Þjóðviljinn - 01.06.1976, Page 7
Þriðjudagur 1. júni 1976. ÞJÓÐVll.JINN — SÍÐA 7
Á ÞRIÐJUDEGI
fe/.
*•***"*, ÁM ‘m,
yZ/, *
^s-s-;
WtfS*
I ,^, = ^
iTÍMrtínnáinMjS
lEinn maður
|í viðbðt í
rðhald’
. 4$
^%2Éiliák^'
- Ciesielski hofíi dregií olll lil boko
haklinn 26. itmnl - BAKSÍÐA J
V«*rhún í raun og veru
banamaðurinn?
• T
l«*Í*ðor:
Hóluðti
h**ión.
h»*nn
I bnrftim
VVP í; 3
'\ÆW'*
X>'*. • W m
,atn'
ingari
smygl-
máíum
•ÍOl Vitnisburflur Erlu Bolladóttun
Telur sig hafa skotið
að Geirfinni með riffli
__ ■*".
^oííFUl>SKOKloí
3Jfi!«5ura gæzluvarðhaldsföngum sleppt, en gert að
""rí’ wr '^íriíti lögreglu og bannað að fara úr landi
•vll k**M. Wir hnfnelnMullrM
nrllnk >*l f)6rinrti»ln«»»«i
inr tirppl Dr irilwinrihnMI
_____) trrrl lrnmb«r« >i»» I f l«»<_il>lnv prir Einnr n»»»«« . .«»»»d»«*k*old ®« b*t*» I "
l)*rlr -r«». irm »rll« h.l. iMluw. »l«««4» U®p*U.»®«. ►»*"•►* ‘“"t ‘ *'
• luv.rth.MI nndant.rn.r M«»rb)..» Klrlkunn •« VnMk »6 t)*rM h*»l«. >*“
„«.. Crlr ' ....................... ' -----*
rrwh.MIM
touan.
i!'0«ir.íí *&■ ‘
l v,*í en(!fn" J2~5Sí«Ær..";?r
***""«»ti,
Landbúnaðarráðuneytið:
Sés VarhMWÍwn®.!
i úr
-1
ekiðébrott
m ll»nn h.r*. hklfu,.
I «0*u .«„«). 0,.*»,,,
Nauðsynleg hreinsun
Siðustu mánuði hefur verið
varpað æ skýrara ljósi á innviöi
islensks þjóðfélags. Undir-
heimar fjölþættrar glæpastarf-
semi hafa verið opnaðir og
napur veruleikinn hefur blasað
við. Islenskur almenningur
hefur þurft að horfast i augu við
þann blákalda sannleika að
þjóðfélagið sé sundurskotið af
margvislegum afbrotum og
sumar máttarstofnanir jafnvel
setnar misindismönnum. Is-
lenska þjóðfélagið virðist i æ
rikari mæli vera orðið glæpa-
samfélag
Staðreyndirnar sem birst
hafa siðustu mánuði færa is-
lenskum sósialistum verkefni
sem flestum mun framandi.
Það þarf að útskýra hvernig
islenác samtið hefur orðið óska-
landafbrotamanna. Það þarf að
benda á efnahagslegar og
félagslegar orsakir þessarar
þróunar. Það þarf að lýsa er-
lendum dæmum sem
hliðstæðum.
Islenskir sósialistar þurfa aö
gerast baráttumenn fyrir
breytingum sem brjóta niður
völd glæpaaflanna. Þjóðfélagið
verður að ganga i gegnum
nauðsynlega hreinsun. Hún
verður ekki framkvæmd nema
með lifshugsjón, manngildi,
stefnuskrá og baráttuhug
sósialista að leiðarljósi.
Glæpasamfélag
Atburöir siðustu mánaða eru
svo alkunnir að óþarfi er að fara
um þá mörgum orðum. Stutt
upptali.ing nægir til að sýna hin
viðtæku glæpaeinkenni sam-
félagsins.:
■ Skattsvik sem nema
miljörðum króna.
■ Margmiljóna ávisanasvindl i
bankakerfinu sem skipulagt
er af fjármálahring.
■ Lán eru svikin út úr opinber-
um stofnunum og notuö til
söfnunar einkaeigna.
■ Bókhaldssvindl er stundað i
rikum mæli af fjölda fyrir-
tækja.
■ Trúnaðarmenn opinberra
fjármuna geta ráðstafaö
þeim I þágu eigin gróða.
■ Smygl á áfengi er orðinn sér-
stakur atvinnuvegur með ár-
lega veltu sem nemur
hundruðum miljóna.
■ Smygl á eiturlyfjum gerist æ
umsvifameira og virðist
tengjast fjölmennu
dreifingarkcrfi.
■ Innbrot, árásir og líkams-
meiðingar eru nær vikulegir
viðburðir.
■ Morð cru framin á skipu-
lagðan hátt af meölimum
glæpahringa.
Upptalningin gæti verið mun
lengri Frásögnin ein er jafnvel
efni i margar bækur. Umsvif
glæpastarfseminar eru svo
mikil að þau ná inn i sumar
helstu stofnanir rikisins. Krafist
hefur verið rannsóknar á ráðn-
ingu fangavarða og embætti
lögreglustjóra, nokkrir stjórn-
éndur tollgæslunnar sitja i
fangelsi, bankastjóri Seðla-
bankans telur að miljónasvindl
hafi verið stundað innan banka-
kerfisins um áraraðir, ráðu-
neyti og sýslumannsembætti
hlifa stórfelldum söluskatts-
svikurum, embætti sakadóms
verður uppvist að alvarlegu
misferli i rannsóknum — þannig
má setja saman langan lista.
Flest svið þjóðfélagsins virðast
á einn eða annan hátt vera
menguð afbrotum og glæpa-
starfsemi.
Orsakir
Staðreyndirnar segja einar
sér aöeins hálfa sögu. Nauðsyn-
legt er að leita orsaka þessarar
þróunar. Að þessu sinni verður
aöeins bent á fáein atriði. Þau
gætu hins vegar orðið hvati að
fjölþættri umræðu. Eftirtaldar
orsakir hafa efalaust átt mikinn
þátt i að breyta islensku þjóð-
félagi I glæpasamfélag:
1. Drottnun auðhyggjunnar.
Frumskógarlögmál kapital-
ismans hafa leitt auðhyggjuna
til hásætis i hugum hluta
þjóðarinnar. Máttur pening-
anna, gróðafikn og eignasöfnun
eru ríkjandi einkenni i mann-
legum samskiptum. Að græða
með réttu eða röngu er mæli-
kvarði á árangur athafna. Auö-
hyggjan, peningagildið og
svindlið hafa oröiö hreyfiöfl is
lenska hagkerfisins. Þegar upp
er staðið frá pókerborði efna-
hagslifsins er aöeins spurt hve
mikill er gróðinn. Jafnvei
svindlarinn er hafður i há-
vegum. Hann kann að koma sér
áfram.
2. Verðbólgan. Það eru ekki
aöeins frumskógarlögmál hins
kapitaliska hagkerfis sem hafa
brenglað siðgæðisvitundina,
heldur einnig gerningaveður
verðbólgunnar. Siðustu árin er
eins og hin mikla verðþensla
hafi brenglað til muna verð-
mætamat stórra hópa. Verð-
bólgan hefur skapað vissum öfl-
um tækifæri til skyndilegrar
eignamyndunar og kippt fótun-
um undan félagsgrundvelli
heilla stétta. Allt er á ferð og
flugi. Hin eðlilegu frumskógar-
lögmál auðhyggjunnar verða
mun kröftugri. Flest brögö
verða leyfileg i hinum efna-
hagslega sjávarháska.
3. Hernámiö.Tilvist erlendra
herstöðva hefur i för með sér
margháttaða þjóðfélagslega
mengun. Það sýna dæmin viöa
um heim. Dvöl hersins I aldar-
fjórðung hefur veriö hvati að
fjölþættri spillingu. Gjaldeyris-
brask, smygl á eiturlyfjum og
áfengi, svindl i framkvæmdum
og skattsvik eru aðeins fáein
dæmi. Glæpamyndir her-
sjónvarpsins hvöttu til að-
dáunar á afbrotahetjum. Sam-
skipti hermanna og ýmissa ein-
staklinga og hópa hafa stuðlað
að spillingu. Herstöðin á Suður-
nesjum hefur veriö efnahags-
legur og félagslegur mengunar-
valdur likt og hliðstæö fyrirbæri
hafa verið i öðrum löndum.
4. Götótt lög. Akvæði i is-
lenskri löggjöf um fyrirtæki, af-
skriftir, rekstrarábyrgð, skatta,
bókhald og ýmislegt annað eru
svo götótt aö þaö er auðveldur
leikur að fara 1 kringum og i
gegnum lagabókstafinn. Þegar
löggjafarvaidiö er i höndum
ihaldsaflanna reynist litill áhugi
vera á að fylla i göt laganna.
Forréttindastéttin hefur gjíffn-
an viljað hafa opna möguleika
til að hagnýta sér götin. Hin
glopótta islenska löggjöf hefur
verið einskonar öryggisventill
fyrir auðvaldsöflin.
Latnaðir dómstólar og
brengluð refsiframkvæmd.
Meðferð margra afbrotamála
siðustu árin hefur sýnt að dóm-
stólar landsins valda alls ekki
þvi hlutverki sem þeim er ætlaö.
Þeir eru lamaðir. Mörg mál eru
aðeins rannsökuð að mjög tak-
mörkuðu leyti. Sum jafnvel alls
ekki. önnur eru til meöferðar
heilan og hálfan áratug. Sumir
taka út sinn dóm að öllu leyti, en
aðrir ekki. Stórbrotamenn
ganga lausir árum saman og
taka svo ef til vill eftir dúk og
disk út málamyndarefsingu.
Hvorki dómstólar eða refsi-
aðilar eru starfi sinu vaxnir.
Ýmis dæmi vekja grunsemdir
um að annarleg sjónarmið
kunni á stundum að ráða
gerðum þeirra. Ahrif auðsins og
pólitiskra tengsla eru greinilega
ekki óþekkt fyrirbæri innan
islenska réttarkerfisins.
6. Embættiskerfi og
valdastétt.
Orsaka þeirrar mengunar
sem nú gætir i islensku þjóð-
félagier tvimælalaust einnig aö
leita i sumum einkennum em-
bættiskerfisins og þeirrar stétt-
ar sem fer með stjórn landsins.
Auðhygg jan og gróðafiknin hafa
sett mörk sin á þessa aðila. Sér-
stök sambönd og einkatengsl
ráöa oft meira um tilteknar aö
gerðir en almenningsheill og
ákveðnar reglur. Vafasöm fjár-
málaöfl virðast hafa náö
sérstökum tökum á ýmsum
stjórnstofnunum. Leyniþræðir
glæpasamfélagsins virðast
liggja i gegnum sjálft rikis-
kerfið.
Erlendar
hliðstæður
Saga siðustu tveggja áratuga
býr yfir ýmsum dæmum um
vöxt glæpastarfsemi og
spillingar i þjóðfélögum sem
hafa verið menguö af sterkri
gróðahyggju, verðbólgu, her-
stöövum og spilltum ráðaöflum
sem gerst hafa þjónar útlendra
rikja og auöhringa. Þvi miður
er islensk samtið farin að bera
mörg einkenni þessara erlendu
hliöstæðna. Hér hafa leitað
fanga erlendir aðilar með
svipuðum aðferðum og beitt
hefur verið annars staðar. Sum
innlend öfl hafa og þ jáðst af líkri
linkind og þeir sem ofurseldu
lönd sin erlendri herraþjóð og
innlendum afbrotahópum.
Hinar erlendu hliöstæður sýna
llka aö einungis ein hreyfing er
megnug að framkvæma þá
hreinsun sem nauðsynleg er.
Bandalag vinstrisinnaðra þjóö-
félagsafla undir forystu sósial-
ista braut á bak aftur hina er-
lendu spillingarfjötra og út-
rýmdi innlendum glæpaöflum.
Styrktir þjóðfrelsishugsjónum
sinum, manngildisviðhorfum og
baráttukrafti reyndust sósial-
istar þeir innviðir þessara þjóö-
félaga sem ekki brotnuðu. A Is-
landi biður nú samskonar verk-
efni: Hin nauðsynlega hreinsun.
Verkefni íslenskra
sósíalista
Sú sýking sem nú einkennir
islenska þjóðfélagið gerir nýjar
og meiri kröfur til stjórnmála-
hreyfingar sósialista. Hin þjóð-
félagslega umsköpun er oðin
enn viðameira verkefni. A hinn
bóginn hafa mótsagnir
auöhyggjunnar komið skýrar i
ljós. Röksemdafærslan á þvi
kost á kröftugri dæmum.
A næstu miserum þarf mála-
flutningurinn aö einkennast af
eftirfarandi atriðum:
Að útskýra spiilingarmátt
auðhyggjunnarog sýna andsvar
hinnar ábyrgu félagshyggju.
Að útskýra afleiðingar gróða-
fiknarinnar og sýna hvernig
manngildishugs jónin mótar
nýjar brautir.
Að útskýra hvernig erlendur
her og auðhringir hafa ætið leit-
ast við aö veikja þjóðfélag
aðsetursiands með sýkingu og
sýna nauðsyn viðtækrar þjóö-
frelsisbaráttu til að reka þessa
mengunarvalda af höndum sér.
Að útskýra hvernig ráðandi
öfl hafa flækst i leyniþræði
glæpasamfélagsins og sýna að
einungis baráttukraftur öflugr-
af sósialistahreyfingar getui
slitið þá þræði.
Að útskýra sýkingu hins is-
lenska þjóðfélags og sýna að
lifshugsjón sósialismans er
öruggasti leiðarvisirinn út úr
gerningaveðri spillingarinnar.
Þótt þessi verkefni séu nýrrar
tegundar i islensku samfélagi
eru þau samt i nánum tengslum
viö þjóðmálabaráttu fyrri ára
og eiga sér hliðstæður i starf-
semi skoðanabræðra viöa um
heim. Frelsishreyfingar al-
þýðunnar hafa alls staðar orðið
að takast á við spillta ráðastétt.
A Islandi tengist sú barátta
þeim hugsjónum sem ætiö hafa
verið skærasta leiðarljós ís-
lenskrar vinstrihreyfingar:
Hugsjónum um þjóöfrelsi,
manngildi og jöfnuö.