Þjóðviljinn - 20.05.1976, Síða 1
Einar Ágústsson um viðrœður við Crosland:
„Útiloka þær ekki”
Frydenlimd mælir með brottköllun herskipanna
OSLÓ 19/5 Reuter — NTB —
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra tslands, sagði við komuna
til Oslóar á utanrikisráðherra-
ráðstefnu Nató-rikja að hann væri
ekki mjög bjartsýnn á að tækist
að þoka fiskveiðideilu islendinga
og breta nær lausn á ráð-
stefnunni. Hann sagði einnig, að
hann útilokaði ekki að þeir Cros-
land, utanrikisráðherra breta,
ræddust við sérstaklega á meðan
ráðstefnan stæði, en kvað ekkert
hafa verið ákveðið um það og að
frumkvæðið að slikumfundi yrði
að koma frá bretum.
Frydenlund utanrikisráðherra
Noregs hélt blaðamannafund i
dag og var fiskveiðideilan þar
aðalumræðuefnið. Frydenlund
kvað það myndi hafa jákvæð
áhrif til lausnar deilunni að
bretar kölluðu herskip sin út úr
islensku landhelginni. Hann gaf i
skyn að brottköllun herskipanna
þyrfti ekki endilega að vera
bundin þvi skilyrði, að islensku
varðskipin létu bresku togarana
óáreitta.
Joseph Luns, aðalritari Nató,
kvaðst á blaðamannafundi viður-
kenna, að honum hefði litið orðið
ágengt i þviað miðla málum milli
islendinga og breta. Hann mælti
með þvi að utanrikisráðherrar
breta og islendinga ræddust við
sin á milli og margtók fram að
ísland væri mjög mikilvægt fyrir
Nató. Hann sagðist og vera á móti
þvi að kalla fiskveiðideiluna
þorskastrið, þvi að með þvi væri
of mikið úr henni gert, hér væri
alls ekki um strið að ræða, enda
gæti svoleiðis ekki skeð milli
tveggja Nató-þjóða.
1-0
Glæsilegur
árangur isl.
landsliðsins
Sjá íþróttasíðu
Við þinglausnir á Alþingi i gær. Eðvarð Sigurðsson kveður Asgeir Bjarnason, forscta Sameinaðs
alþingis.
Þinglausnir í gær
Þinglausnir fóru fram á
Alþingi i gær. Alls höfðu þá
verið haldnir 371 þingfundir frá
þvi Alþingi kom saman þann 10.
október i haust.
Það kom fram í ræðu Ásgeirs
Bjarnasonar þingforseta við
þinglausnir, að á þessu 97. lög-
gjafarþingi höfðu alls 108 frum-
vörp verið samþykkt sem lög,
þar af 14 þingmannafrumvörp.
Af 74 þingsályktunartillögum,
sem lagðar voru fram voru 18
samþykktar, 1 felld, 9 visað til
rikisstjórnar og 46 urðu ekki út-
ræddar.
Fyrir hönd Alþingis þakkaði
Ásgeir Bjarnason, varðskips-
mönnum sérstaklega fyrir
gifturik störf á liðnum vetri og
árnaði þeim heilla.
Þá árnaði hann þingmönnum
heilla og þakkaði samstarf.
Lúðvik Jósepsson þakkaði þing-
forseta fyrir hönd þingmanna.
Siðan sleit forseti íslands,
doktor Kristján Eldjárn þingi.
Kosning í Húsnœðis
málastjórn
t fyrrinótt var á fundi
Sameinaðs alþingis kosið i
Húsnæðismálast jórn til
fjögurra ára frá 1. júni 1976 —■ 1.
milj
onir
1400
í almennum
júni 1980, að viðhafðri hlutfalls-
kosningu.
t Húsnæðismálastjórn eiga
sæti 7 þingkjörnir fulltrúar og
komu fram þrir listar.
Rikisstjórnarflokkarnir buðu
fram sameiginlegan lisa,
Alþýðubandalagið og Samtök
frjálslyndra annan lista og
þingmenn Alþýðuflokksins þann
þriðja.
Þegar kosning fór fram voru
38 stjórnarþingmenn staddir i
þingsalnum, 13 þingmenn frá
Alþýðubandalaginu og
Samtökunum og allir 5 þing-
menn Alþýðuflokksins.
Atkvæði voru greidd skrif-
lega, og kom það á óvart, aö i
kosningunni fékk Alþýðuflokk-
urinn allt i einu 7 atkævði i stað
5, og stjórnrflokkarnir 36
atkvæði i stað 38. Listi Alþýðu-
bandalagsins og Samtakanna
fékk 13 atkv.
Þarna hafði Alþýöuflokkurinn
greinilega tryggtsér 2 1iðsmenn
úr stjórnarherbúðunum og varð
það til þess, að fulltrúi Alþýðu-
Framhald á bls. 14.
39 bretar eru viö veiöiþjófnað á
svæðinu frá Hvalsbak og norður
úr. Rólegt hefur verið á
miðunuin. Afli trcgur. 12 v-
þjóðverjar eru að veiöum hér við
land þessa stundina, 4 belgar og
einn færeyingur.
Flogið hefur fyrir, að skipa-
smiðastöðin i Arhus, sú er byggði
Tý, hafi boðist til þess að taka
skipið þegar i kvi og skipta þar
um skrúfu á þvi á svo sem viku-
tima. Talsmenn Landhelgis-
gæslunnar mótmæltu þessu i gær
er þeir voru inntir eftir. Sögðu
þeir að allt væri gert til þess, að
Týr mætti sem fyrstkomast ifullt
gagn.
Aldrei eins
stór hluti
bátaflotans
bundinn
og nú
Verður auglýst
eftir bátum
til rœkju-
og loðnuveiða?
Ef að likum lætur, mun
sjávarútvegsráðuneytið innan
tiðar auglýsa eftir bátum til til-
raunaveiða á loðnu og úthafs-
rækju. Verða væntanlcga teknir 5
bátar á leigu til loðnuveiða en þrir
til rækjuveiða.
Vitað er að færri bátar munu
fara á troll i sumar en verið hefur
vegna þess að oliukostnaður af
slikum veiöiskap er mjög mikill
en afraksturinn oft á tiðum litill.
Að sögn Kristjáns
Ragnarssonar, form. LIÚ, er enn
iatt vitað um verkefni handa
bátaflotanum i sumar. 'Sagði
Kristján að vissulega hefði ár
hvert verið bundinn nokkur hluti
bátaflotans að lokinni vetrar-
vertið, en aldrei þó eins mikill
hluti hans og nú. —úþ
Chile-réttar-
höldin í Osló
— sjá opnu
póstbréfum
Orlofsdeild Pósts og sima hefur
undanfarna daga vcrið að greiða
orlofsfc út og verða að þessu sinni
greiddar út 1400 miljónir króna.
Og þessar 1400 miljónir eru
sendar til cigenda sinna i
ávisananformi i almennum póst-
brcfum, ekki ábyrgðarbréfum
cins og vanalcga er gcrt þegar
peningar cru sendir i pósti.
— Það yröi miklu dýrara og
snúningssamara sagði Þorgeir
Þorgeirsson, yfirmaður orlofs-
deildar pósts og sima, þegar við
spurðum hann að þvi hvers
vegna allt þetta fé væri ekki sent i
ábyrgðarbréíum, enda ávis-
anirnar 55.000 talsins,
Þorgeir sagði að ekki væru
mikil brögð að þvi að orlofsávis-
anir týndust i almenna póstinum,
þó hefði það komið fyrir og eins
hefði það einnig komið fyrir að
ávisanir hefðu lent hjá röngum
aðila sem tekist hefði að svikja
peningana út, en slik tilfelli væru
sárafá.
Sagði hann að orlofsdeildin
legði það fyrir gjaldkera að
krefjast persónuskilrikja af eig-
endum ávisananna og sagðist
Framhald á bls. 14.
Friðrik féll á tima.
Allir fjórir verða
að tefla upp á
vinning i siðustu
umferðinni.
Frásögn GSP ýrá
Amsterdam.
SJÁ 3. SÍÐU
Friðrik féll sekúndubroti á undan Browne.