Þjóðviljinn - 21.04.1976, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 21.04.1976, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. aprfl 1976 r Islandsmótiö í borðtennis: Enginn átti möguleika gegn Gunnari Gunnar Finnbjörnsson, tsiandsmeistari i borðtennis. Myndin er tekin i úrslitaleik hans við Hjálmar Aðalsteinsson. fór ósigraður í gegnum mótið og hlaut Islandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn Svíar, íslendingar og finnar sterkastir: Gísli krækti í gullið og land- inn fékk silfur Þessa mynd tók japanski landsliðsþjálíari islensku júdómannanna af Gisla Þorsteinssyni á verðiaunapalii. 1 öðru sæti varð daninn Benny Hleemann, og saman urðu i þriðja sæti þeir Sigurjón Ingvarsson og sviinn Koland Bexander. íslandsmótinu í borð- tennis lauk á skírdag með keppni í einliðaleik í öllum flokkum. Hinn ungi og stórefnilegi borðtennis- leikari Gunnar Finn- björnsson bar sigur úr být- um i mfl. karla/ vann alla sina leiki á mótinu og komst ekki einu sinni i tap- hættu. Hann virðist nú vera kominn í algeran sérflokk hér á landi i þessari skemmtilegu íþrótt, ef marka má það islandsmót sem nú er nýlokið. Gunnar vann einnig í tvíliðaieik, ásamt Ragnari Ragnars- syni, eins og áður hefur verið sagt frá. Gunnar lék til úrslita við Hjálmar Aðalsteinsson, sem ver- ið hefur einn okkar besti borð- tennismaður um árabil, en hann átti aldrei möguleika gegn Gunn- ari, sem sigraði 21:12 — 21:11 — 21:17. 1 3. sæti varð Ólafur H. ólafs- son, Islandsmeistarinn frá i fyrra, en hann hefur litið getað æft um tima vegna meiðsla. I 4. sæti vart Ragnar Ragnarsson og i 5. sæti Jón Sigurðsson, úr Kefla- vik. Asta Urbancic sigraði i mfl. kvenna, sigraði Guðrúnu Einars- dóttur 21:19 — 23:25 — 22:20 og 21:18 i úrslitaleiknum. I 3. sæti varð Karólina Guðmundsdóttir. í 1. fl. karla sigraði Arni Gunnarsson, UMFK, Birkir Arnason varð i 2. sæti og Rúnar Óskarsson i 3. sæti. Þórður Þor- varðarson sigraði i öldungaflokki, Aðalsteinn Eiriksson varð 2. og Stefán Arnason i 3. sæti. 1 flokki 15—17 ára sigraði Framhald á bls. 14. Gisli Þorsteinsson krækti sér í gullverðlaun á Norðurlandamótinu í júdói sem fór fram í Gautaborg sl. föstudag og laugardag. Hann sigraði í léttþunga- vigt, og í sama þyngdar- flokki náði Sigurjón Ingvarsson í brons- verðlaun. Frábær árangur a-tarna, og í heildina gekk íslensku keppendunum vel á mótinu. í sveitakeppninni sem háð var á föstudeginum urðu islendingar i öðru sæti, en sviar i þvi fyrsta og finnar númer þrjú. Fimm manna sveit keppti frá hverju landi, og i islensku sveitinni voru þeir Jó- hann Haraldsson, Halldór Guð- björnsson, Viðar Guðjohnsen, Gisli Þorsteinsson og Svavar Carlsen. A laugardeginum var siðan keppt i opnum flokki og þyngdar- flokkunum. Þar fengust gullverð- laun Gisla og bronsverðlaun Sigurjóns i léttþungavigt, brons- verðlaun hjá Viðari Guðjohnsen i millivigt og bronsverðlaun hjá Halldóri Guðbjörnssyni i létt- millivigt. Þannig komu islendingarnir með samtals eitt gull, eitt silfur og 3 brons heim af Norðurlanda- mótinu og geta vel vit unat. Sviar reyndust sterkastir á mótinu að þessu sinni, en á eftir þeim komu finnar og islendingar, sem voru i svipuðum styrkleikaflokki þegar á heildina er litið. Norðmenn og danir eru hins vegar langt á eftir; norðmenn fengu engin verðlaun að þessu sinni og danir uppskáru aðeins ein silfurverðlaun. A siðustu tveimur árum hafa is- lenskir júdómenn lagt allar Norðurlandaþjóðirnar að velli i júdókeppni, og er mikill völlur á köppunum um þessar mundir. —gsp Landsliðið sigraði 92:88 Landsliðið I körfuknattleik, sem fer á Norðurlandamótiö um næstu helgi, lék æfingaleik við úrvaislið úr 1. deild um helgina, og sigraöi landsliöið 92:88 eftir aö hafa haft yfir i leikhléi 44:42. Jafntefli l ’ /• * r r hjajugo- slövum og ungverjum Júgósiavar og ungverjar gerðu jafntefli, 0:0, I landsleik i knattspyrnu sem fram fór I Banja Luka i Júgóslavlu um siöustu helgi. Þarna var um vináttuleik að ræða, en júgó- slavar tefldu þarna fram sama liöi og þeir ætla aö nota i ieiknum gegn Wales i undan- úrslitum EB landsliða i Zagreb nk. iaugardag. Miljanic til Arsenal? Hinn heimsfrægi knatt- spy rnuþjálf ari hjá Real M adrid -liðinu, Miljan Miljanic, kom til London um páskana til viðræðna við for- ráðamenn Arsenal-liðsins sem hefur boðið Miljanic fram- kvæmdastjórastöðuna hjá félaginu istað Berta Mee, sem hefur sagt henni lausri i vor. Sagt er að Real Madrid vilji ekki sleppa Miljanic og neiti að ieysa hann undan samningi þeim sem félagið hefur viö hann. Þaö hefur ekki verið venja hjá ensku félögunum að sækja sér þjálfara til annarra Evrópulanda en Bretiands- eyja, og yrði það þvi sögulegur viðburður ef Miljanic tæki við framkvæmdastjórn hjá Arsenal.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.