Þjóðviljinn - 04.03.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.03.1976, Blaðsíða 1
ÞJÚDVUHNN Fimmtudagur 4. mars 1976 — 41. árg.—49. tbl.i S j ómannav erkf allinu aflýst eða frestað I heild féllu atkvæði þannig yfir landið að 295 voru á móti en með samningunum Snæfellingar felldu heildar- samkomulagið með 68 atkvæð- um gegn 56 Verkfall sjómanna hefur leyst upp. öll þau sjómannafélög, sem felldu núgerða kjarasamninga hafa ýmisst veitt undanþágu til róðra og þar með frestað verkfalli Aldarafmœli Asgríms Grein eftir Hörð Ágústsson I dag eru hundrað ár liðin frá fæðingu Asgrims Jónsson- ar, listmálara. t minningu aldarafmælisins ritar Hörður Agústsson í dag grein um málarann og myndir hans i opnu blaðsins. A laugardag opnar Reykja- vikurborg i samráði við Asgrimssafn yfirlitssýningu á verkum Asgríms á Kjarvals- stöðum, og mun það vera stærsta sýning á verkum einstaks málara, sem haldin liefur verið hérlendis. Á sýn- ingunni eru 272 verk, og er það um tveir þriðju hlutar lista- verkanna, sem Asgrimur ánafnaði þjóðinni. SJÁ OPNU eða aflýst þvi algjörlega. Ef talin eru saman atkvæði allra sjó- mannafélaga, sem greitt hafa at- kvæði um samningana hafa 295 sagt nei við þeim, en 253 sagt já.Snæfellingar greiddu atkvæði i gær um heildarsamkomulagið. Fellau þeir það með 68 atkvæðum gegn 56. Þar vestra náðist i fyrri- nótt samkomulag við útvegsmenn á Snæfellsnesi um sér ákvæði i sjómannasamningum, og sagði Sigurður Lárusson, formaður Verkalýðsfæelagsins Stjörnunnar i Grundarfirði, að sérákvæðin hefðu verið samþykkt samhljóða i öllum fjórum sjómannafélögun- um á Snæfellsnesi. Sérákvæðin munu i heildina tekið vera sjó- mönnum hagstæðari nú en þau voru i fyrri samningum. Sigurður bjóst við, að útveg- menn mundu óska eftir þvi, að undanþága yrði gefin til sjóróðra, og sagði hann að i öllum félögun- um fjórum hefðu stjórnir og trúnaðarmannaráð heimild félagsfunda til þess að veita slika undanþágu. Þá hafa sjómenn á Siglufirði frestað verkfalli. Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur frestað taln- ingu um kjarasamningana og einnig verkfallinu um óákveðinn tima. A fundi i Sjómannafélagi Hafnarfjarðar i fyrrakvöld var verkfallinu aflýst. Að sögn for- manns félagsins, Óskars Vigfús- sonar var þetta samþykkt með 34 atkvæðum gegn 6. 16 sátu hjá. Sagði Óskar að nú ynnu sjómenn á Hafnarfjarðarbátum eftir felldu samningunum. Verkfall verður boðað ef til kemur i Hafnarfirði með venjulegum viku fyrirvara. Ef lagðar eru saman tölur af at- kvæðagreiðslum i félögunum kemur i ljós, að þeir hafa verið felldir með 295 atkvæðum gegn 253. 13 seðlar voru auðir eða ógildir. Að sögn Jóns Sigurðssonar, formanns Sjómannasambands íslands, óskaði hann eftir þvi við samninganefnd sjómanna, að atkvæði allra félaganna yrðu tal- in sameiginlega. Þvi hefði ekki verið játað. Hafrún — myndin tekin þegar báturinn var nýr, en hann bar nafnið Húni H.V. I. þá Þeir sem fórust með Hafrúnu AR auk Ingibjargar voru: Valdemar Eiðsson skipstjóri, fæddur 1945, kvæntur og tveggja barna faðir, frá Eyrarbakka. Hann var eigandi bátsins. Agúst Ólafsson, fæddur 1949, kvæntur og átti eitt barn. Þórður Þóris- son, fæddur 1943, kvæntur og átti eitt barn. Július Stefánsson, fæddur 1955, lætur eftir sig unn- ustu. Haraldur Jónsson, fæddur 1955, lætur eftir sig unnustu og eitt barn. Þessir menn voru allir frá Eyrarbakka. Guðmundur S. Sigursteinsson, fæddur 1957, ókvæntur og barnlaus og Jakob Zophoniusson, fæddur 1931, lætur eftir sig einn uppkominn son. Þeir voru báðir úr Reykja- vik. Hafrún talin af Brak úr bátnum og rifrildi úr gúm- björgunarbáti hans fannst í gœr Hafrún ÁR 28, 73ja tonna bát- ur frá Eyrarbakka er talin af með allri áhöfn, 8 manns. Hafrún lagði af stað i sina fyrstu loðnuveiðiferð frá Þorlákshöfn að kvöldi sl. mánudags og siðast hcyrðist tii bátsins kl. 01.15 þá um nóttina. Slæmt veður var á þeim slóðum sem Hafrún var á þegar siðast heyrðist til hennar, þó ekki aftakaveður og ekkert virtist vera að um borð þegar siðast heyrðist til bátsins. Strax i fyrrakvöld var byrjað að leita fjörur, þegar báturinn ansaði ekki kalli strandstöðva. Um miðjan dag i fyrradag fann vélbáturinn Jóhannes Gunnar lik á reki og reyndist það vera lik Ingibjargar Guðlaugsdóttur, sem var matsveinn á Hafrúnu. Ingibjörg var fædd 1935, búsett i Reykjavik, og lætur eftir sig uppkomin börn. f gærmorgun fundu svo leitarflokkar brak úr Hafrúnu i Sandvik á Reykjanesi og skömmu siðar fannst rifrildi af gúmbjörgunarbát Hafrúnar rekið á fjörur. I allan gærdag var leit haldið áfram bæði af sjó, landi og úr lofti, en veður fór mjög versnandi þegar á daginn leið. Allar sveitir Slysavarnafélags- ins frá Reykjanesi að Eyr- arbakka tóku þátt i leitinni, auk flugvéla landhelgisgæslunnar og fjölmargra báta. Að sögn Hannesar Hafstein, hjá SVFf, verður leit haldið áfram enn um sinn þótt litlar sem engar vonir séu til þess að nokkur skipverja finnist á lifi. —S.dór. 25% landhelgistoll- ur á breskar vörur Tillaga alþýðubandalagsmanna á alþingi Fjórir þingmenn Aiþýðubanda- lagsins leggja til að settur verði Óvissa um KanarU eyjaflug Sunnu Fundir voru haldnir i skipta- rétti I gær og fjölluðu skipta- ráðandi og fulltrúar helstu kröfuhafa, Olíufélagsins, Sam- vinnubankans og Alþýðubank- ans, um hvernig væri háttað flugrekstrarréttindum Air Vikings, eftir að flugfélagið var lýst gjaldþrota. Haft var sam- band við samgönguráðuneytið og flugmálayfirvöld, en þar fengust ekki skýr svör, en þeirra er að vænta I dag. Á þeim veltur hvort Air Viking vélin getur flogið með Sunnufarþega til Kanaríeyja á laugardag eða ekki. Leigugjald verður Sunna þó að greiða fyrirfram, ef af fcrðinni verður. Milli skiptafunda i gær lögðu flugvirkjar og flugvélstjórar hjá Air Viking fram vinnulauna- kröfur upp á sjö miljónir króna i þrotabúið og höfðu þeir við orð að ekki yrði farið upp i vélina á laugardaginn. Flugstjórar og flugmenn hjá Air Viking eru nú að taka saman launakröfur sinar og munu kröfur þeirra ekki vera minni. Umboðsmaður starfsfólks Air Viking er Arni Guðjónsen, hæstaréttarlög- maður. Af þessum upplýsingum að dæma telur Þjóðviljinn óvist að af Kanarieyjafluginu verði. 1 gær var enn boðaður skipta- fundur vegna gjaldþrots Air Viking i skiptarétti. Uppskrift á eignum Air Vikings fer fram á laugardaginn. Miklar umræður eru i borg- inni um að Samvinnuferðir séu að undirbúa stofnun flugfélags og ætli að leysa vélar Air Vik- ings til sin, þegar þær fara á uppboð, en ekkert hefur énn komið fram opinberlega, sem styður þann orðróm. sérstakur 25% tollur á vörur frá Bretlandi og sé tollurinn tekinn mcðan þorskastriðið stendur yfir. Tolltekjur þessar renni i land- helgissjóð. Þingmennirnir Stefán Jónsson, Ragnar Arnalds, Helgi F. Seljan 3g Geir Gunnarsson flytja i efri deild frumvarp til laga um þenn- an landhelgistoll á breskar vörur. Frumvarpið var lagt fram i efri' deild i gær. Þingmennirnir benda á i rök- stuðningi með frumvarpinu að augljóslega þurfi landsmenn að taka á sig byrðar til að efla land- helgisgæsluna vegna þorska- striðsins við breta. íslendingar hafa lækkað innflutningstolla af breskum vörum samkvæmt tolla- samningunum við EBE, en út- flutningsvörur okkar hafa ekki notið tollalækkunar hjá EBE vegna andstöðu breta. Innflutn- ingur frá Bretlandi var i fyrra 4 miijörðum meiri en útflutningn- um þangað nam. Miðað við inn- flutning okkar frá Bretlandi i fyrra næmu árstekjur af þessum landhelgistolli um 2 miljörðum króna. En tollurinn mundi beina viðskiptum að verulegu leyti inn á aðra markaði, og hlýtur það að teljast æskilegt eins og nú er að okkur búið af breta háifu. Áskrif endafj ölgun Útbreiðsluherferð Þjóð- viljans gengurvel. I febrú- ar bættust við 180 áskrif- endur. Þessi árangur er staðreynd, þrátt fyrir verkfallið og stöðvun á út- gáfu dagblaða i nokkra daga. í mars verður haldið áfram að fjölga lesendum blaðsins. Sjá síðu 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.