Þjóðviljinn - 20.05.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 20.05.1976, Blaðsíða 6
H SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. mai 1976 Aðalfundur Bandalags ísl. listamanna: Harmar aðför að starfsbróður Gleðimót fyrir félaga í Valhöll Aðalfundur Bandalags is- lenskra listamanna var haldinn sunnudaginn 2. mai. Formenn aðildarfélaga og forseti banda- lagsins fluttu skýrslur um starf- ið á iiðnu ári. i almennum um- ræðum á fundinum kom fram ánægja með margþætt og blóm- legt starf og rikti samhugur meðal listamanna. P’agnað var lyktum i Kjarvalsstaðadeilu og öðrum árangri sem náðst hefur i baráttumálum listamanna. A siðasta hausti opnaði BtL skrifstofu i samvinnu við Rit- höfundasamband Jslands að Skóiavörðustig 12, 4. hæð. Stjórn bandalagsins skipa nú: Thor Vilhjáimsson forseti, Magnús A. Arnason varaforseti, Þorsteinn Gunnarsson ritari og Hinrik Bjarnason gjaidkeri. Aðrir i stjórn eru: Gunnar Reynir Sveinsson, Kristin Björnsdóttir, Stefán Jónsson og Þorgerður Ingólfsdóttir. Bandalagið ráðgerir að halda gleöimót fyrir meölimi sina i Valhöli á Þingvöllum laugar- daginn 29. mai og hafa lista- menn verið hvattir til þess að fjölmenna og tryggja sér að- göngumiða i tæka tlð. Einnig er ráðgert aö halda listamanna- þing I byrjun júni aö Kjarvais- stöðum, umræðufund um til- gang iistahátfðar. Eftirfarandi áiyktun af sér- stöku tilefni var samþykkt ein- róma: „Aðalfundur Bandalags is- lenskra listamanna, haldinn 2. mai 1976, harmar aðför ein- stakra iistamanna gegn starfs- bróður sinum i umræöum um úthlutun viðbótarritlauna, þar sem gert er lítið úr starfi hans með ódrengilegum hætti.” Tilboð óskast i viðgerðir á gluggum Sjómannaskólans i Reykjavik. óskað er eftir tilboðum i tvær mismunandi lausnir: 1. Setja tvöfalt gier i glugga, endurnýja pósta og opnanleg fög og nýsmiði nokk- urra glugga. 2. Nýsmiði, isetning og glerjun allra glugga skólans. Jafnframt er óskað eftir tilboðum i við- gerðir á steyptum þakrennum skólans. Verkin skulu framkvæmd sumrin 1976 og 1977. Útboðsgagna má vitja, gegn 2000,- kr. skilatryggingu á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavik. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 3. júni 1976, kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Lausar stöður Þrjár kennarastöður við Menntaskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar. Kennslugreinar eru stærðfræði og eðlisfræði, efnafræði og liffræði. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 12. júni n.k. — Umsóknar- eyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 17. mai 1976. ATHUGIÐ! Sá eða sú sem skildi eftir tvo plastpoka með kvenfatnaði við húsið Óðinsgötu 8 fyrir um það bil hálfum mánuði er beðinn að vitja þeirra sem fyrst. Upplýsingar i sima 26533. Eigandi greiði auglýsinga- kostnað. Hjörtur Hjartarson, formaöur Verslunarráös, tekur fyrstu skóflustunguna Grafið fyrir verslunar- höll í nýja miðbœnum t gær var tekin fyrsta skóflu- stungan aö „Húsi verslunarinn- ar", sem risa mun í norövestur- horni nýja miöbæjarins, nálægt gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Forsaga þess máis er sú, að 1972 ákváðu nokkur samtök og stofnanir verslunarinnar og verslunarstéttar aö reisa sam- eiginlega byggingu fyrir starf- semi þessara aðiia. Stofn- samningur fyrir „Hús verslunar- innar” var undirritaður i árslok 1974, en aðilar að þvi félagi eru Verslunarbankinn, Lifeyrissjóður verslunarmanna, Verslunar- mannafél. Reykjavikur, Félag is- lenskra stórkaupmanna, Kaup- mannasamtökin, Bilgreinasam- bandið, Verslunarráð. Lóð fékk félagið úthlutað í ágúst i fyrra. Húsið verður norðan við fyrir- hugaða yfirbyggða göngu- og verslunargötu og tengist henni með torgi. Þaö veröur alls 13 hæð- ir, samtals 13600 fermetrar. í kjallara veröa sameiginlegar Hellissandur: Óráðið hvað flest- ir bátarnir gera — Þaö mun allt óráðið enn hvað bátar á Rifi og Hellissandi gera i sumar, einhverjir fara eflaust á fiskitroll og sumir hafa haft á oröi að fara á handfæraveiöar. Okkar besta skip, Skarðsvíkin mun ætla á Norðursjóinn til sildveiða. Nú og svo fara trillurnar á flot með vorinu, annars er ég hræddur um að það verði ekki meira en svo aö fullorðið fólk hafi atvinnu I sumar og óttast aö skólafólk á Snæfells- nesi hafi litla sem enga vinnu, sagði Skúli Alexanderson á Hellissandi er við ræddum við hann i gær um atvinnuhorfur og fleira að lokinni vertið. Skúli sagði aö litil hreyfing væri á ibúöabyggingum enda heföi fólki á Hellissandi og Rifi frekar fækkað en hitt i ár og I fyrra. í sumar er ráögert aö vinna fyrir einar 30 til 40 milj. kr. við landshöfnina á Rifi og sagöi Skúli aö það myndi skapa einhverja at- vinnu. — Hinsvegar er það svo að tlðarfarið ræöur mestu um hvort atvinna verður eöa ekki. Trillurn- ¥ ar róa ekki nema f góðu veðri og þeirra hlutur i afla veröur sjálf- sagt ekki svo litill nú frekar en endranær. Ef vel viörar i sumar bjargar það miklu og þá á ég von á þvl að fullorðnir hafi næga vinnu, annars ekki. Atvinnu- ástandiðhjá okkur stendur þvi af- ar tæpt svo ekki sé meira sagt, sagði Skúli aö lokum. — S.dór geymslur og tækjabúnaður. A götuhæð verða yfirbyggðar bila- geymslur og þjónustustarfsemi. A þaki bilageymslunnar, sunnan aðalbyggingar, myndast stórt göngutorg er tengist fyrstu hæð hússins. Þar verða afgreiðslusal- ir banka og lifeyrissjóðs auk Framhald á bls. 14. SAS byrjar sumar- ferðir A mánudaginn kemur, 24. þ.m. hefjast ferðir SAS hingað til lands á þessu sumri. Ferðirn- ar verða þrjár i viku hingað frá Höfn og halda þær allar áfram til Narssarsuaq á Græniandi. SAS hefur verið að auka um- svif sin hér á landi, ferðum er að fjölga og nú er flogið með vélum i eigu SAS. Ný deild hefur verið stofnuð i Keflavik og tveir nýir starfsmenn ráðnir. Tveir af framámönnum flugfélagsins i markaðsmálum gista nú landið og ræða við ferðaskrifstofur hér i borg og markaðsmálamenn Flugleiða. t fréttabréfi frá SAS segir ennfremurað þeim islendingum hafi stöðugt fjölgað, sem reynt hafa langferðir SAS til ýmissa heimshorna. Höfn í Hornafirði: Sæmilegar atvinnuhorfur ef humarveiðin bregst ekki Þorsteinn Þorsteinsson, frétta- ritari Þjóöviljans á Höfn i Homa- firði sagði i gær, að útlit væri fyrir sæmilega atvinnuá Höfn I sumar, ef humarveiðin, sem er nýbyrjuð bregst ekki. Sagði Þorsteinn að bátarnir hefðu veriö að koma úr fyrsta humarveiðitúrnum I gær og fyrradag og létu sjómenn þá heldur illa yfir veiðinni, sögðu humarinn smáan. Aflahæsti báturinn mun hafa verið með 16 tunnur, aðrir nokkuð minna. I sumar er búist við að 12-13 bátar stundi humarveiðar frá Höfn. Tveir bátar verða gerðir út á fiskitroll. Atvinna ætti þvi að geta verið sæmileg i frystihúsinu i sumar. Eitthvað verður um ibúðabygg- ingar þar eystra i sumar, en þó bjóst Þorsteinn við að þær yröu með minna móti. Heilsugæslu- stöðin sem er i byggingu er nú oröin fokheld og er innivinna við ha'na að hefjast. Ekki sagðist Þorsteinn eiga voná þvi að unnið yrði að varanlegri gatnagerð i Frá Höfn. sumar, en eitthvað yrði samt um götulagnir I þorpinu. Sauðburði er nú að ljúka eystra og hefur hann gengiö vel, mikiö um tvilemdar ær, meira en vana- lega. Vorið hefur verið kaltogþað er varla fyrr en nú allra siöustu daga aö dálitið hefur hlýnaö. Sagði Þorsteinn að veðriö heföi veriö mjög gott þessa viku, sann- kallað vorveöur. — S. dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.