Þjóðviljinn - 01.06.1976, Side 5

Þjóðviljinn - 01.06.1976, Side 5
Þriðjudagur 1. júnl 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Vínáttufélag íslands og Kúbu: Fordœma einhliða áróður um aðstoð Kúbu við Vináttufélag Islands og Kúbu hefur sent frá sér fréttatil- kynningu á þessa leið: Vináttufélag Islands og Kúbu fordæmir furðulegan og einhliða áróður islensku borgarapress- unnar og rikisfjölmiðla um aðstoð Kúbu við angólsku þjóðina i sjálf- stæðisbaráttu hennar. Félagið bendir á þann skort á faglegum heiðarleika sem fréttamenn við þessa fjölmiðla sýna, með þvi að lepja upp móðursýkislegan og ósannan áróður vestrænna heimsvaldasinna um aðstæður i Afriku, svo og að hafa eftir athugasemdalaust yfirlýsingar bandariskra ráðamannaa um hugsanlega árás á Kúbu, ef hún léti ekki staðar numið i aðstoð sinni. VtK bendir á, að það er frum- skylda sérhverrar sósialiskrar þjóðar að aðstoða aðrar þjóðir við að öðlast raunverulegt sjálfstæði. VtK væntir þess, að sérhver islendingur geri sér grein fyrir þvi, hver ástæðan er fyrir áróðurs- og árásarherferð bandariskra heimsvaldasinna og undirsáta þeirra gegn Kúbu og kúbönsku byltingunni. Félagið bendir á að þessi her- ferð stafar af hatri á kúbönsku þjóðinni, sem i krafti sjálfstæðis sins hefur framkvæmt sósialiska byltingu i Ameriku, 'rétt við strendur herskáasta heimsveldis allra tima. Akvörðun kúbönsku þjóðarinnar um að sigra eða deyja, svo og alþjóðleg samstaða sem bylting hennar hefur notið frá upphafi, hafa hjálpað þjóðinni til að komast klakklaust gegnum allar ögranir og árásir sem heimsvaldasinnar hafa beitt hana i þeim tilgangi að útrýma fyrstu sósialisku byltingunni i þessari heimsálfu. Siaukin samskipti Kúbu við lönd rómönsku Ameriku, vaxandi hróður hennar á alþjóða vettvangi, og styrkleiki byltingarinnar innanlands, hafa kallað á viðbrögð heimsvalda- sinna; viðbrögð sem lýsa bræði og vanmætti andspænis siendur- teknum ósigrum. Málið sem þeir nota er ætlað til að slá ryki í augu almennings. Það er óábyrgt og herskátt og minnir á verstu daga kalda strlðsins og McCarty - isfnans. Heimsvaldasinnar hyggjast i krafti máttar sins neita Kúbu um þann rétt sem viðurkenndur er á alþjóðavettvangi, þ.e. réttinn til að veita aðstoð þjóð, sem orðið hefur fyrir árás. Þeir hyggjast neita Kúbu um réttinn til að aðstoða angólsku þjóðina, sem varð fyrir árás kynþáttaof- sóknarmanna frá Suður-Afriku; landi sem hefur verið fordæmt á alþjóðlegum vettvangi. beir hyggjast neita Kúbu um réttinn til að auðsýna þjóð Puerto Eico skilyrðislausan stuðning; þjóð sem berst fyrir sjálfstæði sinu og fyrir útrýmingu siðustu leifa nýlendustefnunnar I Ameriku. 1 refsingarskyni fyrir afstöðu Kúbu hafa nú Bandarikjastjórn og CIA byrjað nýja og glæpsam- lega árásarherferð, sem best Angóla hefur komið i ljós þegar friðsamir kúbanskir fiskimenn voru skotnir niður þar sem þeir voru að veiðum á alþjóðlegu veiðisvæði, og einnig þegar árás var gerð á sendiráð Kúbu I Portúgal og tveir starfsmenn þess drepnir. Ofbeldisstefna heimsvalda- sinna hræðir þó ekki kúbönsku þjóðina. Hún mun af meiri stað- festu en nokkru sinni fyrr halda áfram að byggja upp nýtt og rétt- látt þjóðfélag, og jafnframt halda áfram að styðja þjóðir sem berjastfyrir sjálfstæði sinu, verja landamæri sin og auðlindir og berjast gegn kynþáttahatri, fasisma og heimsvaldastefnu. Þessi afstaða Kúbu hefur verið rædd og samþykkt af þjóðinni allri á ótalmörgum fjöldafundum, sem haldnir hafa verið til stuðn- igs þeim yfirlýsingum sem aðal- ritari kúbanska kommúnista- flokksins og forsætisráðherra landsins, Fidel Castro, gaf i ræðu sinni, þegar minnst var 15 ára afmælis sigursins við Svinaflóa. Vináttufélag tslands og Kúbu krefst þess að endir verði bundinn á verslunarbann og hermdarverk sem skipulögð hafa verið af rikis- stjórn Bandarikjanna, og skorar á islensk stjórnvöld að beita sér af alvöru fyrir þvi á alþjóðavett- vangi. Jafnframt lýsir Vináttu- félag íslands og Kúbu yfir þeirri fullvissu sinni, að kúbanska þjóðin muni veita viðnám öllum hótunum og jafnvel árásum heimsvaldasinna, ef af sliku verður. Firmakeppni Gusts í Kópavogi Laugardaginn 15. mai var haldin á Kjóavöllum firmakeppni hesta- mannafélagsins Gusts. Margt var um manninn, enda veður mjög gott. Um 100 fyrirtæki úr Kópa- vogi og Reykjavik styrktu félagiö með þátttöku sinni. Orslit urðu þau, að i unglingaflokki sigraði Þóra Asgeirsdóttir á Lýsingi, en hún keppti fyrir firmað Þór E. Jónsson. Númer tvö varð Katrin Péturs- dóttir á Glóa fyrir Sparisjóð Kópavogs. I kvennaflokki sigraði Gerður Sturlaugsdóttir á Svip fyrir Vinnufatabúðina. önnur varð Elin Ingvarsdóttir á Stjörnu fyrir verksmiðjuna Vifil- fell. t karlaflokki sigraði Kristinn Vil- mundarson á Mósa, en hann keppti fyrir Burstagerðina h.f. Svanur Halldórsson og Nökkvi náðu öðru sætinu, en þeir kepptu fyrir Versl. Auðbrekku i Kópa- vogi. Dómarar voru þau Rosmarie Þorleifsdóttir, Sigfús Guðmunds- son og Arni tsleifsson og þótti þeim takast dómarastarfið mjög vel. Sovétríkin hlynnt saniningum OSLÓ 28/5 NTB — SOveiriKin hallast nú að þvi að gera við Noreg fiskveiðisamning, sem byggður sé á meginreglunni um 200 milna auðlindalögsögu, að þvi er Jens Evensen, hafréttar- ráðherra norömanna, upplýsti Stórþingið um I dag. Evensen, sem er nýkominn heim frá Moskvu úr viðræðum við sovét- menn, sagði að þeir viður- kenndu meginregluna um auð- lindalögsögu, en vildu ekki skuldbinda sig til að viðurkenna útfærslu samkvæmt þeirri reglu fyrr en ný hafréttarráðstefna heföi staðfest hana. Engu að siður væru sovétmenn nú hlynntir þvi að gera fiskveiði- samninga við önnur riki, byggða á 200 milna reglunni. --------------------------- Jeppabílar Orkustofnun óskar eftir að taka á leigu, nokkrar jeppabifreiðar. Upplýsingar i sima 28828 kl. 9-10 og 13-14 næstu daga. F ramhaldsaðalfundur Stýrimannafélags Islands verður haldinn á Bárugötu 11 miðvikudaginn 2. júni 1976 kl. 20.30. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórnin SNIÐKENNSLA Byrja 10 daga námskeið i kven- og barnafatnaði (8.-22. júni). Kenni nýjustu tisku, sænskt sniökerfi. Upplýsingar I sima 19178. Sigrún A Sigurðardóttir Drápuhlið 48. Reiðhjólaskoðun Lögreglan i Reykjavik og Umferðarnefnd Reykjavikur efna til reiðhjólaskoðunar fyrir 7-14 ára börn. Viðurkenningar verða veittar fyrir þau reiðhjól sem eru i lagi. Skoðað verður við eftirtalda skóla: Miðvikudagur 2,júni Melaskóli kl. 09.00 Austurbæjarskóli — 10.30 Árbæjarskóli — 14.00 Iiliðaskóli — 15.30 Fimmtudagur 3. júni Hvassaleitisskóli Kl. 09.00 Breiðagerðiskóli — 10.30 Fellaskóli — 14.00 Langholtsskóli — 15.30 Föstudagur 4. júni Álftamýrarskóli Kl. 09.00 Fossvogsskóli — 10.30 Vogaskóli — 11.30 Breiðholtsskóli — 14.00 Laugarnesskóli — 15.30 Lögreglan i Reykjavik Umferðarnefnd Reykjavikur. blaðið sem vitnað er í r Askriftarsími 175 05

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.