Þjóðviljinn - 04.04.1976, Qupperneq 17
SHnnudagur 4. apríl 1976. ÞJÖDVILJINN — SIÐA 17
HÁRVÖXTUR
OG SKALLI
Til eru félagsfræöingar
sem halda þvi fram, að
þýðing fata hafi minnkað
fyrir samtímann, en hár-
ið hafi þeim mun meiri
þýðingu. Svo mikið er
víst, að heimilislæknar
viða um lönd eru ekki um
annað meir spurðir en
hár og hárlos og hvernig
megi koma í veg fyrir
það.
i nýlegu hefti af Stern svarar
rlr. Erich Ludwig nokkrum
spurningum um hárlos hjá kon-
um og körlum og er viðtal þetta
endursagt hér á eftir.
Hárlos er ekki sjúkdómur
iieldur merki um vissar truflan-
ir i likamanum. Vilji menn
losna við þessi merki verður að
útrvma orsökum þeirra. Það er
hægt i sumum tilfellum, en öðr-
um ekki.
Skalli og náttúra
Hafi karlar meðfædda hneigð
til skalla, þá er i reynd ekkert
við hárlosi hjá þeim að gera.
Vegna þess að eðlilegt magn af
karlhormóninum Testosteron i
likama þeirra þýðir um leið, að
þeir missa hárið.
Fræðilega séð er hægt að
stöðva skallamyndun með
hormónalyfjum — og þar með
eyða áhrifum testosterons. En
afleiðingarnar eru verri en
nokkur skalli: karlmaðurinn
missir náttúruna, hann verður
„efnalræðilegur” geldingur.
Skallamyndun þýðir þar með
alls ekki að maðurinn hafi litla
náttúru til kvenna, heldur þvert
a móti, að það er allt i lagi með
hann. Guðsgeldingar eru aftur á
mótj alltaf vel hærðir.
Rangar pillur
Að þvi er konur varðar, þá
getur verið að getnaðarvarnar-
pillur valdi hárlosi. A.m.k. ef
þær taka „rangar” pillur, sem
mynda i likamanum efni sem
svipar til karlhormóna. Yfirleitt
eru hormónaturflanir algeng-
asta orsök hárloss hjá konum.
Margar aðrar ástæður eru
fyrir hárlosi — sjúkdómar, slys,
ákveðin lyf. En hér er yfirleitt
um að ræða bráðabirgðafyrir-
bæri, sem ekki er ástæða til að
hafa áhyggjur af.
Fæöi, burstar, þvottur
Það er misskilningur að fæði
manna hafi áhrif á hárvöxt. Að
minnsta kosti á okkar menn-
ingarsvæði Jafnvel mjög einfalt
fæði tryggir likamanum öll þau
efni í nægilegu magni, sem lík-
aminn þarf til að halda við hár-
vexti.
Það er heldur ekki rétt, að
vitaminskortur hafi örvandi á-
hrif á hárlos.
Það er ástæða til að vara viö
slæmum hárburstum, sem tæta
hárið og brjóta vegna þess hve
harðir þeir eru. Ekki á að nota
aðra bursta en þá sem eru úr
náttúrulegum efnum. Sá orð-
rómur sem segir, að mönnum
muni vel farnast að ofan, ef þeir
bursti hár sitt með hundraö
strokum á dag, hefur ekki við
rök að styðjast.
En það er ástæða til að vara
við þvi, að þurrka hár við of
niikinn hita, að hlaupa um i
heitu sólskini á sólarströndum
án höfuðbúnaðar. Einnig verður
að fara að með mikilli gát þegar
hár er liðað eða litað.
Það er útbreidd trú, að hár
vaxi hraðar ef það er klippt oft.
Það er ekki rétt — hárið vex um
ca. einn sm. á mánuði, hvort
sem það er klippt eða ekki.
Það er heldur ekki rétt að hár
verði þvi fyrr feitt þeim mun
oftar sem það er þvegið. Það er
ágætt að þvo hárið alloft, en
kannski ekki á hverjum degi —
menn skulu ekki gleyma þvi að
litulagið sem myndast á hárinu
hef'ur m .a. viss verndandi áhrif.
HJATRU OG
STAÐREYNDIR
Forngrisk karlmennska f hára-
fari
Þessi hárgreiðsla var i tisku i
Itóm <>g var kiilluð Titusarhöf-
llð,
Svimandi liá rokokkohár-
greiðsla
í upphafi 19. aldar er parrukið
horfið
Kakarar urðu atvinnulausir á
blomaskeiði hippanna.
i dag getur allt gerst.
Tappatogaratiskan seint á 19.
öld
Guöinn briljantin um 1920
liin lokkaprúðu striðsár
Margir stældu Clark karlinn
Gable
Þegar
snjóar í
Moskvu
Þegar snjóar í Moskvu, og
það er bæði oft og mikið,
birtast snjóplógarnir á göt-
unum. íbúar borgarinnar,
sem eru sjö og hálf miljón,
þurfa að komast i vinnu, i
skóla og annað sem dagleg
störf krefjast.
Snjómoksturinn er mjög
umfangsmikið starf. Venjulega
fellur hálfur annar metri af snjó
til jarðar i borginni yfir veturinn,
og ryðja þarf meira en 3500 km af
götum. Þegar veturinn er liðinn
hefur meira en 1000 miljónum
rðmmetra af snjó verið ekið i
fljótin, Moskvu og Jausa, sem
bæði falla i gegnum borgina. Sér-
stök stofnun er ábyrg fyrir snjó-
ruðningi af götum og torgum i
miðborginni. 1 öðrum borgar-
hlutum eru það viðkomandi yfir-
völd. sem eiga að sjá um snjó-
ruðninga. Abyrgð þeirra tekur
einnig til þess að f jarlægja snjó af
50 þúsund húsþökum. Snjó-
ruðningaþjónustan hefur yfir að
ráða 4000 snjóplógum auk 2500
flutningabila, sem eru til reiðu til
þessara starfa. (APN)
Ódýr
aðferð til
að vinna
vetni
úr vatni
Tvö fyrirtæki i Kaliforniu hafa
tilkynnt, að þau hafi borgað
samtals eina miljón dallara til
uppfinningamanns sem hefur
leyst þann vanda að vinna vetni
úr vatni án mikils tilkostnaðar.
Uppfinningamaðurinn heitir
Sam Leach og er sagður hafa
unnið sér til alls sextiu einkaleyfa
sem viða eru notuð.
Uppfinning þessi kann að sæta
miklum tiðindum þvi að vetni er
mesta orkulind sem til er og sú
eina sem jafnan endurnýjar sig.
Allt vatn er vetni að tveimþriðju.
En til þessa hefur engin aðferð
til að vinna vetni úr vatni borgað
sig, af þvi að við vinnsluna
tapáðist meiri orka en vannst.
Leiðar venjur
Úr grein eftir menntamála-
ráðherra Tansaniu i biaðinu
Daily News i Dar Es-Salaam:
,,St jórnin gefur drykkju-
mönnum. sem um leið eru
kennarar. þriggja mánaða frest
til að hætta þessari venju sinni
eða segja upp. Þeir sem það ekki
gera vera reknir. Sömu örlög biða
þeirra sem gera skólastúlkur
óléttar eða stela skólagjöldum.
AF ERLENDUM
BÓKAMARKAÐI
Humboldt's Gift
A Novel by Saul Bcllow. An Alison
Prcss Book —Seckcr & Warburg
1975.
Saul Bellow er af rússneskum
gyðingaættum, foreldrar hans
fluttu til Bandarikjanna nokkrum
árum áður en hann fæddist, en
hann er fæddur 1915. Hann ólst
upp i Chicago og sú borg er bak-
grunnur skáldsagna hans all-
flestra, þar á meðal þessarar
skáldsögu. Bellow er meðal
þeirra höfunda bandariskra sem
hófu feril sinn upp úr siðustu
heimsstyrjöld og má hann teljast
þeirra merkastur. Viðfangsefni
hans er staða mannsins, staða
Bellows i samfélaginu, heiminum
og allt upp i alheiminum, mótun
umhverfis á einstaklinginn og
svar hans við þeirri mótun. Bell-
ow er þeirrar skoðunar að ein-
staklingurinn geti mótað um-
hverfi sitt i þá veru sem hann kýs
sjálfur, notið þeirra efnislegu og
andlegu gæða sem hann kýs sér,
valið og hafnað. Aðalpersóna
þessarar sögu er Chariie Citrine,
rithöfundur i miklum vandræðum
og milli kvenna og milli vita,
plokkaður af lögfræðingum fyrr-
verandi eiginkonu og ásóttur af
kátlegum glæpamönnum og kyn-
legu hyski þeirra. Hann verður
einnig fyrir barðinu á æskugoði
sinu skáldinu Humbolt, sem er
niðurkoðnaður um það leyti,
sem sagan hefst. Umhverfi
sögunnar er auðugt af marg-
vislegum tilbreytingum, sem
peningar geta keypt og andlegt lif
aðalpersónunnar er samtíningur
úr hinum og öðrum tiskufyrir-
bærum samtimans,. Höfundurinn
þeytist um þessa andlegu heima.
ræðir kenningar og sér i óheftum
kapitalisma tækifæri til nýsköp-
unar andlegs lifs. Atburðarrásin
er hröð en heimspekilegar hug-
leiðingar höfundar oft full lang-
dregnar, og eins og þær séu mið-
aðar við þekkingarstig
amerikana, sem hefur ofurlitið
meira til brunns að bera en
venjulegt gripsvit. Þrátt fyrir
þetta er bókin skemmtileg
aflestrar, personurnar kátlegar.
einkum glæpamennirnir og einnig
margir þeir sem ganga ekki þann
veg, heldur götuna meðfram. svo
sem lögfræðingar og braskarar.
Bókin er þess virði að vera lesin.
umhverfið er fjölbreytilegt þótt
andlegar hræringar þess séu
fremur af readers digest teg-
undinni. Bókinni lýkur með
endurjörðun Humbolts skalds og
hvarfi aðalpersónunnar inn i guð-
speki Rudolfs Steiners.