Þjóðviljinn - 04.03.1976, Page 16
wovnnNN
Fimmtudagur 4. mars 1976.
Engin
loðnu-
•X*
veiði
i gær
t gær var engin loðnuveiði.
Kom þar hvorttveggja til, að stór
hluti loðnubátaflotans var að leita
að áhöfn HafrUnar AR og eins hitt
að mjög slæmt veður var komið á
miðunum. Var búist við að það
gengi niður með kvöldinu þannig
að búast má við að einhverjir
bátar hafi fengið afla i nótt eða
með morgninum.
Heildaraflinn á siðasta mið-
nætti var orðinn 82 þúsund lestir.
—S.dór
Lánin
hœkkuð
I samræmi við tillögur hús-
næðismálastjórnar hefur
félagsmálaráðherra ákveðið
að hámarksupphæð húsnæðis-
málastjórnarlána skuli hækka
úr 1.7 miljón króna i 2.3
miljónir.
Pólitísk valdbeiting
segir Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins,
um ákvörðun borgarstjórnar í KRON-málinu
Erlendur Einarsson
„Það eru mikii vonbrigði, at
meirihluti borgarstjórnar skyld:
ekki vilja verða við ósk Sam
bandsins um að kaupfélagið i
Reykjavik skyldi fá aðstöðu til at
reka stórmarkað i þeirri bygg
ingu, sem Sambandið er að reisa
við Holtaveg. Það er min per-
sónulega skoðun, að hér hafi verif
beitt pólitisku valdi til þess af
koma I veg fyrir aukna sam-
keppni i smásöluverslun á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta brýtur al-
gjörlega i bága viö þau sjónar
mið, sem eru rikjandi hjá þeim,
sem ráða nú meirihluta borgar-
stjórnar i Reykjavik, það er aí
segja, að sem mest frelsi eigi al
rikja i verslun.”
Þessi orð eru höfð eftir Erlendi
Einarssyni, forstjóra Sambands-
ins, i nýútkomnum Sambands-
fréttum. Erlendur segir ennfrem-
ur:
,,Það ereinnig min persónulega
skoðun, að ákvörðun sem þessi
Sönghátíð
Karlakór Keflavikur og Karla-
kórinn Þrestir i Hafnarfirði efna
til óvenju fjölbreyttra tónleika,
sem verða haldnir i Bæjarbiói,
föstudagskvöldið 5. mars, og i
Félagsbiói Keflavik, laugar-
daginn 6. mars. Auk framan-
greindra kóra sem syngja bæði
sitt i hvoru lagi og sameiginlega
munu koma fram blandaður kór.
frá Hafnarfirði, tvöfaldur kvart-
ett frá Keflavik og einsöngvar-
arnir Inga Maria Eyjólfsdóttir,
Hafnarfirði, og Haukur Þórðar-
son, Keflavik, sem syngja ein-
söng og tvisöng.
Stjórnendur kóranna eru Gróa
Hreinsdóttir og Eirikur Sig-
tryggsson og undirleikarar meðal
annars Agnes Löve, Gróa Hreins-
dóttir og Ingvi Steinn Sig-
tryggsson.
Með tónleikahaldi þessu er
stefnt að nýbreytni I samstarfi
kóra og i tónlistarlifi Hafnar-
fjarðar og Keflavik.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur
Vilja ekki missa við-
skipti sín við breta!
Borgarráðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins visuðu frá tillögu
Sigurjóns Péturssonar á síðasta
borgarráðsfundi þess efnis, að
Innkaupastofnun Reykjavíkur
gerði ekki innkaup i Bretlandi
meðan fiskveiðideilan stendur.
Sigurjón tók upp tillögu for-
stjóra Innkaupastofnunarinnar,
Torben Fredreksen, frá fundi I
stjórn stofnunarinnar, en þar
hafði hún verið felld. Tillagan,
eins og Sigurjón bar hana upp i
boigarráðsfundi hljóðaði svo:
„Borgarráð ályktar, að á
meðan bretar hafa i frammi of-
beldisaðgerðir gegn islending-
um innan fiskveiðilandhelgi ís-
lands skuli að þvi stefnt, að inn-
kaup Reykjavikurborgar verði
ekki gerð i Bretlandi.*’
Reis þá upp oddviti kaup-
sýslumanna f borginni, Albert
Guðmundsson.og bar fram svo-
Sigurjón Pétursson
hljóðandi frávisunartillögu:
„Þarsemég álit tillögu Sigur-
jóns Péturssonar vanhugsaða,
og á þessu stigi er illmögulegt
að gera sér grein fyrir afleiðing-
um slikrar samþykktar fyrir
Reykjavikurborg, legg ég til að
tillögunni verði visað frá.”
Varnarlið kaupsýslumanna,
sem eiga hagsmuna að gæta
vegna umboðslauna og
verslunartekna frá heims-
veldinu breska þeir Albert,
Markús örn Antonsson og
Magnús L. Sveinsson, greiddu
frávisunartillögunni atkvæði, en
gegn henni greiddu þeir Sigur-
jón og Kristján Benediktssonat-
kvæði.
Afram fá þvi reykviskir kaup-
héðnar að maka krókinn á við-
skiptum sinum við breska
stéttarbræður sina.
—úþ
Forkosningarnar i Massachusetts:
Ford og Jackson
MooconhncoHc or fiíilmo
sigruðu
Áskriftarsími
17505
Tekiö verður við nýjum
áskrifendum í kvöld og
næstu kvöld til kl. 10.
Eitt símtal, og þú færð
blaðið sent heim næsta dag.
ÞJÓÐVIUINN
BOSTON 3/3 — Henry Jackson
öldungadeildarþingmaður I
fiokki demókrata vann mikinn
sigur i forkosningunum I Massa-
chusetts, samkvæmt kosninga-
spám sem miðaðar eru við tölur
af ákveðnum kjörsvæðum. Er
gert ráð fyrir að Jackson, einn
átta demókrata sem bauð sig
fram i forkosningunum i iðnaðar-
riki þessu, fái 24% atkvæða, en
þeir sem næstir honum koma,
Morris Udall, þingmaður frá Ari-
zona og George Wallace, rikis-
stjóri i Alabama, fái hvor um sig
18%. Jimmy Carter, rikisstjóri i
Georgiu, fær samkvæmt spánum
14%. Hafa möguleikar Carters til
að verða i kjöri i forsetakosning-
unum af hálfu demókrata þá all-
mjög minnkað, en eftir for-
kosningarnar i New Hampshire,
þær fyrstu fyrir i hönd farandi
forsetakosningar, var hann talinn
sá sigurstranglegasti af demó-
krötum.
Búist er við að Gerald Ford for-
seti vinni mikinn sigur á keppi
naut sinum i hópi repúblikana,
Ronald Reagan, fyrrum rikis-
stjóra i Kaliforniu. Er Ford spáð
68% atkvæða i Massachusetts en
Regan aðeins 29%. Stóraukast þá
möguleikar Fords til að verða i
kjöri við forsetakosningarnar af 1
hálfu repúblikana, en eftir for-
kosningarnar i New Hampshire
var hann talinn standa heldur
tæpt gagnvart Reagan. — 1 for-
kosningum hafa atkvæðisrétt
skráðir meðlimir stjórnmála-
flokkanna. Þar sem
Massachusetts er fjölmennt
iðnaðarrlki, þykja úrslitin þar
gefa verulega visbendingu um
það, hverjir verði valdir fram-
bjóðendur.
I gær voru forkosningar i öðru
Nýja-Englandsriki, Vermont, en
þær hafa minni þýðingu vegna fá-
mennis þar. Þar hafa flest at-
kvæði verið talin og er Ford spáð
yfirburðasigri, eða um 84% at-
kvæða. Af demókrötum varð þar
hlutskarpastur Jimmy Carter
með 45% atkvæða að likindum og
honum næstur Sargent Shriver,
mágur Kennedys heitins forseta,
með á að giska 30%. Shriver, sem
er i fr jálslyndara armi
demókrata, fékk hinsvegar litið
fylgi i Massachusetts. A
þriðjudaginn kemur fara fram
forkosningar i Flórida, þar sem
Wallace varð hlutskarpastur
demókrata i forkosningunum
fyrir siðuStu forsetakosningar.
Reuter.
hefði ekki verið tekin i neinni ann-
arri höfuðborg áNorðurlöndum en
I Reykjavik. Ráðamenn i hinum
höfuðborgunum virðast gæta
þess, að samvinnufélög fái að-
stöðu til þess að keppa við
verslanir einkaaðila, og telja að
slikt skapi bætt verslunarkjör
fyrir borgarbúana.
Samvinnuhreyfingin er einn
stærsti vinnuveitandi hér á höfuð-
borgarsvæðinu, þegar á hana er
litið i heild, og hún greiðir beint
og óbeint mikil. gjöld til Reykja-
vikurborgar. Kaupfélagið á
höfuðborgarsvæðinu telur nú hátt
á fjórtánda þúsund félagsmenn.
Þeir, sem ráða meirihluta i stjórn
borgarinnar, virðast með þeirri
ákvörðun, sem nú var tekin i
borgarstjórn, sniðganga eðlilegar
óskir samvinnumanna i Reykja-
vik oghindra eðlilegan framgang
mikils hagsmunamáls fyrir hina
almennu launþega i borginni.”
Ritgerða-
samkeppni
Sjómannadagsráð og ritnefnd
Sjómannadagsblaðsins sem kem-
ur út einu sinni á ári, hafa ákveðið
að efna til ritgerðasamkeppni um
sjómannsstarfið og um Sjóminja-
safnið, fyrirhugaða.
Mun ráðið veita kr. 100.000.00 i
verðlaun fyrir bestu ritgerð er
berst, enda sé hún fullnægjandi
að mati dómnefndarinnar.
Þrir menn hafa verið tilnefndir
i dómnefnd sem fjallar um rit-
gerðirnar, en i henni eiga sæti
Gils Guðmundsson, alþingis-
maður, Guðmundur H. Oddsson,
skipstjóri og ólafur Valur
Sigurðsson, stýrimaður.
Sjómannadagsblaðið væntir
þess að almenningur, rithöfundar
og þá ekki sist sjómenn bregðist
vel við og stingi niður penna og
segi skoðanir sinar á þessum
málum. Þá vilja aðilar sérstak-
lega hvetja æsku landsins til
þátttöku i ritgerðasamkeppni
þessari.
Nánari tilhögun er að finna i
auglýsingum,og ennfremur verða
gefnar upplýsingar I skrifstofu
sjómannadagsráðs að Hrafnistu.
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljinn óskar eftir
blaðberum i eftirtalin
hverfi
Fossvog
Máfahlio
Kvisthaga
Kaplaskjól
Vinsamlega. hafið sam-
band við afgreiðsluna
sími 17500.
Jackson — kemst hann I framboð fyrir demókrata?