Þjóðviljinn - 04.03.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 04.03.1976, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 4. mars 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Heimsmeist- arar enn einu sinni? Irina Rodnina og Alexander Zaitsev hafa algera yfirburði á HM í listskautahlaupi Heimsmeistaramótið \ listskautahlaupi hófst í Gautaborg í Sviþjóð í fyrra kvöld. Fyrsta keppnisgrein mótsins var parakeppni í listskauta- hlaupi, og í fyrrihluta keppninnar tóku núverandi Ólympiu-og heimsmeistar- ar Irina Rodnina og Alexander Zaitsev for- ystuna. A||jr dómararnir höfðu þau í efsta sæti og sovéski dómarinn gekk svo langt að gefa þeim hæstu einkunn sem hægt er að fá fyrir f rjálsu æf ingarnar — 6 — og hef ur það að vonum vakið mikla athygli. Þetta mun vera í 6. sinn sem Irina Rodnina verður heimsmeistari í para- keppninni, auk þess sem hún hef ur tvisvar orðið ÓL- meistari. 1 2. sæti er a-þýska parið Romy Kermer og Rolf Oesterreich, en þau urðu lika i 2. sæti á ÓL i Inns- bruck á dögunum. 1 3. er sovéska parið Irina Vorobjeva og Alex- ander Vlasov, en þau tóku bronsið á ÓL i Innsbruck, og i 4. sæti er a-þýska parið Manuela Gross og Uwe Kagelmann. Sem sagt pörin frá Sovétrikjunum og A-Þýskalandi i algerum sér- flokki. Sem stendur er ekkert par sem ógnar veldi þessara fjög- urra, sem raða sér i efstu sætin. Bandariska parið Tai Babilonia og Randy Gardner vöktu þarna mikla athygli eins og á ÓL i Inns- bruck, en þau eru ung og óreynd og náðu aðeins 5. sæti, en sannar- lega eiga þau framtiðina fyrir sér og eiga eflaust eftir að láta veru- lega að sér kveða i framtiðinni enda ekki nema 15 og 17 ára, og hver veit nema þau nái á verð- launapall þegar að frjálsu æfingunum kemur. Siglingafélagiö Ýmir 5 ára í dag I dag fimmtudaginn 4. mars, er 5 ára afmæli Siglingafélagsins Ýmis. Siglingafélagið Ýmir var stofnað 4. mars 1971, af 14 siglingaáhugamönnum og konum sem höfðu starfað i siglingaklúbb á vegum Æskulýðsráðs. 1 upphafi var bátakostur félagsins lánsbátur frá Æsku- lýðsráði, 1 seglbátur, og trillu- bátur sem hafði verið breytt i seglbát. f dag eru félagar 76 að tölu, og hefur félagið til umráða eigið húsnæði við Vesturvör i Kópa- vogi. Félagsmenn eiga báta sina sjálfir, og eru nú á vegum félags- ins eftirtaldir bátar: 1 Cresent, 2 Flipper, og 8 Fireball seglbátar, 2 25 feta Quarter toner, 1 27 feta Vega og 1 38 feta Ohlson. Félagar halda upp á afmæli Ýmis með kaffidrykkju annað kvöld, föstudag.kl. 20.00 að Alf- hólsvegi32 i Kópavogi, og eru vel- unnarar félagsins og aðrir áhuga- menn boðnir velkomnir. Rodnira og Zaitsev. Heini Hemmi vann svissneska meistaratitilinn Ólympiumeistarinn i stór- svigi, Heini Hemmi var ör- uggur sigurvegari i svig- keppninni á svissneska meist- aramótinuá skfðum sem fram fór um helgina. Hann fékk timann 108,23 sek. en í 2. sæti varð Willy Formmelt á 108,63 sck. Walter Tresch, sem fékk silfurverðlaunin á ÓL i Inns- bruck féll i fyrri.umferðinni og var þar með úr leik. Ilcini Hemmi Guðmundur Sveinsson sigraði á göngumóti SR Skiðafélag Reykjavikur gekkst fyrir göngumóti á skiðum i Hveradölum, meðan á verkfall- inu stóð á dögunum. Keppt var i 10 km. skiðagöngu 20 ára og eldri og urðu úrslit þessi: 1. Guðmundur Sveinsson SR 32,08 min. 2. Páll Guðbjörnsson SR, 33,43 min. 3. Ingólfur Jónsson SR 34,35 min. 1 7,5 km. skiðagöngu unglinga sigraði Sveinn Guðmundsson SR á 32,40 min. Mótsstjóri var Skarp- héðinn Guðmundsson og brautar- stjóri Haraldur Pálsson. Þess má að lokum geta, að um næstu helgi fer fram punktamót á skiðum á ísafiröi og munu göngu- menn úr Reykjavik taka þátt i þvi móti, en það hefur ekki verið al- gengt að göngumenn sunnan fjalla sæktu stór mót á lands- byggðinni. Aðalfundur UBK í kvöld Aðalfundur Breiðabliks i Kópa- vogi verður haidinn i kvöld, fimmtudaginn 4. inars, i Félags- heimili Kópavogs og hefst hann kl. 20.30. jHr Opið badminton- W mót á Akranesi Badmintonráð lþrótta- bandalags Akraness heldur oþið mót i badminton iaugar- daginn 13. mars 1976. Keppt vcrður i einliðaleik og tviliða- leik karla og. kvenna og i tvenndarleik i A og B flokki. Keppni hefst kl. 11.30 og verö- ur henni lokið á laugardegin- um og þau félög sem senda . keppendur i þetta mót verða látin vita hvenær áætlað er að þaö veröi, þegar fjöldi kepp- enda liggur fyrir. Þátttökugjald er 1000 kr. f. rinliðaleik og 500 kr. f. tviliða og tvenndarleik. Þátttöku þarf að tilkynna til Hinriks Har- aldssonar i simum 93-1143 (vinna) og 93-2117 (heima) ekki seinna en föstudaginn 5. mars. Hinrik mun einnig veita nánari upplýsingar um mótið. Þetta mót fer fram á sama tima og Reykjavikurmeist- aramótiö og er aöallega ætl- að þeim sem ekki hafa þátt- tökurétt i þvi, þó að sjálfsögðu veröi engum meinuð þátttaka.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.