Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 5. júní 1976. Einhamar hf. og skipulag Breiðholts III rœtt í borgarstjórn „Alvarlegra mál en svo að skamm tímahagsmunir fái að ráða Svo sem skýrt v ar frá á forsiöu Þjóðviljans i gaer fóru fram miklar umræður I borgarstjórn Reykjavikur I fyrradag vegna áiyktunar frá borgarráði sama dag þess efnis að aflétt skyldi þeirri kvöð borgaryfirvalda að skylda byggingarverktaka I Breiðholti III til að halda sig við ákveðið lágmark Ibúða stærri en fjögurra herbergja. Sóðu Stóðu umræöur um þetta tiltekna mál á þriðju klukkustund, en i lok um- ræðunnar lagði Ólafur B. Thors fram eftirfarandi tiilögu: Vegna Ibúðaskiptingar fjöl- býlishúsa I austurhluta norður- deildar I Breiöholti III, sbr. ákvæöi 1.1.12. A i skilmálum, ályktar borgarstjórn, aö fjöldi ibúöa stærri en 4ra herbergja skuli aldrei vera lægri en 12.5%. Var tillaga forseta borgar- stjórnar samþykkt meö 10 atkvæöum gegn fimm, aö viö- 'iöfðu nafnakalli sem Kristján Benediktsson fór fram á. Atvkæðagreiðsla 10:5 Já sögöu: Markús örn Antons- son, Ólafur B. Thors, Margrét Einarsdóttir, Sigurjón Pétursson, Þorbjörn Broddason, Guðmunda Helgadóttir, Valgarö Briem, Guðmundur G. Þórarinsson, Guömundur Magnússon og Elin Pálmadóttir. Nei sögðu: Hilmar Guölaugsson, Birgir Isl. Gunnarsson. Davíö Oddsson, Kristján Benediktsson og Magnús L. Sveinsson. Aihyglisverter, aö aöeins fjórir af borgarstjórnarfulltrúum Sjálf- stæöisflokksins greiddu atkvæöi gegn tillögunni auk Framsóknar- mannsins Kristjáns Benedikts- sonar,Má þvi meö sanni segja aö viö afgreiöslu þessa máls hafi óvænt myndast nýr „borgar- stjórnarmeirihluti”, en hingaö til hefur ihaldiö alla jafna veriö þekkt aö þvi að standa saman sem ókleyfur veggur i borgar- stjórn, þegar þvi hefur þótt vegið að lögmálinu sæla um framboö og eftirspurn, sem þjóöfélagsgerð okkar er sögö byggja á. Við atkvæöagreiðsluna óskuðu borgarfulltrúar Alþýöubanda- lagsins eftir aö eftirfarandi yröi fært til bókar: „Breiðholt III er eitt þéttbýl- asta og þröngbýlasta hverfi borg- arinnar. Hlutfall stórra ibúöa (stærri en 4ra herb.) er nú lægra þar en i flestum öörum hverfum borg- arinnar. Þaö voru þvi rikar ástæður sem lágu til grundvallar þvi að I skipuiagsmálum fyrir umrætt svæöi væri taliö æskilegt aö hafa hlutfall ibúöa stærri en fjögurra herbergja 20%» Skipu- lagsnefnd hefur nú samþykkt aö ofangreint hlutfall skuli aldrei vera lægra 12.5% og er sú tillaga endurflutt sér. Viö teljum, aö meö þessari tillögu séu settar lágmarks- kröfur, sem ekki megi vikja frá. Viö vörum eindregiö viö þvi, aö stundarhagsmunir einstakra byggingarfélaga veröi látnir ráöa skipulagi, sem margar kynslóðir þurfa aöbúa viö. Viö styöjum þvl eindregiö tillögu skipulagsnefnd- ar, sem formaöur hennar hefur endurflutt hér. Borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson geröi svofellda grein fyrir atkvæöi sinu: Ég er sammála skipulagsnefnd um þann vanda, sem einhæf aldursdreifing hefur I för meö sér I nýjum hverfum. Ég er hins vegar ekki trúaöur á, aö samþykkt skipulagsnefndar þess efnis, aö ákveöinn hundraöshluti ibúöa eigi ófrávikjanlega aö vera 5 herbergja eöa stærri leysi þann vanda, sem leysa þarf, né þjóni þvi markmiöi, sem aö er stefnt. Ákvöröun skipuagsnefndar felur i sér þvingunarreglu fyrir alla lóöarhafa I hverfinu, sem byggja 3ja hæða hús. Slik þvingunarregla er nýmæli I skipulagi borgarinnar og tel ég að sterkari rök þurfi fram aö koma til aö ég treysti mér til.aö samþykkja hana. Forsaga málsins Forsaga þessa máls er sú, að á fundi 24. mai s.l. ályktaöi skipu- lagsnefnd borgarinnar samhljóöa, aö i staö þess aö óska eftir þvi viö byggingaraöila i Breiöholti III, að fjöldi stærri ibúða i fjölbýlishúsum i hverfinr skyldi miöast viö 20%, væri þeim sett sú kvöö aö 12.5% ibúöa I sambýlishúsunum væru stærri en fjögurra herbergja. Bygginga- fyrirtækið Einhamar ritaöi borgaryfirvöldum bréf af þessu tilefni, þar sem fyrirtækiö tilkynnti, aö þaö myndi hætta við smiði 63 ibúöa i hverfinu ef haldið yrföi fast viö ákvöröun skipulags- nefndar. Borgarráö fjallaöi um bréf þetta á fundi i fyrradag, þar sem meirihlutinn, Kristján Benediktsson, Ragnar Júliusson og Magnús L. Sveinsson, samþykkti bókun, sem gekk i ber- högg viö ályktun skipulags-nefnd- ar um tiltekinn lágmarksfjölda stærri ibúöa i áöurgreindum sambýlishúsum. Tveir borgar- ráösmenn greiddu atkvæöi gegn bókuninni, þeir Markús Orn Antonsson og Sigukón Pétursson. Þessi bókun borgarráðs var siöan til umræðu i borgarstjórn I gær og fékk þá afgreiöslu sem skýrt hefur veriö frá hér að framan. Umræðan Umræöan um þetta mál mun vera einhver sú málefnalegasta sem átt hefur sér staö um langt skeiö, en Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýöubandalags- ins, hóf sinn málflutning á þvi aö benda borgarstjóranum á, aö þarna væri um talsvert alvarlegt mál aö ræöa, þar sem borgar- stjórnarfulltrúar heföu á sinum höndum mikilvægt stjórnvald og gætu ráöiö þvi hvernig samsetn- ing Ibúa i hverfinu yröi á komandi áratugum. Hann benti á nauðsyn bess að reynt yröi aö koma á ákveönum stöðugleika, þegar ný 99 íbúöarhverfi væru skipulögö, litlar ibúöir af þvi tagi sem þarna væru byggðar löðuðu fremur aö hverfinu yngra fólk og efnalitiö, sem seinna yrði að flytja annaö, þegar efni og ástæöur breyttust. Þaö myndi aftur hafa i för meö sér stööugan óróleika i hverfinu og skapa vandamál af skipulags- legum og félagslegum toga, auk þess sem skólahald i hverfinu myndi mæta ófyrirsjáanlegum erfiöleikum ef ekki yröi búiö svo um hnúta aö fjölskyldur gætu stækkaö við sig og stööugleiki Ibúadreifingar innan hverfisins tryggður að þvi leyti sem hægt væri með nægilegri forsjá. Sigur- jón hvatti borgarstjórnarfulltrúa til að hefja sig upp af málfunda- og kappræöustiginu og taka á þessu máli af þeim alvarleik sem tilefninu hæföi. Ekki gefstrúm hér til að tiunda umræðuna I heild, þvi miður, svo málefnaleg og fjörug sem hún annars var. Lögöu margir borgarfulitrúa gott til mála i umræöunni, þótt skoöanir væru skiptar-, enda mótaöist ágreining- urinn aö þessu sinni ekki fyrst og fremst af flokkspólitik. Þeir Kristján Benediktsson og Dá ið Oddsson brugöu þi nokkuö á leik I umræöunni og voru grínagtugir, en Kristján var sá eini sem ekki gat sett sig úr færi að gerast nokkuö „klasiskur” i málflutn- ingi og brá hann fyrir sig útúr- snúningum og hártogunum af þvi tagi sem hagvanir stjórnmála- menn beita oft og kjósendur þeirra þekkja of vel. Lét Kristján Benediktsson að þvi liggja, aö Sigurjón Pétursson og aðrir samsinnungar hans i þessu máli ætluðu sér að flytja inn i Breið- holti III „nýja stétt roskinna auö- kýfinga” sem stæöu i húsnæöis- braski. Davið tók undir. Hlaut Kristján Benediktsson ákúrur annarra ræðumanna fyrir ábyrgöarlausan málflutning, en flestir aörir reyndu að færa fram haldgóð rök máli sinu til stuön- ings. Lögmálið helga um framboð og eftirspurn Magnús L. Sveinsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæöisflokksins, var sá eini sem minntist á þaö berum oröum, aö vegiö væri aö gróöa- hagsmunum ibúöaseljenda meö þvi aö setja þeim þá kvöö aö Framhald á bls. 18. Leitað að nýjum Fischer Æ siöan Bobby Fischer varð heimsmeistariiskákhér á landi sumariö 1972 hefur bandariska skákhreyfingin siíellt veriö á höttunum eftir ungum skák- mönnum, sem hugsanlega gætu oröið arftakar meistarans. Hvarvetna þar sem skákvið- buröir eiga sér stað, svo sem fjöltefli, opin skákmót o.fl., er fylgst meö mikilli athygh meö taflmennsku þeirra sem hvaö bestum árangri ná. Margir þessara pilta hafa ná umtals- veröum árangri, þótt engum hafi á neinn hátt tekist aö kom- astmeö tærnar þar sem Fischer hafbi hælana á þeirra aldri. Þegar Mark Diesen sigraöi i meistaraflokki Hastings-skák- mótsins um áramótin 73-74 var hann samstundis krýndur san nýr Fischer. Honum hefur þó engann veginn tekist að stað- festa þetta álit, þvi siðan hefur Elo-stigatala hans verið á hraöri niöurleiö. Sá sem bestum árangri hefur náð heitir Larry Cristiansen. Hann varð i öðru sæti á heimsmeistaramóti ungl- inga i fyrra, annar i meistara- flokki Bewerwijksskákmótsins i ár, og nýlega varö hann i ööru sæti i sterku skákmóti á Spáúi, fyrir ofan Guðmund Sigurjóns- son meðal annarra. Sextaii ára piltur Mike Rhode hefur vakið töluveröa athygli fyrir skemmtilega taflmennsku og góðan árangur. Á opna bandariska meistaramótinu i fyrra tefldi hann eftirfarandi skák sem haföi afgerandi áhrif á úrslit þess. Andstæðingur' hans er heimsþekktur stór- meistari: Hvftt: M. Rhode (Bandaríkin) Svart: W.Browne (Bandarikin) Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cx4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. g3 Fremur óalgengur leikur til að mæta Njardorf afbrigöinu. Júgóslavneski stórmeistarinn Matulovic haföi þennan leik i hávegum á sinum tima, eftir 6.5e7- Rde2 Be7 lék hann 8. Bg5 Rbd7 9. Bh3, sem miðar að þvi að ná tökum á - d5 punktinum t.d. 9.- 0-0 10. a4 h6 11. Bxf6 Rxf6 12. Bxc8 Hxc8 13. 0-Oogsvarturer negldur niöurá báöum vængjum. Þaö þurfti Fischer sjálfan til aö sýna fram á gallana i uppbyggingu hvits. I skák sinni gegn Matulovic, Vinkovci 1968, lék hann 9.- b5 -1 stað 9. - 0-0 - og framhaldið varö 10. a4 b4 J.1. Rd5 Rxd5 12. Dxd5 Hb8 13. Bxe7 Kxe7 14. Dd2 Rf6 15. Bg2 Bb7 16. Dd3 Db6 meö yfirburöarstööu fyrir svart.) 6. - e5 7. Rde2 Be7 8. Bg2 Rbd7 9. a4 bO 10. 0-0 Bb7 11. Itd5 Rxd5 12. exd5 b5 (Hér verður Browne illilega á i messunni. Þessum peösleik er ætlaö þaö hlutverk aö auka svigrúm svörtu mannanna á drottningarvængnum. Peöiö getur hinsvegar hæglega oröiö skotspónn hvitu mannanna eins og framhaldiö leiöir brátt I ljós. Betra var einfaldlega 12. - 0-0 þvi svartur viröist ekki þurfa aö óttast 13. c4 eins og R. Byrne stingur uppá I Informator vegna 13. - a5 sem blokkerar hvita peðameirhlutann á drottning- arvæng.) 13. Be3 0-0 14. axb5 axb5 15. Dd3 Ba6 16. 11 a3 Dc7 Umsjón: Helgi ólafsson. 17. Hfal Db7 18. b4 Rb6 19. Bxb6 (Riddarinn stefndi niöur á c4-reitinn og þvi varö hvitur aö láta af hendi sinn góða biskup.) 19. - Dxb6 20. Pe3 Db7 (20. - Dxe3 hefði leitt til peös- taps eftir 21. fxe3 Bb7 22. Hxa8 Bxa8 23. Rc3 Hb8 24. Ha5 O.S. frv. 1 21. Illa2 15 22. Dc3 f4 (Eini leikurinn, eftir 22. — Hfc8 kæmi tilgangur 21. leiks hvits I ljós: 23. Dal og svartur tapar manni. 23. Pc6 f:i 24. Bxf3 Hac8 25. Dxa6 Dxa6 26. Ilxa6 Hxf3 27. Ha8 28. Ilxc8 29. C3 30. Ha6 31. Hb6 Bf6 32. Hxd6 Bxc3 33. Hc6 Hxc6 34. idXC6 Be5 35.Itd4 (Hver einasti leikur hvits hef- ur hitt beint i mark og nú blður svarts gjörsamlega vonlaust endatafl. Lokin þarfnast ekki nánari skýringa.) 35,— Ke7 36. Rxb5 Bb2 37. Kfl Kd8 38. Ke2 Bcl 39. Kdl Bg5 40. Kc2 h 5 4l.Rd6 Be7 42. Rxe4 Bxb4 43. Kb3 Bel 44. Kc4 Kc7 45. Kd5 g6 46. h3 Bb4 47. f4 Bel 48. g4 hxg4 49. hxg4 Bb4 50. f5 gxf5 51. gxf5 Svartur gafst upp. Hff8 IIxc8 et Kf7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.