Þjóðviljinn - 21.04.1976, Side 8

Þjóðviljinn - 21.04.1976, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. aprfl 1976 Séöyfir tvöskákborö, og má þekkja nokkra góöa kappa. Anton Sigurösson meö hvitt teflir viö Björgvin Viglundarson. Jónas Þorvaldsson situr aö baki Björgvins. Mjölnir fékk 14 af 14 mögulegum Guömundur Arason, fyrrum forseti Skáksambandsins, og formaöur Mjölnis, Svavar Guöni Svavarsson, ræöast viö. Þótt ekki sé öllum leikj- um lokið í deildarkeppni Skáksambands (slands er komið í Ijós, að hið ný- stofnaða skákfélag, Mjölnir, hefur unnið yfir- burða sigur, fengið fjór- tán stig af f jórtán mögu- legum, unnið alla sína mótherja, sem voru: Taflfélag Reykjavíkur, Skáksamband Suður- lands, Skákfélag Kefla- víkur, Taflfélag Kópa- vogs, Taflfélag Hreyfils, Skákfélag Akureyrar og Skákfélag Hafnarfjarð- ar. Hér f ylgja með nokkrar myndir frá síðasta leik Mjölnis við Taflfélag Hreyf ils. Myndir: Sigurjón Jóhannsson Ingvar Ásmundsson og Jónas Kr. Jónsson tefldu á fyrsta boröi Viö lok keppninnar. Minningar- og kveðjuorð Haraldur Jónsson, Jaðri F. 5.1.1912 —D. 11.4.1976 1 dag er til grafar borinn norður i heimabyggö sinni Haraldur Jónsson, bóndi að Jaðri hjá Ein- arsstööum i Reykjad'al i Suður- Þingeyjarsýslu. Varð Haraldur bráðkvaddur á heimili sinu sunnudaginn 11. april, siðastlið- inn. Haraldur Jónsson var fæddur 5. janúar 1912 að Einarsstöðum. Foreldrar hans voru þau bónda- hjónin: Þóra Sigfúsdóttir og Jón Haraldsson. Var Einarsstaða- heimilið — og hafði löngum verið eitt þeirra heimila, er einkenndu hina sjálfstæöu, rismiklu þing- eysku bændamenningu, er blómgaðist á siðustu hundrað ár- um. A Einarsstöðum var „Þjóð- liðið” stofnað 1884 og þar hélt Huldufélag Ófeigs i Skörðum og félaga hans (O.S.S.F.) sinn fyrsta fund 1888, en þingeysir bændur tóku að risa upp gegn valdi sel- stöðukaupmanna og embættis- valdinu. Stóöu að Haraldi ættir á- gætar úr Þingeyjar- og Eyja- fjarðarsýslum og naut hann á- samt systkinum sinum tiu hins besta uppeldis á miklu menning- arheimili foreldra sinna, en þar gat að finna „gull i gamalli slóð”. En svo nefndi móðir hans bók, er hún gaf út 1963 til minningar um mann sinn: Frásagnir Jóns Haralds- sonar, kvæði, visur og ræður. (Getur þar m.a. að finna fyrst allra sagna frásögn eina af þvi, hvernig Helgi Sigurðsson á Hól- um i Laxárdal gerði konu og barni Jóhannesar, bróður sins, þess er stofnaði Verkamannafé- lag Akureyrar 1896, fært að fara vestur á eftir honum siðar). Þaö hjálpaðist þvi jafnt arfur sem uppeldi að þvi að móta úr Haraldi vaskan svein. Haraldur var „þéttur á velli og þéttur i lund” svo sem var og fað- ir hans, — og ekki siður „þraut- góður á raunastund” svo sem að verður vikið. Þegar Laugaskóli reis upp fyrir hálfri öld og varð mikil menningarmiðstöð héraðs- isn, sótti Haraldur hann sem þau systkini fleiri. Gat hann sér þar ekki sist hið besta orð fyrir iþrótt- ir, vann þar og siöar til fjölda verðlaunagripa, ekki hvað sist fyrir glimu. Meðal annars vann hann Armannsskjöldinn. Það var á þessum árum, sem fundum okkar Haraldar bar sam- an og ég fékk að reyna hreysti hans og drengskap á þann hátt, sem ekki gleymist. Minnignar um þá örlagastund i lifi minu tengdi okkur Harald saman upp frá þvi og veldur þvi að ég minnist hans nú á kveðjustund: Það var haustið 1930. Eg hafði farið til Húsavikur til að aðstoða verkamenn þar i verkfallsbaráttu og að þvi loknu var haldið land- leiðina til Akureyrar. Við uröum samferða, ég og þrir ungir piltar, Haraldur, sem þá var 18 ára, ég 28, og góður félagi, er var bil- stjóri. Keyrði hann okkur það langt hann komst upp á Reykja- heiðina, en þaðan gengum við i illri færð og fjúki i Fosshól hjá Goðafossi og fengum að gista þar um nóttina. Daginn eftir lögðum við af stað til Akureyrar gang- andi. Krap og ill færð var i Ljósa- vatnsskarði svo föt blotnuðu, en frost og hrið, er upp á Vaðlaheiöi kom. Lá mér nú við að örmagn- ast, hafði þá verið á Vifilsstööum með berkla i lungum fyrir nokkr- um árum. Var nú skipt liði. Tveir félaganna fóru á undan að reyna að fá hjálp ( að Veigastöðum, minnir mig), en Haraldur varð eftir hjá mér og ætluöum við að reyna að grafa okkur i snjó, en fjúkið var of mikið til þess það væri hægt. Reyndum við þvi að halda ferðinni áfram, þó hægt miðaði. Studdi nú Haraldur mig og hálfbar stundum og fékk ég nú að reyna til fulls hvilikur afburða vaskleikamaður hann var, — eigi aðeins i glimu og leik, heldur þeirri iþrótt, sem fegurst er: að bjarga á háskastund. Og þannig var seiglast áfram, uns viö mætt- um þeim ágætu mönnum, er á móti okkur komu til bjargar, en hjálpsemi og gestrisni islensks sveitafólks sá um það, sem eftir var. — Liklega hefur Haraldur bjargað lifi minu i þetta sinn, svo hafi ég megnað að vinna þjóð vorri eitthvað til góðs, þá á þessi ungi, knái sveitapiltur úr Reykja- dalnum sinn mikla hlut að þvi. Haraldur giftist 24. júli 1948 Málfriði Sigurðardóttur (skálds á Arnarvatni). Eru börn þeirra sjö: Þóra, Sigurður Orn, Jón Einar, Helgi, Margrét, Hólmfriður Sól- veig og Sigriður, en son eignaðist Haraldur áður en hann giftist og heitir sá Jón. Haraldur Jónsson var sami at- orkumaðurinn til vinnu sem til i- þrótta. Hann reisti sér bú að Jaðri, en svo kallaði hann nýbýli sitt i Einarsstaðalandi og unnu þau hjónin þrotlaust að þeim bú- skap, meðan Haraldur naut heilsu sinnar til fulls, en hún brást verulega fyrir um fimmtán árum. Það sýndi sig þá best, er erfið- leikarnir steðjuðu að, hver gifta Haraldi var kvonfangið og gæfa ættboginn. Haraldur Jónsson að Jaðri var búinn þeim íslensku eðliskostum, sem sveitaalþýða lands vors hef- ur ræktað besta i baráttu sinni fyrir lifi og frelsi um aldirnar: Var i senn fullhugi mikill og drengur góður. Reisnin entist honum til dauðadags, en afburða likamlegt atgervi mestan hluta ævinnar. Minning hans mun lifa, eigi að- eins i þakklátum huga þeirra, , sem honum eiga mest upp að unna, heldur og samkvæmt hinu fornkveðna: Orðstir deyr aldrei , hveim sér góðan getur. Einar Olgcirsson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.