Þjóðviljinn - 25.05.1976, Side 4

Þjóðviljinn - 25.05.1976, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 25. maí 1976. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Ctgcfandi: útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Hitstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson RÖDD MORGUNBLAÐSINS: TÖKUM SKÓLAKERFIÐ í ÞÁGU NATÓ! í viðtali við Dagblaðið á laugardaginn var kemst ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra svo að orði, „að kærleikur islensku þjóðarinnar til NATO sé i miklu lágmarki um þessar mundir.” í Reykjavikurbréfi Morgunblaðsins næsta dag reyta áróðursstjórar Sjálf- stæðisflokksins hár sitt og tjá áhyggjur sinar yfir þessum kærleiksskorti, sem þeir vilja kenna ónógri upplýsingu islensku þjóðarinnar. En hvernig er það, — er ekki Morgun- blaðið sjálft inn á nær hverju heimili á ís- landi með sina „upplýsingastarfsemi”? Hefur eitthvað á það skort, að Morgun- blaðið og önnur málgögn Sjálfstæðis- flokksins ræktu dyggilega sitt hlutverk, að ata islendinga upp i kærleika til NATO? — Vist ekki. En hvi er þá komið sem komið er um orðstír NATO á íslandi? Jú, höfundur Reykjavikurbréfs Morgunblaðsins hefur fundið skýringuna og ber hana fram i Reykjavikurbréfi á sunnudaginn var: — Það er skólakerfið á íslandi, sem hefur brugðist.!!! í Morgunblaðinu er vitnað til Noregs, og komist svo að orði: „Þess vegna er traustur og almennur stuðningur i Noregi við aðild þeirra að Atlantshafsbandalag- inu, og útgjöld til hernaðarmálefna. Yngri kynslóðinni eru þessir þættir i sögu Norð- manna einnig vel Ijósir einfaldlega vegna þess að þeir eru kenndir þar í skólum. Mætti það vera okkur íslendingum nokkurt umhugsunarefni, hvort ekki sé ástæða til að taka upp almennari fræðslu um þá grundvallarþætti i utanrikis- og öryggismálum okkar, sem stöðugt eru til umræðu og skipta okkur svo miklu.” Ekki fer milli mála hvaða boðskap hér er verið að flytja. Já,hvernig væri, að Vilhjálmur mennta- málaráðherra gæfi nú út dagskipun um að i öllum barna- og unglingaskólum landsins skuli kennarar ganga i lið með Morgun- blaðinu við að fræða unga islendinga úm dýrð NATÖ, svo að kærleikurinn til þess megi vaxa úr þvi lágmarki, sem hann nú er i að sögn dómsmálaráðherrans? Væri ekki tilvalið að byrja daginn með þvi i barnaskólunum, þegar haustar, að biðja fyrir NATÓ.og i gagnfræðaskólunum nætti þá enda hvern virkan dag með þvi að nemendur og kennarar syngju saman einn sálm eða lofsöng um NATÓ og herra Luns. Innan veggja Morgunblaðshallar- innar ætti að finnast maður, sem litið þyrfti að hafa fyrir þvi að semja óðinn? Ef reynslan yrði nú hins vegar sú, að fyrirbænir og lofsöngvar i skólunum dygðu ekkert betur en Reykjavikurbréf Morgunblaðsins til að reisa við kærleik- ann til NATÓ á íslandi, þá yrði væntan- lega að taka i þetta þjóðþrifastarf nokkrar kennslustundir á viku i skólunum. — Ætli mætti þá ekki fella niður á móti þetta stagl, sem kallað er íslandssaga, eða máske bifliusögurnar? En svo bregðast krosstré sem önnur tré. Á sama tima og höfundur Reykja- vikurbréfs Morgunblaðsins, áróðursstjóri Sjálfstæðisflokksins, situr sveittur við að telja „óupplýstum” islendingum trú um að hafið hér milli íslands og Noregs sé um það bil að verða „sovéskt haf” — „að ekki má miklu muna að það verði sovéskt haf” segir þar nú á sunnudaginn var, — þá kemur sjálfur Kissinger, utanrikisráð- herra Bandarikjanna, á forsiðu Morgun- blaðsins sama dag og hefur allt aðra sögu að segja! Samkvæmt frásögn Morguriblaðsins komst Kissinger svo að orði á blaða- mannafundi i Osló fyrir helgina: ,,'Við telj- um hins vegar, að við séum i áðstöðu til þess nú, og að við munum viðhalda þeim liðsstyrk i framtiðinni, sem gerir okkur kleift að ráða sem hingað til lögum og lof- um á hafinu og að okkur verði fært að að- stoða bandamenn okkar i Evrópu með þvi að nota siglingaleiðirnar.” Og fyrirsögnin i Morgunblaðinu á þess- ari frétt um ummæli Kissinger var eðlí málsins samkvæmt: „Bandarikin munu viðhalda yfirburðum á N-Atlantshafi.” Sem sagt ekkert „sovéskt haf” milli ís- lands og Noregs hjá Kissinger, og ekki heldur i þetta skiptið á forsiðu Morgun- blaðsins, en hins vegar i Reykjavikurbréf- inu, sem aldrei bregst!!! — Það er ástæða til að vekja athygli á þessum hlutum, einmitt nú, þegar reynt er að æpa það upp i eyrun á fólki, að NATÓ sé að „leysa” landhelgisdeiluna fyrir okkur islendinga, einmitt þegar ýtrustu tilraunir standa yfir af hálfu bandalagsins til að kúga okkur til réttindaafsals. 1 yfirlýsingu NATÖ fundarins i ósló er ekki frekar nú en áður að finna eitt orð okkur til stuðnings, og breski utanrikis- ráðherrann lýsir þvi opinberlega yfir, að hjá NATÖ hafi menn siður en svo haft neitt við framferði breta hér að athuga. Verkefnið nú er að stöðva þá uppgjafar- samninga við breta, sem NATÓ vill kúga okkur til að gera i blóra við augljósa lifs- hagsmuni og augljósan rétt okkar. Strax i dag, þvi að á morgun kann það að verða of seint. — k Hugsun hans er lokuö og þröng að sögn Morgunblaösins. Lokuð og þröng hugsun 1 Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins sl. sunnudag er komist svo að orði um þær kröfur að kalla beri heim sendiherra ís- lands hjá Nató vegna ofbeldis- verka breta á miðunum: „öll þessi úrræöi eru neikvæð og lýsa þröngri og lokaðri hugsun. öll stefna þau að þvi að við lokum okkur inni, ein- angrum okkur frá samskiptum við aðrar þjóðir.” Þessi ummæli Morgun- blaðsins eiga á yfirborðinu fyrst og fremst við Alþýðubanda- lagið, en i rauninni er Morgun- blaðið hér að beina geiri sinum að öðrum mönnum, einkum i þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið hafði áður ráðist heiftarlega á Pétur Sigurðsson fyrir það að hann skyldi skrifa upp á tillögu um heimköllun is- lenska sendiherrans frá Briissel. Reykjavikurbréf Morgunblaðsins er hins vegar skrifað á laugardagsmorgun, morguninn eftir að kastljós- þáttur sjónvarpsins birti viðtal við Gunnar Thoroddsen, ráð- herra, formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins. t þeim þætti lýsti Gunnar skilningi á kröfunum um heimköllun sendi- herrans frá Briissel. Þetta gremst Morgunblaðinu: rit- stjórar þess, yfirvarðhundar Geirs Hallgrimssonar í Sjálf- stæðisflokknum, geta ekki á sér setiö og ávarpa þingflokksfor- manninn, svo sem áður er frá greint: Hann sé neikvæður, hugsun hans þröng og lokuð. Fróðlegt verður að sjá hvort Gunnar Thoroddsen situr að- gerðarlaus undir skömmunum. Andstaðan við NATÓ Andstaðan við Nató er nú svo víðtæk hér á landi, að fullyrða má að meirihluti þjóðarinnar vilji setja bandalaginu tafarlausa úrslitakosti vegna landhelgismálsins. Ofbeldis- verk Nató-herskipanna innan landhelginnar vekja sterka andúð og henni fylgir fyrir- litning á þeim ráðherrum islenskum sem ástunda samningamakk með Nató- herrum um fjöregg þjóðarinnar á bak við tjöldin. Þessi andúð á Atlanshafs- bandalaginu á fylgi í öllum flokkum. Einar Agústsson hefur lýst þvi á fundi i Osló hversu viðtæk andúðin er og hann hefur kvartað við Nató-herrana yfir þvi að erfitt sé að sannfæra islendinga um það að þeir eigi samleið með ofbeldisöflunum. Þessi kvörtun Einas Agústs- sonar er vissulega táknræn fyrir undirlægjuhátt islenskra ráða- manna, sem halda utan til þess að klaga þjóðina fyrir hernaðar- bandalaginu. Er nú ljóst að þeir Geir Hallgrimsson og Einar Agústsson gætu tekið undir með valdhöfum i Austur-Þýskalandi, 2 FRÉTTIR Olgrlandl: Alþýflullokkurlnn. Krkitur: ltryk)»prrnt h(. Rlutjdrl og íbyrgíormaftur: Arnl Gunnoro- •on.. Riutjórl; Slghvatur BJ«rgvln»- •»n. Frétluiijdrl: BJornl 81gtrygk>- ■on. Absrtur riUIJOrnnr er t SIOu- mUlo 11, >lrol BtkOd. Auglýilngor: tlml M»OOog l«M. Prenl- un; Bl.ft.prrnt h.f. AlkrlfUrver6:IIM krftnur i mdnuftl og M krúnur I l.ui.stilu. alþyúu- blaðid NATO og land- helgismálið verlö tll umrsðu á fundl utanrlklíráöherra Atlants- hafsbandalagslns I Osló. Islenzkfr fréttamenn hafa sagt, að á blaðamannafundum hafl um fátt verlð melra rjett. Fréftlr af þessum fundum hafa borlzt vlða um helm, og hlð forkastanlega framferöl Breta á Islandsmlðum vekur bæði undrun og andúð. Leiðari Alþýðublaðsins á föstu dag vakti fögnuð I herbúöum Natóvina og Morgunblaösins. sem Brecht orti um 1953: Þeir vildu helst fá að kjósa sér nýja þjóð! Svikist undan merkjum En á sama tima og andúðin á Nató verður greinilegri og út- breiddari hér á landi eru það ekki einasta tveir ráðherrar sem ganga fram fyrir skjöldu fyrir hönd Nató: einn stjórnar- andstöðuflokkurinn finnur sig til þess knúinn að votta Nató holl- ustu sina: Alþýðuflokkurinn. í leiðara Alþýðublaðsins á föstu- dag er itrekuð fyrri afstaða flokksforystunnar til Nató og nú með engu minna flaðri og sleikjuhætti en fyrr. Og að vonum er leiðara Alþýðu- blaðsins á föstudag fagnað i Morgunblaðinu. Þessi leiðari Alþýðublaðsins er skrifaður á fimmtudag og hann birtist á föstudag, einmitt þá daga sem Einar Agústsson og Geir Hallgrimsson eru á svartakafi i makki við Nató- ráðherrana. Þessi leiðari er þvi sérstök hollustuyfirlýsing við vinnubrögð þeirra, er amk. skoðaður þannig i Morgun- blaðinu. Með þessari forustu- grein er ritstjóri Alþýðublaðsins og þar með forusta Alþýðu- flokksins að svikjast undan merkjum þjóðareiningar i þágu Atlanshafsbandalagsins. Margur maðurinn hefur að undanförnu verið að gera sér vonir um það að Alþýðuflokk- urinn væri á batavegi: forustu- grein Alþýðublaðsins á föstu- daginn sýndi að svo er ekki. Enn ræður viðreisnarvofan rikjum i forustuliði Alþýðuflokksins. Á hann er ekki að treysta þegar til átaka kemur. Svo einfalt er það Helsta „röksemd” ihaldsins i Reykjavik gegn verslunarleyfi handa KRON niður undir Sundahöfn er sú að það fari ekki vel saman að hafa verslun á hafnarsvæði. Þessi „röksemd” er furðuleg i ljósi reynslunnar: ekki telur ihaldið það eftir sér að setja upp allskonar óskylda starfsemi á hafnarsvæðinu þegar aðrir fara fram á það. Þannig hafði ilialdið ekkert við það að athuga að gert yrði eins- konar sjúkrahús i Hafnarbúðum — á hafnarsvæði gömlu hafnar- innar. Þá heyrðust ekki þær röksemdir að þessi starfsemi félli illa inn i rekstur hafnar- innar. Þegar KRON sækir um verslunarleyfi til bráðabirgða i Sundahöfner umsókninni neitað — ekki vegna þess að starf- semin falli illa við rekstur hafnarinnar, heldur vegna þess að það er KRON sem sækir um. Svo einfalt er það. —s

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.