Þjóðviljinn - 04.04.1976, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 04.04.1976, Qupperneq 11
Sunnudagur 4. aprfl 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 breiðslu að gagni og sker sig úr hjörðinni er FIB-Kulturfront. Þetta er vinstrisinnað blað sem fjallar um stjórnmál og menn- ingarmál, en hefur þó tileinkað sér framleiðsluhætti æsiblaða. Fib-Kulturfront varð frægt utan Sviþjóðar þegar tveir blaðamenn þess, Peter Bratt og Jan Gi komu af stað hinu svokallaða IB-máli. Eftir um eins árs vinnu að sama málinu skrifuðu þeir grein um óþekkta upplýsingaþjónustu svia - óg tengsl hennar við innbrot i sendiráð arabarikja, njósnir um sænsk vinstri félög ofl. Nýlega var Jan Gi einnig viðriðinn uppljóstrun um starfsemi CIA I Sviþjóö. Þess má geta i leiðinni, að báðir blaðamennirnir voru dæmdir fyrir njósnir og settir i fangelsi. Mér gafst eitt sinn kostur á að spyrja Jan Gi umþátttöku hans i þessu máli og um blaðamennsku- feril hans almennt. Þar sem pistill þessi fjallar um vikublöð, læt ég nægja að vitna i hann um það siðarnefnda. Niður með buxurnar Tvö blöð keppa um gúnst karl- manna sem vilja lesa um glæpi og sjá myndir af berum stelpum, þau heita Lektyr og Fib-Aktuellt. Jan Gi vann i byrjun blaða- mennskuferils sins á Fib- Aktuellt. Þessi blöð reyna sifellt að finna ný brögð til að skáka keppinautinum i djarfleika og sölugildi. Snemma á árum færði Lektyr stúlkur sinar úr brjósta- höldunum. Um hæl gerði Fib- Aktuellt það sama. Siðan hefur fatafalli miðað vel og stellingar orðið æ grófari. Mestu munaði þegar skapahárin komu i ljós fyrir uþb fimm árum. „Fram- farir” hafa einnig orðið á öðrum sviðum: Smyglmál eru daglegt brauð, blöðin hafa gott samband við strokufanga á flótta (ef fang- arnir verða blankir hringja þeir og bjóða viðtöl). Einnig hafa kyn- orgiur farið mjög i vöxt meðal frægs fólks og táninga. Samfara auknum æsileik efnis er allt gert til aö setja lesmál og myndir upp (Lay-out) með flennulegum hætti. Fyrirsagnir taka heilar siður og textinn er þræddur inn i fagurlitaðan myndafans. Jan Gi sagði að fólk væri orðið svo vant æsilegri uppsetningu les- máls, að það tæki ekki eftir greinum, hversu mikið fréttagildi sem þær hefðu, nema uppsetningin blési efnið útyfir raunverulegt gildi þess. Hann nefndi dæmi: grein ein um svo- kallaðar sálfræðilegar varn- ir Sviþjóðar (deild á vegum varnarmála ráðuneytisins heitir: Beredskapsnamden för psykolog- iskt försvar) birtist i Fib-Kultur- front. Þar kom i ljós að herinn hafði fengið menn úr forystuliði flestallra helstu fjölmiðla landsins til samstarfs undir þagnarheiti. Þetta voru auðvitað sláandi upplýsingar um hvernig herinn hafði tryggt sér þögn fjöl- miðla um ýms óþægileg mál er vörðuðu opinberan áróður á striðs- og friðartimum. Jan Gi sagði að sér og samstarfs- mönnum sinum hafi þótt greinin svo stórkostleg! að ekki þyrfti að slá henni upp, heldur einungis setja hófsamlegar fyrirsagnir og litlar myndir. Þetta reyndist rangt. Hvergi var skrifaður stafur um málið og sjónvarp, og útvarp þögðu. Ritstjórn Fib- Kulturfronthafði svo þetta til við- miðunar þegar gagnasöfnun i IB- málinu var lokið. Jan Gi lýsti þvi, ekki án sjálfsháðs, hvernig reynt var að finna verstu myndir af sakleysislegum mönnum, mynd- irnar gerðar grafiskar og grófar osfrv. Allt til að magna áhrifin. Ekki var heldur að árangri að spyrja: Um hann var getið hér að framan. Þá tækni i skrifum og upp- setningu sem þróast hefur i kapp- hlaupi um sölugildi er hægt að nota til að koma meiningu sinni á framfæri, og það gildir ekki bara um blaðamennsku. Enn virðist þó, sem sætt svefngengisgutl um loftkastala og hindurvitni sé almenningi kærust lesning. Á meðan svo er verða ætið menn sem taka að sér að matbúa graut- inn i fólk gegn þægilegri þóknun. Rannsókn á glæpum Chilestjórnar Helsinki. Fjórða fundi alþjóð- legu nefndarinnar til aö rannsaka glæpi herforingjastjórnarinnar i Chile er lokið i Helsinki. í tvo daga hafa kunnir lögfræðingar og visindamenn, leiðtogar almenn- ingssamtaka, stjórnmálamenn og prestar hlýtt á framburð vitna, sem eru nýkomin frá Chile. Meðal þeirra voru i fyrsta sinn foringjar úr chileanska hernum, sem her- foringjarnir höfðu dregið fyrir rétt og dæmt til mislangrar fangelsisvistar en siðan höfðu flú- ið úr landi til þess að komast hjá að verða samsekir um glæpi her- foringjanna. Liðsforingjarnir vitnuðu um grimmilegt ofbeldi, sem þeir höfðu verið beittir, um pyndingar og barsmiðar og um glæpsamleg verk, sem herfor- ingjarnir vildu fá þá til að vinna. Nokkrir liðsforingjar voru dæmd- ir til dauða, og aðeins vegna þrýstings frá almenningsálitinu i heiminum var dauðarefsingunni breytt i lifstiðarfangelsi og siðar brottvisun úr landi. Prófessor Hans-Joran Frank, aðalritari alþjóðlegu rannsóknar- nefndarinnar og kunnur sænskur lögfræðingur, sem var nýkominn frá Chile, bar vitni á fundinum. Sagði hann frá efnahagsringul- reiðinni i landinu og að 20—25% vinnufærra manna i landinu væru að meðaltali atvinnulausir, þótt opinberar tölur herforingja- stjórnarinnar segðu aöeins 7%. Mikla athygli vakti frásögn próf. Frank af fundi hans og Luis Corvalan, aðalritara Kommúnistaflokks Chile, sem situr i fangelsi. Sagði próf. Frank, að Corvalan og aðrir leiðtogar þjóðlegu einingarsamtakanna væru staðráðnir i að snúa sýndar- réttarhöldunum, sem verið er að . undirbúa gegn þeim, upp i ákæru á hendur herforingjunum sjálf- um. Rannsóknarnefndin samþykkti lokaályktun á fundi sinum, byggða á framburði sjónarvotta. Segir þar, að þrátt fyrir opin- berar yfirlýsingar herforingja- stjórnarinnar um að „frelsi hafi verið aukið” riki ógnaröld i land- inu. t einstökum hlutum álykt- unarinnar eru glæpir herforingja- stjórnarinnar ” skilgreindir i smáatriðum — gerræðislegar handtökur, ólögleg fangavist, grimmdarleg meðferð á föng- um, pyndingar o.fl. glæpir. t kaflanum um væntanleg réttarhöld yfir Luis Corvalan og öðrumx leiðtogum þjóölegu ein- ingarsamtakanna fullyrðir nefndin, að herforingjarnir viti vel, að réttarhöldin muni vekja almenna reiði um heim allan en engu að siður sé mikil hætta á að þau verði haldin. Þess vegna krefst alþjóðanefndin þess að öll- um pólitiskum föngum i Chile verði tafarlaust sleppt úr haldi án skilyrða og undantekninga. Niðurstöður nefndarinnar hafa aldrei verið vefengdar, þar sem þær eru byggðar á gnægð stað- reynda. Þessar niðurstöður eru sérstaklega áhrifamiklar nú, þar sem þær hafa verið staðfestar af sjálfstæðum rannsóknum mann- réttindanefndar SÞ á glæpum herforingjastjórnarinnar. Vitnin, sem komu fram á fundi rann- sóknarnefndarinnar nú, höfnuðu öllum tilraunum herforingjanna til þess að draga niðurstöður mannréttindanefndar SÞ i efa. (Skv. frásögn G. Boroviks) Hvar eru fuglar...? Auglýsing Norræna fjárfestingarbankans um stöðu aðalbankastjóra (Nordiska Investeringsbanken, NIB) Hinn 4. desember 1975 undirrituöu rikisstjórnir Norður- landanna samning um stofnun Norræna fjár- festingarbankans (Nordiska investeringsbanken, NIB). Að þvi tilskildu, að stofnsamningurinn hljóti fullgildingu löggjafarþinga Norðurlandanna, er þess vænst, aö hann öðlist gildi sumarið 1976. Norræni fjárfestingarbankinn mun veita lán og ábyrgðir með venjulegum bankakjörum og I samræmi við þjóð- hagsmarkmið til framkvæmda og útflutnings, sem þjónar sameiginlegum hagsmunum Norðurlanda. Stofnfé bank- ans skal vera 400 miljónir sérstakra dráttarrettinda (SDR) eða um 80 miljarðar isl. króna. Lánog ábyrgðir bankans mega nema allt aö 2,5 faldri stofnfjárhæðinni. Bankinn mun afla sér lánsfjár bæði á Norðurlöndum og utan þeirra.Norræni fjárfestingarbankinn mun hafa sam- vinnu við stjórnvöld aðildarrikjanna og við aðrar lána- stofnanir. Bankinn skal starfa undir stjórn, sem skipuð er af aðildarrikjunum. Aðsetur bankans verður i Helsing- fors. A þeim grundvelli, sem að ofan er lýst um stofnun bank- ans, er hér með auglýst laus til umsóknar staða aðal- bankastjóra hans. Verkefni aðalbankastjórans verður að koma starfsemi bankans á fót og stjórna henni i samræmi við þá stefnu, sem bankastjórnin markar. Leitað er eftir hæfum umsækjendum til þessa starfs. Upphaflegur ráðningartimi er fimm ár, sem siðar má framlengja. Um ráðningarkjör verður samið beint milli hlutaðeigandi umsækjenda og bankastjórnarinnar. Aðal- bankastjórinn skal eftir nánara samkomulagi við banka- stjórn, hefja störf svo fljótt sem auðið er eftir gildistöku stofnsamnings bankans. Nánari upplýsingar um Norræna fjárfestingarbankann er að finna i lagafrumvarpi þvi, sem rikisstjórnin hefur nú lagt fram á Alþingi um heimild til fullgildingar á stofn- samningi Norræna fjárfestingarbankans. Upplýsinga má jafnframt leita hjá Þórhalli Asgeirssyni, ráðuneytis- stjóra, Viðskiptaráðuneytinu, Reykjavik, og Jóni Sigurðs- syni hagrannsóknastjóra, Þjóðhagsstofnun, Reykjavik. Skriflegar umsóknir, sem farið verður með sem trúnaðar- mál, skulu hafa borist formanni undirbúningsneíndar bankans i siðasta lagi 30. april 1976. Umsóknir skal senda til: Bankdirektör Pentti Uusivirta, Organisationskommittén för Nordiska investeringsbanken, P.O. box 269, 00171 Helsingfors 17. Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu Laghentur aðstoðarmaður, karl eða kona, óskast á rannsóknarstofu Orku stofnunar i Keldnaholti. Skriflegar um- sóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist Orkustofnun, Laugaveg 116, fyrkr 15. april. Orkustofnun ^m^^mmmmmmmm^mmmmmm^^m^^^im^^mmmm^ Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opið frá kl. 10—12 og 14—18 föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð. — Félag háskóla- menntaðra kennara Fundur um samningsréttarmálið verður haldinn i Norræna húsinu þriðjudaginn 6. april kl. 17. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.