Þjóðviljinn - 19.06.1976, Page 1

Þjóðviljinn - 19.06.1976, Page 1
Laugardagur 19. júni 1976—41. árg. —131. tbl. Á burðarverksmiðjan: Dagsbrúnarmenn felldu sanminga en verkalýðsfélögin á Akranesi og við Mývatn samþykktu Fyrir nokkru náðust samningar milli þeirra verkalúðsféiaga sem aðild eiga að rikisverksmiðj- unum, Aburðarverksmiðju rikis- ins, Sementsverksmiðju rfkisins og Kisiliðjunni við Mývatn. Þegar svo þessir samningar voru bornir undir atkvæði voru þeir feildir með 2ja atkvæða mun hjá verka- mönnum I Aburðarverksmiðj- unni, en f Sementsverksmiðjunni og i Kisiliðjunni voru þeir sam- þykktir. Hinsvegar á eftir að bera samningana undir atkvæði hjá iðnaðarmönnum i Aburðar- verksmiðjunni. Halldór Björnsson ritari Dagsbrúnar sagði að taka yrði samninga upp aftur, en hann taldi það ekki hægt fyrr en samning- arnir hefðu verið bornir undir at- kvæði hjá iðnaðarmönnum og útséð væri meö hvort þeir sam- þykktu þá eöa felldu. Það sem verkamenn við Aburðarverksmiðjuna eru óánægðastir með i þessum Framhald á bls. 14. Fléiri verðhækk- anir eftir helgi — stöðugt gengisfall helsta orsökin Nú orðið nota menn orðið „gengissig” i staðinn fyrir gengisfelling og jafnt og þétt sigur gengið og það orsakar vöru- hækkanir I stórum stfl. t siðustu viku hækkaði verð á kaffi um 24%, úr 720 kr. I 896 kr. kg og verð á smjörlfki hækkaði úr 258 kr f 312 kr. kg og ávaxtasafinn „Tropi- cana” hækkaði um 13%, 0,95 1. ferna fer úr 173 kr. f 196 kr og farmgjöld með skipum milli ianda hækka um 18%. Og við þetta munu svo bætast fleiri verðhækkanir eftir helgina, hækkanir sem verðlagsnefnd er búin að samþykkja og senda til rikisstjórnarinnar, en hún mun siðar afgreiða þær á fundi sinum eftir helgina, en umfjöllun hennar er aðeins formsatriði, hún hvorki dregur úr né fækkar verðhækk- unum. Verðbólgan heldur þvl áfram með leifturhraða sem ekkert er gert til að draga úr af hálfu stjórnvalda. Við spurðum Georg ölafsson verðlagsstjóra, hvaða verðhækk- anir það væru sem verðlagsnefnd hefði þegar samþykkt og sent til rikisstjórnarinnar, en hann sagðist ekki geta greint frá þvi af ótta við hamstur ef til þeirra vitn- aðist með fyrirvara. Þess má geta, að kaffihækkunin spurðist út fyrirfram frá ein- hverjum aðilum og margir kaup- menn birgöu sig upp með kaffi á gamla verðinu, sem siðan veröur selt á þvi nýja nú eftir hækkunina. —S.dór "W' \\\ \\\ w \ / K* ' \ ' ■ ■ V: } J- m ^ t * 1 ir M \ |» f 4 1 t V'k " l f | ■■ ■ , J Im rtn/i: /S - Ægileg skemmdarfýsn viröist ráða lögum og lofum i umgengni við útilistaverk, simaklefa og annað sem hafterá almannafæri til gagns eða skemmtunar og fróðleiks. Þessi ónáttúra hefur komið niður á listaverkum sem komið var fyrir á Lækjartorgi: átta listaverk hafa verið skemmd eða eyðilögð alveg. Þess vegna gripu myndlistarmenn til þess bragðs að fjarlægja myndirnar. Frá þvf er sagt á baksfðu blaðsins f dag. Þar er einnig viðtal viö garðyrkjustjórann i Reykjavik um skemmdarverk annars staðar. — Mynd eik. Þau sáðu í sárin á Grundartanga Siðdegis á Þjóðhátiðardaginn söfnuðust milli 50 og 60 borg- firðingar saman á athafnasvæði Járnblendifélagsins og Union Carbide á Grundartanga. A Þjóðhátið fannst þeim vel við hæfi að sá i þau sár sem skilin hafa verið eftir á tanganum til menja um umsvif bandariska auðhringsins Union Carbide hér á landi. Þetta var táknræn at- höfn og með henni vildu þeir sem að henni stóðu andmæla öllum frekari fyrirætlunum um stóriðju á þessum staö. A mynd- inni sést Halldór Brynjúlfsson við landgræðsluna á Grundar- tanga. SJÁ SÍÐU 6 0G 7 Kjarasamningar opinberra starfsmanna: Tekist hafa samn- ingarvið fáeinfélög Þjóðviljinn hafði i gær sam- band við Höskuld Jónsson i fjár- málaráðuneytinu og spurði hvernig samningaviðræður rikis- ins og einstakra félaga gengi en skv. lögum verða þeir samningar að hafa tekist 1. júli ellegar sett i gerð. Hér er um að ræða milli 30 og 40 félög, og sagði Höskuldur að mannfæð i ráöuneytinu seinkaði samningaviðræðum, Þó hefðu þegar tekist samningar i nokkrum tilvikum. Þau félög sem þegar hafa samið eru Félag menntaskóla- kennara vegna kennara I menntaskólum og fjölbrautar- skólum, Samband framhalds- skólakennara vegna kennara i framhaldsskólum þ.e. iðn- skólunum, húsmæðraskólunum, vélskóla, stýrimannaskóla o.s.frv. og Félag háskóla- menntaðra kennara vegna þeirra sem kenna i þessum sömu skólum. Við vonumst til að geta gengið frá samningum við Landsam- band framhaldsskólakennara og Félag háskólamenntaöra kennara i dag vegna þeirra sem kenna i gagnfræðaskólum eða 6.-10. bekk grunnskóla, sagði Höskuldur. Við höfum verið á löngum og ströngum fundum með Félagi isl. barnakennara en það horfir ekki i samkomulagsátt þar. Auk þess höfum við samið við Prestafélag Islands, Læknafélag íslands og við Fél. isl. fræða. Núna standa yfir samingafundir með sjúkraþjálfum. Flest þessara mála eru jafn- framt i flutningi ýmist fyrir kjaradómi eða kjaranefnd þ.e.a.s. þar sem ekki hafa þegar tekist samningar. Auk þessa er að losna úr deilum viö starfsmenn jarðborana rikisins sem heyra ekki undir opinbera starfsmenn svokallaöa en eru engu að sfður i vinnu hjá rikinu. Þeir eru félagar i Dagsbrún eða Verkamanna- sambandinu. Þar hefur verið um allerfiða deilu að ræða. Sömu- leiðis voru gerðir samningar við starfsfólk rikisverksmiöjanna. — Ósamið er við stærsta félag opinberra starfsmanna, Starfs- mannafélag rikisstofnana. —GFr. Þjóðhátiðin fór vel fram um allt land i besta veðri. í Reykjavik fór hátiðin fram með hefðbundnum hætti: for- seti lagöi blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðs- sonar og forsætisráðherra flutti ræðu á Austurvelli. Sið- degis og um kvöldið voru úti- skemmtanir. Börnin voru fjöl- menn i hátiðahöldunum og margur maðurinn naut þess að vera smávaxinn og fékk að sitja á heröum einhvers full- orðins til þess að sjá skemmti- atriðin. Myndina tók eik i Kópavogi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.