Þjóðviljinn - 21.04.1976, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 21.04.1976, Qupperneq 3
Miðvikudagur 21. april 1976 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3 Mikið um að vera hjá börnunum í Reykjavík Það verður mikið um að vera i Reykjavik á morgun, sumar- daginn fyrsta. Þá gangast Skátafélögin og Sumargjöf i fyrsta sinn fyrir sameiginlegri sumarhátið með skrúðgöngum og útiskemmtunum. Klukkan 10.15 verður skrúðganga frá gatnamótum Alftabakka og Stekkjabakka, og lýkur henni við Breiðholtsskóla. Kl. 13 verð- ur skrúðganga frá Hólatorgi og verður gengið að Fellaskóla og kl. 14 verða skrúðgöngur frá Hljómskálagarðinum og Sjó- mannaskólanum. Lúðrasveitir Arbæjar- og Breiðholtsskóla, Lúðrasveit verkaiýðsins og Lúðrasveit Reykjavikur leika fyrir göngunum, sem skátar stjórna. Kl. 11 um morguninn verða skátamessur i Breiðholtsskóla og I Neskirkju. Kl. 14.45 verða skátafélögin i Reykjavik með Tivolidag á barnaskólalóðinni við Austur- bæjarskólann, og St. Georgs- gildið með kakó- og pönnuköku- sölu á svæðinu. Lúðrasveit barna leikur á svæðinu meðan á Tivoliatriðunum stendur. Einnig verður starfræktur barnaleik- völlur. Klukkan 16.30 sér St. Ge- orgsgildið um kvöldvöku viö Austurbæjarskólann með skáta- sniði. Kl. 13.30 endurtaka nemendur úr Fósturskóla Islands skemmt- un sina frá 10. april i Austurbæj- arbiói. Aðgöngumiðar eru seldir frá kl. 12.30 og kosta kr. 200. I Fellahelli kl. 14 og I Arbæjar- skóla kl. 16 sýnir Leikbrúðuland leikritin Gréta og grái fiskurinn og Meistari Jakob og Tröllið Loðinbarði. Aögöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir sýningu og kosta kr. 300. Hestamannafélagið Fákur mun leyfa börnum 10 ára og yngri að koma á bak á athafna- svæði sinu við gamla skeiðvöll- inn milli kl. 15 og 16. Merkja og Fánasala Merki Sumargjafar verða seld á sumardaginn fyrsta. Merkið kostar 100 kr. Merkin Það verður nóg að gera hjá þessum börnum á morgun. Einar Karlsson tók myndina i rigningarsuddan- um i gær, þegar hann mætti krökkum úr einum leikskóla Sumargjafar á göngutúr. eru afhent sölubörnum um morguninn kl. 10-12 I eftirtöld- um skólum: Alftamýrarskóla, Árbæjarskóla, Austurbæjar- skóla, Breiðagerðisskóla, Breiðholtsskóla, Fellaskóla, Fossvogsskóla, Hliðaskóla, Hólabrekkuskóla, Hvassaleitis- skóla, Langholtsskcla, Laugar- nesskóla, Melaskóía, Vestur- bæjarskóla, og Vogaskóla. tslenskir fánarverða afhentir sölubörnum i sömu skólum milli kl. 10-12, og seldir i skrúðgöng- unum. Verð kr. 100.- Vegamálastjóri um veginn yfir Holtavörðuheiði: Stefnt að hækkun eða breytingum Fólksbílar á sumardekkjum með ungbörn innanborðs meðal þeirra sem lentu í erfiðleikum yfir páskanna Holtavörðuheiðin olli mörgum vegfarandanum erfiðleikum yfir páskana og er það ekki i fyrsta sinn, sem bflar stöðvast á miðri heiðinni vegna snjókomu og ó- færðar. Að sögn Sigurðar Jó- hannssonar voru erfiðleikarnir um páskana þó fyrst og fremst vegna þeirra fólksbila, sem lögðu á heiðina algjörlega vanbúnir sliku ferðaiagi, jafnvel á sumar- dekkjum með illa búið fólk innan- borðs. Sagði hann hjálparstarfið hafa verið ákaflega erfitt, suma bflana hefði þurft að grafa upp og moka siðan fólkið út úr þeim. Var einna helst óttast aö einhverjir bilar fyndust ekki vegna þess að þá hcfði fennt i kaf. Aðspurður sagði Sigurður aö engum vafa væri undirorpið að til róttækra aðgerða yrði að gripa til þess að auðvelda vetrarferðir yfir heiðina eða gera mönnum kleift að komast leiðar sinnar á ein- hvern hátt. Rætt hefur verið um margar leiðir til úrbóta, s.s. Sigurður Jóhannsson vegamála stjóri. hækkun vegarins, nýjan veg ann- ars staðar yfir heiðina eða þá nýj- an veg yfir Laxárdalsheiði, sem er um 200 metrum lægri en Holta- vörðuheiðin. Slikt yrði þó tölu- verðurkrókur fyrir t.d. norðlend- inga á leið suður eða öfugt og sitt sýnist hverjum um ágæti þeirrar lausnar. Sá vegur sem nú liggur yfir Holtavörðuheiði var gerður á ár- unum 1930-38, þ.e. löngu áður en nokkur lét sér detta i hug vetrar- ferðalög þar yfir. En nú er öldin önnur og kröfurnar meiri. Til þess að bæta þessa samgönguleið þarf að hækka veginn allan tölu- vert mismikið þó eftir þvi hvar á heiðinni er. Sigurður sagði að það væri á- kvörðun þingsins hvenær ráðist yrði i þennan eða hinn vegar- spottann, en öllum væri ljóst hve brýn þörf væri á róttækum að- gerðum hið allra fyrsta. —gsp Séra Eli Jenkins (Viöar Eggerts- son) er blekugur i ljóðastofu sinni, og segir aðeins sannleikann i Æviriti sinu, Hvitu-bókinni um Llaregyb, hjá Mjólkurskógi. Mjólkurskógur: Síðustu Siðustu sýningar á leikritinu ,.Hjá Mjólkurskógi verða Sumar- daginn fyrsta kl. 21 og sunnudag- inn 25. april kl. 21 i Lindarbæ. sem Nemendaleikhús Leiklistarskóla tsiands sýnir. Um sýninguna hefur Ólafur Jónsson (Dagblaðið) sagt m.a.: ....Ellefu leiknemar standa að sýningu Mjólkurskógs. allt fólk. sem i vor lýkur námi úr skólan- Bresku- veiðiþjóf- arnir á austurleið Bresku veiðiþjófarnir, sem undanfarna daga hafa verið aö veiðum á Vestfjarðamiðum, en litiö sem ekkert aflað, eru nú á leið á miðin útaf Austurlandi, eft- ir að hafa fengiö leyfi til slíkra flutninga hjá breska flotanum á 2. dag páska. Alls eru togararnir 30, sem nú eru á leið á Austfjarðamið og verndarskipin 10 með þeim. Varðskip eru i nánd við flotann og fleiri munu taka á móti honum þegar austur kemur. —S.dór Haukur og Helgi efstir Að loknum 9 umferðum af 11 á Skákþingi Islands i landsliðs- flokki, eru þeir Helgi ólafsson og Haukur Angantýsson efstir og jafnir með 7 vinninga hvor. Ingv- ar Asmundsson er i 3. sæti með 6 vinninga. 1 gærkveldi var 10. um- ferð tefld, en úrslit voru ekki kunn þegar blaðið fór i prentun. 1 dag verða biðskákir tefdlar en keppn- inni lýkur á morgun. Aðrir en þessir þrir munu trauðla berjast um tslands- meistaratitilinn að þessu sinni og mestar likur til að það verði þeir Haukur og Helgi sem berjast um hann. 1 áskorandaflokki, en þrir efstu menn úr honum flytjast uppi landsliösflokk, er keppnin geysi- lega hörð. Jón Þorsteinsson er þar efstur með 6,5 v. en Gunnar Gunnarsson og Gunnar Finn- laugsson eru i 2. til 3. sæti með 6 vinninga. Jóhann örn Sigurjóns- son, Hilmar Viggósson og Björn Jóhannsson eru i 4. til 6. sæti með 5,5 vinninga og ómögulegt að spá nokkru um úrslit I þessum flokki. —S.dór. Bakarinn i Mjólkurskógi, Brauða Dæ, (Sigurður Sigurjónsson) á ekki sjö dagana sæla, þvi hann er giftur tveimur konum, sem geta ekki einu sinni fest hnappa á skyrtuna hans (Ljósrn. Haukur Þórólfsson). sýningar um. Starfsemi Nemendaleikhúss- ins er lokaþáttur i námi þeirra og þar með áfangi i prófi sem nú fer væntanlega i hönd. Það er sem betur fer ekki i verkahring leik- dómenda að raða dúxum og fúx- um i rétta röð. En hópurinn i heild og þar með skóli þeirra, finnst mér að verðskuldi góða einkunn áhorfenda fyrir ásjálega. áheyri- Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.