Þjóðviljinn - 01.06.1976, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 01.06.1976, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. júni 1976. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Ctgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans Kramkvæmdastjóri: Eiöur iiergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Kréttastjóri: Einar Karl Haraldsson IJmsjón meö sunnudagsbiaöi: Atni Bergmann Ritstjórn. afgreiösla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. NÚ SKEYTA ÞEIR HVORKI UM SKÖMM NÉ HEIÐUR Þessa dagana fara Morgunblaðið og for- kólfar Sjálfstæðisflokksins hamförum i þvi skyni að telja almenningi trú um að okkur islendingum sé fyrir bestu, að semja við breta um landhelgisdeiluna á grundvelli uppkastsins, sem þeir Geir og Einar komu með frá Osló. Þær blekkingar sem bornar eru á borð i þessu sambandi, ekki sist i Morgunblað- inu, eru svo grófar og ósvifnar, að greini- legt er að nú skal hvorki skeytt um skömm né heiður á þeim bæ. Morgunblaðið segir, að án samninga muni bretar veiða um 70.000 tonn á siðari hluta þessa árs en með samningum á grundvelli uppkastsins muni þeir veiða um 30.000 tonn á sama tima. Og siðan spyr Morgunblaðið með þjósti: „Hvar eru þeir islendingar, sem vilja láta breta veiða 40 þúsund tonnum meira en nauðsyn krefur?” Það skal sagt strax, að hér fara Morgunblaðsmenn eins og svo oft áður vitandi vits með helberar falsanir i þvi augljósa skyni að fá islendinga til að beygja sig fyrir erlendu valdi. Litum á staðreyndir málsins. í siðustu viku hafði fréttastofa Reuters það eftir breska sjávarútvegsráðuneyt- inu, að afli bresku togaranna við ísland hafi á rúmum þremur mánuðum timabilið frá 9. febrúar — 15. mai s.l. verið alls 17.682 tonn, eða aðeins rúmlega 70% af þeim afla, sem bretar höfðu gert sér vonir um að ná á þessum tima. Og hingað til hafa bretar nú frekar verið grunaðir um það að halda fremur fram of háum en of lágum aflatölum undir herskipavernd. Þessi frétt var birt i nær öllum islensk- um blöðum en þó ekki i Morgunblaðinu af ástæðum, sem blaðalesendur mættu gjarnan velta fyrir sér. Þetta þýðir til jafnaðar á mánuði 5526 tonn hjá öllum breska veiðiflotanum á íslandsmiðum. Samkvæmt upplýsingum frá landhelgis- gæslunni munu um 34 breskir togarar hafa verið hér að veiðum að jafnaði á þessum tima og eru þetta þá 5,5, tonn á hvern veiðidag togara nú. Samkvæmt opinberum tölum um afla breta hér við land mánaðarlega á undan- förnum árum (Sjá töflu i Timanum s.l. laugardag), þá veiddu bretar hins vegar 8368 tonn á mánuði til jafnaðar, mánuðina febrúar til mai á siðasta ári 1975 (8,2 tonn á veiðidag hvers togara). Af þessu er ljóst að i ár er mánaðarafli þeirra fullum þriðjungi minni en á sama tima i fyrra. Það eru að sjálfsögðu aðgerðir varð- skipanna, sem mestu valda um þennan mikla mismun, en i öllum samanburði Morgunblaðsmanna varðandi hugsanleg- an afla breta, með eða án samninga, er talað og skrifað eins og varðskipin væru alls ekki til!! Það er staðreynd, að á þvi timabili, sem nýjustu tölur breta sjálfra ná til þá veiddu þeir aðeins um 5.500 tonn á mánuði þrátt fyrir herskipin. Það er lika staðreynd, að samkvæmt opinberum tölum breta,—sjá meðal annars áðurnefnda töflu i Timanum á laugardaginn var,—þá veiddu bretar, þegar þeir fengu að vera i friði hér fyrir varðskipunum um 8 tonn hver togari á veiðidag bæði 1975 og 1974, en það þýðir fyrir 25 togara að daglegum veiðum, eins og nú er talað um að semja um, nálægt 6000 tonnum á mánuði fyrir slikan flota, eða um 70.000 tonn á ári. Fái 25 breskir togarar að veiða hér i friði síðari hluta þessa árs samkvæmt uppkastinu frá Osló, og engin truflum frá varðskipunum komi þvi til, þá má sam- kvæmt fyrirliggjandi staðreyndum, sem hér hefur verið greint frá, vænta þess, að heildarafii breta á mánuði siðari hluta þessa árs verði um 6000 tonn á mánuði, eða 36.000 tonn á 6 mánuðum. Sem sagt nokkru meira en nemur þeim 5.500 tonn- um á mánuði, sem breska sjávarútvegs- ráðuneytið gaf út i siðustu viku að veiðst hefðu frá 9. febrúar til 15. maí s.l. Bretar höfðu sem fyrr segir áætlað að taka hér 100.000 tonn á árinu 1976 og birt um það opinbera tilkynningu. Varðskipum okkar hefur samkvæmt nýjustu tölum breska ráðuneytisins tekist á þeim tima sem liðinn er að skera þetta niður um nær 30%, og ætti þá afli breta yfir árið 1976 án samninga að verða um 70.000 tonn að óbreyttu. Falsanir Morgunblaðsins um væntanleg 70.000 tonn fyrir breta á 6 mánaða timabili framundan án samninga eru staðlausir stafir. Þessar falsanir byggjast á því að nákvæmlega sé sama, hvort varðskipin séu yfirleitt i gangi, eða ekki! Þessar falsanir hafa hér verið hraktar með tölum bretanna sjálfra, sem þó reyna jafnan að láta eins og vel veiðist undir herskipavernd. Sérhver athugull blaða- lesandi ætti að bera saman þær stað- reyndir, sem hér hefur verið vakin athygli á og áróður Morgunblaðsins s.l. laugardag og sunnudag. Það sem við blasir er, að alls engar likur benda til, að afli breta hér á siðari hluta þessa árs verði neitt minni—ef yfirvofandi samningar verða gerðir, heldur en án samninga. Fullyrðingar Morgunblaðsins um helmingi meiri afla breta án samninga en ella eru staðlausir stafir, sem enginn skyldi taka mark á. Það versta við yfirvofandi samninga er þó enn ótalið, það að bretar hafa ekki fengist til að láta i té nokkra tryggingu fyrir þvi, að þeir láti okkar fiskimið i friði að 6 mán- aða samningstima liðnum. Þvert á móti á- skilja þeir sér allan rétt til að beita okkur hernaðarofbeldi á ný, ef við ekki verðum þægir þjónar. Við slika á ekki að semja. Það eina, sem við gætum samið um er uppgjöf breta. Hœttumark Ahrifin af veru bandariska hersins á Keflavikurflugvelli á islenskt efnahagslif hafa verið feimnismál. Þessi skoðun kom fram hjá Ólafi Ragnari Grims- syni, prófessor, i athyglis- verðum sjónvarpsþætti á föstu- daginn. Full ástæöa er til þess að gera sér skýra grein fyrir þeim, sérstaklega vegna þess að þegar viö bætast umsvif er- lendra auðhringa á tslandi eru áhrif útlendinga á efnahagslifið orðin umtalsverð. Olafur Ragnar Grimsson spyr þeirrar timabærru spurningar hvar séu hættumörkin varðandi efna- hagsáhrif útlendinga og hvort ekki sé komiö nærri þeim. Hann bendir á, að viöskipti við herinn séu úrslitaatriði i rekstri nokkurra isl. „stórfyrirtækja” og þegar viö bætist sú stóriðja sem rekin er hér af eða i sam- vinnu við útlendinga, sé hlutur erlendra aðila um fimmtungur af útflutningstekjum þjóðar- innar. Þegar svo álverið hefur verið stækkaö og járnblendi- verksmiðja reist i samvinnu við útlendinga, megi gera ráð fyrir, aö hlutur útlendinga fari aö nálgast fjóröung. Ólafur Ragnar beindi þeirri spurningu til alþingismanna allra og viðmælanda sins i sjón- varpssal, Ellerts Schram, hvað þeir teldu vera hættumörkin i þessu sambandi. Ellert hafði ekki svar við þvi, og fróölegt verður að vita, hvort öðrum al- þingismönnum verður jafn svarafátt. Aronskan á uppleið Nú þegar augu þorra al- mennings hafa opnast fyrir þvi, að bandariski herinn er hér ekki til þess að verja okkur, heldur sem útvarðarsveit fyrir banda- riska varnarkerfið eins og Luns framkvæmdastjóri NATÓ, hefur itrekað nýlega, virðist þeirri skoðun hafa vaxið fylgi að við eigum að taka ieigugjald af bandarikjamönnum fyrir þá að- stöðu, sem við látum þeim i té. Eins og Ólafur Ragnar Grims- son benti á I Kastljósi eru þetta eðlileg viðbrögö að mörgu leyti. Það rennur upp fyrir fólki að sú kennisetning Sjálfstæöisflokks- ins fær ekki staöist að herinn sé hér til þess að vernda okkur, og viö látum Bandarikjastjórn og NATÓ i té afnot af landi af voru landi sem endurgjald fyrir þessa vernd og framlag til sam- eiginlegra varna „vestrænna menningarverðmæta”. Þannig hefur NATÓ og Bandarfkja- stjórn komið fram viö okkur i þorskastriðinu. Úr þvi að við fáum ekki vernd, hvers vegna ekki að taka af bandarikja- mönnum svimandi leigugjald til þess að bjarga efnahagsmálum okkar? Aron Guðbrandsson heldur vei á þessu máli frá sinum bæjardyrum séð og bendir á þann möguleika að stofnaður verði sjóöur til stór- framkvæmda hérlendis fyrir leigugjaldið sem verði fyrir utan fjárlögin. Hætturnar i sambandi við leigugjald af þessu tagi eru þó stórkostlegri en svo, að hægt sé að taka umræður um það al- varlega nema sem visbendingu um að þjóöin sé að átta sig á eðli herstöðvarinnar og NATÓ. I fyrsta lagi myndi það gera okkur enn háðari stór- veldinu i vestri. í öðru lagi myndi það færa áhrifin af er- lendu fjármagni hér langt yfir hættumörkin. í þriðja lagi má gera ráð fyrir aö gifurleg verð- bólguáhrif fylgdu i kjölfar töku leigugjalds af þeirri stæröar gráðu sem um er rætt. Hinn aronski sjóöur myndi áreiöan lega hafa i för með sér slikt „framkvæmdafyllerf” að þjóöin fengi varanlega timburmenn. „K” útlœgt úr Mogga Mikill kraftaverkamaöur er Gils Guðmundsson, enda af vestfirskum gaidramanna ættum. Nú hefur honum tekist með bréfaskriftum sinum við Matthias Morgunbiaðsritstjóra að fá hann og Styrmi til þess að lofa aö marka ekki þingmenn Alþýðubandalagsins i hvert skipti sem á þá er minnst i Morgunblaðinu með bókstafnum „k”. Þingfrétta- ritari blaösins hefur ströng fyrirmæli um að setja rétt mark á Gils og aðra þingmenn Alþýðubandalagsins. Nú mega lesendur Morgunbiaðsins sem sagt eiga von á þvi, að fulltrúar Alþýðubandalagsins verði ekki lengur kallaðir kommar eða Moskvukommar i Morgun- blaðinu. Liklega endar þetta með fjöldauppsögnum. —ekh. Hvar er varið land?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.