrt og skorinort úrsögn úr NATO og lokun herstöðvarinnar, verði breftar ekki þegar á brott úr islenskri lögsögu með flota sinn, enda engar forsendur fyrir veru i þessum félagsskap, geti hann ekki staðið við það yfir- lýsta markmið að verja landið fyrir erlendu ofbeldi. Að lokum lýsir fundurinn þeirri skoðun, að engir samn- ingar við breta komi nú til greina,sist eftir að fram hefur komið að bretar muni sjálfir, jafnvel þegar á þessu ári, færa út i 200 miiur, og komi þvi enn siður til greina að verðlauna of- beldisseggina með forréttind- um á íslenskum fiskimiðum. Borgarafundur í Njarðvík: Hjörtun íslensk og á rétt um stað á Suðurnesjum ■— hvað sem forsætisráðherra segir Á borgarafundi i Njarðvik 19. janúar, sem haldinn var fyrir frumkvæði bæjarstjórnar var eftirfarandi ályktun borin upp og samþykkt: Borgarafundur i Njarðvik lýsir aðdáun sinni á störfum á- hafna islensku varðskipanna. bar fara dýrir drengir. Fundurinn efast ekki um, að róleg hyggja og yfirvegun rikis- stjórnarinnar i Reykjavik muni stuðla að sigri islendinga i land- helgisdeilunni, en hitt er jafn vist að þó að aðgerðir sjómanna á Suðurnesjum og Hornafirði hafi fremur stjórnast af hjört- unum, þá eru þau lika islensk og á réttum staðogán þeirra verða deilur við yfirgangsvöld i nútið eða framtið ekki til lykta leidd- ar með sigri þessarar þjóðar. Fundurinn telur einsýnt að verði ekki breyting nú þegar á framkomu „vina” okkar, bret- anna og „félaga” i Nato, þá beri að taka afstöðu okkar til þess- ara aðila til endurskoðunar án tafar. bá sendir fundurinn norður-þingeyingum samúðar- og baráttukveðjur og óskar þeim sigurs i striðinu við um- brotaöflin úr neðra. Kristinn Jóhannsson, form. Verkalýðsfélags Skagastrandar: Fáranlega að samn- ingagerð staðið! ,,Mér finnst alveg fárániegt hvernig staðið er að samningagerð. Það er ótækt td., að verkalýðsfélögin skuli undirskrifa samninga, sem tekið hefur 1—3 mánuði að gera, en með þvi að nýi samningurinn taki gildi við undirritun, en ekki þegar fyrri samningstimi rann út 1—3 mán. fyrr”, sagði Kristinn Jóhannsson, formaður verkalýðs- félags Skagastrandar i viðtali við Þjóðviljann. Sagði Kristinn þetta bjóða upp á, að atvinnurekendur drægju samninga á langinn svo lengi sem þeir gætu, þvi þeir græddu á þvi tugi miljóna. Sagði Kristinn að sér fyndist að ekki ætti að skrifa undir samninga við atvinnu- rekendur nema þeir giltu frá þeim degi er fyrri samningar runnu út. „Þá finnst mér það ekki væn- legt til árangurs að lýsa þvi yfir áður en gengið er til samninga, að verkalýðshreyfingin muni ekki taka við öllum kjarabótum, sem i kröfum felast, þótt fengjust, eins og gert var siðast,” sagði Krist- inn. „Þetta kalla ég sultardúsu- hugsunarhátt.” „Hvað viðkemur okkur hér á Norðurlandi erum við mikið verr sett nú en áður, þvi Alþýðusam- band Norðurlands hefur átt mik- inn þátt i að móta kröfurnar og tekið virkan þátt i samningagerð- inni. Nú hef ég ekki heyrt eitt einastaorðfrá þeim siðan. Þaðer orðið rétt eins og útlimalaus búk- ur. Mér hefur helst skilist af þeim, að þeir ætli að fara að leika eitthvert imyndað menningar- hlutverk og kippa sér alveg út úr kjarabaráttunni.” Að lokum sagði Kristinn: „Mér finnst, að ekkert hefði átt að semja við rikisvaldið eða vinnuveitendur núna. Þess i stað hefði átt að hengja upp kauptaxta og breyta honum mánaðarlega i takt við verðlagið. Þetta hefði mátt prófa einu sinni.” — úþ Stórfellt fíkniefnasmygl á vellinum ER ÞAÐ ÞESS VEGNA SEM I.IDII) ER EKKI JlLTÆKr? Af hverju er liðið ekki tiltækt, herra Geir? Þjóðin spyr hvers vegna banda- risku hermennirnir i Miðnesheiði hafi ekki komið til og skakkað leikinn er breskir dráttarbátar réðust á Þór við Seyðisfjarðar- kjaftinn á dögunum. Þessu svar- aði forsætisráðherra landsins, Geir Hallgrimsson, þannig i þætt- inum ,,A beinni linu” i útvarpinu nýlega: „Við fórum ekki fram á það, og reyndar var það (þ.e.a.s. „varnarliðið” — innsk. Þjv.) ekki tiltækt vegna þess að það hefur ekki þeim mannafla eða herafla yfir að ráða að það geti komið á vettvang á svipstundu.” Hvað er þá mannskapurinn á vellinum að gera? Fréttir berast nú sunnan af Keflavikurflugvelli um vaxandi fikniefnasmygl „varnarliðs- mannanna”. Er það mesta smygl af þvi tagi sem um getur hér á landi, tugir kilóa af hassi sem verðlagt mun vera á miliónir króna, ef ekki tugi miljóna. Hermennirnir sem eiga að vernda þjóðina sitia nú margir hverjir i' tugthúsum fyrir tiltækið. En samt sem áður er ekkert lát á vörusendingum til þeirra. 1 her- pöstinum komu á dögunum send- ingar til þeirra; einn fékk 7 kiló af marihúana. Kannski að þarna sé komin skýringin á þvi að herliðið er ,,ek ki tiltækt” þegar á þarf að halda? F r amkv æmdast j óri loks ráðinn að Landssmiðjunni Enginn sótti um stöðu framkvæmdastjóra Landssmiðjunnar, sem auglýst var i ágústmán- uði, fyrr en frestur var úti. Eftir það barst ein umsókn og var umsæj- anda, Ágústi Þorsteins- syni, veitt staðan með bréfi sem ritað er i iðn- aðarráðuneytinu á milli jóla og nýárs, en þá var ákvörðun um ráðningu tekin. Að sögn Arna Snævarr, ráðu- neytisstjóra i iðnaðarráðuneyt- inu, var Agúst erlendis er um- sóknarfrestur var enn ekki liðinn, en umsókn hans hafi komið stuttu eftir að frestur var úti. Ágúst borsteinsson, Einarsson- ar iþróttafulltrúa rikisins, er járniðnaðarmaður að mennt að sögn Árna Snævarr, meistari i plötusmiði og lærði i Landssmiðj- unni á sinum tíma. Ágúst hefur til viðbótar stundað tækninám i Þýskalandi. Um tima vann hann hjá BP. og nú siðast hefur hann starfað sem öryggismálastjóri i Straumsvik. Uppsagnarfrestur Ágústar hjá Isal mun ekki vera úti að sögn Árna Snævarr og stundar hann vinnu sina þar syðra uns upp- sagnarfrestur er úti, en fylgist öðrum þræði með þvi, sem i Landsmiðjunni gerist. Eins og lesendum Þjóðviljans er kunnugt, hefur starfað sam- starfsnefnd i Landssmiðjunni um nokkurn tima, en fyrrverandi iðn- aðarráðherra, Magnús Kjartans- son, lét setja lög og reglugerðir þar um. Að sögn Árna hefur sam- starfsnefndarfyrirkomulagið gef- ist vel. Ekki sagði hann, að það væri i verkahring samstarfs- nefndar að ráða framkvæmda- stjóra, og hefði hún þvi hvergi komið nálægt þessari ráðningu Ágústar. Að lokum bað blaðamaður Árna um dagsetningu umsóknar Ágústs. Svaraði ráðuneytisstjór- inn þeirri beiðni svo: ,,Ég kæri mig ekkert um að fara að gera svoleiðis. Við erum ekki vanir þvi að gefa upp dag- setningu á bréfum. En af hverju spyrðu?” Spurningin var framborin vegna þess, að þegar komið var fram undir áramót hefði ekki frést af neinni umsókn um téða stöðu. _úþ Húsnœðisfulltrúi Rvíkurborgar Húsaleigan á eftir að hækka Hækkunin, sem skýrt var frá á dögunum, ekki hin raunverulega húsaleiguhækkun! — Iiúsaleigan sem slík hefur ekki hækkað, heldur er einvörð- ungu um að ræða hækkun á sam- eiginlegum rafmagns- og heita- vatnskostnaði, sem falinn er i leiguupphæðinni, sagði húsnæðis- fulltrúi Rvikurborgar, Gunnar Þorláksson, er hann hafði sam- band við Þjóðviljann vegna fréttar i blaðinu um hækkun húsaleigu hjá borginni. 1 téðri Þjóðviljafrétt var frá þvi skýrt, að leiga fyrir einsherbergis ibúð i Austurbrún 6, sem leigðar eru gamalmennum og öryrkjum, hefði hækkað um 1200 krónur á mánuði, úr 5.800 krónum i 7.000 krónur. Þessar hækkunartölur eru réttar. Sagði húsnæðisfulltrúinn hækk- unina stafa af áætlun, sem gerð væri i byrjun hvers árs um hugs- anlega hækkun á rafmagni og heitu vatni á árinu. Þá skýrði húsnæðisfulltrúinn einnig frá þvi, að beiðni frá borgaryfirvöldum lægi fyrir við- skiptaráðuneytinu um að fá að hækka hina eiginlegu húsaleigu. Ekki vildi fulltrúinn láta eftir sér hafa hversu mikið óskað hefði verið eftir að leigan hækki, en blaðið hefur ekki heyrt talað um lægri hækkunartölu en 36% og allt upp i 53%! Þá var og frá þvi skýrt i fyrr- greindri Þjóðviljafrétt, að fólk þyrfti að greiða óeðlilega háa rafmagnsreikninga i Austurbrún 6, — allt að 6 þúsund krónur i eins- herbergisibúð i 8 daga, jafnt þótt fólk væri ekki heimavið svo vik- um skipti. Húsnæðisfulltrúinn sagðist ekki vita neinar sönnur á þessu; liann hefði ekki fengið neinar kvartanir um þetta. Ef hins vegar yrði kvartað yfir þessu, þá yrði það athugað, eins og jafnan ef yfir einhverju slfku væri kvartað. Ekki er það alls kostar rétt hjá húsnæðisfulltrúanum að ekki hafi verið kvartað yfir þessu. Hvað heldur hann að Þjóðviljinn liafi verið að gera? Með von um að hann standi við sin orð og láti athuga málið. — úþ • .. . . . HÚSEIGENDUR, ! HÚSBYGGJENDUR | i ••• # Hverskonar rafverktakaþjónusta. ■ Nýlagnir *RAFAFL 0 Viögerðir á gömlum lögnum — setjum upp lekarofavörn I eldri hús. ■ Vinnufélag ■ rafiðnaöar- • Dyrasfmauppsetning. _ I manna ■l ■ BarmahHÖ4 J SIMl 28022. 0 Kynniðykkur afsláttarkjör Rafafls svf,- ■ sérstakur sfmatimi milli kl. 1-3 daglega. 1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.