Þjóðviljinn - 20.05.1976, Page 13
Fimmtudagur 20. mai 1976 |>.K)DVILJ1NN — SiDA r.t
Útvarpsleikritiö í kvöld:
Tevje og dætur hans
Fimmtudaginn 20. mai kl.
20.20 verður flutt leikritið
„Tewje og dætur hans” eftir
jiddiska rithöfundinn Scholom
Aleichem. Þýðinguna gerði
Halldór Stefánsson, en leikstjóri
er Baldvin Halldórsson. Með
helstu hlutverkin fara: Þor-
steinn ö. Stephensen, Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, Kristin Anna
Þórarinsdóttir, Margrét
Guðmundsdóttir, Ævar Kvaran
og Gisli Alfreðsson. Þetta er
endurflutningur leiksins.
llonum var fyrst útvarpað á
annan i jóluin 1965.
Scholom Aleichem fæddist i
Perejeslav i Úkrainu árið 1859.
Hann gerðist blaðamaður 18 ára
gamall og tæplega þritugur var
hann orðinn eigandi og ritstjóri
blaðs i Kiev. Aleichem flutti til
Bandarikjannaárið 1905 og var
búsettur þar upp frá þvi. Hann
lést á ferðalagi i Kaupmanna-
höfn 1916.
Efnið i sögur sinar og leikrit
sækir Aleichem i lifsbarattu
gyðinga i Austur-Evrópu og inn-
flytjenda úr þeim hópi til
Bandarikjanna. Hann skrifaði
reyndar fá leikrit, en fjöldann
allan af sögum, sem margar
hverjar hafa verið búnar til
flutnings á leiksviði. Persónur
Aleichemseru yfirleitt fábrotið,
góðhjartað fólk, en dálitið út
undir sig. Frægust þeirra hefur
orðið Tewje, mjólkurpóstur.
Hann er starfsamur en fátækur
og setur allt sitt traust á
Drottin, sem hann talar við um
vandamál sin, likt og Kritrún i
Hamravik i sögu Hagalins.
Hann á myndarlegar dætur, en
það er ekki tekið út með sæld-
inni að sjá þeim fyrir gjaforði.
Söngleikurinn Fiðlarinn á
þakinu var gerður eftir leik-
ritinu um Tewje og frumsýndur
á Broadway 1964. Þjóðleikhúsið
sýndi hann fyrir nokkrum
árum, og hann hefur farið sigur-
för viða um lönd. Af öðrum leik-
ritum Aleichems má nefna
Erfitt að vera gyðingur, sem
flutt var á jiddisku i London
1959.
Leikstjórinn Flosi ólafsson, ásamt tæknimanni, við upptöku á
„TEVJE OG DÆTUR HANS
#útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.20.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund harnanna kl.
8.45: Sigrún Sigurðardóttir
les söguna „Þegar Frið-
björn Brandsson minnkaði”
eftir Inger Sandberg (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Viðsjóinnkl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson ræðir
við Guðmund Hallvarðsson
um málefni aldraðra sjó-
manna. Tónleikar. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Koeck-
ert-kvartettinn leikur
Strengjakvartett nr. 77 i C-
dúr, „Keisarakvartettinn”,
op. 76 eftir Haydn. Isaac
Stern og Filadelfiuhljóm-
sveitin leika Fiðlukonsert
nr. 22 i a-moll eftir Viotti,
Eugene Ormandy stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Gest-
ur i blindgötu” eftir Jane
Blackmore. Þýðandinn,
Valdis Halldórsdóttir, les
(9).
15.00 Miðdegistónicikar.
Gabor Gabos og Sinfóniu-
hljómsveit ungverska út-
varpsins leika Pianókonsert
nr. 3 eftir Béla Bartók,
György Lehel stjórnar. Leo-
pold Stokovski stjórnar
flutningi hljómsveitar á
ballettmúsikinni „Petrou-
shku” eftir Igor Stravinsky.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn. Sig-
rún Björnsdóttir sér um
timann. Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun. Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri endar upp-
rifjun minninga sinna (6).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Svipast um á Suöur-
landi. Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri ræðir við
Sigurjón Árnason oddvita i
Hrólfstaðahelli á Landi.
20.00 Gestir i útvarpssal: Ein-
ar Jóhannesson og Philip
Jenkins leika sónötu fyrir
klarinettu og pianó op. 120
nr. 2 eftir Johannes
Brahms.
20.30 Leikrit: „Tewje og dæt-
ur hans” eftir Scholom Alei-
chem. Áður útvarpað 26.
des. 1965. Þýðandi: Halldór
Stefánsson. Leikstjóri:
Baldvin Halldörsson. Per-
sónur og leikendur: Tewje/
Þorsteinn ö. Stephensen,
Golde, kona hans/ Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, Tzeitl/
Kristin Anna Þórarinsdótt-
ir, Hodel/ Margrét Guð-
mundsdóttir, Lazar Wolf,
slátrari/ Ævar Kvaran,
Feferel/ Gisli Alfreðfeson.
Aðrir leikendur: Jóhanna
Norðfjörð, Ilelga Bach-
mann, Róbert Arnfinnsson,
Jón Sigurbjörnsson, Jón
Júliusson, Sigriður Þor-
valdsdóttir, Hugrún Gunn-
arsdóttir, Valgerður Dan og
Bryndis Pétursdóttir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”,
ævisaga Haralds Björns-
sonar. Höfundurinn, Njörð-
ur P. Njarðvik, les (23).
22.40 Létt rnúsik á siðkvöldi.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
ímyndunarveikin
frumsýnd í kvöld
imyndunarveikin
á íslandi
Fyrsta sýningin á Imyndunar-
veikinni hérlendis mun hafa verið
fyrir 90 árum, er Gleðileikja-
félagið undir forystu Guðlaugs
Guðmundssonar sýndi leikinn i
samkomuhúsinu Glasgow i
Reykjavik. Guðlaugur lék sjálfur
Argan, en Toinette var leikin af
Arna Eirikssyni, 16 ára gömlum.
Árni Eiriksson var hins vegar i
hlutverki Argans, er Leikfélag
Reykjavikur sýndi Imyndunar-
veikina i fyrsta skipti, 1910.
Stefania Guðmundsdóttir lék þá
Toinette, en leikstjóri var Jens B.
Waage.
Leikritið var siðan sýnt öðru
hverju næstu árin hjá Leik-
félaginu og naut mikilla vinsælda.
Árið 1922 hefur Friðfinnur
Guðjónsson tekið við hlutverki
Argans, en verkið var þá sýnt i
tilefni 300 ára minningar Moliferes
og Stefania er einn i hlutverki
Toinette. Aratug siðar er það sýnt
undir stjórn Haraldar Björns-
sonar: Friðfinnur er aftur i hlut-
verki Argans, en Arndis Björns-
dóttir leikur Toinette. Siðan hefur
leikurinn ekki verið sýndur hjá
LR en var sem fyrr segir fluttur i
Þjóðleikhúsinu 1951.
Af öðrum verkum Moliers, sem
sýnd hafa verið hérlendis má
nefna George Dandin, eigin-
maður i öngum sinum, sem Þjóð-
leikhúsið sýndi 1960, Hrekkjar-
brögð Scapinsvorusýnd hjá LR,
1919, og Poul Reumert og Anna
Borg léku á dönsku kafla úr Tar-
tuffe, 1929 i Iðnó. Þá hafa nokkur
leikrit Molieres verið sýnd á
Herranótt svo sem: Uppskafn-
ingurinn og Aurasálin. Nokkur
leikrita hans hafa verið flutt i
útvarp.
Moliere
Moliére hét réttu nafni Jean
Baptiste Poquelin. Hann fæddist i
Paris 1622, sonur vel efnaðs vegg-
fóðrara og var settur til mennta.
Að loknu lögfræðiprófi snýr hann
hins vegar baki við þessu
umhverfi, þá 21 árs að aldri og
gerist leikari. Hann stöfnaði
ásamt Madeleine Béjart leikflokk
i Paris en sá flokkur varð fljót-
lega gjaldþrota. Þá gengu þau i
farandleikflokk og á árunum 1645-
58 er Moliere á stöðugum ferða-
lögum með leikflokknum, sem
hann varð fljótlega forvigis-
maður fyrir. Það er á þessum
árum, sem hann tekur til við að
semja gamanleiki og öfluðu þeir
flokknum svo mikilla vinsælda,
að þegar leikararnir komu til
Parisar 1658 og sýndu við hirðina
fyrir Loðvik 14., tók hann þá upp á
sina arma og útvegaði þeim
leikhús i Paris. Flokkurinn lék
undir forystu Moliéres allt til
1673, að Moliére lést, eftir sýningu
á ímyndunarveikinni, þar sem
hann lék Argan. Leikflokkurinn
sameinaðist siðan öðrum leik-
flokki i borginni og Comédie
Francaise var stofnað. Meðal
frægustu verka Moliéres auk
þeirra, sem nefnd hafa verið hér
að ofan eru Mannhatarinn,
Broddlóurnar, Eiginkvenna-
skólinn og Don Juan. Moliére
varð iðulega fyrir barðinu á
öfundarmönnum i lifanda lifi,
enda var hann óvæginn i ádeilu
verka sinna, þar sem hann gerir
óspart grin að tviskinnungshætti,
menntahroka, trúarhræsni og
tepruskap samtiðar sinnar. Hann
þykir merkasti gamanleikja-
höfundur frakka og þótt viðar
væri leitað, enda verk hans meðal
mest leiknu leikhúsverka um viða
veröld enn þann dag i dag.
I kvöld verður tmyndunarveiki
Moliéres frumsýnd á Stóra sviði
Þjóðleikhússins en þetta verk
hefur öðlast meiri vinsældir hér-
lendis en nokkurt annað verka
hans. Leikstjóri sýningarinnar er
Sveinn Einarsson en leikmynd og
búninga gerir skoskur leik-
myndateiknari Alistair Pow'ell,
sem er gestur Þjóðleikhússins i
þessari sýningu en starfar annars
við Tröndelag Teater i Þránd-
heimi. Notuð er þýðing Lárusar
Sigurbjörnssonar og Tómasar
Guðmundssonar. Tónlistin i
sýningunni er eftir Jón Þórarins-
son og er hún að nokkru byggð á
frönskum og spönskum þjóðlög-
um. Dansar eru eftir Ingibjörgu
Björnsdóttur.
Með aðalhlutverkin, Argan,
hinn imyndunarveika og Tonette,
vinnukonu hans, fara þau Bessi
Bjarnason og Herdis Þorvalds-
dóttir. Sigrlður Þorvaldsdóttir
leikur Béline, seinni konu Argans,
Árni Tryggvason Béralde, bróður
hans og Anna Kristin Arngrims-
dóttir og Randver Þorláksson
leika elskendurna ungu Ange-
lique og Cléante. Aðrir leikendur
eru Baldvin Halldórsson (herra
Diafoirus) Jón Gunnarsson
(Tómas Diafoirus) Rúrik
Haraldsson (Purgon) Sigurður
Skúlason (Bonnefoy) Bjarni
Steingrimsson (Fleurant) og
Kristin Jónsdóttir (Louison litla).
Þrir dansarar dansa i sýningunni.
þau Ingibjörg Björnsdóttir,
Ólafia Bjarnleifsdóttir og Orn
Guðmundsson. Þá syngur Ingi-
mar Sigurðsson hlutverk
Plichinelle á milli atriða. Sjö
manna hljómsveit undir stjórn
Carls Billich leikur undir.
Þetta er i annað skipti sem
Þjóðleikhúsið sýnir Imyndunar-
veikina, hún var áður sýnd fyrir
25 árum undir stjórn Óskars
Borg. Þá lék Lárus Pálsson
Argan og Anna Borg lék gestaleik
i hlutverki Toinette, sem Sigrún
Magnúsdóttir tók siðar við af
henni.
Frumsýningin á lmyndunar-
veikinni er sem fyrr segir á
fimmtudagskvöld kl. 20 en ráð-
gert er að sýna verkið fram i
miðjan júnimánuð og fara þá með
það i leikför um landið.
Anna Kristin Arngrimsdóttir (Angelique, dóttir Argans) Bessi og
Herdis.
Baldvin Ilalldórsson (Diafoirus læknir), llerdis Þorvaldsdóttir (Toinette). Bessi Bjarnason (Argaii),
Randver Þorláksson (Cléante), Anna Kristin Arngrinisdóttir( Angelique) og Jón Gunn rsson (Tómas
Diafprius)