Þjóðviljinn - 01.06.1976, Page 8
8 StÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 1. júni 1976.
Fiskeldi í sjó í stað
stóriðjuframkvæmda
A sama tima og framámenn á
tslandi ásamt svokölluöum sér-
fræöingum, er þeir styöjast viö i
tillögugerö sinni, telja aö sjávar-
útvegur hér á landi sé aö þrotum
kominn sem framtiöaratvinnu-
vegur og beri þvi aö leita aö betri
möguleikum svo sem stóriöju, þá
vilja aörar þjóöir losna frá henni.
Þaö er fróölegt aö rifja þaö upp i
þessu sambandi, hvert japanir
ráöstafa nú fjármagni sinu I vax-
andi mæli, og mun ég koma aö þvi
siöar. Viö eigum ennþá algjörlega
ómengaöan strandsjó viösvegar
viö landiö, en einmitt þetta mun á
næstu árum veröa taliö til ríki-
dæmis þjóöa, er búa viö slik skil-
yröi. Þó islenskir landsfeöur séu
ekki farnir aö skilja þennan sann-
leika ennþá.þávita þaönú flestir,
sem vilja vita, aö framleiösla
eggjahvituauöugrar fæöu úr
dýrarikinu kallar á fjármagn i
framkvæmdir. Þetta er vegna
hinnar miklu vöntunar þessara
fæöutegunda i heiminum. Gott
dæmi umþetta fyrir Islenska
framámenn og ráögjafa er, aö
hinn ameriski alþjóöaauöhringur,
sem rikisstjómin taldi vera orö-
inn félaga sinn i járnblendi
ævintýrinu á Grundartanga vill
nú losna frá þeirri fjárfestingu,
en er þess i staö ákveðinn I aö
leggja fram fjármagn til togara-
útgeröar á Indlandi.
Samkvæmt erlendum fréttum,
þá ætla fjármálasérfræöingar
hringsinsnú aö slyrkja Indlands-
deild Union Carbide á þann hátt
aö stofna þar til smiöi 7 togara og
siöan togaraútgerðar. Fram-
kvæmdir eru sagðar að hefjast
þar suður frá, á sama tima og
hringurinn er annaðhvort búinn
aö kippa að sér hendinni viövikj-
andi járnblendiframleiðslu hér,
eöa mun mun aö likindum gera
þaðá næstunni. Það er eftil vill til
of mikils mælst, aö fjármálaráð-
gjafar rikisvaldsins á íslandi átti
sig á þvi sem hér er að gerast,
sem er einfaldlega það, aö fjár-
magn heimsins mun á næstu tim-
um leita i auknum mæli i' mat-
vælaframleiðslu, sérstaklega
próteinauöugrar fæöu.
Nú þegar viö vitum, að þorsk-
og ýsustofnar okkar eru i lægö,
svo þörf er á aö styrkja þá meö
öllum tiltækum ráðum, svo aö
þeir nái sem fyrst góöri nýtingar
stærö, þá eru það ekki rétt viö-
brögö viö vandanum aö ætla hér
að hlaupa ýfir i stóriðju til að
rétta viö fjárhaginn og stofna I
þvi sambandi til tuga miljaröa
skulda i stofnkostnaöi vegna
vafasamrar framleiöslu mark-
aöslega séö, eins og stefnt er aö
meö Grundartangaævintýrinu. í
þess staö þarf aö beina útgeröar-
sókn okkar aö öörum fiskistofn-
um á meöan máliö stendur þann-
igoghlifa i bili þeim fiskstofnum,
sem ofveiddir eru. Þetta er allur
vandinn.
En viö þurfum aö gera meira
vegna framtiöarinnar.
Þaö liggur beinast viö, þegar
málin eru athuguö frá atvinnu-
legu og fjárhagslegu sjónarmiöi,
aö hugurinn beinist aö þeim
miklu möguleikum til fiskeldis i
sjó, sem strandsjór Islands i
fjöröum og flóum býöur upp á. Ég
fullyröi, aö einmitt hér séu auð-
æfi ómetanleg til verös, sem biöa
framkvæmda nútimans og fram-
tiöarinnar. Hættan er aöeins sú,
að þessum skilyröum veröi spillt
með vanhugsuöum framkvæmd-
um, sökum fáfræöi.
Fiskeldi gæti oröiö risavaxinn
atvinnuvegur á lslandi, ef stofnaö
væri til hans i stórum stil og fjár-
magn fengiö til þeirra fram-
kvæmda. Stórrekstur japana á
sviöi fiskeldis sýnir, hvaöhægt er
aö gera á þessu sviði. Viö eigum
mikiö af ónotuöum jaröhita
skammt frá sjó, ásamt ódýru
hráefni i fiskafóður, en meö
þessari upptalningu eru skilyröin
fengin. Ég sagöi hér aö framan,
aö fróðlegt væri aö rif ja upp hvaö
stærsta fiskveiöiþjóö heimsins er
aö gera á sviöum fiskveiöa og
fiskeidis. Nú blasir þaö viö jap-
önum, þegar 200 milna lögsagan
verður samþykkt, aö starfsvett-
vangur þeirra á hafinu þrengist!
Þannig hafa þeir gert áætlun um
aö úthafsveiöar þeirra minnki
strax á fyrsta ári um 80 þús tonn
En þeir hugsa sér samt aö halda
velli á sviöi fiskframleiðslu og
ekki einungis aö halda velli held-
ur beinlinis aö auka fiskafla sinn i
gegnum stóraukiö fiskeldi i sjó.
En þar standa þeir allra þjóöa
fremstir. Og áætlanir japana nú á
þessu sviöi eru engar óraunhæfar
draumaborgir, heldur visindaleg-
ir útreikningar byggöir á bláköld-
um staðreyndum og reynslu, sem
ekki lætur aö sér hæða á þessu
sviöi. Siöan heimsstyrjöldinni
lauk hefur Japan aukiö fram-
leiðslu sina á eldisfiski meira en
nokkur önnur þjóö i heimi, sem
vitað er umKinverjar standa lika
framarlega i fiskeldi, en ég hef
ekki handbærar tölur þaöan.
Japanir settu fyrst upp 5 ára
áætlun um fiskveiðar og fiskeldi
1971—1975, en áöur voru þeir
búnir aö vinna aö fiskeldismálum
meö risaskrefum eftir styrjaldar-
lok og fram aö þeim tima. Þannig
segir frá þvi I opinberum
japönskum heimildum, aö fiskafli
japana frá fiskeldi hafi veriö áriö
1973 I kringum 790 þús. tonn. 1
annarri 5 ára áætlun japana, sem
nú er hafin, er gert ráö fyrir , aö
fiskafli frá fiskeldi komist upp 11
miljón og 200 þús. tonn. En allur
tiskafli japana er i kringum 11
miljón tonn. Sem dæmi má nefna,
aö framleiösla á einni tegund tún-
fisks I eldisbúrum óx i gegnum
fyrri 5 ára áætlunina úr 36 þús.
tonnum i 88 þús. tonn. Þá hefur
framleiösla á hörpudiski vaxiö
mikiö vegna ræktunar nú á siöari
árum; eöa úr 5 þús. tonnum áriö
1970 I 39 þús. tonn áriö 1973. Eins
og ég sagöi hér aö framan, þá
standa japanir allra þjóöa
fremstir ieldi á bæöi vatnafiskum
og sjávarfiskum og visa þar öör-
um þjóöum veginn, sem hægt er
aö fara i þeim efnum, sé mann-
dómur og þekking til þess fyrir
hendi.
Vegna þessarar miklu þekking-
ar japana á þessu sviöi, og langr-
ar reynslu, sem er gömul eins og
fleiri austurlandaþjóða, þá hafa
nú Sovitrikin nýlega gert samn-
ing viö japani um sameiginlega
risavaxna framleiöslu á laxi i
eldisbúrum. Þetta mætti vera
ábending til okkar islendinga um
hvaöhægt er aögera á þessu sviöi
fiskeldis, þvi aö hér liggja tvi-
mælalaust framtlðarmöguleikar
okkar islendinga samhliöa fisk
veiöum á miöum okkar á land-
grunninu. En þetta gerist ekki af
sjálfu sér. heldur fyrir atbeina
manndóms og þekkingar. Og
þekkingarinnar er hægt aö afla
með þvi aö sækja hana til þeirra
þjóöa, sem hafa hana á valdi sinu.
I staö þess aö betla til útlendinga
um aö setja hér á stofn stóriöju á
sviöi málmiönaöar og efna-
vinnslu úr innfluttum hráefnum
meö þvi aö bjóöa fram ódýrt raf-
magn, þá eigum viö aö fullnýta
íslensk hráefni til iönaöarfram-
leiöslu. Landbúnaöinn eigum viö
aögrundvalla i framtlðinni á inn-
lendri fóðuröflun nær eingöngu,
þvi aö til þess eru möguleikar ef
viö notum þá. En framtiöargjald-
eyrisframleiösla okkar byggist
eins og áöur á sjávarútvegi sem
reka verður með skynsemi
þannig, aö ekki veröi of nærri
stofnunum gegniö. Hér veröum
viö aö sækja fyrirmyndina til
reynslu bændanna, sem nytjuðu
strandjarðir gegnum aldir eftir
ákveönum reglum, þannig aö
hlunnindi jaröanna I bæöi eggjum
og fuglatekju héldust jöfn. Þar
var þess gætt, aö stofnarnir sem
gáfu af sér jaröarhlunnindin,
væru ekki skertir. Og þeir menn,
sem ekki virtuþessi lögmál, voru
riefndir búskussar og dæmdir til
aö flosna upp.
Sjávarútvegur hefur nú um
langt árabil staöiö undir fjöl-
þættum framförum hér á landi.
Hann hefur veriö okkar aöal
gjaldeyrisgjafi og til hans hafa
aðrir atvinnuvegir sótt lffs-
næringu. Viö hliö þessa þýöingar-
mikla atvinnuvegar þurfum viö
nú að stofna til fiskeldis og gera
um þaö áætlun sem unniö yröi eft-
ir á næstu árum og áratugum.
Eins ogég bendi á hér aö framan,
þá höfum viö skilyröi til þessa, ef
viö spillum þeim ekki meö öörum
vanhugsuöum framkvæmdum.
Upphrópanir allskonar skóla-
spekinga, sem eru slitnir úr
tengslum viö sjálft lifiö og mögu-
leikana i þessu landi, um aö
sjávarútvegur geti ekki tekiö viö
neinni fólksfjölgun i framtiöinni
fiskimál
^eftir Jóhann J. E. Kúld^,
og séö henni farboða meö at
vinnu, eru rangar og byggöar á
vanþekkingu þessara manna.
Þegar viö höfum öölast réttinn til
allra fiskveiða á 200 milna belti
umhverfis landið og komiö fisk-
stofnum okkar I hæfilegar nýt-
ingarstæröir, þá mun reynslan
veröa sú, að okkur skorti frekar
fólk til þessara starfa. Og ef fisk-
eldi veröur hér grundvallaö og
byggt upp á sama tíma, sem þörf
er á aö gera, þá gæti þaö undir-
byggt þá gjaldeyrisaukningu sem
okkur vanhagar um nú. Fisk-
veiöar á miöunum umhverfis
landið og eldi dýrra fisktegunda
svo sem á laxi og fleiri tegundum
eiga algjöra samleiö. Ráöamenn
á tslandi viröast hvorki hafa
komiö auga á þessa möguleika né
fylgjast meö þvi sem aðrar þjóðir
eru aö reyna aö framkvæma á
þessu sviöi viö aöstæöur sem eru
á ýmsan háttlakari en hér. Eftir-
spurn eftir eldislaxi er nú meiri
en nokkru sinni áöur og veröiö er
oröiö mjög hátt. Þannig skýröi
norrska blaöiö Fiskaren frá þvi
nýlega aö verö á eldislaxi væri frá
21 n.kr. og upp i n.kr 40 fyrir kg;
eöa I islenskum peningum sam-
kvæmt gengi kr. 687,75—1310.00
fyrir kg. eftir fiskstærö. Sama
biaö lét þaö fylgja fréttinni um
veröiö, að norömenn gætu ekki
fullnægt þeirri eftirspurn, sem nú
væri eftir eldislaxi. Þaö er af
þessum sökum sem norömenn
eru nú farnir aö leggja áherslu á
eidi á laxi og urriða og gera ráö
fyrir aö geta komiö þessari fram-
leiöslu nú i ár upp i 2000 tonn af
urriöa og 1500 tonn af laxi. Nú i
maimánuöi átti aö halda alþjóöa-
ráöstefnu um fiskeldi á vegum
F.A.O. i Japan. En hvort nokkur
hefur veriö þar mættur sem full-
trúi Islands veit ég ekki, en þykir
þó ótrúlegt.
24.5. 1976.
Klappað í
fyrsta sinn í
Borgarneskirkju
— þegar Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar hélt þar lokatónleika
Frá fréttaritara Þjóöviljans i
Borgarnesi, Jenna R. ólafssyni:
Mánudaginn 24. þ.m. var
Tónlistarskóla Borgarfjaröar
slitiö meö nemendatónleikum i
Borgarneskirkju.
Um leið var tekinn í notkun nýr
flygill, sem Kirkjukór Borgar-
ness hefur fest kaup á. Fjöldi
aðila, stofanir, félög, fyrirtæki og
einstaklingar hafa lagt þvi máli
lið og voru þeim öllum færöar
þakkir viö þetta tækifæri.
I byrjun samkomunnar sungu
Kirkjukór Borgarness og
Eyvindur Asmundsson tvö lög.
Svo hátt, svo hátt, eftir Björn
Jakobsson, og Ave Maria eftir
Sigvalda Kaldalóns.
Kennari Tónlistarskólans i
Borgarnesi, Guöjón Pálsson, lék
„Kveöju til pianósins” eftir
Beethoven, og siöan léku 24
nemendur skólans, allt stúlkur,
hver á fætur annarri á hiö nýja
hljóöfæri.
Friöjón Sveinbjörnsson, spari-
sjóösstjóri, og Ásgeir Pétursson,
sýslumaöur, ávörpuöu sam-
komuna og færöu bæöi fram
þakkir og árnaöaróskir.
Jón Þ. Bjömsson, skólastjóri
Tónlistarskólans, ávarpaði einnig
bæöi kennara, nemendur og gesti,
og sleit siöan skólanum i lok sam-
komunnar.
Skólinn starfar á fjórum
stööum I héraöinu. 1 Borgarnesi,
aö Varmalandi, aö Kleppjárns-
reykjum og aö Leirá.
Skólastjóri er einsog áöur sagöi
Jón Þ. Björnsson, Borgarnesi, og
kennarar Guöjón Pálsson,
Borgarnesi, Sverrir Guömunds-
son, Hvammi, Oddný Þorkeis-
dóttir, Borgamesi, Pétur Jóns-
son, Hellum.
Þess má aö lokum geta aö nú
var i fyrsta sinn klappaö viö opin-
bert samkomuhald i Borgarnes-
kirkju. Þessi nýbreytni virtist
falia fólki vel i geö eftir aö baö
haföi fengiö tima til aö átta sig, og
undir lokin var hinu unga tón-
listarfólki óspart klappaö lof i
lófa.
Jenni R. ólafsson.
Borgarnes, séö af Miönesi.
Hreppsnefnd Borgarneshrepps:
Átök um landhelgisályktun
Frá fréttaritara Þjóöviljans i
Borgarnesi, Jenna R. ólafssyni:
,,A fundi I Hreppsnefnd Borgar-
neshrepps, sem haldinn var miö-
vikudaginn 19. mal s.l. var sam-
þykkt samskonar tillaga
varöandi landhelgis- og her-
stöövamál og hornfiröingar sam-
þykktu nýveriö, en þar var gert
ráö fyrir aö loka þegar I staö her-
stöövum Nato á Islandi.
Tillagan var samþykkt meö
fimm atkvæöum gegn tveim.
Fulltrúar , ,Sjálfstæöisflokksins ’ ’
greiddu atkvæöi á móti, og kváöu
sig engu skipta hvaöa vitleysur
flokksbræöur þeirra á Hornafiröi
heföu gert I þessu efni.
Tveir af fulltrúum Fram-
sóknarflokksins, Brynhildur
Benediktsdóttir og Jón Eggerts-
son, vildu ganga enn lengra en
áðurgreindtillaga gerir ráö fyrir.
Þau lögöu fram tillögu, sem geröi
ráö fyrir aö sendiherra okkar hjá
Nató yröi kallaöur heim, og fram
hefur komiö hjá þeim, aö helst
heföu þau kosiö aö gera I til-
lögunni ráö fyrir úrsögn Islands
úr Nató. Þannig geröu þau hins-
vegar ráö fyrir aö erfiöara yröi aö
fá tillöguna samþykkta.
Þaö kom lika I ljós aö grunurinn
um þaö var á rökum reistur, þvi
nú var ýmsum sjáanlega nóg
boöið. Oddviti þeirra Fram-
sóknarmanna tók þann kost aö
sitja hjá viö atkvæöagreiöslu um
tillöguna, og kratanum I hrepps-
nefndinni rann nú svo blóöiö til
skyldunnar, aö hann gekk i liö
meö „Sjálfstæöismönnunum” og
féll tillagan þvl á jöfnum atkvæö-
um, þrem gegn þrem.
Óþarft er aö geta þess, aö full-
trúi Alþýöubandalagsins var aö
sjálfsögöu einn þeirra, sem tillög-
una studdi.”