Þjóðviljinn - 21.04.1976, Page 4

Þjóðviljinn - 21.04.1976, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. aprfl 1976 UOWIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. HOTANIR KISSINGER Kissinger utanrikisráðherra bandarikj- anna hefur lýst þvi yfir að stjórn hans geti ekki þolað sósialista i rikisstjórnum i Vestur-Evrópu. Tilkynning utanrikisráð- herrans kom fram i umræðum um stjórn- málahorfur á ítaliu, en þar bendir nú margt til þess að Kommúnistaflokkurinn muni enn auka fylgi sitt.en hann hefur nú þegar um þriðja hvern kjósanda á ítaliu á bak við sig. Jafnframt hefur Kissinger lýst þvi yfir að bandarikjastjórn muni beita sér fyrir breytingum á Atlantshafs- bandalaginu komist sósialistar til umtals- verðra áhrifa i NATO-rikjunum. Þessi yfirlýsing Kissingex's kemur engum þeim á óvart sem undanfarna daga hefur fylgst með birtingu Þjóðviljans á bandariskum leyniskýrslum frá árinu 1949. Þar kemur það nefnilega fram að þá- verandi utanrikisráðherrar íslands og Bandarikjanna voru sammála um að aðalástæðan fyrir þvi að nauðsynlegt væri að stofna Atlantshafsbandalagið væri að koma i veg fyrir aukin völd sósialista. En jafnframt felst i yfirlýsingu bandariska utanrikisráðherrans blygðunarlaus árás á lýðræðið, það lýðræði sem bandarikja- menn hafa þóst vera að verja á undan- förnum áratugum. Yfirlýsing utanrikis- ráðherrans þýðir nefnilega að þjóðum heimsins á ekki að verða frjálst að velja sér það stjórnarfar sem þær vilja sjálfar helst hafa. Það var nákvæmlega á þessum grundvelli sem bandarisk utanrikisstefna byggði framferði sitt i Vietnam á sinum tima þar sem miljónir manna biðu bana og örkuml vegna þess að forseti Banda- rikjanna óttaðist að vietnamar vildu fara aðra leið i vali sinu á stjórnarfyrirkomu- lagi en bandariskum þóknaðist. Margir héldu þó eftir ófarir bandarikjamanna i Vietnam að þeir hefðu eitthvað lært, en svo virðist ekki vera, þvi i yfirlýsingu Kissinger felst annað og meira en almenn pólitisk umsögn. í henni felst alvarleg hót- un, hótun um áð fara gegn itölum með of- beldisaðgerðum ef þeir dirfast að kjósa þann flokk sem Kissinger óttast fyrir hönd bandariska heimsauðvaldsins að verði enn sterkari á ítaliu. Það var á þessum sama grundvelli að bandarikjastjórn beitti sér gegn stjórn Allendes i Chile; þá gerði bandarikja- stjórn út leyniþjónustu sina með doll- aramútur miljörðum saman til þess að koma stjórn Allendes frá, en hún var þó réttkjörin samkvæmt stjórnarskrá lands- ins, lýðræðisleg stjórn. Lýðræðið þolir auðvaldið ekki; það kom i ljós i Chile, það kom i ljós i Vietnam, það kemur nú fram i blygðunarlausri ofbeldishótun Kissingers utanrikisráðherra. Og þessi alvarlega hótun snertir okkur islendinga einnig. Þvi um leið og banda- rikjamenn fara að óttast rauða Evrópu eins og það er kallað, þá munu þeir vafa- laust reyna allt sem þeir geta til þess að herða tök sin á íslandi og Asóreyjum; Bandarikin munu reyna að mynda um sig viggirðingu gegn Vestur-Evrópu og þar af leiðandi reyna að halda íslandi sin megin. Þessi hætta blasir við og þessa hættu verða Norðurlöndin að skilja, þau verða að koma íslandi til hjálpar á þessu sviði. Þeir flokkar sósialista i Vestur-Evrópu sem Kissinger óttast hafa allir lýst þvi yfir að þeir ekki aðeins virði, heldur krefjist þeir fjölflokka lýðræðis, prentfrelsis og annarra mannréttinda. Og þeir hafa jafn- vel lýst þvi yfir, eins og italski kommún- istaflokkurinn, að þeir muni ekki beita sér fyrir úrsögn ítaliu úr Atlantshafsbanda- laginu. Jafnframt hefur komið skýrt fram i fréttum að leiðtogi italskra kommúnista Berlinguer og samstarfsmenn hans eru fjarri þvi að vera að skapi valdamanna i Moskvu. Þess vegna er það ekki svo að Kissinger óttist um lýðræðið á ítaliu. Hon- um er sama um það. Ííann óttast heldur ekki að italskir kommúnistar gerðust bandamenn Brésnefs. Hann óttast um að auðvaldið sé að missa spón úr aski sinum, hann óttast að alþýða annarra landa i Vestur-Evrópu færi að fordæmi itala. Yfirlýsing Kissingers utanrikisráðherra bandarikjamanna minna islendinga á óþægilegar staðreyndir: hersetuna og aðildina að Nató, á þá staðreynd að þjóðin er ekki sjálfstæð i landi sinu meðan hér er erlend herstöð. En yfirlýsingarnar minna einnig á að enn meiri hætta getur verið yfirvofandi. Við skulum vera vel á verði. — s Hvað var Penfield að gera? ,,Það eru þreifingar i gangi, en óvist hvað kemur út úr þeim.” Þetta heyrir maður ofan í stjórnarsinna þessa dagana i sambandi við land- helgismálið. Allt virðist benda til þess að enn eigi að gera til- rauntil þess aðsemja viðbreta. Helst fyrir 1. mai og áður en fimm mánaða fresturinn, sem vestur-þjóðverjum var veittur til þess að kippa tollamálum Islands og Efnahagsbanda- lagsins i lag, rennur út. Bandarikjastjórn er sögð hafa reynt að þrýsta á breta og is- lendinga til samninga vegna þess að hún vill komast hjá að þurfa að svara tilmælum Ölafs Jóhannessonar um lán eða kaup á hraðbátum. Þykir banda- riskum ráðamönnum islenski dómsmálaráðherrann hafa komið þeim i bobba nokkurn, enda var beiðnin borin fram i óþökk Geirs Hallgrimssonar. Fimm bandarikjamenn komu hingað til lands á dögunum til þess aðþreifa á islenskum ráða- mönnum I sambandi við land- helgisdeiluna. Fyrir þeim var Penfield, fyrrverandi sendi- herra, sem mörgum er kunnur hér á landi, oghefur hann sjálf- sagt kannað hvaða möguleikar eru á þvi að ,,ala Islendinga upp i landhelgismálum”, en eins og fram hefur komið i leyni- skýrslunum frá 1949 láta bandarikjamenn sér einkar 'ánnt um uppeldi okkar eyjar- skeggja. Eftir lestur Reykjavikurbréfa að undanförnu og með banda- riska þrýstinginn til hliðsjónar er ekki óeðlilegt að álykta, aö vænta megi boðskapar um viö- ræður við breta innan skamms Penfield frá rikisstjórninni. Þá verður sjálfsagt byggt á þeim afla- tölum sem bretar sjálfir hafa útbúið, og eiga að sanna að samningar borgi sig betur fyrir islendinga heldur en þorska- striðið. Þjóðin verður þvi enn aö vera viðbúin þvi að koma vitinu fyrir rikisstjórnina. Farið á bak við Framsókn ’49 Það þarf nú ekki lengur blöðum um það að fletta, að Framsóknarmenn telja aö farið hafi veriö á bak við þá i við- ræðunum um inngöngu tslands i NATÖ árið 1949. Eftirfarandi forystugrein i Timanum á Skir- dag ber þess ljósan vott: Fyrir nokkru birtist i Lesbók Morgunblaðsins hluti banda- riskrar leyniskýrslu, sem nú hefur verið gefin út vestra, um aðdragandann að þvi, að íslendingar gengu i Atlants- hafsbandalagiö. Það kemur spánskt fyrir sjónir, að i þessum köflum eða úrsrætti úr skýrslunum virðist mest áherzla á það lögð., að íslendingar verði að ganga i bandalagið vegna pólitisks innanlandsástands, en miklu minna gert úr utanaökomandi hættu. Eins og kunnugt er fóru þeir Bjarni Benediktsson, þáverandi utanrikisráðherra, Emil Jónsson og Eysteinn Jónsson vestur um haf til viðræðna við Bandarikjastjórn um þessi mál i marzmánuði 1949. I greinar- gerð, sem Hickerson, forstöðu- maður stjórnardeildar um mál- efni Evrópu, hefur skilað um þessar viðræður við islenzku sendimennina og dagsetur 15. marz 1949, er Bjarna Benedikts syni eignað að hafa vakið máls á þvi, að „kommúnistar gætu nrifsað til sin völdin yfir öllu landinu, hvenær sem þeim sýndist, og þetta væri vandamál, sem Island yrði brjósti bætir Hickerson siðan við: „Ég endurtók, að innlend skemmdarverk virtust vera mesta hættan, og þaö ylli meiri Bjarni Emil Þessi röksemdafærsla hefur ekki heyrzt hér á landi fyrr, og einn þeirra manna, sem fór til viðræðna við Bandarikjastjórn i marz 1949, Eysteinn Jónsson, hefur algerlega visað þvi á bug i blaðaviðtali, að framangreind sjónarmið séu i semræmi víö viðhorf Islenzku sendinefndar- innar á viðræðufundunum,” áhyggjum en hugsanleg árás.” 1 annarri skýrslu frá 29. júli 1949, sem kallast „Staða Banda- rikjanna að þvi er varðar hags- muni þeirra og öryggi Noröur-Atlantshafsins, hvað Island snertir”, er „viðfangs- efnið” sagt vera þetta: „Að vega og meta stöðu Bandarikjanna, hvað snertir öryggi þeirra og Norður- Atlantshafsins á Islandi með sérstakri hliðsjón af hættunni á stjórnarbyltingu islenzkra kommúnista til þess að ná tökum á islenzku rikis- stjórninni”. 1 framhalds-skil- greiningu segir: „íslendingar eru frábitnir valdbeitingu og flestir þeirra trúa þvi ekki, að kommúnistar muni beita valdi. Það er erfitt að ala þjóðina upp og breyta hugsunarhætti hennar. Og þetta er erfiðasta vandamál, sem blasir við islenzkum ráðamönnum”. Loks er þess látið getið, að „utanrikisráðuneytið (bandariska) ætti að leggja drög aö og byrja þegar að fram- fylgja áætlun i þvi skyni að draga úr varnarleysi Islenzku rikisstjórnarinnar gegn hugsan- legu valdaráni”. Alltaf er að lengjast leiðin milli borgrikisins við Faxaflóa og hinna dreifðu byggða Is- lands. 1 „Smáu og stóru” i blaðinu Degi á Akureyri er nefiit eitt dæmi um þetta 14. april: ÓHkt fólk Þess verður oft vart, að fólk það, sem alist hefur upp I borg- um litur einkennilegum augum áþá.sem á afskekktum stöðum búa, og ekkisiður á þá staði, þar sem þetta fólk hefur haslað ævistarfi sinu völl. Mun þetta ekki sérislenskt fyrirbæri, en umhugsunarvert engu að siður. Spurningarnar dynja yfir Frá útvarpi. sjónvarpi og blööum kemur stundum frétta- fólk á hina afskekktu staði, til að mæla menn máli og segja síðan frá þvi, sem fyrir augu ber. A sveitabæjum þráspyrja frétta- menn hvort einangrunin sé ekki óskapleg, hvernig fólk geti skemmt sér á svona stöðum og hvernig hægt sé að lifa I svodd an einangrun. Alika spurningar dynja yfir menn I sjávarþorpum og fer oft svo, að spyrjendur veröa eins og illa gerðir hlutir, vegna þess hve fáfróðir þeir eru um mannlifið utan hringiöu heimaborgar sinnar. Eysteinn Borgar- mennskan

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.