Þjóðviljinn - 11.06.1976, Qupperneq 2
2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. júní 1976.
Skrifið
eða
hringið.
Sími: 17500
Nú er sá timiárs þegar dytta þarf aft ýmsu, sem aflaga hefur fariö I umhleypingum liöins vetrar.
Keflavik
Frá aðalfundi Kaupfélags
Suðurnesja
Aðalfundur Kaupfélags
Suðurnesja var haldinn i félags-
heimilinu Festi i Grindavík 22.
mai, sl. Fundarstjórar voru þeir
Guðni Magnússon, Keflavik og
Svavar Árnason, Grindavik, en
fundarritarar Sigtryggur Árna-
son og Helgi Kristjánsson.
Formaður félagsstjórnar,
Sigfús Kristjánsson, flutti
skýrslu félagsstjórnar. Á árinu
var kaupfélagið Ingólfur i Sand-
gerði sameinað Kaupfélagi
Suðurnesja, sem tók þar með
við rekstri búðarinnar i Sand-
geröi. Rekur kaupfélagiö nú
verslun i Grindavik, Ytri-Njarð-
vik og Sandgerði, auk Kefla-
vikur. Á árinu tók tii starfa ný
markaðsverslun á vegum
félagsins, (sparkaup).
Gunnar Sveinsson,
kaupfélagsstjóri, flutti skýrslu
um rekstur félagsins. Heildar-
velta ársins nam kr.
906.844.373,-. Tekjuafgangur var
kr. 861.323,-. Afskriftir kr.
3.597.463,-. Af tekjuafgangi
félagsins var ráðstafað til eftir-
greindra aðila: Leikfélags
Grindavikur kr. 100.000 .
Björgunarsveitarinnar Sigur-
von i Sandgerði kr. 200 þús.
Starfsmannafélags kaup-
félagsins kr. 150 þús. Ung-
mennaféi. Þróttar á Vatns-
leysuströnd kr. 50 þús.
Úr stjórn félagsins átti að
HUGLEIÐING UM
STJÓRN SYR
Frá upphafi viröist svo, sem
yfirvöld Reykjavikur hafi rekiö
strætisvagnakerfiö fyrir aftan
rassinn á sér, ef svo má segja,
— meiri áhersla lögö á biiastæöi
fyrir hina „sjálfstæðu”
borgara, aðrir eru ekki fólk
nema aö litlu ieyti, og þá helst
um kosningar.
Ekki vantar forstjórann fyrir
þessari stofnun, en aldrei virðist
hann hafa komið auga á, að
þegar ný hverfi eru i byggingu,
þurfa þeir, sem verkin vinna, að
komast þangað. Þá fyrst þegar
fólkið er flutt inn i húsin, er farið
að hugsa. Afleiðingin af þessu er
sú, að þeir, sem það geta, kaupa
sér bila, margir af litlum eða
engum efnum, til þess að
komast á vinnustað, þvi það eru
aðeins stærstu verktakarnir,
sem hafa bolmagn til þess að
halda uppi þessari ferðaþjón-
ustu. Siðan endurnýja þessir
menn sina bila, hver eftir sinni
getu, og forstjórinn hefur engar
áhyggjur af of mörgum far-
þegum.
Nú upp á siðkastið virðist svo
sem ákveðin tilhneiging sé til
þess að leggja þessa þjónustu
við almenning niður með þvi að
sýna fram á að fjárhagslegur
grundvöllur sé ekki lengur fyrir
hendi fyrir þessari starfsemi.
Við hverjar hækkanir á far-
gjöidum, — sem ekki eru
skornar við nögl, — er eitthvað
dregið úr hinni svonefndu þjón-
ustu, en þó keyrir nú fyrst um
þverbak með svonefndri sumar-
áætlun 1976. Þar er t.d. miðhluti
timatöflunnar felldur úr gildi.
En ég ætla ekki að gera það að
umtalsefni heldur hitt, að á
þessum bleðli, sem manni er
réttur, upplýsist, að leið 8 og 9 er
breytt, algerlega að ástæðu-
lausu þvi að allir aðrir bilar aka
eftir sem áður Kringlumýrar-
braut — Miklubraut, án nokk-
urrar hindrunar. Nú aka vagn-
arnir suður Kringlumýrarbraut
á Bústaðaveg og öfugt. Þarna
eru engin hús, engir farþegar,
en á gömlu leiðinni: Kringlu-
mýrarbraut — Miklabraut —
Háaleitisbraut var alltaf tals-
vert af farþegum milli Háleitis-
hverfis og Hliðahverfis, þar á
meðal ungar mæður með börn á
handlegg á gæsluvöilinn við
Grænuhlið. Hér er þvi um
beinan kvikindishátt að ræða og
tap fyrir strætisvagnana. En
vera má, að forstjórinn hafi
öðru að sinna um þessar
mundir, sem er honum hug-
stæðara en þarfir almennings.
Það er nefnilega verið að inn-
rétta skrifstofu fyrir hann inni á
Kirkjusandi og þar er ekkert
skorið við nögl. Auðvitað er
sprenglærður „hönnuður”
látinn „hanna” verkið, verk-
lýsingin er stór og falleg bók, —
að utan, — en þegar til fram-
kvæmda kemur þarf ráðstefnur
til þess að finna leiðir svo að allt
falli ekki um sjálft sig, þegar
upp er komið. Allt verður að
vera hárnákvæmt upp á brot úr
millimetra og finslipað, svo ekki
þekkist eins gott eða betra i hús-
gagnaiðnaði. Siðan málað svart,
þótt harðviður sé. Heyrst hefur,
að þiljur á einn vegg hafi kostað
kr. 90 þús.
Hér verður örugglega ekki
halli á rekstrinum og vonandi
ruglast ekki reikningsfærslan
við þessa framkvæmd saman
við viðhalds-og reksturskostnað
vagnanna. Hinsvegar væri fróð-
legt fyrir farþega strætisvagn-
anna að fá vitnsekju um kostnað
veislunnar, þegar henni er
lokið.
Farþegi
Vorvaka á Akureyri
ganga Sigfús Kristjánsson,
Keflavik en var endurkjörinn.
Framkvæmdastjóri hrað-
frystihússins, Benedikt Jóns-
son, flutti skýrslu um rekstur
þess. Heildarvelta hússins var
kr. 407.160.700,-. Tap varð á
rekstrinum, kr. 18.442.917,-, er
færðar höfðu verið afskriftir, kr.
29.720.973,—
Gerðir voru út tveir bátar,
sem félagiö á, auk togarans
Aðalvikur. Auk þess keyptur
afli af 5 öðrum bátum Togarinn
aflaði mjög vel og var afli hans
uppistaðan i framleiðslu frysti-
hússins á árinu. Afkoma
togarans mátti heita allgóð o^
skilaði hann um 5 milj. kr. upp í
afskriftir.
mhg
— Hér á Akureyri ræður hið
norðlenska vor rikjum nú og i
samræmi við það efnum við
Akureyringar til sérstakra há-
tiðahalda, sem við köllum Vor-
vöku Akureyrar 1976, sagði
Steinar Þorsteinsson^ tannlækn-
ir, i viðtali við blaðiö. — Þetta er
einskonar listahátið hjá okkur,
þótt smærri sé i sniðum en sú,
sem yfir stendu i sjálfri Reykja-
vikinni.
Vorvakan okkar hófst hinn 7.
þ.m. og er ætlað að vara til þess
20. Hún fer að meiri hluta fram i
iþróttaskemmunni, sem hólfuö
var sundur og útb. að öðru leyti
til þess, að Vakan gæti verið þar
til húsa. Þar veröur myndlistar-
sýning opin alla dagana og
skiptist hún i þrjár deildir. I
fyrsta lagi grafiksýningu, þar
sem 12 listamenn, flestir inn-
lendir og ungir ab árum, sýna 44
myndir. 1 annari deildinni er
sýning á 67 myndum, sem eru i
eigu Akureyrarkaupstaðar og
eftir ýmsa listamenn. Loks er
svo deild, með 42 listaverkum
eftir akureyringana: Gisla Guð-
mann, Óla G. Jóhannsson, Aðal-
stein Vestmann og örn Inga.
Geta má þess, að myndirnar i
fyrstu og þriðju deildinni eru
allar til sölu.
Dagskrá Vökunnar er annars
mjög fjölbreytt og við það miðu-
að sem flestir geti sótt þangað
einhverja ánægju. Tónlistar-
skólinn hér skipuleggur tón-
listarflutninginn. Við opnunina
lék 16 manna strengjahljóm-
sveit Tónlistarskólans. Á mánu-
daginn voru tónleikar i Akur-
eyrarkirkju og þar fluttu orgel-
tónverk fjórir nemendur
skólans. 9. júli er það Tónsmiðj-
an, (Gunnar Waitari), Hinn 10.
koma fram i iþróttaskemmunni
60— 70 tónlistarmenn frá Akur-
eyri ásamt 4 gestum úr Reykja-
vik. 11. júni verða flaututónleik-
ar Michsalatriósins. 14. júni
heldur Arni Harðarson, fiðlu-
leikari úr Kópavogi tónleika. 15.
júni verður ljóðakvöld. Þá lesa
upp úr verkum sinum þeir Bragi
Sigurjónsson, Einar Kristj-
ánsson, Guðmundur Frimann,
Kristján frá Djúpalæk, Böðvar
Guðmundsson, Rósberg Snædal,
Heiörekur Guðmundsson, Anton
Friðþjófsson, Gisli Ingvarsson,
Jón Danielsson og örn Ingi, alls
11 skáld. Þá munu 8 færeyingar
flytja leikþætti og þjóðlög, að
verulegu leyti eftir Heinesen og
svo sýnir Inúk — leikflokkurinn
þann 20. Myndlistarsýningin er
opin alla virka daga frá kl. 18 -
22,30.
Að endingu skal þess getið, að
það er stjórn Menningarsjóðs
Akureyrar, sem fyrir Vökunni
stendur, en formaður stjórnar-
innar er Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri.
Og af þvi að við höfum nú ein-
göngu talað um listir þá má
bæta þvi við, að Alþýðuleikhús-
ið er nýkomið úr vel heppnaðri
leikför um landið. Hefur sýnt
Krummagull Böðvars Guð-
mundssonar 50 sinnum og mun
nú taka sér sumarfri fram i
ágústmánuð. —mhg