Þjóðviljinn - 01.06.1976, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 01.06.1976, Qupperneq 9
Þriðjudagur 1. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Jafnræði í rúminu miklu mest hjá fólki undir þrítugsaldri Þegar rætt hefur verið um jafnrétti kynjanna hefur ein hlið þeirra mála oft orðið út undan — en hreint ekki sú sem minnstu skiptir. Hér er átt við jafn- réttið f rúminu. Með öðru forræði karla hefur fylgl sá réttur, sem skráður hefur verið á lagabækur og festst í sessi með aldagam- alli innrætingu, að karlar hafi rétt til samfara við konur sínar hvenær sem þeim best líkar. Það hefur i reynd skipt sýnu minna máli hvaðþærvildu sjálfar i þessum efnum: hve oft, hvenær. Eiginkonunni nauðgað hefur frumkvæði að kynmökum eöa eruð þaö þér? Svörin urðu á þessa leið: 41% sögðu það væri oftast maðurinn, aðeins 4% (og það mjög jafnt yfir aldursflokka) sögðu „oftast ég sjálf”, en 45% sögðu það væri svona ,,sitt á hvað”. í sambandi við þessa spurningu má eftir þvi taka, að hjá konum sem yngri eru en 30 ára er jafnréttið sem felst i oröinum „sitt á hvað” miklu meira en hjá öörum aldurs- flokkum. 75% svara einmitt á þann veginn, en 21% segja að karlinn sé oftast frumkvöðull, eða helmingi færri en meðaltalið. ,Þær vilja þetta" Næsta spurning laut að al- lengri hugmynd karla um að konur vilji gjarna að þær séu beittar harðneskju, ofsa, i rúminu. Otkoman er nokkuð angt frá þeirri hugmynd. Boðiö /ar upp á sex möguleika og skipt- ngin eftir prósentum var þessi: „Ég kann ekki vð það, ég kann ^etur viðbliðuhót” —57%. „Bliða ig ofstopi fara nokkuð saman hjá <örlum” 31% „Þetta er dæmigerð tcarlmannaskoðun” 16% „Svoleiðis mundi spilla allri minni ánægju af samförum” 16% „Þetta finnst mér mjög íynæsandi” 6% „Veit ekki” 8% Fimmtungi nauögað En þá er komið að sjálfu Dfbeldinu. Spurt var að þvi, hvort það hefði komiö fyrir i hjóna- oandinu, að konurnar heföu með valdi verið neyddar til samfara. Heildarútkoman var sú að 18% kvenna, eöa næstum þvi fimmta iver, svöruöu þessari spurningu játandi, en 82% neitandi. Minnst var um nauðganir meöal peirra sem þritugar eru eða yngri (9%). En mest meöal kvenna á aldrinum 40-49 ára (20%) og að þvi er varðar skiptingu eftir landshlutum, þá kvörtuðu flestar konur úr þvi kaþólska landi Bayern yfir ofbeldi karla sinna (27%) Siöan voru þær konur sem kváðust hafa orðið fyrir þessari reynslu spurðar sérstaklega Fyrri spurningin laut að þvi hvernig þetta ofbeldi hefði farið fram.Hver og 'ein gat gefið fleira en eitt svar, en útkoman hér á eftir er i prósentum: Ég læt það gerast vegna þess að annars verður hann svo fúll lengi á eftir — 52% Ég segist ekki vilja það, en hann hlustar ekki heldur steypir sér yfir mig — 33% Hann hélt mér gegn vilja minum svo að ég gat ekki hreyft mig 19% Ég er hrædd og læt undan af þvi ég þori ekki að andmæla honum 19% Hann br.rði mig 3% Hann var fullur I annan stað voru konurnar spurðar að þvi, af hvaða ástæðu þær hafi neitað mönnum sinum, sem siöan neyddu þær til eftir- lætis. Eins og i siðasta tilfelli voru fleiri svör en eitt möguleg af hálfu sömu konu, en svörin eru sem fyrr i prósentum: Ég var illa fyrir kölluð andlega 55% Likamleg vanliðan 43% Hann var drukkinn 28% Ég var hrædd við að verða ólétt 16% Ég var á túr 14%. Maðurinn minn vill það of oft 14% Ég elska hann ekki 12% Þetta var i umhverfi eöa á tima sem mér féllu ekki 12% Hann heimtaöi stellingu sem ég vildi ekki 5% Mér þykir vænt um manninn minn. en samfarir okkar eru ekki góðar 2% En sem fyrr segir:Margt er að breytast i þessum efnum, og meðal yngra fólks er miklu sterk- ara en áður það viðhorf beggja kynja að einkamálin skuli leyst með gagnkvæmu samþykki fyrst og fremst. (byggt á Stern) „Til þess eru þær" Jafnt kirkjuhöfðingjar sem I hverju eru skyldur eiginkonu fóignar? Skyldur og frumkvæði Hér skal til fróðleiks rakiö nokkuðaf þeim svörum sem fram komu. Fyrsta spurning hljóöaði svo: Spurt er um svonefndar hjóna- bandsskyldur. Finnst yður að þafi tilheyri blátt áfram hjónabandinu að konan sé kynferðislega til ráð- stöfunar manni sinum hvenær sem hann vill, eða teljíð þér afi svo sé ekki? Það kom á daginn að aöeins 22% giftra kvenna töldu þessar skyldur sjálfsagðan hluta af hjónabandi, en 66% töldu að svo væri ekki. 12% gátu ekki gert upp huga sinn i þessu máli. Tiltölu- lega flestar þeirra kvenna sem viðurkenndu skylduna féllu undir eldri aldursflokka, kaþólska trú og verklýðsstétt. Þetta hlutverk lækkaði eftir þvi sem konurnar voru yngri og menntaðri. Næsta spurning var þessi: Ei það oftast maðurinn yðar sem Mun þeirra kynslóð leysa vandann i sátt og samlyndi? lagabækur buöu konum að „gegna eiginkonuskyldum sinum”, m.ö.o. vera til alls búnar hvenær sem karlar þeirra fá áhuga. Marteinn karlinn Lúther hvatti menn t.d. til þess að barna konur sinar sem oftast og kvað það einu gilda, hvort sifelldar óléttur yrðu þeim til bana eða ekki; „til þess eru þær,” sagði þessi höfundur þjóðkirkju okkar. En jafnréttishreyfing nútimans er einnig farin að gefa gaum að þessum málum — viðhorfin eru aö breytast, og þá hinn kynferðis- legi veruleiki lika, þótt sjálfsagt gangi þaö miklu hægar en menn helst vildu. Það kom til dæmis fram við nýlega könnun sem þýska vikublaðið Stern lét fram fara, aö tvær af hverjum þrem giftum þýskum konum telja „eiginkonuskylduna” (m.ö.o. —„ávallt tilbúin”) úrelta. Og svo er komið að um það bil fimmta hver hafði veitt mótspyrnu ásókn eiginmanns sins og orðið fyrir nauðgun af þeirra hálfu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.