Þjóðviljinn - 12.02.1976, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 12.02.1976, Blaðsíða 10
10. SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. febrúar 1976 OL dag- í dag skráin Dagskrá Ólympiuleikanna i Innsbruck, fimmtudaginn 12. febrúar verður á þessa leið: Kl. 8.00 4x5 km skiðaboðganga kvenna. Ól-meistari i Sapporo 1972 varð sveit Sovétrikjanna á 48:46,15 min. I 2. saeti varð sveit Finnlands á 49:19,37 min. og 3ja varö sveit Noregs á 49:51,49 min. Kl. 9.30 1000 m skautahlaup karla betta er ný grein á vetr- ar-ólympiuieikum, aldrei fyrr hefur verið keppt i þessari vegalengd. Heimsmetið i 1000 m skautahlaupi á sovétmað- urinn Valerij Muratov, 1 16,92 og verður hann meðai kepp- enda. Kl. 12.00 isknattleikur Eftir keppnina í gær á ÓI. er verðlaunastaðan og stigin þannig: gull silfur brons Sovétrikin II) 4 7 A-Þýskaland 6 4 3 V-Þýskaland 2 4 1 Finnland 2 2 1 Bandarikin 1 . 3 4 Sviss 1 2 I Austurriki 1 1 2 Noregur I 1 1 Hoiland 0 1 1 itaiia 0 1 1 Kanada 0 1 0 Sviþjóð 0 0 I Lichtenstein 0 0 1 Og i hinni óopinberu stiga- keppni er staðan þannig: Sovétrikin 143 st. A-Þýskal. 93 st. Bandarikin 53 st. V-Þýska- land 48 st. I'innland 38 st. Austurr. 35 st. Sviss 29 st. Nor- egur 21.5 st. italía 16 st. Sviþjóð 15 st. Kanada II st. llolland 9,5 st. Frakkland 6 st. Tékkóslóvakía 4 st. Lichtcn- stein 4 st. Ungverjaland 2 st. Loks heppnast allt hjá Rosi Mittermaier hún sigraöi í svigkeppni í gær og hlaut þar með önnur gullverölaun á leikunum Loks heppnast allt hj hinni frægu skíðakonu fr V-Þýskalandi, Rosi Mittei maier, sem um árabil hef ur verið í hópi bestu skíða kvenna heims en aldrei ná> toppnum alveg fyrr en nú Rosi Mittermaier er orðii 28 ára gömul og tekur nú 3ja sinn þátt í ólympiuleik um og hún hlaut gullverð launin í bruninu á dögun um, og f gær hlaut húr mjög óvænt gullverðlaunin í sviginu. Það var aldrei þegar það loks kom má segja um frammistöðu Mittermaier á þessum leikum. Rosi hefur aldrei hlotið verðlaun á ólympíu- leikum fyrr og sennilega hafa menn ekki búist við því að hún nú, orðin 28 ára gömul tæki uppá því að sópa inn gullverðlaunum, en þarna kemur hin dýr- mæta reynsla til sögunnar; þegar í mestu alvöruna er komið er fátt dýrmætara en reynslan. Rosi Mittermaier sýndi fá- dæma öryggi i svigkeppninni i gær. Hún hafði næst besta braut- artima eftir fyrri umferð 46,77 sek. Landa hennar Pamela Behr hafði besta timann 46,68 sek. En i siðari úmferðinni fór Mittermaier á lang besta brautartimanum, 43,77 og þótt flestar konurnar bættu sig mjög i siðari umferðinni komst engin neitt nálægt Mitter- maier og sigur hennar var örugg- ur. Aðeins italska stúlkan Claudia Giordani ógnaði sigri Mitter- maier, hún hlaut silfurverðlaun- Framhald á 14. siðu. Rosi Mittermaier Óheppnin elti sovésku göngumennina í 4x10 km. skíöaboögöngu—Beljakev missti annað skíöiö og þar með missti sovéska sveitin forystuna.finnar sigruöu, norðmenn hlutu silfrið, sovét bronsið „Dramatiskt” segir i fréttaskeyt- um um 4x10 km skiðaboðgönguna á ÖL I Innsbruck i gær. Sovétmaður- inn Beljajev, sem gekk fyrstur fyrir sovésku sveitina hafði örugga forystu, þegar hann átti aðeins 2 km eftir i markið en þá skeði óhappið. Skiðabinding hans slitnaði og hann missti skiðið og várð að ganga hálfan km, áður en hann fékk nýtt skíði. Þetta varð til þess að margir tóku framúr honum og þótt þeir sovétmenn sem gengu næstu 3 hringi gerðu allt sem þeir gátu til að vinna bil- ið upp, tókst þeim það ekki, finn- ar sigruðu, norðmenn urðu i 2. sæti og sovétmenn, sem fyrir- fram voru taldir öruggir sigur- vegarar, urðu að láta sér nægja 3ja sætið og þótt það mikið afrek hjá þeim að ná þvi, úr þvi sem komið var. — Þetta er það hræðilegasta sem fyrir mig hefur komið um dagana sagði Beljajev og skyldi engan undra þessi ummæli. Finn- inn Juha Mieto sem gekk fyrsta hringinn fyrir Finnland og náði góðu forskoti fyrir finna sagðist ekki vera viss um að sovétmenn hefðu sigrað, þótt óhappið hefði ekki komið íyrir. — Ég hef aldrei gengið svona vel og öll sveitin okkar náði sínu besta, þannig að sovétmennirnir voru ekki öruggir um sigur, en auðvitað var það leiðinlegt að fá ekki að keppa við þá án þessa ó- happs, sagði Mieto. betta eru fyrstu gullverðlaunin sem finnar fá i karlagreinum á Framhald á 14. siðu Young var rukkuö um símtalið víð Ford Bandariska skautadrottn- ingin Sheila Young fékk heid- ur einkennilega rukkun þar sem hún dvelst á ÓL i Inns- bruck. Hún var krafin um greiðslu fyrir simtal við hvita húsið i Washington, 16,50$. Astæðan fyrir þessu er sú, að Ford bandarikjaforsti hringdi til Innsbruck, eftir að Young hafði unniö til 3ja verð- launa á ÓL. begar forsetinn hringdi varYoung hvergi finn- anleg og skilaboð látin liggja tii hennar um að forsetinn vildi heyra i henni. Hun hringdi siðan sjálf til Washington og talaöi við Ford, sem óskaöi henni til hamingju, við erum stolt af þér o.s.frv. o.s.frv. Og siöan kom reikn- ingur til Young fyrir simtalið daginn eftir. Nú hefur tals- maður hvita hússins sagt að þetta sé misskilningur, reikn- ingurinn verði auðvitað greiddur. bess má að lokum geta að Sheila Young tilkynnti i gær að hún ætlaði að gifta sig eftir HM kvenna á skautum i Gjö- vik i Noregi, unnustinn er Jim Oczewice bandariskur hjól- reiðakappi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.