Þjóðviljinn - 21.04.1976, Qupperneq 11
Miðvikudagur 21. aprn 1976 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 11
Meö seiglunni tókst aö Ijúka skíðalandsmótinu á Akureyri
Unga fólkið raðaði sér
í nær öll efstu sætin
Unga fólkið tók öll völd í sínar hendur á skíðalands-
mótinu á Akureyri, sem fór fram um helgina. Fólk undir
tvítugu raðaði sér í næstum því hvert einasta sæti af
þeim tíu efstu, í kvennaf lokki voru þær bókstaf lega allar
undir tvitugu og sem dæmi um karlaflokkinn má nefna
að níu af tíu efstu í stórsvigi voru undir tvítugu og sjö af
tíu efstu í svigi voru undir tvítugu. Þannig voru verð-
launahafar margir ungir að árum oq má sem dæmi
nefna stjörnugóðan árangur Karls Frímannssonar frá
Akureyri, sem er aðeins sextán ára gamall. Er óhætt að
segja að hann hafi vakið einna mesta athygli á þessu
móti.
Ólafsfirðingarnir náðu glæsi-
legum árangri i norrænu greinun-
um, þ.e. göngu og stökki. Þeir
hirtu þar nær öll verðlaun sem
veitt voru og geta vafalaust
þakkö það þjálfara sinum, Birni
Þór Ólafssyni, sem einnig var
sjálfur drjúgur við verðlauna-
veiðina.
I Alpagreinunum vakti það at-
hygli að kempurnar Arni óðinss.
og Haukur Jóhannsson urðu að
lúta i lægra haldi fyrir yngri nöfn-
um. Arni fékk aðeins ein brons-
verðlaun á mótinu en Haukur alls
ekki neitt og þykja það nokkur
tiðindi.
En það var hinn 16 ára gamli
Karl Frimannsson sem var i
sviðsljósinu. Hann byrjaði á þvi
að ná þriðja sætinu i stórsvigi,
Bæjarkeppnin í knattspyrnu: Reykjavík
siðan komu silfurverðlaun i alpa-
tvikeppni og þar á eftir silfur-
verðlaun i svigi. Sigurður Jónsson
frá Isafirði byrjaði á gullverð-
launum i stórsvigi og' Tómas
Leifsson sigraði i alpatvikeppni
auk þess sem hann varð númer
tvö i stórsvigi og i fyrsta sæti i
svigi. Glæsilegur árangur hjá
Tómasi sem sigldi i gegnum
hverja þraut af miklu öryggi.
Isfirðingar sigruðu i flokka-
sviginu þótt útlit væri fyrir allt
annað. Akureyringar voru algjör-
lega öruggir sigurvegarar þar til
Haukur Jóhannsson allt i einu
„gleymdi” siðasta hliðinu og var
næstum þvi kominn i mark þegar
hann varð að snúa við, labba upp
brekkuna og fara gegnum neðsta
hliðið. Drjúgur timi fór i það labb
og gullið fór yfir til isfirðinga
fyrir vikið.
Sigurður Jónsson, sem var
öruggur sigurvegari i stórsviginu
— Akranes:
í sla ndsmeista ra r n i r
voru grátt leiknir
tveir, þeir Halldór Matthiasson
og Trausti Sveinsson, áttu ekkert
svar við Magnúsi og voru langt á
eftir honum. Valið á olympiu-
förunum var á sinum tima mikið
gagnrýnt, og nú er komið i ljós, að
talsmenn Magnúsar höfðu svo
sannarlega mikið til sins máls.
Sigurður Jónsson — áberandi
sterkastur i sviginu, þótt hann
yrði að láta sér nægja aö missa
guliiö i stórsvigi.
var óheppinn að krækja ekki i
verðlaun i sviginu lika. Hann fór
brautina i fyrri umferð á lang-
besta timanum en féll úr i næstu
umíerð og missti af gullinu yfir til
Tómasar Leifssonar.
I göngunni var Magnús Eiriks-
son frá Siglufirði i algjörum sér-
flokki og hirti öll gullverðlaun
sem i boði voru. Olympiufararnir
Reykjavíkurúrvalið sýndi stormandi leik og sigraði
meistara ÍA 5:2
Reykjavíkurúrvalið i
knattspyrnu sýndi stórleik
á annan í páskum þegar
það gersigraði íslands-
meistara iA í bæjak.
Reykjavík—Akranes, 5:2.
Segja má að hver maður í
Reykjavíkurúrvalinu hafi
átt mjög góðan leik, eink-
um þó tengiliðirnir Ásgeir
Elfasson og Halldór
Björnsson, sem mötuðu
framherjana mjög vel, og
þeir kunnu sannarlega að
vinna úr því, einkum þeir
Kristinn Björnsson og Guð-
mundur Þorbjörnsson, og
Ingi Björn Albertsson kom
einnig vel frá leiknum.
Valsmenn ættu ekki að
vera á flæðiskeri staddir
með framlínumenn í sum-
ar, þar sem þessir menn
eru.
Vörn og markvarsla skaga-
manna var i slikum molum að
maður hefur ekki séð annað eins
til þeirra i áraraðir. Aftasta vörn-
in var galoppin og Hörður Helga-
son markvörður var óöruggur og
átti sök á nokkrum markanna.
Með sama áframhaldi er litil
sem engin von til þess að þetta lið
verji islandsmeistaratitil sinn.
Liðið var ekki svipur hjá sjón á
móti þvi sem það hefur verið tvö
sl. ár. Þess ber þó að geta að
skagamenn hafa aldrei farið i
gang fyrr en þeir eru komnir á
grasið. Leikur þeirra i april, á
malarvelli i 6—7 vindstigum, er
kannski ekki beint til að dæma
eftir.
Ingi Björn Albertsson skorar þarna 2. mark reykvikinga, Hörður Helgason er of seinn til varnar.
Magnús Eiriksson — yfirburöa-
maöur i skiöagöngunni.
Markaregnið byrjaði á 25.
minútu þegar Kristinn Björnsson
skoraði fyrsta mark Rvk-úrvals-
ins. En aðeins 5 min. siðar jafnaði
Matthias fyrir 1A, með skalla
eftir hornspyrnu, og þannig var
staðan i leikhléi. Skagamenn
höfðu leikið undan rokinu, og áttu
bæði liðin nokkur góð færi i f.h.,
meðal annars bjargaði Rvik.-úr-
valið einu sinni á linu.
A 60. min. bætti Ingi Björn 2.
marki úrvalsins við og á 64. Guð-
mundur Þorbjörnsson þvi 3ja.
Nýliði i liði IA, Pétur Péturs-
son, skoraði siðara mark IA á 76
min. staðan 3:2. Á 80. min.
skoraði svo Guðmundur Þor-
björnsson 4. mark reykvikinga og
Kristinn Björnsson það 5. á 82.
min.
Þaö var einna helst nýliðinn
Pétur Pétursson, sem eitthvað
kvað að i liði IA, annars átti liðið
mjög slæman leik og enginn sem
bar af öðrum. —S.dror