Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 5
Laugardagur 5. júní 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 5 Að venju býður Landsýn ferðir til höfuðborga Norð- urlanda vikulega. Prátt fyr- ir vaxandi dýrtíð þar ligg- ur straumurinn stöðugt þangað. Við höfum að- stöðu til að bjóða sumar- hús í öllum löndunum og margs konar aðra þjónustu. Höfum viðskiptaskrifstof- ur í flestum borgum Norð- urlanda, sem leysa úr vanda ferðamannsins ef einhver er, útvegum járn- brautar- og ferjufarmiða. Útvegum einnig hótel og pension víða.. Lítið inn til okkar og kynn- ið ykkur viðskiptakjör áð- en þið leitið annað. LANDSÝN ALÞÝÐUORLOF SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SlMI 28899 BÍL stefnir á listdreifingarmiðstöð: Minnir á heiður og hressir upp á fjárhag Stjórn Bandalags islenskra listamanna hefur ákveðið að gefa út minnispeninga i tiiefni af bók- mennta — og tónlistarverðlaun- um Norðurlandaráðs 1976 til handa Ólafi Jóhanni Sigurðssyni og Atla Heimi Sveinssyni. Með þessu er minnt á þann heiður sem þeir hafa fært þjóð sinni — og um leið vill Bandalagið með útgáfu- unni afla sér nokkurs fjár til efl- ingar starfseminni. j. Frá þessu var skýrf á blaða- mannafundi i gær með Thor Vil- hjálmssyni forseta BIL og full- trúum aðildarfélaga, BIL hafði sótt um miljón króna rikisstyrk til að efla starfsemi sina, en þeirri beiðni var synjað. Fær Bandalagið 175 þús. kr. sem fyrr, og hefur þar að auki haft 400 króna gjald af hverjum hinna ca 600 meðlima. BIL vill með rýmri fjárhag stefna að þvi að koma á fót list- dreifingarmiðstöð. Hún ætti fyrst og fremst að vera þjónustufyrir- tæki, sem gæti boðið upp á ýmis- lega listræna fyrirgreiðslu og orð- ið við beiðnum frá aðilum úti á landi i þá veru. Kannski vildi eitt pláss fá leikara til að setja á svið og leika með heimamönnum, annað vildi fá listmálara til að dvelja i plássinu um skeið, mála og leiðbeina áhugafólki og svo mætti lengi telja. Við viljum hins- vegar ekki, sagði Thor, að slik stofnun stundi einhverskonar nauðung með þvi að láta detta yf- ir landsbyggðina menn og dag- skrár sem enginn kærir sig um. Þetta gæti semsagt verið þjón- ustu — og samræmingarstofnun þar sem beint samband milli listamanna og viðtakenda kæmist á og vissu allir betur um þarfir og hugðarefni hinna. Hún gæti m.a. unnið gegn þeirri mismunun sem i reynd hefur orðið á „list um landið”, þegar sumir staðir eru ofmettaðir en aðrir vannærðir. Þegar slikri miðstöð yxi fiskur um hrygg gæti hún einnig útvegað menn frá öðrum löndum og greitt fyrir isenskri list erlendis. BIL — menn töldu það opinbera kerfi sem hingað til hefur verið i gangi óheppileg, („List um landið” ofl.) — Það væri heppilegast að losa embættismenn, sem sjálf- sagt hefðu öðrum hnöppum að hneppa við áhyggjur af listum. Listamannaþing Þá er það af BIL að segja, að mánudaginn 7. júni efnir það til Listamannaþings, umræðufundar á Kjarvalsstöðum fyrir meðlimi sina, og hefst hann kl. 16. Um- ræðuefnið er „Til hvers er Listahátíð” (Hannes Daviðsson, Halldór Haraldsson, Þorkell Sigurbjörnsson og Sigurður Sverrir Pálsson reifa málið). Fn þess skal getiö, að listahátið nú hefði ekki verið haldin nema fyrir ýtni listamanna, sem #^0NA%, TÓNUST BÓKMENNTIR komu til móts við fjárhagsvand- ræðin og ákváðu m.a. að gefa vinnu islenskra listamanna til hátiðarinnar. En, nota bene, að- eins þetta eina sinn. Peningarnir Peningur sá sem áðan var minnst á er i gulli, silfri og bronsi. Slegnir verða 40 gullpeningar (verð 50 þús) 300 silfurpeningar (12 þús kr) og 400 bronspeningar (500 kr.). Hver peningur er tölu- settur. Snorri Sveinn Friðriksson hefur hannað þessa útgáfu, sem framleidd er af ts-spor. Forsala er hafin og fer fram i Gimli við Lækjargötu, en minnispeningarn- ir verða tilbúnir til afgreiðslu seinna i mánuðinum. Sjoh'u sinnum iviku Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust. En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost. Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og 3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar, Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á íslandi. 500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum okkar í 30 stórborgum erlendis. Hlutverk þess er að greiða götu þina erlendis. Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni, þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur framhaldið i samvinnu við flest flugfélög heims, sem stunda reglubundið flug, og fjölda hótela. Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi- legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo mætti verða. FLUCFtLAC LOFTLEIBIR ISLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.