Þjóðviljinn - 01.06.1976, Side 11

Þjóðviljinn - 01.06.1976, Side 11
Þriðjudagur 1. júnl 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA II Teitur af- greiddi framarana hann skoraði bæði mörk ÍA-liðsins Skagamenn sóttu tvö stig til Reykjavikur I gærkveldi er þeir sigruðu Fram 2:1 I skemmti- legum og oft á tiöum velleiknum leik á Laugardalsvellinum. Það var iandsiiðsmiöframher jinn Teitur Þóröarson, sem afgreiddi framarana fyrir ÍA, hann skoraði bæði mörk skagamanna og hann var langbesti framllnumaður 1A i þessum leik, óhemju duglegur og alltaf stór hættullegur uppviö markið. Þessi sigur skagamanna var fyllilega sanngjarn, heföi vel getað veriö stærri miöaö viö marktækifæri, en gangur leiksins var nokkuð jafn I fyrri hálfleik, en I þeim siöari náöu skagamenn mun betri tökum á leiknum og sóttu meira og áttu nokkur mjög góö marktækifæri, til aö mynda skot i þverslá og niöur á mark- linu. Mark sögöu sumir, en slappur dómari Valur Bene- diktsson dæmdi það ekki. Mörkin 17 min. Arni Sveinsson gaf stungubolta inná Teit Þórðarson sem skoraöi meö glæsilegu skoti. 18 min. Jón Pétursson jafnaöi 1:1 með skalla eftir aukaspyrnu sem Eggert Steingrimsson fram- kvæmdi. 80 min. Karl Þóröarson sendi góöan bolta inná Teit sem skaut en Árni varöi en missti boltann og Teitur sem fylgdi vel eftir skoraöi 2:1. Þeir Jón Gunnlaugsson, Teitur og Karl Þóröarson áttu bestan leik hjá 1A en Asgeir Guömundsson hjá Fram. Þaö háir Fram ennþá hve bitlaus framlina liösins er, en vörnin er mjög traust. —S.dór Staðan Valur 4 3 1 0 10:3 5 ÍA 3 2 1 0 3:1 5 KR 4 1 3 1 6:3 5 ÍBK 4 2 0 2 8:5 4 Vikingur 2 1 0 1 2:2 3 Fram 4 1 1 2 3:5 3 UBK 2 0 1 1 2:4 1 FH 2 0 1 1 1:6 1 Þróttur 3 0 0 3 2:7 0 Þorsteinn ólafsson markvöröur ÍBK bjargar þarna á siðustu stundu, stekkur hærra en allir hinir. Það er Magnús Bergs sem að honum sækir.(Ljósm. S.dór.) íslenskur sigur yfir færeyingum í badminton tslendingar sigruöu færeyinga 4:1 I landskeppni i badminton, sem fram fór I Færeyjum um siöustu helgi. Eini leikurinn sem islendingar töpuðu var I tviliöa- leik, þar sem þeir Steinar Peter- sen og Haraldur Korneliusson töpuðu mjög óvænt. Daginn eftir landskeppnina tóku islensku badmintonmennirn ir þátt I opnu móti i Þórshöfn, og þar sigraði Siguröur Haraidsson i einliðaleik, sigraði Friðleif Stefánsson i úrslitum og þeir Steinar og Haraldur sigruðu i tviiiðaleiknum. Móttökur allar hjá færeyingum voru meö eindæmum góðar að sögn Rafns Viggóssonar, sem var I fararstjórn hópsins. Atti hann varla orð til að lýsa hrifningu sinni á móttökunum og sagði hann ab kepp keppnin hefði fariö hið besta fram. —S. dór. Tvönýheimsmet hjá a-þýsku stúlkunum í frjálsíþróttum Þaö er greinilegt aö a-þýsku stúlkurnar i frjálsiþróttum hafa aldrei veriö betri en um þessar Þórsarar heppnir gegn Völs- ungum Þór frá Akureyri sneri heim frá Húsavik meö tvö stig um helgina eftir 1—0 sigur yfir völsungum. Eina markiö skoraöi Óskar Gunnarsson á 5. min. leiksins. Ef eitthvaö var, voru þaö hús- vlkingar sem voru betri aöilinn og áttu öllu fleiri tækifæri, sem ekki nýttust þó. mundir. Þær hafa nú á skömmum tlma sett 4 ný heimsmet, tvö þau siöustu voru sett á móti i Karl-Marxstadt um siöustu helgi. Marianne Adam bætti eigiö met I kúluvarpi, kastaöi 21.67 m. en eldra met hennar var 21.30 m. Þá setti a-þýska stúlknasveitin I 4xl00m. boöhlaupi nýtt met, hljóp á 42.50 sek. Þá náöi Christiane Stoll besta tima sem náöst hefur I 1500 m. hlaupi kvenna i ár 4:05,9 min. Mörg önnur ágæt afrek voru unnin á þessu móti. Hlaupa- drottningin Renata Stecher hljóp 200 m. á 22,71 sek. svo dæmi sé nefnt. Keflvíkingar áttu aldrei möguleika gegn velleikandi valsmönnum sem sigruðu 2:0 „Viö náöum upp baráttunni i liðinu, sem ekki var til staðar þegar við gerðum jafnteflið við KR, unnum orustuna um miðjuna og þess vegna sigruðum við” sagði hinn ungi frábæri knatt- spyrnumaður úr Val, Guðmundur Þorbjörnsson,eftir 2:0 sigur Vals yfir tBK á sunnudagskvöldið, en hann og Hermann Gunnarsson sáu um mörkin fyrir Val eins og i undanförnum leikjum. Þessi sig- ur Vals var sist of stór, hann hefði allt eins getað oröiö upp á ein 4—5 mörk, svo miklir voru yfirburöir valsmanna. Keflavikingarnir voru hreinlega yfirspilaöir, þeir voru óöruggir i vöminni, náðu aldrei tökum á miðjunni og þess vegna fengu framlinumennirnir litiðsem ekkert aö vinna úr. Þaö er oröib langt siðan að maður hefur séð hið leikreynda lið tBK svona grátt leikiö. 66. mln. Guömundur Þor- björnsson fékk stungubolta fram miöjuna, hann stakk varnarmenn IBK af og átti auövelt meö aö skora framhjá Þorsteini Ólafssyni sem var kominn of langt útúr markinu, 1:0. 70. mln. Guöni Kjartansson var of seinn aö losa sig viö boltann. Hermann Gunnarsson náöi hon- um af Guöna og skaut háum snúningsbolta yfir Þorstein sem kom út á móti Hermanni. Bolt inn skrufaöist niöur i markiö rétt Framhald á bls. 14. Evrópukeppni unglingalandsliða: Tvö markalaus jafn- tefli hjá U-liðinu íslenska liðið á möguleika á að komast í 8 liða úrslit Islenska unglingalandsliöiö stendur sig vel I 16 liöa úrslitum Evrópukeppni U-landsliöa sem fram fer I Ungverjalandi. Liöiö hefur leikiö tvo leiki og gert jafn- tefli 0:0 i þeim báöum, gegn Sviss og Tyrklandi. Sigri islendingar spánverja i siöasta leiknum komast þeir áfram i 8 liöa úrslit. tsland er i B-riöli og er staöan þar þannig, aö spánverjar hafa 3 stig eftir 2 leiki, þeir geröu jafntefli0:0 viö svisslendinga, Islendingar og svisslendingar hafa 2 stig og tyrkir 1 stig. Þaö veröur þvi leikur tslands og Spánar sem sker úr um hvort liöiö fer áfram. Aö visu gætu sviss- lendingar blandaö sér i þá bar- áttu ef þeir sigra tyrki, en þar sem markatala ræöur standa islendingar betur aö vigi. 1 A-riöli er staöan þannig: Ung- verjar 4 stig, italir 2st. Wales 2 st. júgóslavar 0 st. I C-riöli er staöan þannig: Frakkland 4 st. Tékk- oslóvakla ,2, V-Þýskaland 2, Finnland 0 st. og i D-riöli er staöan þannig: Sovétrikin 4 st. Holland 2 st. Danmörk 2 st. N.-trland 0 st.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.