Þjóðviljinn - 04.04.1976, Side 6

Þjóðviljinn - 04.04.1976, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. apríl 1976. RAGNAR ARNALDS: Al þýöu ba nda lagsi ns i dag eru rétt 20 ár liðin, síðan Alþýðubandalagið var stofnað sem kosninga- flokkur með afar lauslegu skipulagi. Hér er ekki ætl- unin að rekja sögu Alþýðu- bandalagsins í tvo áratugi, enda er ýtarlegt stað- reyndatal um þessa sögu að finna í formála, sem ég ritaði að stefnuskrá flokksins og kom út á sl. ári. Þar er vikið að því í fá- um orðum, hver var að- dragandinn að stofnun Al- þýðubandalagsins, en hann var að sjálfsögðu marg- þættur, þótt hann ein- kenndist einkum af bar- áttu verkalýðshreyfingar- innar gegn atvinnuleysi og versnandi lífskjörum, á- tökum við ihaldsoflin inn- an hennar og vaxandi sam- stöðu gegn viðleitni banda- ríkjamanna til að skapa sér varanlega hernaðarað- stöðu í landinu. Frá árinu 1950—1956 var sam- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins við völd. Hörð átök urðu i Alþýðuflokknum milli fylkingar vinstri og hægri manna, og á flokksþingi 1952 náði vinstri armurinn yfirhöndinni undir forystu Hannibals Valdimarssonar, sem þá var kjörinn formaður flokksins. Þremur árum áður hafði bróðir hans, Finnbogi Rútur Valdimars- son, fyrrum ritstjóri Alþýðu- blaðsins verið kjörinn á þing á vegum Sósialistaflokksins. Hannibal féll við formannskjör i Alþýðuflokknum 1954. Hann og stuðningmenn hans tóku þá upp samstarf við Sósialistaflokkinn i verkalýðshreyfingunni, og á Al- þýðusambandsþingi 22. nóv. 1954 náðu sósialistar og vinstri menn úr Alþýðuflokknum meiri hluta með knöppum atkvæðamun, Hannibal var kosinn forseti sam- bandsins með 175:146 atkv., Eð- varð Sigurðsson varaforseti með 161:159 atkv. og aðrir stjórnar- menn náðu kjöri með fárra at- kvæða mun. Málfundafélag jafn- aðarmanna var stofnað á árinu 1954 og formaður þess frá upphafi var Aifreð Gislason læknir. Alþýðubandalagið hafði ekki yfirlýsta sósialiska stefnu i önd- verðu. 1 stefnuyfirlýsingu var bandaiaginu lýst sem samtökum ..allra þeirra vinstri manna, sem saman vilja standa um yfirlýs- ingu Alþýðusambands íslands,” en bandalagið var myndað i sam- ræmi við yfirlýsingu sambands- stjórnar ASÍ 13. mars 1956 um stofnun slikra samtaka. Hannibal var kosinn formaður flokksins og Einar Olgeirsson Frá stofnþinginu haustið 1968. Flokkurinn stofnaður 1968 varaformaður, en jafnframt varð Einar formaður þingflokksins. 1 þessum kosningum fékk hinn nýi flokkur meira fylgi en Sósialista- flokkurinn hafði fengið 1953 og einum þingmanni fleira eða 8 þingsæti. Auk þeirra, sem áður hafa verið nefndir, skipuðu þessir menn fyrsta þingflokk Alþýðu- bandalagsins: Lúðvik Jósefsson, Gunnar Jóhannsson, Karl Guð- jónsson og Björn Jónsson. Tvö ólík tímabil Saga Alþýðubandalagsins skiptist á skýran hátt i 2 aðgreind timabil. Annars vegar er tima- skeiðið frá 1956, þegar flokkurinn starfaði aðallega sem bandalag sjálfstæðra aðila, Sósialista- flokksins og Málfundafélagsins, en árið 1968 urðu þáttaskil, er Al- þýðubandalaginu var breytt i formlegan sósialiskan stjórn- málaflokk. Siðan eru senn liðin 8 ár, og nú þegar litið er til baka, leynir sér ekki að þessi tvö tfmabil eru harla óiik. Fyrra timabilið frá 1956—1968 var saga endurtekinna ósigra og mikilla vonbrigða, enda fór þá álitlegur hluti af starfi Al- þýðubandalagsmanna i innbyrðis átök. Siðara timabiliö, seinustu 8 árin, er hins vegar saga endur- tekinna sigra og stöðugrar sókn- ar. Eins og nánar er rakið i for- mála að stefnuskránni var það timanna tákn, að hlutfallstala Al- þýðubandalagsins i Reykjavik fór jafnt og þétt lækkandi kosningar eftir kosningar i heilan áratug frá 1956 til 1966. Þá hefst skipulags- breytingin með stofnun félagsins i Reykjavik, sem leiddi til sigurs i bæjarstjórnarkosningunum þá um vorið. Umskiptin stóðu að visu stutt að sinni, enda fóru þá miklir klofningstimar I hönd, en eftir endurskipulagningu hreyf- ingarinnar haustið 1968 er það staðreynd, að flokkurinn hefur verið i stöðugri sókn. Hver er skýringin? Hver er þá skýringin á breyttu gengi Alþýðubandalagsins, sem snerist til hins betra i kjölfar klofnings. Munurinn á þessum tveimur timabilum i sögu Al- þýðubandalagsins er vafalaust sá, að á þvi siðara er flokkurinn miklu samstæðari og heilsteypt- ari en áður var og hefur skýrari og skarpari sósialiska stefnu. Skipulag Alþýðubandalagsins gamla var lengstum mjög frum- stætt og verst var skipulagið i stærsta kjördæmi landsins, Reykjavik. Aðilar bandalagsins, Sósiaiistaflokkurinn og Mál- fundafélagið, stóðu i skugga þess, enda hvergi opinberir aðilar að stjórnmálabaráttunni og hlutu þvi að einangrast frá fjöldanum, en samtökin, sem stóðu i sviðs- ljósinu, Alþýðubandalagið, höfðu ekki félag i Reykjavik fyrr en 1966. Þetta gat ekki staðist til lengdar, og þróunin hlaut að leiða til bess. að Alþýðubandalags- menn mynduðu einn samstæðan flokk, en upphaflegir aðilar bandalagsins hyrfu úr sögunni. Staðreyndin er að visu sú, að sums staðar hefur tekist að við- halda þviliku bandalagi sjálf- stæðra aðila og er Breski verka- mannaflokkurinn frægasta dæm- ið þar um. Sá flokkur var vafa- laust ýmsum forystumönnum Al- þýðubandalagsihs fyrirmynd hvað skipulag snertir fyrstu árin, og menn vonuðust til, að fleiri samtök gengju inn i þetta sam- fylkingarbandalag sem sjálfstæð- ir aðilarEn það var ekki raunhæft þegar fra leið. Sósialistaflokkur- inn bar höfuð og herðar yfir sam- starfsaðila sina, og Málfundafé- lagið var of litið til að geta lifað sjálfstæðu pólitisku lífi. En þetta flókna skipulag varð öllu starfi framt hefur auðveldað Alþýðu- bandalagsmönnum að gera betri grein en áður fyrir leið Islands til sósialismans. Gamla Alþýðubandalagið hafði sögulegu hlutverki að gegna. Stofnun þess og þróun auðveldaði sósialiskri hreyfingu á Islandi að endurskipuleggja starf sitt og laga sig að breyttum aðstæðum, en fúslega skal viðurkennt, að þessi þróun tók allt of langan tima. Nútíð — framtíð Þrátt fyrir aukna velgengni á seinustu árum fer þvi þó fjarri, að skipulag Alþýðubandalagsins og flokksstarf geti talist nógu gott. Enn sem oftáður er viðfangfeefnið að virkja stuðningsmenn sósial- iskrar hreyfingar innan flokks sem utan til árangursrikra starfa, og á þvi er allur gangur, hvernig til tekst. Það er talsvert unnið að þvi um þessar mundir i ýmsum stofnunum flokksins bæði nefndum og stjórnum, að ræða og móta stefnu flokksins i ýmsum málum. En starf félagsdeildanna er allt of fátæklegt og einhæft. Bygging Þjóðviljahússins við Siðumúla með fjárhagslegum fórnum og stuðningi hundruða al- þýðubandalagsmanna um land allt er einn merkasti áfanginn i þróun þessarar hreyfingar nú seinustu árin. Brýnasta verkefni okkar al- þýðubandalagsmanna nú á næst- unni verður að efla flokksstarfið: Viðast hvar eru möguleikar á aö fjölga flokksmönnum og koma upp fjöibreyttari starfsemi. A stórum stundum þegar mikið er i húfi, kemur glöggt i ljós, að Alþýðubandalagið er fjöldaflokk- ur vinnandi stétta. En þegar minna er um að vera, leggst starfið á fámennari hóp og alltaf er hættan sú, að störf þingmanna og fulltrúa okkar I sveitarstjórn- um verði um of yfirgnæfandi i flokksstarfinu en minna beri á öðrum nauðsynlegum störfum, sem miklu skipta fyrir sósialiska hreyfingu, t.d. starfinn i verka- lýðshreyfingunni, I samvinnu- hreyfingu, ftreyfingu herstöðva- andstæðinga og i ýmsum öðrum mikilvægum baráttusamtökum. Það er söguleg staðreynd, að Fyrsti þingflokkur Alþýðubandalagsins: Frá vinstri: Alfreð Gislason, Eövarð Sigurðsson, Gunnar Jóhannsson, Björn Jónsson, Einar Olgeirsson, Finnbogi Rútur Valdimarsson, Lúðvik Jósepsson, Hannibal Valdimarsson, Geir Gunnarsson, Karl Guðjónsson. Alþýðubandalagsmanna fjötur um fót og stuðlaði að sivaxandi úlfúð og innbyrðis tortryggni. Hin mikla uppstokkun, sem varð i hreyfingunni 1968 og kost- aði, að sumir af fyrri stuðnings- mönnum Alþýðubandalagsins, bæði úr röðum Sósialistaflokksins og Málfundafélagsins, helltust úr lestinni, auðveldaði flokknum að marka sér stefnu i fullu samræmi við aðstæður innan lands og utan. Afstaðan til framkvæmdar sósialismans i öðrum löndum varð skýrari, gagnrýnin hiklaus- ari og umræðan opnari, sem jafn- það voru forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar i sambands- stjórn Alþýðusambands Islands, sem beittu sér fyrir stofnun Al- þýðubandalagsips fyrir tveimur áratugum. Eins voru það helstu forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar i Reykjavik, sem tóku af skarið veturinn 1956 og beittu sér fyrir stofnun Alþýðubandalagsfé- lags i Reykjavik. Nú sem fyrr ræður það úrslitum um gengi Al- þýðubandalagsins, að flokkurinn gegni áfram skyldu sinni sem pólitiskur armur verkalýðshreyf- ingarinnar. Tuttugu ár undir merki

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.