Þjóðviljinn - 11.06.1976, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. júní 1976.
UTBOÐ
Bæjarstjórinn á Eskifirði óskar eftir til-
boðum i að steypa 1. hæð grunnskóla Eski-
fjarðar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjarsjóðs Eskifjarðar og hjá verkfræði-
skrifstofunni Hönnun h.f., Höfðabakka 9,
Reykjavik gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá bæjarstjóranum á
Eskifirði þann 24. júni n.k. kl. 14.
Bæjarstjórinn á Eskifirði
F iskvinnsluskólinn
Umsóknarfrestur um skólavist er til 15.
júni. Inntökuskilyrði eru að nemandi hafi
staðist landspróf eða gagnfræðapróf.
Ljósrit af prófskirteini fylgi umsóknum,
sem sendist til Fiskvinnsluskólans,
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði.
Skólastjóri.
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast I holræsihreinsibúnað fyrir Vélamiðstöö
Reykjavikurborgar.
ÍJtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 13. júli, kl.
11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegl 3 — Sími 25800
Lausar stöður
Við menntaskölann á Isafirði eru lausar til umsóknar tvær
kennarastöður. Kennslugreinar eru islensk fræði og
náttúrufræði (liffræði, lifefnafræði, haf- og fiskifræði,
jarðfræði).
Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 6. júli n.k. — Umsóknar-
eyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 8. júni 1976.
Lausar stöður
hjúkrunarfræðinga
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga
eru lausar til umsóknar:
Heilsugæslustöð Hafnar i Hornafirði, nú
þegar.
Heilsugæslustöð Laugaráss i Biskups-
tungum, nú þegar.
Heilsugæslustöð Kópaskers frá 1. ágúst
1976.
Heilsugæslustöð Húsavikur frá 1. des.
1976.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Uppl. eru veittar i heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og i
viðkomandí heilsugæslustöðvum.
Umsóknir as.amt upplýsingun um
menntun og fyrri störf sendist ráðu-
neytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Verslunin hættir
Nú er tækifæriö aö gera góö kaup. Allar vörur seldar meö
miklum afslætti. AUt fallegar og góöar barnavörur.
Barnafataverslunin Rauðhetta
lönaöarhúsinu v/HalIveigarstig
Benny Goodman Borgar Garðarisson
Miðaldir, djass
og Suður-Afríka
Sem fyrr segir: í kvöld
koma grænlendingarnir í
MIK fram í annað sinn á
Kjarvalssföðum, fjórða
sýning er á Sögu dáfans í
Iðnó, Anneliese Rothen-
berger heldur sína tón-
leika.
Á morgun, laugardag, eru
ýmislega meiriháttar tiðindi á
ferð.
Á Kjarvalsstöðum heldur
franski tónlistarflokkurinn Ars
Antiqua sina fyrri tónleika.
Hann flytur miðaldatónlist og
leikur á hljóðfæri frá þeim tima.
En sú ánægjulega þróún hefur
viða verið að gerast i tónlistar-
lifi, að áhugasvið tónlistarunn-
enda hefur verið að stækka og
ná i auknum mæli út fyrir
nitjándu öldina, sem svo miklu
hefur ráöið til þessa, bæði til
okkar daga og siðan aftur i ald-
ir.
Á tveim
leiksviðum
1 kjallara bjóðleikhússins er
gestaleikur frá Lilla Teatern i
Helsinki. Sizwe Bansi er
dauður. Við höfum áður rakið
efni þessa leiks hér i blaðinu:
Hann segir, einatt á furðu
gamansaman hátt frá fárán-
leika og grjmmd kynþátta-
kúgunarkerfis Suður-Afriku, en
þar er leikurinn til orðinn i
samvinnu tveggja þeldökkra
leikara og hvits leikskálds.
Leikarar eru tveir: Borgar
Garðarson og Ronald Hedlund,
sem báðir hafa hiotið hina
bestu dóma fyrir frammistöðu
sina.
Uppi á stóra sviðinu verður að
verki brúðuieikhúsmaðurinn
Michael Meschke með sex
manna flokk frá Stokkhólmi.
Setja þeir á svið „Litla prins-
inn” eftir Saint-Exupery.
Meschke kemur með brúður,
leiktjöld, tónlist á böndum og
stjórnendur brúðanna, en is-
lenskir leikarar fara með text-
ann.
Meschke mun siðan lána leik-
húsinu brúðurnar og kenna með
ferð þeirra svo að hægt verði að
taka leikritið aftur upp til sýn-
inga i haust. Þar með gerist eitt
af þvi sem margir velunnarar
listahátiðar vilja helst sjá: að
hátiðin leiði tii jákvæðs sam-
starfs sem dragi vænan dilk á
eftir sér. (Sjá nánar annars-
staðar i blaðinu)
Liösmenn
sveif lunnar
1 fjórða lagi eru djasstón-
leikar miklir i Laugardalshöll,
þar er Benny Goodman mættur
með sina menn. Á trommum er
Connie Kay, sem um tuttugu
ára skeið lamdi fyrir Modern
Jazz Quartet. Peter Appleyard
leikur á vibrafón, en hann hefur
viða komið við, og þá mikið
einmitt með Benny Goodman.
Gene Bertoncini leikur á gitar,
hann hefur verið með sveiflu-
kóngi meira eða minna allar
götur siðan 1966. John Bunch
situr við pianóið — hann hefur
bæði stjórnað sinfóniuhljóm-
sveitum og spilað með Good-
man, Woody Herman, Buddy
Rich og fleiri. Michael Moore
spilar á bassa, en hann hefur
verið kallaður einhver snjallasti
djassisti sem fram hefur komið
á siðari árum. George „Buddy”
Tate leikur á saxófón — hann
hefur m.a. verið með Mary Lou
Williams og Count Basie.
Warren Vache heitir ungur og
mjög efnilegur trompetleikari
sem blæs með Benny.
Tónlist á Listahátíð:
-
Ogleymanleg stund
í Norræna húsinu
zAirv Ofe.
Michala-tríóið
Michala Petri: blokkflauta
David Petri: sello
Hanne Petri: sembal
Þegar minnst er á blokkflautu
dettur sennilega flestum i hug það
uppeldislega hlutverk sem þetta
hljóðfæri hefur, þ.e.a.s. að kenna
börnum að stauta nóturnar og
spila fyrstu lögin áður en framtið-
arhljóðfærið er valið. Fáir hugsa
blokkflautuna sem margslungið
hljóðfæri og enn færri gera sér
áreiðanlega i hugarlund þá risa-
vöxnu örðugleika sem það hefur i
för með sér að leggja blokkflautu-
leik fyrir sig sem atvinnu.
Michala Petri er aðeins 17 ára
gömul, og hefur myndað tríó
ásamt móður sinni Hanne Petri
sem leikur á sembal og bróður
sinum David Petri sellóleikara.
Þau fluttu saman verk fyrir
flautu og Michala Petri lék nokk-
ur einleiksverk. Efnisskrá þeirra
var aðallega barokktónlist en
einnig tvö nýrri verk. Það skiptir
greinilega engu máli frá hvaða
tima tónlistin er, Michala Petri
leikur allt af svo góðum þokka að
unun er á að hiýða. Hún yfirstigur
tækniiegar hindramr algjörlega
að þvi er virðist án örðugleika.og
þar kem ég ef til vill að kjarna
málsins, að Michala Petri hefur
náð þeirri miklu fullkomnun að
frá sjónarhóli hlustenda hljóma
jafnvel hinar erfiðustu strófur,
sem þurfa allt i senn nákvæmni
fingra, tungu, og öndunartækni
við, likt og fyrirhafnarlaust. Ekki
má gleyma hinum meðlimum
hópsins, David Petri sellóieikara
og Hanne Petri sem með mikilli
vandvirkni og einingu innramma
Michala Petri. Það er mikið
hljóðfæri blokkflautan.
þá mynd sem Michala Petri
málar af svo mikilli sannfæringu
Af einstökum verkum á efnis-
skránni fannst mér „Gesti” eftir
Luciano Berio einna athyglis-
verðast, þar sýndi flautuleikarinn
á sinn yfirlætislausa hátt nútima
tæknibrellur og opnaði augu okk-
ar hlustenda fyrir möguleikum
hljóðfærisins. Þegar ég lit yfir
efnisskrána hefði ég óneitanlega
kosið að meira væri af nútima-
músik, en vonandi fáum við aftur
seinna að heyra til listakonunnar
og þá meira af þeirri tegund tón-
listar, helst áður en langt um lið-
ur.
Sigursveinn Magnússon
KENNARAR
Við Alþýðuskólann á Eiðum eru lausar
kennarastöður. Kennslugreinar m.a.:
íslenska — stærðfræði — eðlis- og efna-
fræði.
Upplýsingar gefur skólastjórinn, Kristinn
Kristjánsson.
Frá Alþýðuskólanum
á Eiðum
Umsóknarfrestur um skólavist næsta vet-
ur er til 15. júni.
Skólastjórinn